Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 3
sem taka þátt í sýningunni þekki
dekkri hliðar alkóhólsins?
„Nei, svo er ekki. Þeir sem eru
með verk á sýningunni umgangast
margir áfengi á eðlilegan hátt. Aðr-
ir hafa átt við áfengissýki að stríða
en eru hættir að drekka. Í þriðja
hópnum eru svo þeir sem eru
ennþá að berjast við ofneysluna.“
Í tilefni sýningarinnar gaf IN-
ART út lítið rit sem útskýrir hug-
myndina á bak við sýninguna. Þar
er meðal annars að finna myndlist-
arverk eftir marga kunna meistara
þar sem þeir tjá í mynd afstöðu
sína til áfengis og óhóflegrar
drykkju. Í ritinu eru einnig hugleið-
ingar manna um ofdrykkjuna þar
sem því er lýst hvaða myndir hún
getur tekið á sig og hvaða afleið-
ingar hún getur haft. Er Aage Büc-
hert ekkert hræddur um að vera
ásakaður um að vera að predika yf-
ir mönnum?
„Sýningin á ekki að vera áróður
gegn áfengi,“ svarar hann. „Flestir
geta umgengist áfengi á eðlilegan
hátt. En sýningunni er ætlað að
upplýsa fólk og við ætlum að nýta
töfra myndlistarinnar til að vekja
hugsanir og tilfinningar sem orð
geta ekki framkallað. Sýningin mun
því ekki aðeins varpa ljósi á djöf-
ullegar hliðar áfengisins heldur
einnig á töfra þess.“
Þekkir vel til vandans
Sjálfur hefur Aage Büchert
kynnst afleiðingum ofdrykkjunnar.
„Ég var einn fyrsti Daninn sem fór
í áfengismeðferð til Íslands fyrir
rúmum 18 árum og hef verið alls-
gáður síðan. Ég get þakkað það
þeirri frábæru áfengismeðferð sem
þið bjóðið upp á,“ bætir hann við.
Lengst af ævinni hefur Büchert
starfað sem ritstjóri Samvirke, sem
er málgagn dönsku samvinnuhreyf-
ingarinnar, en er kominn á eftir-
laun. Um skeið starfaði hann í sjálf-
boðavinnu sem ráðgjafi á
meðferðarheimili fyrir áfengissjúk-
linga í Danmörku.
Büchert og eiginkona hans,
Nanna Bisp Büchert, ljósmyndari
eru af og til á Íslandi. Nanna sem
er íslensk í móðurætt hefur verið
hér með ljósmyndasýningar. Hún
vann ásamt Kristínu Ómarsdóttur
rithöfundi myndljóðabók sem kom
út fyrir síðustu jól.
Áhugi á að fá sýninguna
hingað til lands
Sýningin í Sívalaturninum er að
sögn Bücherts fjármögnuð af ýms-
um aðilum þar á meðal danska
menntamálaráðuneytinu og einum
af sjóðum Carlsberg-verksmiðjanna
og nokkrum dönskum sveitarfélög-
um, sem hafa áhuga á að fá sýn-
inguna til sín eftir að henni lýkur í
Kaupmannahöfn. Eitt af markmið-
um IN-ART er að fara með sýn-
ingar sínar sem víðast.
Pétrún Pétursdóttir, forstöðu-
maður Hafnarborgar, segir að
áhugi sé á að fá sýninguna til Ís-
lands.
Ætlar IN-ART að kynna fleiri
listgreinar á svipaðan hátt?
„Ef þessi sýning gengur vel þá
höfum við ákveðið að halda áfram
með önnur þemu sem gætu vakið
áhuga fólks á ákveðnu málefni og
tengja þau fleiri listgreinum,“ segir
Büchert.
„Það má segja að ég hafi farið í
gegnum vissa sálgreiningu við að
gera þessa mynd og fleiri sem
tengjast sama viðfangsefni. Leiðir
okkar Bakkusar skildu 1981 og hafa
blessunarlega ekki legið saman síð-
an. Ég fékk góðfúslegt leyfi vinar
míns að nota andlit hans sem fyr-
irmynd þegar ég vann þessa mynd. Í
andliti hans kom ég fyrir þeim upp-
lifunum sem ég hafði gengið í gegn-
um við uppgjör mitt við Bakkus. Því
má segja að myndin sé spegilmynd
míns eigin sálarlífs á þessum tíma.“
Gunnar Örn Gunnarsson.
„Í hugarfylgsnum okkar leynast tvö hús. Annað er fullt af slæmum eða svört-
um minningum en hitt er fullt af góðum eða björtum minningum. Hjá virkum
alkahólista ræður hús hinna svörtu minninga ríkjum en þegar bata er náð fer
hús hinna björtu minninga að ná yfirhöndinni.
Eyjólfur Einarsson
Hús svartra minninga, 1996 Án titils, 1981,
155x145 cm, olía. 150x110, akrýl.
he@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 B 3