Morgunblaðið - 07.09.2001, Síða 38

Morgunblaðið - 07.09.2001, Síða 38
MINNINGAR 38 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Gunnar ÓliFerdinandsson fæddist í Reykjavík 24. nóvember 1922. Hann lést 30. ágúst síðastliðinn. For- eldrar Gunnars voru Ferdinand R. Eiríksson skósmið- ur, f. á Eyvindar- stöðum í Álftanes- hreppi 13.8. 1891, og Magnea G. Ólafs- dóttir, f. á Ólafsvöll- um á Skeiðum 4.4. 1895. Systkini Gunnars eru Vigdís, f. 11.8. 1921, Eiríkur R., f. 14.6. 1924, Árni G., f. 13.1. 1926, Gísli, f. 13.10. 1927, Jón J., f. 1.3. 1929, d. 20.7. 1996, og Ferdin- and, f. 17.8. 1936. Gunnar kvæntist 6.10. 1951 Hrefnu Guð- brandsdóttur frá Hrafnkelsstöð- um, f. 30.11. 1921. Börn þeirra eru: 1) Magnea Guðrún, f. 31.7. 1945, maki Jón S.R. Pálmason, f. 30.12. 1944, börn þeirra eru Þorgerður Guðrún, f. 22.5. 1965, Rósa Björk, f. 2.5. 1967, Gunnar Hrafn, f. 2.8. 1968, Viðar Ingi Rósinberg, f. 1.9. 1970, og Björgvin, f. 21.1. 1977. 2) Birna, f. 16.6. 1950, maki Hugi Magnús- son, f. 26.9. 1949, dóttir þeirra er Hrefna, f. 4.2. 1977. 3) Hrafnkell, f. 12.11. 1957, maki Kristín Þ. Jónsdótt- ir, f. 30.11. 1957, börn þeirra eru Sigríður Hrefna, f. 18.5. 1977, Kristján Páll, f. 31.5. 1981, Margrét Lilja, f. 27.8. 1982, og Hrafnkell Óli, f. 24.7. 1991. Gunnar útskrifaðist sem eld- smiður frá Iðnskólanum í Reykjavík 1945. Hann hóf störf hjá Sindrasmiðjunni árið 1941 og starfaði þar samfleytt í 48 ár. Hann starfaði einnig með Sig- urjóni Ólafssyni myndhöggvara, móðurbróður sínum, við smíði á ýmsum listaverka hans úr járni. Útför Gunnars fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Kæri pabbi, nú þegar við kveðj- um þig og lítum yfir farinn veg, hugsum við um öll góðu árin. Þú sem varst alltaf svo hraustur þar til skyndilega fyrir mánuði er þú veiktist og varst fluttur á sjúkra- hús. Þú varst kominn heim aftur til mömmu sem stóð eins og klettur við hlið þér í veikindunum þínum. Allt var á réttri leið þegar kallið kom fyrirvaralaust 30. ágúst síðast- liðinn. Pabbi ólst upp í miðbæ Reykja- víkur í faðmi ástríkra foreldra og var annar í röð sjö systkina. Á Grettisgötunni bjó stórfjölskyldan undir sama þaki. Langamma, amma, afi, og þið mamma auk okkar systranna. Margar gönguferðir voru farnar með pabba og afa, enda voru þeir margfróðir um sögu Reykjavíkur og sögðu okkur ófáar sögur um bæ- inn. Afi og amma áttu sér sælureit í Kópavogi við Álfhólsveginn þar sem eytt var mörgum góðum stundum með fjölskyldunni. Afi okkar var skósmiður á Hverfisgöt- unni en það var einnig á Hverf- isgötunni sem pabbi hóf sinn starfsferil í Sindra. Ekki aðeins unnu þeir afi hvor sínum megin við Hverfisgötuna heldur bjuggu þeir í sama húsi á Grettisgötu 19 til árs- ins 1955 en þá flutti fjölskyldan á Langholtsveg 166, í hús sem pabbi hafði unnið við í aukavinnu í 8 ár í sínum stopulu frítímum. Það var svo eftir að við fluttum í Vogana sem drengurinn fæddist okkur systrum til mikillar gleði, það er okkur ógleymanleg stund þegar þessi montni faðir fór með okkur á fæðingardeildina en við vorum ekki eins hrifnar af þessum rauða anga, en það var bara fyrstu sólarhring- ana. En alla jafna var pabbi svo