Morgunblaðið - 07.09.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.09.2001, Blaðsíða 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í KJÖLFAR mikilla erfiðleika und- anfarinna mánuða á íslenska hluta- bréfamarkaðnum, eru menn að vakna upp við vondan draum. Á undanförn- um árum hafa forráðamenn almenn- ingshlutafélaga ekki sinnt nægilega einni frumskyldu sinni, að upplýsa fjárfesta, almenning og fjölmiðla um starfsemi, rekstur, framtíðarhorfur og afkomu viðkomandi fyrirtækis. Það hefur leitt til þess að almenning- ur, sem er virkur fjárfestir á hluta- bréfamarkaði, getur illa áttað sig á því hvort um góðan eða slakan fjár- festingarkost sé að ræða. Jafnframt rýrir það tiltrú fjölmiðla á fréttum og upplýsingum sem slík fyrirtæki senda frá sér. Því miður hafa sumir forráðamenn almenningshlutafélaga, sérstaklega þeirra sem hvað hraðast hafa vaxið, stundað of mikið það sem kalla mætti poppuð almannatengsl (PR). Mikið hefur verið um flugeldasýningar og ljósadýrð í fjölmiðla- og kynningar- málum en minna borið á raunhæfu og haldgóðu innihaldi upplýsinga. Ég hef í mínu starfi, sem ráðgjafi í kynningar- og almannatengslum, reynt að benda ýmsum forráðamönn- um almenningshlutafélaga á að það sé forgangsverkefni þeirra að vinna skipulega að því að fræða og mennta hinn almenna fjárfesti um kosti og galla þess að fjárfesta í hlutabréfum. Stjórnendum ber einfaldlega skylda til að mennta almenning á þessu sviði. Þeim ber líka að útskýra að þótt bréf hækki mikið á uppgangs- og þenslutímum, kemur alltaf að niður- sveiflum og verðfalli hlutabréfa, rétt eins og nú hefur gerst. Hef ég því miður allt of oft talað fyrir daufum eyrum. Hlutabréfamarkaðurinn er rétt eins og íslenskt veð- urfar. Það gengur á með skini og skúrum; svo ein- falt er það nú. Trúnaður og traust er verðmæt eign Morgunblaðið skrifaði nýverið afar athyglis- verðan leiðara um „Upp- lýsingagjöf á hlutabréfa- markaði“ og gagnrýnir þar m.a. slaka upplýs- ingagjöf fyrirtækja. Í nið- urlagi leiðarans segir: „Það fer eftir aðgangi hluthafa og fjárfesta að upplýsingum, hvort hlutabréfamarkaðurinn hér geti talist til þeirra sem eru til fyrirmyndar eða hinna, þar sem lög- mál frumskógarins ríkir enn. Við Ís- lendingar eigum að líta á það sem metnaðarmál að teljast í hópi hinna fyrrnefndu en við höfum ekki náð því marki enn.“ Óli Björn Kárason, rit- stjóri DV, segir í leiðara um „Erfið- leika á hlutabréfamarkaði“ 27. ágúst sl: „Gríðarlega mikilvægt er að trún- aður og traust ríki í viðskiptum á hlutabréfamarkaði. Upplýsingagjöf skiptir hér miklu en miklu skiptir hvernig stjórnendur fyrirtækja bregðast við þegar illa gengur.“ Snillingar á uppleið Við höfum upplifað það að einstakir stjórnendur fyrir- tækja leggja mikið kapp á að koma ágæti síns fyrirtækis á fram- færi opinberlega þeg- ar vel árar, en annað hljóð kemur oft í strokkinn þegar á brattann er að sækja. Það merkilega er að þá kannast sumir þeirra ekkert við að þeir beri nokkra ábyrgð á því hvernig komið er fyrir fyrir- tækinu. Í nýlegri umfjöllun í Business Week, sem heitir „America’s Future: The Boom - The Bust“ er m.a. fjallað um erfitt ástand þar í landi í kjölfar samdráttar efnahagslífsins eins og viðskiptahrunsins í Silicon-dal. Þar segir Thomas M. Siebel, forstjóri Sie- bel Systems, sem er eitt fárra tækni- fyrirtækja sem sloppið hafa við áfall- ið: „Hver sem er getur litið út sem snillingur í uppganginum.