Vísir - 30.07.1979, Blaðsíða 20

Vísir - 30.07.1979, Blaðsíða 20
VÍSIR Mánudagur 30. júli 1979. ■■ Émmamm 24 Umsjdn: Halldór Reynisson að gjalda? Hvers a Ezra - athugasemd við hýðingu á Canto xlv. í nýjasta hefti „Svart á hvítu” 1 þvi býsna viröingarveröa timariti,, Svörtu á hvitu (hvers fyrsta tölublaö þessa árs er ný- komiö út), er meöal annars efnis þýöing Sverris Hólmars- sonar á Canto XLV eftir Ezra heitinn Pound. Er tilhlýöilegt aö gera þar um ofurlitla athuga- semd. Ezra karlinn ér likast til eitthvert erfiðasta skáld sem lifað hefur, enda umdeildur eftir þvi. Viröast „bókmenntamenn” og aörir listjöfrar I stökustu vandræöum með hvar I flokk honum skuli skipaö, flokkaskip- un grundvallaratriði i þeirra augum. Cantos er hans stærsta og e.t.v. helsta verk, griöarlegt að vöxtum, 802 blaösiöur (Faber). Eru þar innanborös hin sundur- lausustu efni. Orðræður og bréfaskriftir amriskra forseta voru Ezra hugleikin, sem og peningamál og hagfræði-. Kina og kinverska — oft hin vafasam- asta — taka mikiö pláss, gömlu Grikkirnir, Rómverjarnir, ítal- arnir, Endurreisnarmennirnir, málararnir, skáldin, heim- spekingarnir og hershöfð- ingjarnir, allt rúmast þetta i þessu merkilega kvæði, Cantos. Úr veröur harla kaótiskt samansafn, oft á tíðum drep- leiðinlegt, en um leiö hiö undur- samlegasta á flestan máta. Stillinn er auðvitað hinn undar- legasti, helstu málum heims blandað saman i hrærigraut, iknýtt hýróglýfum, ártölum og ég veit ekki hverju. Kjarninn er: náttúrulega er þetta ger- samlega óþýöanlegt . Nokkur ár eru siöan AB gaf út þýðingar Kristins nokkurs Björnssonar á nokkrum ljóöum Ezras — var þaö hin dapurleg- asta útgáfa. Þá hafa birst öðru hvoru þýðingar á Cantosunum i TMM og vera má aö fleiri hafi lagt fyrir sig að þýöa Ezra. Allt ber þaö aö sama brunni — og þýðing Sverris Hólmarssonar á Canto XLV breytir þar engu um — Ezra Pound á alls ekki heima á felensku. (Ef svo væri, hefði honum vel verið trúandi til aö yrk ja nokkrar islenskar drápur, alla vega gamnaöi hann séf viö nokkrar dagstundir aö lesa Njálu og Grettlu.) Raunar á Ezra Pound ekki heima á nokkru öðru tungumáli en þvi sem hann sjálfur reit á — hvaö sem það nú var. Viö þessa þýöingu Sverris er annars ekki mikiö aö segja, hann hefur unniö þaö samviskusamlega. En honum tekst auðvitaö ekki aö litast um i skáldskaparvindauga Ezras: þetta er enginn Ezra. Þar aö auki er XLV taqiast merkasti hlutiCantosanpa ogað læðist sá grunuraöSverrir hafi, af hreinni ambisjón, beinllnis leitaö að hluta sem, a.m.k. sæmilega skammlaust, var hægt að snúa á islensku. Það er vi'st að þeir sem á annað borð hafa nennu og kunn- áttutil aöiesa Ezrasér til gagns Ezra Pound — ,,il migiior fabbro”. oggamans, veröa aðlesahann á „frummáiinu”, svo þýöingar eru heldur misheppnaöar og vart til þess fallnar aö auka hróður skáldsins. Hvers á þá gamli maðurinn i gröfinni að gjalda? Aöstandendur Feröaleikhússins (frá vinstri): Gunnar Reynir Sveinsson tónskáld, Kjartan Guöjónsson listmálari, Magnús S. Halldórsson, Kristin G. Magnús og Halldór Snorrason. Ferðaleikhúslð tekið tll slarfa: „heynt að gefa útlendingum innsýn l (sienska menningu” „Þetta er að sjálfsögðu gert fyrir útlendinga og þegar íslendingar koma veröa þeir að horfa á efnið með augum útlendinga” sagði Kristin G. Magnús leikkona en sýningar Ferðaleikhússins á Light Nights eru nýlega hafnar. „Samkvæmt lögmálinu ættum við að vera löngu dauð meðþetta litla leikhús, en samt er þetta 14. áriðsem við höldum út — þar af tiunda með Light Nights. Fjármálin er þaö sem oftast stendur starfi sem þessu fyrir þrifum, ekki síst fyrir það aö þetta leikhús er gert fyrir ferðamenn og ferðamanna- tlminn hérá landi er ekki nema tveir mánuöir” ^Efnisskráin er byggö upp af 28 stuttum atriöum og eru þau flutt á leiksviði sem á aö tákna gamla baöstofu. Sjálf efiiis- skráin rekur þætti úr islenskri menningu allt frá siöustu alda- mótum og siöan er haldiö áfram aftur í aldir og allt aftur á vikingatimann. Fyrst er gömlu islensku kvöldvökunni