ró- legur að það gat komið fyrir að maður héldi að hann væri ekki heima þó hann sæti í stofunni við ljóðalestur eða lestur Kiljans, sem var hans uppáhaldshöfundur. Mikinn áhuga hafði hann á fót- bolta og alltaf var gaman að fara á völlinn með honum. Einnig voru skíðaferðirnar margar sem hann fór með okkur upp í Ártúnsbrekku á veturna. Þá var gengið frá Lang- holtsveginum og voru það ógleym- anlegar stundir ásamt skauta- kennslunni á Tjörninni. Hann setti það skilyrði að við lærðum að synda og yrðum synd áður en skólasundið byrjaði. Sund var alltaf fastur liður í lífi pabba. Þegar við vorum flutt að heiman þá tók hann til við að kenna mömmu sund og upp úr því varð fastur liður hjá þeim að fara í Sundhöllina fyrir allar aldir. Áhugi hans á fjölskyldumálum var mjög mikill og hann fylgdist vel með hvað börnin og barnabörnin voru að gera t.d. þegar fram- kvæmdir voru í gangi hjá fjölskyld- unni þá stóð ekki á því að hann fylgdist með og miðlaði reynslu sinni til okkar. Hafðu þökk fyrir allt er þú varst oss ávallt! nú mun vandhæfi slíkan að finna. Veiti hamingjan þér það sem hugsum nú vér, góði hugljúfurinn bræðranna þinna! (Jónas Hallgrímsson.) Magnea, Birna og Hrafnkell. Að einu getum við mannanna börn gengið að með öruggri vissu, dauðanum. Dauðinn sem virðist svo fjarlægur er í raun miklu nær en okkur grunar og bilið stutt milli gleði og sorgar. Þegar ég kveð kæran tengda- föður minn, Gunnar Óla Ferdin- andsson, hinstu kveðju, rifjast upp ótal minningar liðinna ára sem geymast munu í huga mér. Allar þær stundir sem við áttum saman í starfi og leik eru mér ógleyman- legar. Heimilið þitt var mér alltaf opið, alltaf var ég velkominn í bíl- skúrinn þinn og þú varst ætíð fús til lána mér þín tæki og tól. Hald- góð þekking þín og reynsla var ein- stök og alltaf varstu tilbúinn til þess að miðla henni til mín. Gunnar var mér meira en góður tengdafaðir, hann var samferða- maður minn í nær 30 ár, yndislegur félagi og vinur, í honum átti ég svo mikið. Gunnar var einn sterkasti hlekkurinn í lífskeðju minni og er því sú staðreynd mér óbærileg að aldrei skulum við framar sjást. Gunnar hafði góða kímnigáfu, frá- sagnir hans og hnittin tilsvör fengu menn oft til að brosa, og oftast gerði hann mesta grínið að sjálfum sér. Gunnar vann alla sína tíð langan vinnudag og hlífði sér hvergi við að afla sér og sínum farborða. Hann gekk að öllu því sem hann tók sér fyrir hendur af elju og samvisku- semi. Réttlætiskennd hans var lítt gefin fyrir yfirgangssemi og sýnd- armennsku, heldur virti hann það sem mannlegt var. Heimilið og fjöl- skyldan var honum meira virði en allt annað og bar hann hag barna sinna og barnabarna mjög fyrir brjósti. Hann fylgdist grannt með öllum okkar gjörðum og vildi gjarnan fá að vera þátttakandi í sem flestu sem við tókum okkur fyrir hendur. Gunnar átti langa og farsæla starfsævi, ævi sem hefur að geyma mörg minningarbrot af ólík- um lifnaðarháttum liðinna ára og áratuga. Á æskuárum sínum tók hann sér ýmislegt fyrir hendur til að fram- fleyta sér, en járnsmíðin átti hug hans allan enda varð járnsmíðin hans ævistarf. Árið 1941 fór Gunn- ar á námssamning hjá Einari Ás- mundssyni í