“ Sú lýsing gæti jafnvel átt við aðstæður sumra fyrirtækja hér á landi. Að standa vörð um ímyndina Oft virðist sem stjórnendur fyrir- tækja átti sig ekki á því að heiti og/eða vörumerki fyrirtækis er ein verðmæt- asta og um leið viðkvæmasta eign þess. Á undanförnum vikum höfum við séð dæmi þess hvernig ímynd og ásjóna almenningshlutafélaga hefur veikst í augum almennings. Nefna má t.d. átök í stjórn Lyfja- verslunar Íslands. Þátttakendur hefðu mátt ígrunda í upphafi hvort deilurnar myndu veikja ímynd og ásjónu fyrirtæksins, rýra verðgildi hlutabréfa og minnka tiltrú almenn- ings á fyrirtækinu. Lyfjafyrirtæki eru afskaplega viðkvæm fyrir áföllum, vegna þess að almenningur verður að treysta því að lyfin frá þeim séu traustsins verð. Öll ókyrrð skapar óvissu. Nýverið höfum við séð skelfi- legar hremmingar Meyer-lyfjarisans. Fyrirtækið neyddist til að innkalla hættuleg hjartalyf og hafa fréttir af óförunum verulega rýrt traust fjár- festa, almennings og fjölmiðla á fyr- irtækinu. Þegar Lou Gerstner tók við risa- fyrirtækinu IBM sem forstjóri þess á miklum erfiðleikatímum, sagði hann: „Það er margt sem verður að lagfæra, en það sem er mest áríðandi er að varðveita vörumerkið IBM.“ Tiltrú er lykilorð Erfiðleikar Íslandssíma vegna hlutafjárútboðs hafa á sama hátt skaðað ímynd og ásjónu fyrirtækis- ins. Það mun taka tíma að bæta ímyndartjónið sem hlaust af vanda- málinu. Símafyrirtækið, sem veitir Landsímanum verðugt aðhald í sam- keppnismálum, verður nú að vinna sig skipulega út úr áfallinu með fag- legum vinnubrögðum í upplýsinga- og kynningarmálum. Almenningur, sem fjárfestir í al- menningshlutafélögum, er afar við- kvæmur fyrir skakkaföllum af þessu tagi. Öll ókyrrð í þessum efnum rýrir álit og traust. Þess vegna þarf að um- gangast litlu fjárfestana af nærgætni og vinna skipulega að því að miðla traustum upplýsingum til þeirra. Al- menningur sem leggur einhvern hluta af sparifé sínu í hlutabréf verð- ur að geta treyst því að hann sé að gera rétt. Tiltrú er lykilorð í sam- skiptum á hlutabréfamarkaði. Orðspor á við tvær ársveltur Það tekur áratugi að byggja upp sterka ímynd, en aðeins fáeinar klukkustundir að rústa hana. Þetta ættu stjórnendur almenningshluta- félaga og fyrirtækja að vera sér með- vitaðir um. Langt er enn í land í þess- um efnum. Áður hef ég bent á, í greinarskrifum um kynningarmál, að hin öfluga franska verslunarkeðja, Standa, metur orðspor sitt (persona- lity + image + identity = reputation) á bilinu eina til tvær ársveltur. Alltof fáir stjórnendur íslenskra fyrirtækja hafa velt orðspori fyrirtækisins fyrir sér með þessum hætti, þótt full þörf sé á því. Mörg bandarísk fyrirtæki eins og Coca Cola og Microsoft meta verðmæti vörumerkisins til eigna. Viðhorfskannanir meðal stjórn- enda evrópskra almenningshluta- félaga sýna fram á að þeir telji að tengsl séu á milli góðs álits og arð- semi. Sérstaklega eru stjórnendur þjónustufyrirtækja á þessari skoðun, enda þekkja þeir mikilvægi þess að viðhalda og styrkja ímynd fyrirtæk- isins. Vettlingatök duga ekki Það er deginum ljósara að tími er kominn til þess að stjórnendur stærri fyrirtækja taki upp faglegri vinnu- brögð í kynningar- og upplýsingamál- um. Stjórnendur verða að skilja það að upplýsinga- og kynningarmál