Morgunblaðið - 07.09.2001, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 07.09.2001, Blaðsíða 54
FÓLK Í FRÉTTUM 54 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ LENGI vel stóð til að nýja Bjarkar-platan skyldi heita Domestica og skír- skota þar með allt í senn til vinnsluaðferðar á plöt- unni, heildarsvipsins á henni og megininntaks textanna. Á endanum kaus hún að láta hana heita Vespertine. Þetta er aftansöngur Bjarkar, heimilislegar kvöldbænir gæddar nosturslegri blöndu af raftónum og strengjum. Þrátt fyrir að einhverjir telji plötuna hennar tormeltustu þá virðist það ekki ætla að hafa áhrif á söluna. Platan er þegar komin á toppinn í Noregi, Dan- mörku, Frakklandi og á Spáni. Í Svíþjóð er hún í sjöunda sæti, því fjórða í Þýskalandi og átt- unda í Bretlandi. Heimilisleg!                                                               !"#$ %" "&' " """( ")" "*" + )  %", " +- #$" " " ". /0 1) 2))& "   "3%4"1$%&' %+")"5)  4++"*"% +"   "  6"7$ "8  9"7$ 9":  &9";&*"<  9";&*"= 9"5>* ")"5 8   ?9"5>* ")"5 "5$9"3 * "<  9"3 * "= "                            ) !**' + ,- +.+ / ""+  7' 3%"@ "8")0  "  % 3 A% A% A% B) C 5 "21) #  D%% E)"31&  = ". 2)& F"21 ;> 5  " ) GC  "  % "B  ;  "=)&C  "  % 5$%?   H I 4)"B)"# J 31 B  "K/) 81 E&  #)L/ 7 ";)F"  7  "1"// 3)" " % +" .)MN" .)MN" F B) C . )L%"I) #1"K4"7 5  8"5/7H ) ")/""%"  :4 "#1)  . /1  3 ) B"#1"  "@  @ "@ "3%%  G1)"O GC "PB "84 %Q #1" "R"#1" )  G1"= ;"=) @"7 )1 "G1 "8 "#1) S T" ">"% " F"1"  "2) 8"#1"U) "2V"="71 :)"31) B  "K/) "8"8               3%  3) J  G  3&) .)MN .)MN I5K E  3) J  3) G  I5K 3) I #"5 J  J  J  G  3) J  I J  I5K J  J  .) ) I    VÁ, NELLY! Aldeilis stórt stökk hjá þér upp Tónlistann. Það er aldeilis að rætast úr þessari ungu kan- adísku söngkonu sem skaust fram á sjónarsviðið fyrr á þessu ári með laginu „I’m Like a Bird“. Þeir voru vafalaust margir sem spáðu því þá að þar færi einnar perlu undur en sú hefur aldeilis ekki orðið raun- in. Lagið „Turn of the Light“ hefur fallið í viðlíka góðan jarðveg ef ekki betri en bæði lögin er að finna á frumburðinum Whoa Nelly! sem hefur verið ein allra vinsælasta platan í sumar á heimsvísu. Þessi stelpa, sem lengi vel vann fyrir sér sem herbergisþerna, getur því litið björtum augum til framtíðar og ekki ólíklegt að hún verði víða valin efnilegasti listamaðurinn þegar árið verður gert upp. Vinsæl herberg- isþerna! Níðþungarokk- sveitin System of a Down á sér fjöl- marga dygga fylgj- endur hér á landi sem sjá má glögg- lega á sterkri inn- komu sveitarinnar á Tónlistann þessa vikuna. Nýja afurðin heitir Toxicity og hefur þegar styrkt stöðu sveitarinnar töluvert enda smekkfull af kröftugu harðpólitísku efni, þ.á m. smellnum „Chopsuey!“ sem er einkar ávanabindandi og melódískur. System of a Down er kvartett, skipað Kaliforníubúunum Serj Tankian söngvara, gítaristanum Daron Malakian, bassaleikaranum Shavo Odadjian og trommaranum John Dolmayan. Toxicity er önnur plata sveitarinnar og nýtur hún að- stoðar hins goðsagnarkennda Ricks Rubins, sem sér um upptökustjórn og hefur almennt auga með að allt sé í svalara lagi. Skipulögð niðurrif! ÞAÐ VERÐUR ekki annað sagt en að ættfræðin sé hliðholl Nikku Costa. Ólst upp í innsta hring- tónlistarbransans bandaríska. Dóttir hins fræga útsetj- ara og upptökustjóra Dons Costa, sem vann hér á árum áður með Paul Anka, Dinuh Wash- ington og Tony Bennett. Það sem meira er, guð- dóttir gamla bláskjás heitins, Franks Sinatras. Steig fyrst á svið 5 ára gömul og söng fyrir 300 Police-unnendur í Chile tveimur árum síðar. Hefur notið aðstoðar stórfiska á borð við Quincy Jones og Sly Stone. Sló fyrir löngu í gegn í Þýskalandi og í Ástralíu. Nýja platan virð- ist svo loksins ætla að koma henni á alheims- kortið, þökk sé fönkslagaranum „Like A Feath- er“ sem auglýsingafyrirtæki hafa fallið fyrir í umvörpum og nota óspart. Guðdóttir bláskjás! BJÖRK Guðmundsdóttir var einn af gestum Davids Lettermans í þætti hans The Late Show With David Letterman