lýst, en hún er ekki sist merkilegn fyrir þá sök aö vera elsta leiklistar- form Islendinga. Siöan taka viö gamanfrásagnir, þjóðsögur af álfum, tröllum og draugum. Einnig eru kynningar á rimum og langspili, og fluttir kaflar úr Egilssögu og Vinlandssögu. A milli eru svo sýndar litskyggnur ogflutt tónlist sem á við efriið.” „Þá má geta þess að miklar breytingar hafa nú veriðgerðar á LightNights sem felastm.a. i þvi að nú er ég bara ein á sviö- inu, en tónlist er öll flutt i gegnum hljómflutningstæki. Gunnar Reynir Sveinsson sér um upptökur og ennfremur samið effekta viö efnið. Einnig hefur veriö sett upp i anddyri leikhússins sýning á nokkrum teikningum úr Sturlungu eftir Kjartan Guöjónsson list- málara” „Þessum sýningum hefur verið afskaplega vel tekiö en vegna þessaðefiiiðer allt flutt á ensku, fer aðsóknin dáiitiö eftir þvi hversu margt af ensku- mælandi ferðamönnum er hér i borginni. Það er t.d. nokkuð erfitt að bjóða Frökkum upp á slika dagskrá vegna málsins. Ég reyni að gefa þessum erlendu ferðamönnum ofurlitla innsýn inn i menningu Islendinga — þó er þetta enginn þverskurður af islenskri menn- ingu þvi dagskráin er bara tveggja tima löng. Hins vegar man ég ekki eftir að hafa rekist á slika framsetningu á menningu viðkomandi lands, þar sem ég hef verið stödd erlendis.” Þess má að lokum geta að Light Nights er sýnt á Hótel Loftleiöum öll kvöld, önnur en miðvikudags- og föstudags- kvöld, fram til 31. ágúst. Hefjast sýningar kl. 21 og standa i tvo klukkutíma. — HR Auglýsl eftir ungum rlthöfundum Framkvæmdanefnd alþjóða- árs barnsins auglýsir um þessar mundir eftir ungum rithöfund- um til að skrifa I bókina Islensk börn á barnaári. Ráðgert er að bókin verði meö efni eftir börn og unglinga 16 ára og yngri og verða veitt verðlaun fyrir besta innleggið i bókina. Að sögn þeirra sem sitja I nefndinni mega frásagnir vera hvort sem er langar eða stuttar og jafnvel örstuttar. Þá geta höfundar tjáð sig i formi rit- gerðar, ljóðs, sögu eða leikrits og þeir sem hafa gaman af þvi að teikna geta látið teikningar fylgja með. Sem sagt allt mjög frjálst. Til að koma tilvonandi rithöf- um á sporiö hefur Fram- kvæmdanefndin stungið upp á eftirfarandi viðfangsefnum: Hvernig er heimur ykkar? Hverju munið þið reyna að breyta þegar þið eruð orðin stór og ráðið málum? Við hvað unið þið ykkur best? Hvað leiöist ykkur? Hvað hafið þið gert á barnaárinu? Hvernig kemur fullorðið fólk fram við ykkur og þið viö fullorðna? Hvernig er: barnaheimilið, skólinn, fjöl- miðlarnir? Hvernig er heima? Hvað gleður ykkur eða hryggir? Og svo framvegis. Þeir, sem ætla sér að taka þátt i þessari bókargerð skulu senda efni til Framkvæmda- nefndar alþjóðaárs barnsins. Hverfisgötu 6, Reykjavik ,fyrir 24. okt. 1979. Skal efnið merkt einhverju dulnefni og fæðingar- ári höfundar en hij) rétta nafn skal fylgja með i íokuðu um- slagi. —GEK Hljómsveitin Hver eins og hún er skipuð I dag. HVER KOMIH MEB 2JA LAGA PLÖTII Tveggja laga hljómplata með akureyrskuhljómsveitinni Hver er komin á markaðinn og eru bæöi lög plötunnar eftir liðs- menn hljómsveitarinnar. Lagiö á fyrri hliöinni ber heitið „Helena” og höfundar þess eru Þórhallur Vogar og Hilmir Þór Hilmarsson. Hitt lagiö heitir „Ég elska þig” og er eftir Þórhall. Platan var hljóörituð i Hafnarfirði undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar. 1 Hver eru fimm strákar og þrjár stelpur. Auk fyrrnefndra drengja, Þórhalls og Hilmars, eru þar Leifur Hallgrimsson, Steingrimur Óli Sigurösson, Baldur Pétursson og stelpurnar Eva Albertsdóttir, Erna Þórarinsdóttir og Erna Gunnarsdóttir. Frá þvi platan var hljóðrituð hafa stelpurnar þrjár sagt skilið við Hver og gengið til liðs við Brunaliðið. 1 stað þeirra hefur Heiða Ingimundardóttir frá Húsavik verið ráðin og er þvi væntanlega þriggja kvenna maki. Hver starfar af fullum krafti fyrir norðan og mun senn halda til Færeyja og skemmta þar á hinni rómuðu Ólafsvöku hjá frændum vorum. — Gsal

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.