Vísir - 30.07.1979, Síða 12

Vísir - 30.07.1979, Síða 12
12 VÍSIR Mánudagur 30. júli 1979.• EFTIR HVERJU FER ANÆ Nú er f ramundan mesta ferðahelgi ársins og ferða- lög innanlands standa sem hæst. Nokkuð er um það, að menn kaupi sér bíla til ferðalaga, jafnvel bara yfir verslunarmannahelgina, en hvað um það, eins og Her- mann Gunnarsson segir, það er ekki úr vegi að f jalla lítillega um það, hvað gerir bfl að ánægjulegum veru- stað á ferðalagi. Fjögur atriöi, sem llklega ráða mestu um velliðan farþega i löngu bilferðalagi eru gerð og lögun sæta# rými, fjöörun og hávaði. Þessi atriði eru tengd á ýmsa vegu. Sætin, fjöðrunin og hjólbaröarnir sjá sameiginlega um að milda áhrif óslétts vegar Anægja á löngum ferðalögum i bil er undir ýmsum atriöum komin, og hafa mörg þeirra ver- ið nefnd i bilaþáttum Visis á undanförnum árum, svo sem mikilvægi þess að bægja ryki frá, val á hjólbörðum, lögun sæta og fleira. Nú er hægt að fá grindur framan á flesta bila til að forðast grjótkast en besta vörnin er að hægja á bilnum þegar öðrum er mætt á malar- vegi á farþegann, sætin, gerð þeirra og lögun og rými ráða þvi, hvort farþeginn þreytist fyrr en æski- legt er, og til lltils eru þægileg sæti og fjöörun, ef hávaðinn i bilnum er svo mikill, að farþeg- inn þreytist hans vegna. Litum á þessi atriði hvert fyrir sig. Sætin, snertiflötur bíls og manns Margir munu undrast, hvers vegna sætin eru sett hér efst á blað. En það er alveg sama, hve góður og dýr billinn er: ef sætin eru léleg, er allt unnið fyrir gýg. Hvað er ömurlegra en að sjá fólk stiga út úr glæsivagni á án- ingarstað á sig komið eins og gigtveikisjúklingar, vegna þess, að sætunum var ábótavant? Tvö mikilvægustu atriði I gerð sæta er, að þau styðji við mjó- hrygg neðanveröan og lærin. Sé ekki sveigja á sætisbakinu sem fellur að mjöömunum ofan- verðum, og mjóhryggnum, fá menn bakverk á löngum ferð- um. Nái lærin ekki að nema viö eða hvila á setunni, verða menn fljótt ákaflega þreyttir i sitjand- anum. Sé sætisbak of flatt en þó mjúkt, má draga úr þessum ágalla með þvi að þrýsta sitj- andanum og bakinu eins fast að sætisbakinu og unnt er, þannig að það skapi nauðsynlegan stuöning við alltbak farþegans. A sama hátt má draga úr óþægindum vegna þess, að sæt- issetan styður ekki við lærin, með þvi að glenna fæturna i sundur, þannig að lærin ná að hvilast á setunni. Oft getur framsætisfarþegi hjálpað aftursætisfarþega i þröngum bil með þvi að hafa framsætið eins framarlega og unnt er, án þess að þröngt verði frammi i. Lögun framsæta hefur tekið miklum framförum siðustu 15 ár, en enn er algengasti galli við aftursæti, að þau eru svo lág, að menn sitja i þeim á rasstortunni einni. Er þessi galli ekkert ein- skorðaður við litla bila, heldur er þetta ágalli margra stórra glæsidreka. Mýkt sæta skiptir minna máli en lögunin. Of mjúkt sæti getur veriö óþægilegt, ekki hvað sist, .ef menn siga niður úr öllu valdi I þeim. Mörg bestu sætin i nútimabil- um eru stinn, t.d. I ýmsum vest- ur-þýskum bilum, Benz, BMW, Opel og Volkswagen. Aðalatrið- iö er, að lögunin sé rétt. A notuðum bilum vilja sætin oft linast með timanum, einkum þó aftursæti, og þá borgar sig oft að láta stoppa þau upp og laga. Hvers vegna að horfa fram hjá lélegum sætum? Það er alveg sama, hve góður og dýr bfllinn er,ef sætin eru léleg þá er allt unnið fyrir gýg. Til að koma I veg fyrir að ryk komist inn i bilinn er gott að loka ölium gluggum og kveikja á miðstöðinni.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.