Morgunblaðið - 26.08.2001, Blaðsíða 20
20 C SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VINNUVÉLAR
Notuð skæralyfta til sölu
Til sölu Skyjack SJ-1011 árg. 1990. Vinnuhæð
13,5 m, stór vinnupallur, læst drif, Deutz dísel-
vél, nýuppgerð. Gott verð ef samið er strax.
Nýtt Framtak ehf.,
sími 511 1022, gsm 897 4107.
Styrktar- og minningarsjóður
Þorbjargar Björnsdóttur
Stjórn styrktar- og minningarsjóðs Þorbjargar
Björnsdóttur hefur ákveðið að veita styrk úr
sjóðnum fyrir árið 2001.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja gigtsjúka, eink-
um unga gigtarsjúklinga.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Gigtarfélags Íslands, Ármúla 5, 108 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 10. september nk.
Áformað er að styrkveiting fari fram um miðjan
október 2001.
Gigtarfélag Íslands.
S M Á A U G L Ý S I N G A RI
DULSPEKI
Miðlun frá andlegum leiðbein-
endum og verndarenglum
Hvað vilja þínir
segja þér?
Fer fram á ensku.
Heilun og ráðgjöf.
Gitte Lassen,
sími 861 3174.
Sálarrannsókna-
félag Suðurnesja
Skyggnilýsingarfundur
Skúli Lórensson, miðill, verður
með skyggnilýsingarfund í húsi
félagsins, Víkurbraut 13, í Kefla-
vík, fimmtudaginn 30. ágúst
kl. 20.30. Húsið verður opnað
kl. 20.00. Allir velkomnir.
Stjórnin.
TILKYNNINGAR
Frá Sálarrannsóknar-
félagi Íslands
Stofnað 1918,
Garðastræti 8,
Gönguferð SRFÍ
Mánudaginn 27. ágúst verður
farið í létta gönguferð með hug-
leiðslu, leiðsögn annast Frið-
björg Óskarsdóttir. Mæting á
bakvið Olís, Langatanga, Mos-
fellsbæ, kl. 20.00.
Allir velkomnir. Verð kr. 300.
SRFÍ.
Sálarrannsóknarfélag Íslands
stofnað 1918,
Garðastræti 8,
Reykjavík
Miðlarnir og huglækn-
arnir Birgitta Hreiðarsdóttir,
Bjarni Kristjánsson, Guðrún
Hjörleifsdóttir, Hafsteinn Guð-
björnsson, Kristín Karlsdóttir,
Rósa Ólafsdóttir, Skúli Lór-
enzson og Þórunn Maggý
Guðmundsdóttir starfa hjá fé-
laginu og bjóða upp á einkatíma.
Einnig starfar Amy Engilberts
dulspekingur hjá félaginu og
býður upp á einkatíma. Frið-
björg Óskarsdóttir heldur
utan um mannræktar-, þróunar-
og bænahringi.
Upplýsingar og bókanir eru í s.
551 8130 alla virka daga frá kl.
9.00—15.00. Einnig er hægt að
senda fax, 561 8130 eða tölvu-
póst, srfi@isholf.is .
SRFI.
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Lára Halla Snæfells,
Þórhallur Guðmundsson, Bíbí
Ólafsdóttir, Erla Alexand-
ersdóttir, Margrét Haf-
steinsdóttir, Garðar Björg-
vinsson michael-miðill og
Ólafur Hraundal Thorarensen
starfa hjá félaginu og bjóða fél-
agsmönnum og öðrum uppá
einkatíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—18.
Utan þess tíma er einnig hægt
að skilja eftir skilaboð á sím-
svara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
KENNSLA
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í dag kl. 14.00.
Samkoma kl. 20.00.
Mikil lofgjörð og fyrirbænir.
Edda M. Swan predikar.
Allir velkomnir.
www.kristur.is
Mánudaginn 27. ágúst kl. 20
verður Marita-samkoma í Þrí-
búðum. Ræðurmaður: Valdi-
mar Júlíusson.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is .
Sunnud.: Samkoma kl. 16.30.
Þriðjud.: Samkoma kl. 20.30.