eru eitt helsta forgangsverkefni góðs stjórn- anda, sem ætlar sér að auka verð- mæti fyrirtækisins. Því miður erum við þó nokkuð á eftir öðrum vestræn- um ríkjum, þ.m.t. Norðurlöndunum, á þessu sviði. Brýnt er að forráðamenn fyrirtækja á hlutabréfamarkaði snúi nú vörn í sókn á vettvangi upplýsinga- og kynningarmála. Markviss almannatengsl eru forgangsverkefni stjórnenda Jón Hákon Magnússon Höfundur hefur um árabil verið ráð- gjafi hjá Kynningu og markaði – KOM ehf. – í kynningarmálum og almannatengslum. jonhakon@kom.is. Mikið hefur verið um flugeldasýningar í kynningarmálum fyrirtækja, skrifar Jón Hákon Magnússon. Á AÐALFUNDI Baugs hf. í mars síðastliðnum var samþykkt tillaga um breytingu á samþykktum félagsins og bætist við ný grein, svohljóðandi: „Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að 500.000.000 kr. – fimm hundruð miljónir króna – að nafn- verði. Hluthafar skulu ekki hafa forgangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum. Hinir nýju hlutir skulu vera í sama flokki og með sömu réttindi og aðrir hlutir í félag- inu. Þeir skulu veita réttindi í félag- inu frá skráningardegi hlutafjár- hækkunarinnar. Stjórn félagsins er heimilt að nýta hlutafjárhækkunina sem endurgjald fyrir hluti í félögum með skylda starfsemi. Framan- greind heimild stjórnar félagsins fellur niður 26. mars 2002 að því marki sem hún er þá enn ónotuð.“ Í fundargerð aðalfundar segir: „Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, fylgdi tillögunni úr hlaði og skýrði hana. Fjallaði hann ítarlega um breska verslunarfyrirtækið Arcadia og möguleika Baugs á því að eignast 20% hlut í fyrirtækinu í gegnum þátttöku sína í félaginu A- Holding. Greindi hann frá umsvif- um Arcadia og helstu kennitölum úr rekstri þess og eignarhaldi í félaginu ef Baugur eignaðist 20% hlut í því. Benti hann á að þessi kaup mundu styrkja efnahag Baugs verulega þar sem kaupverð væri mun lægra en bókfært verð. Í ljósi þessa væri framangreind tillaga stjórnar Baugs, um heimild sér til handa að hækka hlutafé félagsins um allt að 500 milljónir króna að nafnverði, fram borin. Enginn annar kvaddi sér hljóðs til þess að ræða um tillöguna. Til- lagan var samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum.“ Hlutafé Baugs var hækkað um 463,3 milljónir króna að nafnverði vegna kaupanna á A-Holding. Jakob R. Möller hrl. segir um að ræða hefðbundna aðferð sem notuð er þegar eigið hlutafé er notað til að kaupa hlut í öðru félagi. Það þarf að taka fram að hluthafar fá ekki for- kaupsrétt og það er gert í sam- þykkt Baugs. „Það er greinilegt af samþykkt aðalfundarins að enginn annar hluthafi hefur gert athuga- semd við þetta og þá enginn annar hluthafi talið að með þessu væri verið að hygla einhverjum tiltekn- um hluthöfum. Þeir hafa ekki talið ástæðu til að gera athugasemd við tillöguna, þannig að þeir hafa ekki talið að 95. gr. hlutafélagalaga ætti við, þ.e. að hluthafafundur megi ekki taka ákvörðun sem bersýni- lega er fallin til þess að afla ákveðn- um hluthöfum eða öðrum ótilhlýði- legra hagsmuna á kostnað annarra hluthafa eða félagsins. Viðskipti á milli tengdra aðila eru ekki bönnuð. Það sem er bannað er að viðskiptin séu þannig að einhverjir aðrir en þeir sem eiga að hagnast hagnist.