Sindra og lauk hann sveinsprófi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1. apríl 1945 sem eld- smiður. Gunnar starfaði hjá Sindrasmiðjunni næstum allan sinn starfsaldur, fyrst hjá Einari en síð- ar hjá Þórði syni hans og minntist Gunnar þeirra feðga ætíð með hlýju og góðum orðum. Gunnar starfaði einnig með móð- urbróður sínum Sigurjóni Ólafssyni myndhöggvara, við smíði á hans mörgu listaverkum, unnu þeir Sig- urjón þau verk oftast heima í bíl- skúrnum á Langholtsveginum. Gunnar var gæfumaður í sínu lífi. Hann kynntist ástinni sinni, Hrefnu Guðbrandsdóttur frá Hrafnkels- stöðum á Mýrum, sem síðar varð eiginkona hans, og lífsförunautur alla tíð. Þau byrjuðu sinn búskap á Grettisgötu 19 og bjuggu þar til ársins 1955 en þá flutti fjölskyldan á Langholtsveg 166. Þau áttu far- sælt líf saman sem einkenndist af samheldni, dugnaði og miklum myndarbrag. Nú þegar komið er að ótíma- bærri kveðjustund er efst í huga mínum þakklæti til þín, fyrir allt sem þú gafst mér. Styrkur þinn og kærleikur í minn garð var mér svo mikils virði, fyrir það þakka ég af heilum hug. Megi guð gefa okkur öllum styrk. Hvíl í friði. Þinn tengdasonur, Hugi. Kæri Gunnar, einhvern veginn fannst mér að ég fengi alltaf að hafa þig hjá okkur þar sem þú og Hrefna voruð fastur punktur í til- veru okkar. Alltaf vissum við hvar þið voruð, ef okkur langaði til að hitta ykkur, því ef þið voruð ekki heima, þá var ekki annað en að keyra hringinn sem þið fóruð í ykk- ar daglegu gönguferðum og hitta ykkur og þannig hélt ég að það yrði ávallt. En þar sem nú er komið að kveðjustund langar mig að þakka þér allar ánægjustundirnar sem við áttum saman og á ég margs að minnast. Margar ljúfar minningar koma upp í hugann um þig frá því fyrst er ég kom á heimili ykkar Hrefnu á Langholtsvegi 166. Strax frá fyrsta degi er ég flutti inn á heimili ykkar, aðeins sextán ára, tókuð þið mér eins og ég væri dótt- ir ykkar og lýsir það ykkur vel þeg- ar Sigga fæddist er ykkur fannst ekki annað koma til greina en að við flyttum í hjónaherbergið því það þyrfti að vera rúmt um okkur. Í þau fjögur ár sem við bjuggum hjá ykkur þótti þér ekkert sjálf- sagðara en að keyra mig á hverjum degi í vinnuna. Hugulsemin og væntumþykjan einkenndi þig ávallt eins og t.d. eftir að ég byrjaði aftur í skóla varst þú alltaf kominn upp í Baughús til að taka á móti Óla er hann kom heim úr skólanum, því ekki vildir þú að hann væri einn heima. Þannig varst þú, Gunnar, alltaf tilbúinn fyrir alla fjölskylduna ef eitthvað var um að vera og fyrir það vil ég þakka þér sérstaklega. Eins vil ég þakka þér áhugann sem þú sýndir á öllu því sem við gerð- um, var því alltaf gaman að fara til ykkar Hrefnu til að sýna ykkur eða segja ykkur frá því sem við vorum að gera. Ef einhverjar framkvæmd- ir voru hjá okkur varst þú ávallt sá fyrsti til að mæta á staðinn, t.d þegar við vorum að byggja í Baug- húsum komstu daglega og fylgdist með, ,,eftirlitsmaðurinn“ eins og við kölluðum þig, því þú vildir fylgjast með að allt færi rétt fram. Því er ég mjög ánægð með að þú hafðir séð teikningarnar af húsinu okkar kvöldinu áður en þú fórst og við vitum að þú munt einnig fylgj- ast með