Miðvikud.: Bænastund kl. 20.30.
Fimmtud.: Unglingarnir kl. 20.00.
Laugard.: Samkoma kl. 20.30.
Aðalstöðvar KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
Í dag kl. 17.00 er fagnaðar- og
kveðjusamkoma fyrir Helga
Hróbjartsson kristniboða.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.kfum.is .
Í kvöld kl. 20.00
Hjálpræðissamkoma í Her-
kastalanum, Kirkjustræti 2.
Kafteinn Ragnheiður Jóna
Ármannsdóttir talar.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 20.00.
Ræðum. Vörður L. Traustason,
forstöðumaður.
Allir hjartanlega velkomnir.
Mið.: Grunnfræðsla kl. 20.00.
Kennsla á ensku á sama tíma.
Fös.: Unglingasamkoma
kl. 20.30.
Lau.: Bænastund kl. 20.00.
Bænastundir alla virka morgna
kl. 6.00. www.gospel.is
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Bænastund kl. 20:00
Allir hvattir til að mæta og biðja
fyrir vetrarstarfinu.
Mánudag kl. 18:30 Fjölskyldu-
bænastund, samfélag á eftir. All-
ir taki með sér mat á hlaðborð.
„Drottni heyrir jörðin og allt sem
á henni er, heimurinn og þeir
sem í honum búa.“
26. ágúst sunnudagur Göngu-
dagur SPRON og F.Í. Tvær ferðir
fyrri ferð Reykjadalur - Súlnafell
- Krókur Um 4-6 tíma ganga. Far-
astjóri Hjalti Kristgeirsson. Brott-
för kl 10:30 frá BSÍ með viðkomu
í Mörkinni 6. Í seinni ferðinni
verður gengið um Þingvelli í
samvinnu við þjóðgarðsvörð
þar. Um 3 klst ganga. Brottför kl
13:00 frá BSÍ með viðkomu í
Mörkinni 6. Ekkert fargjald. Þjóð-
legar veitingar í lok beggja ferða.
Ath. Tilboð til nýrra félaga uppl.
á skrifstofu.
Munið landverndarsjóð F.Í.
Kriya joga
Fyrirlestur um Kriya jóga hug-
leiðslu verður haldinn 31. ágúst í
Bolholti 4, 4. hæð kl. 20.
Þeir, sem hafa áhuga, eiga kost á
að taka innvígslu og læra Kriya
jóga næstu 4 daga.
Þeir, sem hafa tekið vígslu áður,
eru velkomnir í hugleiðslutímana
sem byrja lau. 1. sept. kl. 9.30.
Nánari upplýsingar í símum
483 1660, 699 6341 og 552 3117.
Píanókennsla
Kenni á píanó, börnum og
fullorðnum.
Tónfræðikennsla innifalin.
Einnig sértímar í tónfræði.
Guðrún Birna Hannesdóttir,
Bólstaðarhlíð 50,
sími 588 3277, gsm 847 0149.
ATVINNA
mbl.is
Listmunir
Erum að taka á móti verkum á næsta listmuna-
uppboð sem haldið verður í september. Fyrir
viðskiptavini leitum við að góðum verkum
gömlu meistaranna.
Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 14—16,
sími 551 0400.
ALLT áhugafólk er velkomið á fyr-
irlestra í boði Háskóla Íslands. Ítar-
legri upplýsingar er að finna á heima-
síðu Háskólans á slóðinni: http:
//www.hi.is/stjorn/sam/dagbok.html
Vísindavefurinn
Vísindavefurinn býður gestum að
spyrja um hvaðeina sem ætla má að
vísinda- og fræðimenn Háskólans og
stofnana hans geti svarað eða fundið
svör við. Leita má svara við spurn-
ingum um öll vísindi, hverju nafni
sem þau nefnast. Kennarar, sérfræð-
ingar og nemendur í framhaldsnámi
sjá um að leysa gáturnar í máli og
myndum. Slóðin er: http://www.vis-
indavefur.hi.is
Þjóð eða óþjóð?
