Vísir - 30.07.1979, Page 7
VÍSIR
Mánudagur 30. júli 1979.
Umsjún:
Guftmundur
Pétursson
Litift yfir farþegaafgreiftsluna á Barajas-flugvelli eftir sprenginguna þar f gær. Fjórir Iétu lífift og
margir slösuftust.
Snrenqinqar á fluo-
welli oq iámhraut-
arstðövum í Madrld
Fjórir létu lifift og nær eitt
hundraft særðust i sprengjutil-
ræðum öfgasinnaftra Baska i
Madrid i gær. Sprenging varft i
flugafgreiðslunni i Madrid og á
tveim aðaljárnbrautarstöftvum
borgarinnar.
I þessum sprengingum slösuft-
ust 95, en flestir fengu aö fara
heim af sjúkrahúsi strax aftur I
gær, en 29 voru lagftir inn.
í Paris var dreift áróftursbréfi
frá ETA-samtökum Baska og þar
sagt, aft samtökin hygftu á fleiri
sprengjutilræði sem beinast
mundu gegn ferðamannaiftnaftin-
um á Spáni.
Samtökin stóðu fyrir sprengju-
tilræftum á baftströndum Spánar
ekki alls fyrir löngu til þess aft
fylgja eftir kröfum sinum um
betri aðbúnaft félaga sinna sem
eru i fangelsum Spánar.
Yfirvöld i Madrid segja, aft
þrjár sprengjur hafi verið látnar
springa meö stuttu millibili. Allar
voru öflugar. óskapleg ringulreið
varð á Barajas-flugvelli, þegar
ferftafólk felmtri slegift af spreng-
ingunum, reyndi aft forfta sér.
Klukkustundu áftur en
sprengjurnar sprungu, var yfir-
völdum gert viftvart um þær, eftir
þvi sem ETA heldur fram. Sagt er
aft meðal þeirra sem slösuftust
hafi verið sérfræðingar, sem áttu
að freista þess að gera
sprengjurnar óvirkar.
Vill taka Ding-
iiallarbrunann
í Berlín upp á
ný ffyrir réttl
Aftalsaksóknari Nurnberg-rétt-
arhaldanna hefur skoraft á rétt-
visina i Vestur-Berlin aft hreinsa
nafn mannsins, sem nasistar tóku
af lifi fyrir aft brenna þinghöllina i
Berlin 1933.
Dómsyfirvöld i Berlin segja, aft
Robert Kempner, bandariskur
lögfræftingur, sem aðstoðaði vift
aðsenda marga striftsglæpamenn
nasista i gálgann eftirstriftið, hafi
beðið réttinn um aft taka upp að
nýju ikveikjumálið til þess að
sýna fram á sakleysi hollenska
kommúnistans, Marinus van der
Lubbe,. sem tekinn var af lifi
1934.
Kempner, sem tekið hefur mál-
ið aft sér fyrir bróður þess látna,
heldur þvi fram að nýjar rann-
sóknir sýni að van der Lubbe hafi
verið sakfelldur meft ónógum
gögnum.
Eyðilegging þinghallarinnar 27.
febrúar 1933 varð Hitler tilefni til
þess að afnema ýmis þýftingar-
mikil mannréttindi stjórnskrár-
innar, en þaft sagði hann nauð-
synlegt til þess aft vernda Þýska-
land fyrir ofbeldisverkum komm-
únista.
Hinn 79 ára gamli Kempner
segir i náftunarbeiðni sinni, aft
Hermann Göring hafi sagt honum
vift yfirheyrslur vift striftsglæpa-
réttarhöldin, að Hitler heffti fyrir-
skipaö, aö þinghallarbrunanum
yrði komift á van der Lubbe og
aðra kommúnista. Málift var ekki
almennilega rannsakaft.
92 fórust
í eldsvoða
Aft minnsta kosti niutiu og tveir
fórust i eldsvofta á S-Indlandi, og
áttatiu brenndust illa. Kom eldur-
inn upp i kvikmyndahúsi nærri
bænum Tuticorin, meftan sýning
stóft yfir. Gestir voru aftallega
konur og börn. Eldurinn haffti
ekki lengi leikift laus, þegar þak
kvikmyndahússins hrundi, og féll
yfir áhorfendasalinn.
Enn eln walergate-
bðkin vænlanieg
John Mitchell, fyrrum dóms-
málaráftherra i Nixon-stjórninni,
sagði i sinu fyrsta vifttali vift blöft
eftir að hann var látinn laus úr
fangelsi (sem var fyrir 6 mánuft-
um), aft hann ynni aft samningu
bókar um stjórnmálaferil sinn i
Washington.
Mitchell var háttsettasti emb-
ættismafturinn i Nixonstjórninni,
sem dæmdur var fyrir yfirhylm-
ingar i Watergatemálinu. Hann
var sviptur málflutningsréttind-
um og getur ekki starfaft sem lög-
fræftingur, en segist taka aft sér
ráftgjöf fyrir fyrirtæki, og aldrei
hafa liðift betur i lifi sinu.
1 samningi viö Simon og
Schuster-forlagið i New York um
útgáfu þessarar væntanlegu bók-
ar Mitchells, er klásúla um, aft
hann muni ekki fjalla um Nixon
fyrrum forseta og ekki um Mörtu
Mitchell, fyrrum konu sina.
vtlja bjarga
oiíunni úr
sKlpunum
Bandaríska fyrirtækið Mobil
Oil segist vonast til þess að ná aft-
ur þeim 288 þúsund lestum af hrá-
oliu, sem eru um borft i Atlantic
Empress, öðru risaoliuskipanna,
sem kviknaði i, eftir aft þau rák-
ust á vift Tobago fyrir tiu dögum.
Atlantic Empress liggur nú um
160 milur norftur af Tobago, og
logar enn i skipinu, en sagt er, aft
tiu geymar, að minnsta kosti, af
fimmtán oliugeymum skipsins
séu enn i lagi.
Talsmaftur fyrirtækisins segir,
að öldurótift hafi aðstoftað vift aft
halda eldinum i skefjum, og vonir
standi til þess, aft hann verfti senn
slökktur. Um leift og þaft þykir ör-
uggt, verður hafist handa við aft
selflytja oliuna úr skipsflakinu og
i land.
Hitt skipið, Aegean Captain, er
i drætti á leift til Curacao. Búift er
að slökkva eldinn um borft i þvi.
Aegean Captain er með 209 þús-
und lestir af hráoliu i geymum
sinum.
AUDIOVOX
Vantar þig vandað hfíómtæki / bítthn?
Góð þjónusta er okkar kjörorð.
Mikið úrval af hátölurum og kassettutækjum í bíla
Alft tíl hljómflutnings fyrír:
HEIMILID — BÍLINN
OG
DISKÓTEKID
D i. .
í\aaíö
ARMÚLA 38 iSelmúla megin) 105 REYKJAVIK
SIMAR: 31133 83177 POSTHOLF 1366