framkvæmdum okkar í Garðabænum. Gunnar, hver trekkir klukkuna núna? Þess á ég eftir að sakna að þú komir ekki og trekkir klukkuna, því alltaf ef það leið of langur tími milli heimsókna þinna og klukkan var stoppuð var notalegt að heyra aftur í henni, þá vissi maður að þú hafðir komið. Kæri Gunnar, ég kveð þig að lok- um með þakklæti fyrir allt það góða sem þú gafst okkur og allar þær stundir sem við áttum saman. Kveðja, Kristín (Kiddý). Elsku afi minn. Það er svo sárt að hugsa til þess að þú sért farinn og komir aldrei aftur. Þegar ég fékk fréttina um að þú værir látinn fannst mér sem það hlyti að vera hræðilegur draumur, ég sem var nýbúin að hitta þig. Þú hvattir mig til dáða í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur hvort sem það var skólinn, vinnan eða lífið sjálft. Þú tókst mér alltaf opnum örmum og gott var að vera í návist þinni. Skemmtilegar frásagnir þínar af uppvaxtarárum þínum komu oft til umræðu, skreyttar þinni einstöku kímnigáfu. Þegar ég var barn dvaldi ég oft hjá þér og ömmu á Langholtsveginum. Allir skemmti- legu göngutúrarnir sem við fórum í eru mér minnisstæðir. Einnig fór- um við oft í sundlaugarnar því það var kappsmál hjá þér að kenna okkur að synda. Fyrir fáeinum vikum keyrðum við austur í sumarbústað til mömmu og pabba. Á leiðinni austur hlustaðir þú á uppáhaldstenórana GUNNAR ÓLI FERDINANDSSON ✝ Einar Guðmund-ur Sólberg Axels- son fæddist í Reykja- vík 26. júní 1934. Hann lést í Arnar- holti á Kjalarnesi 27. ágúst síðastliðinn. Móðir hans var Halldóra Bjarnadótt- ir, vinnukona, f. 11. júlí 1901 í Hafnar- firði, d. á Eskifirði í sept. 1936 af hörmu- legum slysförum. Foreldrar hennar voru Kristín Einars- dóttir og Bjarni Hall- dórsson búandi í Hagakoti á Álfta- nesi. Faðir Einars var Axel Óskar Guðmundsson, kynd- ari, f. 11. sept. 1906 í Reykjavík, d. 22. apríl 1965. Fóstur- foreldrar Einars voru María Jónsdótt- ir, matselja og saumakona, f. 19. janúar 1889 á Horni í Helgafellssveit, d. 11. des 1946 í Rvk, og Hinrik Halldórs- son, verkamaður, f. 7. nóv. 1887 á Naust- um í Eyrarhreppi í N- Ís., d. 17. júní 1942 í Rvk. Þau bjuggu í Reykjavík. Útför Einars fór fram í kyrrþey. Ekkert nái að yfirbuga andans hreina góðleik þinn. Óskin mín af heilum huga hríni á þér vinur minn. (Pétur J. Hraunfjörð) Á fyrstu áratugum síðustu aldar var mikil og almenn fátækt á Íslandi, ungar og ógiftar mæður voru ekki hátt skrifaðar eða fátækt barnafólk og þeir sem fluttu til Reykjavíkur urðu að vinna sér þar sveitfesti, ef þeir gátu ekki séð fyrir sér sökum sjúkdóma eða atvinnuleysis voru þeir sendir heim á sína sveit allt fram á seinni hluta fjórða tugar síð- ustu aldar. Halldóra móðir Einars var fátæk og umkomulaus stúlka með lítið sjálfstraust sem vann fyrir sér í vist- um hjá misjöfnum húsbændum sem lítið tillit tóku til heilsufars vinnu- hjúa sinna. Nokkrum mánuðum eftir fæðingu Einars var hann tekinn af móður sinni og fyrir atbeina Barna- verndaryfivalda komið í fóstur, þar sem ekki var alltaf vel hugsað um barnið. Eftir að móðir Einars missti drenginn frá sér, ræður hún sig í vist til hjóna sem fluttu seinna til Eski- fjarðar. Þau beittu hana svo miklu