Þriðjudaginn 28. ágúst kl. 12:05 –
13:00 mun Matthías Johannessen rit-
höfundur ríða á vaðið í hádegisfyr-
irlestrum Sagnfræðingafélags Ís-
lands og flytja erindi er hann nefnir:
Þjóð eða óþjóð? Hádegisfyrirlestr-
arnir fara fram í Norræna húsinu.
Varmaeiginleikar segulmagn-
aðra nifteindastjarna
Þriðjudaginn 28. ágúst kl. 16:15
mun Óskar Halldórsson Holm fjalla
um meistaraprófsverkefni sitt við eðl-
isfræðiskor raunvísindadeildar HÍ.
Fyrirlesturinn nefnist Varmaeigin-
leikar segulmagnaðra nifteinda-
stjarna verður haldinn í stofu 158 í
VR-II, húsi verkfræði- og raunvís-
indadeildar Háskóla Íslands við
Hjarðarhaga. Hann er öllum opinn.
Gestafyrirlesari hjá Íslenska
málfræðifélaginu
Miðvikudaginn 29. ágúst kl. 16:15
flytur Edmund Gussmann fyrirlestur
í boði Íslenska málfræðifélagsins í
stofu 422 í Árnagarði. Nefnist hann A
Double Agent in the Phonology of
Modern Icelandic. Gussmann er pró-
fessor í almennum og keltneskum
málvísindum við háskólann í Gdansk.
Hann hefur fengist við hljóðkerfis-
fræði, orðhlutafræði og málbreyting-
ar og fjallað um ýmis tungumál, þ. á
m. ensku, íslensku, pólsku og írsku.
Nýjasta bók hans, Phonology: Ana-
lysis and Theory, verður gefin út af
Cambridge University Press í haust.
Umhverfi lagna í húsum
Miðvikudaginn 29. ágúst nk. kl.
16:15 heldur Sonja Richter fyrirlest-
ur um verkefni sitt til meistaraprófs í
véla- og iðnaðarverkfræði. Verkefnið
heitir Umhverfi lagna í húsum – út-
reikningar á varmatapi. Það fjallar
um vatns- og hitalagnir í húsum og
varmatap frá þeim. Fyrirlesturinn
verður fluttur í stofu 158 í VR2 við
Hjarðarhaga 2–6 og eru allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Atferlismeðferð fyrir einhverfa
Fimmtudaginn 30. ágúst kl. 18:00
mun dr. Ivar Lovaas, sálfræðingur
sem í 40 ár hefur þróað atferlismeð-
ferð fyrir fólk með einhverfu halda
erindi í Odda, stofu 101. Erindið er
haldið á vegum sálfræðiskorar Há-
skóla Íslands og eru allir velkomnir.
Námskeið Endurmenntunarstofn-
unar HÍ.
AMPS-matstæki fyrir iðjuþjálfa
Umsjón: Berglind Bára Bjarna-
dóttir og Kristín Einarsdóttir iðju-
þjálfar. Kennarar: Iðjuþjálfarnir
Anne Fisher, prófessor við Háskól-
ann í Colorado og Eva Veahrnes yf-
iriðjuþjálfi Dianelund, Danmörku –
Center for hjerneskadede, auk að-
stoðarkennara. Kennt verður á
ensku. Tími: 27.–31. ágúst kl. 8:30–
17:30.
Microsoft.NET (fullt)
Kennari: David S. Platt en hann er
stundakennari við Harvard-háskóla
og rekur eigið ráðgjafa- og kennslu-
fyrirtæki (Rolling Thunder Comput-
ing). Tími: 27.–30. ágúst kl. 8–17.
Sýningar
Árnastofnun
Stofnun Árna Magnússonar, Árna-
garði við Suðurgötu.
Handritasýning er opin kl. 14–16
þriðjudaga til föstudaga, 1. sept. til
15. maí og kl. 11–16 mánudaga til
laugardaga, 1. júní til 25. ágúst.
Þjóðarbókhlaða
Sýningar í Þjóðarbókhlöðu:
15. júní–22. september Stefnumót
við íslenska sagnahefð. Sýning í and-
dyri Þjóðarbókhlöðu.