á þriðjudagskvöldið var. Þátturinn er einn vinsælasti spjall- þáttur Bandaríkjanna og margar stórstjörnurnar sem þar hafa komið fram. Flutti hún lag af nýjustu breiðskífu sinni, Vespertine, og spjallaði stuttlega við stjórnandann. Aðalgestur þáttarins var leikarinn vinsæli úr sjónvarpsþáttunum Fri- ends, David Schwimmer. Björk naut dyggs stuðnings tölvutónlistar- mannanna Matmos, hörpuleikarans Zeenu Parkins og grænlensks stúlknakórs. Björk flutti lagið „Pag- an Poetry“ en að því loknu vippaði hún sér í sæti til hliðar við skrifborð hins sjarmerandi Lettermans. Ör- stutt spjall þeirra var á svofellda vegu: Letterman: „Ungu stúlkurnar sem við sáum þarna eru frá Græn- landi, ekki satt?“ Björk: „Já.“ L: „Þær voru íklæddar fötum frá heimalandi sínu, er það ekki?“ B: „Einmitt, þetta er þjóðbúning- urinn þeirra.“ L: „Mjög sætt, mjög indælt. Þakka þér kærlega fyrir komuna. (Við áhorfendur): Geisladiskurinn heitir Vespertine.“ Þess má að lokum til gamans geta að íslensku síðrokksveitinni Sigur Rós var boðið að spila í sama þætti en hafnaði boðinu á þeim grundvelli að liðsmenn gætu ekki sætt sig við að þurfa að stytta lagið sem flytja átti. Aftan- söngur í sjónvarpi Björk söng í þætti Davids Lettermans Björk flytur „Pagan Poetry“. Grænlenski stúlknakórinn í baksýn. Björk og Letterman skrafa saman og skeggræða.Letterman handleikur Vespertine. FIMM stærstu tónlistarútgáfurnar í dag; Warner, Bertelsman, EMI, Sony og Vivendi-Universal, hafa nú kynnt til sögunnar nýjar „brennslu- varnir“ á geisladiska. Hefur aukin afritun, eða brennsla, á geisla- diskaútgáfu þeirra verið þeim óþægur ljár í þúfu undanfarin ár. Nú hafa fyrirtækin skorið upp her- ör gegn „þjófn- aðinum“. Á markað í Evrópu er komin meira en ein millj- ón geisladiska sem allir búa yfir „sjóræningjavörn“. Þetta er tilraun til að varna því að efni af geisla- diskunum sé fært yfir á tóma diska eða þá beint yfir í tölvur. Ekki er gefið upp hvaða diska um ræðir. Varnirnar felast í því að afritun er annað hvort útilokuð með öllu eða þá að útkoma afritunar hafi að geyma slæman hljómburð. Almenn- ingur óttast hinsvegar að það verði algerlega ómögulegt að spila diskana yfirleitt. Nýr safndiskur með sveitasöngvaranum Charley Pride styður þetta þar sem fjöl- margar kvartanir bárust þess efnis að diskurinn væri óspilanlegur, jafnvel í einföldustu ferming- argræjum. Sami Valkonen, útgáfurisanum BMG, sagði að tilgangurinn væri ekki að hindra að tónlist væri sett á stafrænt form af notendum – held- ur vildu þeir vera vissir um hvernig tónlistin kæmist þangað. „Geisladiskabrennur“ eru nú orðnar það algengar að fleiri diskar voru brenndir en keyptir í Þýskalandi í fyrra. Nýjar afritunarvarnir Stóru útgáf- urnar fagna Brennari HIN breska Faithless hefur verið svolítið sér á báti í dansgeiranum. Tónlistina má flokka sem allt að því hefðbundið evr- ópudanspopp en það hefur ætíð ver- ið til staðar ein- hver aukabroddur, eitthvað aðeins meira kjöt á bein- inu en hjá öðrum af svipuðu sauðahúsi. Liðsmenn njóta þar að auki óvenjumikillar virðingar í heimalandinu. Nýja efnið sker sig svo sem lítið frá því sem Faithless hefur verið að bardúsa fyrir og inniheldur æði litla framþróun. Þær breytingar sem merkja má benda til þess að liðs- menn séu orðnir óvenjurosknir, af dansboltum að vera. Krafturinn hef- ur vikið fyrir fágun og ljúflegheitum sem koma skýrast fram í skemmti- legum samruna á ljóðtónum og þétt- um dansreggítaktinum í öðru laginu „Not Enuff Love“. Nærvera Dido er og vel lukkuð en hún er systir Rolo og var eitt sinn með annan fótinn í sveitinni. Lagið sem hún syngur, „One Step Too Far“, ætti, með réttri markaðssetningu, að geta orð- ið hinn vænasti smellur. Prýðisdiskó sem minnir sláandi mikið á „Stans- laust stuð“ að hætti Páls okkar Ósk- ars.  Tónlist Grásprengt danspopp Faithless Outrospective Cheeky Records/Japis Meira hægindadanspopp frá rapparanum Maxi og félögum. Skarphéðinn Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.