harðræði að hún fékk ekki að hafa samband hvorki við barnið sitt né nokkurn annan og höfum við það fyr- ir satt eftir Maríu fósturmóður Ein- ars. Einnig var Halldóra svelt og gekk hún í fatagörmum og var kaup- laus. Að síðustu gafst hún upp og gekk í sjóinn. Þetta var á sínum tíma Hæstaréttarmál en það þótti ekki ástæða til að dæma fyrir slæma með- ferð á vinnukonunni en húsbændur Halldóru voru dæmd fyrir brugg og ölvun við akstur. Þá fyrst fékk Einar góða umönnun er María Jónsdóttir og maður henn- ar Hinrik Halldórsson gerðust fóst- urforeldrar hans. Það kom fljótlega í ljós að hann var þroskaheftur. Hann var mjög kirtlaveikur þegar hann kom til þeirra og sprungu kirtlarnir um það leyti og fór eitrið út í blóðið. Hann komst þó til nokkurrar heilsu fyrir atbeina Maríu. Með harðfylgi hennar tókst að koma hon- um í Austurbæjarskólann og þar lærði hann með hennar hjálp og skólans að lesa, skrifa og reikna en hans sérgáfa fólst í talnaspeki, hann gat endalaust munað hvað hlutirnir kostuðu. Hann hafði líka mjög gott tóneyra, var fljótur að læra lög sem hann heyrði og lærði sálma utan að hjá Maríu og hafði yndi af að spila á munnhörpu. Á jólunum kom hann með fósturforeldrum sínum heim til foreldra okkar, Péturs og Ástu Hraunfjörð, Pétur og María voru systkini. Þá var gengið í kringum jólatréð og sungnir jólasálmar og söng Einar við raust, okkur fannst alltaf að Einar kæmi með jólin með sér. Sem barn var hann bjarthærður og fallegur drengur. Þegar Einar var átta ára dó fóst- urfaðir hans og 12 ára missti hann fósturmóður sína. Fósturmóðir hans var mjög reglusöm kona og hagsýn. Hún vann fyrir þeim með því að hafa kostgangara og Einar lærði fljótt að hjálpa til. Hún vissi alltaf hvað hún átti í buddunni og svo var með Einar. Fósturforeldrar hans voru í Frí- kirkjusöfnuðinum og Einar fór alltaf með þeim í kirkju reglulega. Það var því reiðarslag þegar þau féllu bæði frá og hann aðeins 12 ára. Það varð því þrautaganga í hans lífi aftur. Hann fór þá til vandalausra en heimsótti okkur þegar hann gat. Hann vann fyrir sér á Snæfellsnesi og í Skagafirði, þar fær hann heila- blæðingu og er fluttur suður með flugvél á Borgarspítalann. Þetta var í janúar 1950 sem hann veiktist. Það var kaldur vetur í Skagafirði með mikilli snjókomu og frostum, hann skrifaði okkur systrum rétt áð- ur en hann veiktist og sagði okkur að það væri nóg af svellum í Skagafirði en við systurnar vorum þá í hús- mæðraskóla á Löngumýri í Skaga- firði. Hann lamaðist alveg en náði sæmilegri heilsu aftur. Hann varð svo vistmaður í Arnarholti um 1951, svo hann hafði verið þar í 50 ár er hann lést. Þar undi hann sér vel og var vel hugsað um hann. Hann vann við heyskap og að bera út ruslið. Eins var hann í föndri, saumaði út og prjónaði. Hann hafði einstaklega gaman af kvikmyndum, bæði í bíói og sjónvarpi. Meðan foreldrar okkar voru á lífi kom hann oft í heimsókn og hélt vinskap við okkur á meðan hann lifði. Við þökkum hjúkrunarfólki og starfsfólki Arnarholts alla þá um- hyggju og kærleika sem þau sýndu Einari Sólberg. Far þú í friði. Guðlaug og Ólöf P. Hraunfjörð. EINAR AXELSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.