25. júní–15. september Brúður Sig-
ríðar Kjaran. Þjóðminjasafn Íslands
efnir til sýningar á brúðum Sigríðar
Kjaran í forsal þjóðdeildar í Þjóðar-
bókhlöðu.
1. ágúst–1. september Fellingar.
Sýning í Kvennasögusafni og anddyri
Þjóðarbókhlöðu á verkum Magneu
Ásmundsdóttur.
Orðabankar og gagnasöfn
Öllum er heimill aðgangur að eft-
irtöldum orðabönkum og gagnasöfn-
um á vegum Háskóla Íslands og
stofnana hans.
Íslensk málstöð. Orðabanki. Hefur
að geyma fjölmörg orðasöfn í sér-
greinum: http://www.ismal.hi.is/ob/
Landsbókasafn Íslands – Háskóla-
bókasafn. Gegnir og Greinir. http://
www.bok.hi.is/gegnir.html
Orðabók Háskólans. Ritmálsskrá:
http://www.lexis.hi.is/
Rannsóknagagnasafn Íslands.
Hægt að líta á rannsóknarverkefni og
niðurstöður rannsókna- og þróunar-
starfs: http://www.ris.is
BÁÐUM hjúkrunarfræðideildum
landsins, við Háskólann á Akureyri
og við Háskóla Íslands, er hrósað
fyrir mikilvægt framlag sitt til
heilsuverndar og hjúkrunarfræði-
starfs í heildarúttekt sem fram fór
á hjúkrunarfræðimenntun í land-
inu. Úttektin var gerð á vegum
menntamálaráðuneytisins og liggja
niðurstöður nú fyrir á vefriti ráðu-
neytisins.
Þetta er fyrsta úttektin sem
byggir á reglum um gæðaeftirlit
með háskólakennslu sem settar
voru í maí 1999 og náði úttektin til
BS-gráðu í hjúkrunarfræði og
framhaldsnáms til meistaragráðu
við Háskólann á Akureyri og við
Háskóla Íslands. Lagt var mat á
almennt nám, fjarnám og starfs-
þjálfun eftir því sem við á í hvorum
skóla. Framkvæmd úttektarinnar
var í höndum ytri matshóps sem
skipaður var af menntamálaráð-
herra og heimsótti hópurinn há-
skólana og skrifaði skýrslu um mat
sitt á náminu sem þeir byggðu á
sjálfsmatsskýrslum hjúkrunar-
fræðideildanna og niðurstöðum
heimsókna.
Í skýrslunni er báðum hjúkrun-
arfræðideildunum hrósað fyrir
mikilvægt framlag sitt til hjúkr-
unarfræðistarfs á Íslandi og eru
þær taldar bæta hvor aðra upp,
þar sem Háskólinn á Akureyri
miði að því að mennta almenna
hjúkrunarfræðinga sem séu tilbún-
ir til starfa í dreifbýli og Háskóli
Íslands sérhæfða hjúkrunarfræð-
inga sem starfi á höfuðborgar-
svæðinu. Háskólinn á Akureyri
leggi áherslu á verklegt nám en
Háskóli Íslands leggi áherslu á
rannsóknir. Jafnframt er bent á að
deildirnar geti með auknu sam-
starfi lagt meira til heilsugæslu í
þjóðfélaginu.
Starfshópurinn telur að auka
þurfi notkun nútímatækni við
kennslu hjúkrunarfræði og til að
auka námsframboð og námsefni,
einnig eru deildirnar hvattar til að
kynna fræðistörf sín og rannsóknir
meira en nú sé, svo fátt eitt sé
nefnt. Eins og fyrr segir er hjúkr-
unarfræðideild Háskólans á Akur-
eyri sérstaklega hrósað fyrir fram-
lag hennar til hjúkrunar á
landsbyggðinni en hjúkrunarfræði-
deild Háskóla Íslands er hrósað
sérstaklega fyrir fræðistörf og
rannsóknir sem nýtast allri fræði-
greininni.
Heildarúttekt á hjúkrunar-
fræðimenntun í landinu
Mikilvægt framlag
til heilsuverndar
INNLENT