Morgunblaðið - 07.09.2001, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 07.09.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 51 DAGBÓK LJÓÐABROT HALLGRÍMUR PÉTURSSON Atburð sé ég anda mínum nær, aldir þó að liðnar séu tvær. Inn í dimmt og hrörlegt hús ég treð. Hver er sá, sem stynur þar á beð? Maðkur og ei maður sýnist sá. Sár og kaun og benjar holdið þjá, blinda hvarma baða sollin tár, berst og þýtur yfir höfði skjár. Hár er þétt og hrokkið, hvítt og svart, himinhvelft er ennið, stórt og bjart, hvöss og skörp og skýrleg kinn og brún, skrifað allt með helgri dularrún. – – – Matthías Jochumsson STAÐAN kom upp á HM ungmenna sem lauk fyrir skömmu í Aþenu. Merab Gagunashvili (2444) hafði hvítt gegn Evgeny Shap- oshnikov (2519) 25. Hf5! exf5 26. Dg5 Kf8 Ella hefði svartur orðið mát um hæl eftir 26... g6 27. Dh6. 27. Dxg7+ Ke8 28. Rd6+ Kd7 29. Hxe5 Kxd6 30. Hxf5 Bd5 31. Dg5 Hc5 32. d4 Hb5 33. Df4+ Kd7 34. He5 og svartur gafst upp. 8. um- ferð Skákþing Íslands, í lands- liðsflokki, fer fram 7. septem- ber kl. 17.00 í íþróttahúsinu við Strandgötu. Leikar fara nú heldur betur að æsast í baráttunni um Íslands- meistaratitilinn. Áhorfend- ur eru velkomnir en jafn- framt er hægt að fylgjast með skákunum í beinni út- sendingu á ICC eða á heimasíðu mótsins. Nánari upplýsingar veitir skak.is. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. VIÐ tökum upp þráðinn frá því í gær og lítum á annað spil úr Netleik Ice- land Express og dönsku sveitarinnar Netbridge. Danirnir Paul Clemmen- sen og Hans Christian Graversen lentu í dýrum misskilningi í þrettánda spili gegn Jóni Baldurs- syni og Karli Sigurhjart- arsyni: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♠ 652 ♥ KD98 ♦ 83 ♣ D1085 Vestur Austur ♠ ÁKD104 ♠ G973 ♥ Á5 ♥ 42 ♦ D74 ♦ Á1062 ♣G92 ♣Á74 Suður ♠ 8 ♥ G10763 ♦ KG95 ♣K63 Vestur Norður Austur Suður Paul Karl H.C. Jón -- Pass Pass 2 hjörtu 2 spaðar 3 hjörtu Dobl Pass Pass Pass Opnun Jóns á tveimur hjörtum sýnir veik spil, minnst fimmlit í hjarta og láglit til hliðar (Tartan). Vestur kemur eðlilega inn á spaðasögn og Karl lyftir í þrjú hjörtu, sem austur doblar. Hans Christian meinti dobl sitt sem áskor- un í fjóra spaða, en makk- er hans var á öðru máli og sagði því pass. Vestur byrjaði á spaðaás og kóng, sem Jón tromp- aði. Hann spilaði hjarta og vestur tók með ás og hamraði enn á spaðanum. Jón trompaði, spilaði hjarta á kóng og tígli úr blindum á kónginn! Lauf- gosinn lá síðan fyrir svín- ingu, svo Jón gaf aðeins fjóra slagi, einn á hvern lit: 730 til Íslands. Vestur Norður Austur Suður Matthías Thorvald Þorlákur Morten -- Pass Pass Pass 1 grand Pass 2 lauf Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Matthías Þorvaldsson og Þorlákur Jónsson sögðu fjóra spaða á hinu borðinu. Matthías átti enga mögu- leika í þeim samningi og gaf fjóra slagi, einn á hjarta, einn á tígul og tvo á lauf. 100 til Dananna, en 12 IMPar í dálk Iceland Express. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 14. júlí sl. í Lágafells- kirkju af sr. Jóni Þor- steinssyni Thelma Dögg Valdimars- dóttir og Haukur Ægir Ragnarsson. Heimili þeirra er í Hólabergi 48, Reykjavík. Árnað heilla Þessir duglegu drengir, Gabríel og Eyjólfur, héldu tombólu og söfnuðu kr. 13.055 til styrktar Styrktarfélagi krabba- meinssjúkra barna. Morgunblaðið/Ásdís Hlutavelta STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú ert vinnusamur og gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Þú þyrftir að læra betur að slappa af og njóta lystisemda lífsins. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Láttu allan kjaftagang sem vind um eyru þjóta. Þeir sem þjóna Gróu á Leiti munu renna sitt skeið og þá stendur þú uppi með pálmann í hönd- unum. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það er óþarfi að láta aðra ákveða hvenær hætta skal hverjum hlut. Þú ert þinn eig- inn húsbóndi og átt að taka þessar ákvarðanir sem og aðrar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Nú skaltu setjast niður og semja áætlanir um fram- kvæmd þeirra hluta, sem þú hefur hingað til aðeins látið þig dreyma um. Hálfnað er verk þá hafið er. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Gættu þess að tala tæpi- tungulaust svo enginn þurfi að fara í grafgötur um hvað það er sem þú vilt. Talaðu um fyrir öðrum með lipurð og festu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það sakar ekki að staldra við og hugleiða hversu ríkur maður raunverulega er af vinum og vandamönnum. Það eru þau auðæfi sem hvorki mölur né ryð fá grandað. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Flýttu þér hægt. Sígandi lukka er best og því eru allar sviptingar til lítils, þegar upp er staðið. Einhver kemur þér verulega á óvart í dag. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Kurteisi kostar ekkert og er sjálfsögð hvernig sem á stendur og hver sem í hlut á. Gamalt mál úr fortíðinni lifn- ar við og kemur þér á óvart. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Leggðu þitt af mörkum svo samstarfið gangi áfallalaust fyrir sig. Fáðu aðstoð, ef það er það sem þarf til þess að þú getir staðið við þitt. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Taumlaus sjálfselska hittir aðeins þann fyrir, sem beitir henni. Þess vegna skaltu söðla um og sýna öðrum til- litssemi og virðingu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér tekst einhvern veginn ekki að ná til þeirra, sem þú vilt að kynnist málstað þín- um. Endurskoðaðu áætlun þína og breyttu henni. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það er bara rétt að segja öðr- um sannleikann um það sem manni finnst. Öll undanbrögð leiða til misskilnings sem þú getur ekki annað en tapað á. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nú þarft þú að taka á honum stóra þínum og standa af þér stormviðri um stundarsakir. Aðrir líta til þín um forustu svo þú mátt hvergi bregðast. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 2. júní sl. í Háteigs- kirkju af sr. Tómasi Sveins- syni Sæunn Marinósdóttir og Ketill Heiðar Guðmunds- son. Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 2. júní sl. í Dómkirkj- unni í Reykjavík af sr. Hjálmari Jónssyni Heiðrún Gígja Ragnarsdóttir og Sig- urgeir Orri Sigurgeirsson. Ricardo sem er frá Perú óskar eftir íslenskum pennavini. ricardo vargas @hotn mail.com Mikie, sem er 17 ára, ósk- ar eftir íslenskum penna- vini. Áhugamál hans eru tónlist, lestur og sjónvarp. Hann skrifar á ensku. Mikie Katayama, 2-4-17 Saidaijiakoda-cho, Nara-shi, Nara-ken 631-0818, Japan. Thorvald óskar eftir ís- lenskum pennavini. Hann safnar frímerkjum. Thorvald Hesselberg, Hallandsparken 90, DK-2630 Tåstrup, Danmark. Poul óskar eftir íslensk- um pennavini. Hann safnar frímerkjum. Poul Larsen, Egholmvej 18 B, DK-2720 Vanløse, Danmark. Pennavinir Ábyrgð – áreiðanleiki Gullsmiðir HÓTEL OG GISTIHEIMILIÐ HÖFÐI ÓLAFSVÍK Frábærar aðstæður fyrir ráðstefnur, fundi og námskeið. Sími 436 1650 netfang; hotel.hofdi@aknet.is - www.norad.is/hotelhofdi . VILTU: Ask, Álm, Beyki, Hengiblóðbeyki, Svartelri, Ryðelri, Kjarrelri, Kjarrfuru, Stikilsberjasortir hlaðnar berjum, Bersarunna, Hvítgreni, Broddgreni, Gulan Bambus, Gullklukkurunna frá Hokkaidó, Marþöll, Fjallaþöll, Gultopp, Bjarmasóley, Bergsóley, Bergreyni, Dárakirsi, Eik, Gráreyni, Silfurreyni, Demantsvíði, Linditré, Næfurhegg, Kóreuþin, Síberíuþin, Svartgreni, Bergfléttu, Kóreubergsóley, Gljáhlyn, Kóreuklukkurunna, Bleika Runnamuru, Stjörnutopp, Sveighyrni, Vætustikil og margt, margt fleira. L Í T T U V I Ð! Meira á heimasíðunni www.natthagi.is og 483 4840. Er allt í lagi að gróðursetja núna? Já, fram í október! Áttu í vandræðum með klaka í jörðu fram á sumar? Notaðu haustið til plöntunar! NÓGUR ER RAKINN! Opið‚ virka daga OG HELGAR frá 10.00 - 19.00 SMS FRÉTTIR mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.