Morgunblaðið - 07.09.2001, Page 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 23
viðvarandi. Þá hafa hneykslismál
mörg orðið til þess að sverta
kirkjuna og gat kardínálinn þess
raunar að upplýsingar um kyn-
ferðislega misnotkun tiltekinna
kirkjunnar þjóna á börnum hefðu
kallað „skömm“ yfir stofnunina.
Þörf á byltingarkenndri
hugsun
O’Connor sagði í ávarpi sínu að
kristnir menn á Bretlandi og
einkum þær rúmu fjórar milljónir
manna sem játa kaþólskan sið
KRISTINDÓMURINN er nærri
horfinn í Bretlandi og hefur
hvorki áhrif á framgöngu stjórn-
valda né almennings lengur.
Þennan dóm yfir samtíðinni kvað
Cormac Murphy-O’Connor, erki-
biskup af Westminster og kardín-
áli kaþólsku kirkjunnar í Bret-
landi, upp á miðvikudag er hann
ávarpaði prestastefnu í Leeds.
Ummæli biskupsins hafa vakið
mikla athygli í Bretlandi og þykir
hann hafa komist óvenjuhart að
orði þótt ekki sé óþekkt að
kirkjuleiðtogar þar í landi tjái sig
kröftuglega um trúarlíf lands-
manna og stöðu kirkjunnar.
Þannig lýsti George Carey, erki-
biskup af Kantaraborg, yfir í
fyrra að „guðleysi“ væri ríkjandi
lífsafstaða á Bretlandi.
Kirkjusókn hefur minnkað
mjög þar í landi á undanliðnum
árum og skortur á prestum er
þyrftu að laga sig að „framandi
menningu“. Þörf væri á nýrri
byltingarkenndri hugsun varð-
andi starfsemi kirkjunnar og
hvernig henni bæri að ná til kaþ-
ólskra manna, ungs fólks og trú-
leysingja.
Örvænting hins
vestræna heims
Að sögn breska dagblaðsins
The Daily Telegraph sagði
O’Connor m.a: „Kristindómurinn
sem grundvöllur er nánast horf-
inn úr lífi fólks og siðferðilegrar
breytni þess, ríkisstjórnarinnar
og félagslífs í Bretlandi. Kristnir
menn standa nú frammi fyrir
gjörbreyttum tímum og það á
sérstaklega við um okkur hina
kaþólsku. Örvænting hins vest-
ræna heims blasir við hverjum
þeim sem hana vill sjá.“
Kardínálinn tengdi þessa þróun
markaðsvæðingu samfélagsins og
sókn alþýðu manna eftir verald-
legum gæðum: „Flestir í löndum
okkar leita til markaðarins og
neyslusamfélagsins … ljóst er að
þeir sem treysta á markaðinn í
blindni verða á endanum ófærir
um að stjórna eigin lífi.“ Síðan
sagði kardínálinn: „Við okkur
blasir afsiðað samfélag, samfélag
þar sem hið góða er það eitt sem
ég vil, þar sem einu réttindin eru
réttindi mín og þar sem eina lífið
sem merkingu hefur eða gildi er
lífið sem ég vil lifa.“
Lausnin falin í leshringjum
og ungliðastarfi
Mikla athygli viðstaddra vakti
þegar O’Connor upplýsti að hann
teldi svarið við minnkandi kirkju-
sókn og dvínandi trúarlífi felast í
nýjum ungliðahreyfingum, litlum
bænahópum og leshringjum.
„Þessi litlu samfélög eru leynd-
armálið sem móta mun framtíð
kirkjunnar.“
„Kristindómur nærri
horfinn í Bretlandi“
Yfirlýsingar kaþólska erkibiskupsins af Westminster vekja mikla athygli
ÁFRÝJUNARRÉTTUR í
Bandaríkjunum hefur tekið
upp aftur málshöfðun lífstíð-
arfanga sem vill eignast barn
með konu sinni með gervi-
frjóvgun. Ógilti áfrýjunarrétt-
urinn sl. miðvikudag, með
tveim atkvæðum gegn einu,
úrskurð dómara í Sacramento
í Kaliforníu, sem hafði kveðið
upp úr með að fanginn, Will-
iam Gerber, ætti ekki laga-
legan rétt á því að senda konu
sinni sæði í pósti.
Einn dómaranna við áfrýj-
unarréttinn var ósammála því
að Gerber ætti þennan rétt,
og sagði að með þessum hætti
gæti Gerber „aukið kyn sitt
úr fangelsinu með hraðpósti,“
og að hann virtist ekki hafa
áttað sig á því að því fylgdu
talsverðir ókostir að vera í
fangelsi.
Í meirihutaáliti réttarins
sagði aftur á móti að taka
bæri mál Gerbers upp aftur
vegna þess að „rétturinn til að
auka kyn sitt víkur ekki fyrir
varðhaldi.“ Þá er fangelsisyf-
irvöldum gert að sýna fram á
að hætta stafi af fyrirætlun-
um Gerbers. Takist yfirvöld-
um ekki að sýna fram á það
má Gerber senda sæði í pósti,
sagði í niðurstöðu réttarins.
Vill auka
kyn sitt
með hrað-
pósti
San Francisco. AP.
NOKKRIR erfðabreyttir medaka-
fiskar lýsa í myrkrinu í fiskabúri í
Taipei á Taiwan í gær. Fyrirtækið
Taikong, sem ræktaði fiskana,
hyggst á næsta hálfu ári hefja
markaðssetningu þeirra sem fyrstu
sjálflýsandi gæludýranna.
Reuters
Sjálflýsandi
gæludýr