“ Á aðalfundi Baugs í vor var mælt fyrir 75,94% hlutafjár. Jakob segir umsögn Hreins Loftssonar, stjórn- arformanns Baugs, í Morgun- blaðinu í fyrradag, standast full- komlega. „Miðað við samþykktina og frásögn forstjóra Baugs á fund- inum er þetta allt venjulegur og eðlilegur viðskiptamáti.“ Að sögn Jakobs er nauðsynlegt að í tillögu um að hækka hlutafé félags komi fram tilgangurinn með því og í sam- þykkt Baugs komi hann fram, þ.e. að stjórninni er heimilt að nýta hlutafjárhækkunina sem endur- gjald fyrir hluti í félögum með skylda starfsemi. Nánari skilgrein- ing er ekki nauðsynleg, að sögn Jakobs. Ekki tekin formleg afstaða til verðmats Áslaug Björgvinsdóttir, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, segir að félagsfundur hafi verið með- mæltur kaupunum á A-Holding. „Á fundinum virðist þó ekki hafa verið tekin formleg afstaða til verðmats á félaginu enda var það væntanlega verkefni félagsstjórnar. Stjórninni var á fundinum veitt almenn heim- ild til að hækka hlutafé til að nýta það sem endurgjald fyrir hluti í félögum með skylda starfsemi.“ Í þessu sambandi bendir Áslaug á 37., sbr. 6–8. grein hlutafélagalaga og segir að þar sem svo virðist sem seljendur hlutanna í A-Holding hafi afhent þá sem greiðslu fyrir nýtt hlutafé í Baugi megi gera ráð fyrir að unnin hafi verið sérfræðiskýrsla þar sem fram kemur óháð sérfræði- mat á verðmætum þeirra eigna sem félagið fær sem greiðslu fyrir hluta- bréf í Baugi. Að sögn Áslaugar þarf alltaf að láta vinna slíka sérfræði- skýrslu ef greitt er fyrir nýja hluti með öðru en reiðufé. Áslaug bendir auk þess á að skv. 82. gr. hlutafélagalaga gildi væg- ari vanhæfisreglur um þessa aðila, sem tengjast báðum félögum, þegar þeir taka afstöðu til mála á hlut- hafafundi, heldur en sem stjórnar- menn, sbr. 72. gr. hlutafélagalaga. Aðili í stjórn Baugs sem einnig tengist Gaumi má ekki greiða at- kvæði á stjórnarfundum um samn- inga við Gaum en honum er frjálst að greiða atkvæði á hluthafafundi. Hlutafjáraukning Baugs um 500 milljónir samþykkt á aðalfundi í mars Hefðbundin aðferð við kaup Morgunblaðið/Árni Sæberg Top Shop er eitt af vörumerkjum Arcadia Group sem er í 20% eigu Baugs. HLUTHAFAFUNDUR Trygginga- miðstöðvarinnar verður haldinn 20. september nk., að beiðni fjárfesting- arfélagsins Ovalla Trading Ltd., sem á 18,02% hlut í TM eftir nýleg við- skipti við Kaupþing, en átti ekkert fyrir. Ovalla Trading er fjárfestingar- félag í eigu Gaums Holding S.A. og Austursels ehf. Eigandi Gaums Holding S.A. er Fjárfestingarfélagið Gaumur hf. og eigandi Austursels ehf. er Hreinn Loftsson hrl. Í tilkynningu til Verðbréfaþings Íslands kemur fram eftirfarandi dagskrá fundarins: 1. Kjör til stjórnar félagsins. 2. Önnur mál löglega fram borin. Tryggvi Jónsson, stjórnarformað- ur Tryggingamiðstöðvarinnar, gerir ráð fyrir að einhverjar breytingar verði á stjórn félagsins á hluthafa- fundinum 20. september. „Ovalla á 18% í Tryggingamiðstöðinni og í stjórn sitja sjö menn. Félagið ætti að koma a.m.k. einum manni að en það fer eftir samkomulagi við aðra hlut- hafa hvernig málið fer.“ Tryggvi telur ekki að miklar breytingar verði á stefnu og starf- semi Tryggingamiðstöðvarinnar með nýrri stjórn. „Sú stjórn sem nú situr hefur unnið að stefnumótun og ný stjórn mun væntanlega halda þeirri vinnu áfram.“ Morgunblaðið/Þorkell Ovalla óskar eftir hlut- hafafundi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.