Morgunblaðið - 16.09.2001, Qupperneq 4
4 B SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Systir Jayanti er fædd í Poone á Indlandiárið 1949. Foreldrar hennar voru afstofni Sindhia og fluttu þau búferlumtil Englands snemma á sjötta áratugn-
um. Jayanti var þá átta ára gömul og hefur því
upplifað tvo heima ef þannig mætti að orði
komast, fátæktina í Austurlöndum og vestrænt
allsnægtaþjóðfélag, sem endurspeglar betur
en flest misskiptingu lífsins gæða í heiminum.
19 ára gömul var hún við lyfjafræðinám við há-
skóla í Lundúnum, en fór þá í nokkurra mán-
aða heimsókn heim til Indlands og afurð þeirr-
ar heimsóknar var kúvending í lífi Jayanti sem
tók þegar til við andlegt nám og störf við and-
lega háskóla Brahma Kumaris. Í dag er starf
hennar við háskólann viðamikið. Hún hjálpar
til við skipulagningu starfa háskólans í yfir 60
löndum utan Indlands. Auk kennslustarfa
stjórnar Jayanti Alþjóðamiðstöð Brahma
Kumaris í Lundúnum.
Stofnun sú er Jayanti starfar fyrir er bæði
andleg kennslustofnun og hjálparstofnun sem
hefur útibú í rúmlega 70 löndum, en sjálf hefur
Jayanti haldið fyrirlestra um málefnin í yfir 80
löndum. Fyrirlestrarnir spanna ýmis kunn
svið, heilbrigðis- og menntamál, samskipti
kynþátta, þarfir kvenna, trúarbrögð, alþjóða-
samskipti og heimsfrið, svo eitthvað sé nefnt.
Jafnframt kennir Jayanti fólki að ná andlegum
markmiðum. Jayanti fullyrðir að eyðing and-
legra gilda sé rót þess meins sem heimsbyggð-
in stendur frammi fyrir, þess vegna hefur hún
unnið þrotlaust síðustu þrjátíu árin við að
hamra á nauðsyn þess að styrkja jákvæð,
mannleg andleg gildi í öllum afkimum sam-
félagsins.
Árið 1980 var hún tilnefnd sem aðalfulltrúi
andlega háskólans hjá Sameinuðu þjóðunum í
Genf. Það hefur aftur leitt til þátttöku hennar í
fjölda ráðstefna og verkefna á vegum SÞ þar
sem viðfangsefnin hafa verið kvennamál, þró-
unarmál, umhverfismál, málefni ungs fólks og
síðast en ekki síst mikil vinna við undirbúning
„árs friðar“.
„Það eru miklir erfiðleikar í heiminum og
hafa verið,“ segir Jayanti og heldur áfram:
„Streita, spenna og neikvæðar tilfinningar og
hugsanir hafa grafið um sig og komið í veg fyr-
ir að fólk nái sambandi við sál sína og hjarta,
sem þó er nauðsynlegt til að ráða fram úr
vandamálunum. Andleg gildi hafa látið undan
síga. Allir mennskir menn eiga til fallegan stað
í hjarta sínu, en því miður vita það allt of fáir.
Leiðin til að opna hug fólks og hjörtu er að
nema þekkingu og hún fæst með því að skilja
lögmál náttúrunnar,“ segir Jayanti.
Ekki trúarbrögð
Systir Jayanti gerir sér far um að ítreka að
starfsemi og kenningar andlega háskólans snú-
ist ekki um trúarbrögð, enda aðhyllist fólk af
öllum trúarbrögðum boðskapinn, því hann snú-
ist um grundvallaratriði sem eru öllum mönn-
um sameiginleg. En hún er spurð á hvaða hátt
kenna megi fólki að opna sál og hjarta á þann
hátt sem hún greinir frá.
„Heilun er mikilvæg, einnig virðing fyrir og
öllu. Ýta þarf burt hugrenningum á borð við
„ég og eigingjarnar þarfir mínar“ og átta sig á
að jafnvægisröskun hefur orðið í náttúrunni,
röskun sem mennirnir bera ábyrgð á með mis-
notkun á náttúruauðlindum. Það verður að ná
aftur fyrra jafnvægi og það verður ekki hægt
nema takist að fá fólk til að skilja málin í réttu
samhengi. Þess vegna leggjum við áherslu á að
kenna fólki að skilja lögmál náttúrunnar og
auka virðingu þess fyrir henni. Það gerum við á
andlegan hátt, m.a. með íhugun.Til þess að
þetta megi takast þarf að gera fólki kleift að ná
sambandi við innviði sína, komast í snertingu
við hjartað og hugarþelið. Við höfum leiðir til
þess sem hafa gefist vel.“
Verður ykkur eitthvað ágengt?
„Við höfum komið þessum hugmyndum og
kenningum á framfæri jafnt og þétt um árabil
og ég tel að árangur hafi náðst. Mér finnst
a.m.k. að umræðan sé öll málefnalegri og ákaf-
ari.“
Stuðlar að jafnrétti
Andlegi háskóli Brahma Kumaris er mikil
lyftistöng fyrir jafnréttisbaráttu kvenna í
heiminum, því þegar upphafsmaðurinn,
Brahma Baba, lést árið 1969, tók konan Dadi
Prakashmani við leiðtogastarfinu og rekstrar-
stjóri var þá skipaður, Dadi Janki, einnig kona.
Þær byggðu starfsemina upp á þann veg að
konur eru í lykilstöðum og var ástæðan ekki
síst sú, að víða um heim njóta konur lítils frels-
is og mannréttinda.
Systir Jayanti segir að andlegi háskólinn
hafi í tímans rás náð miklum virðingarsess í
heiminum, hann starfar m.a. sem andlegur
ráðgefandi með Sameinuðu þjóðunum og Al-
þjóðaheilbrigðisstofnuninni, UNICEF, og sjálf
hefur systir Jayanti verið ráðgjafi fyrir Heims-
þing trúarbragða auk þess að gegna frekari
virðingarstöðum.
Lært á lífið
Inntak boðskapar andlega háskóla Brahma
Kumaris er, að varpað er ljósi á hið andlega og
hið góða í hverjum manni og hverjum og einum
er hjálpað til að finna á ný fyrir þessum góðu
eiginleikum með því að hvetja menn með
kennslu til að þróa andlega meðvitund, viðhorf,
hegðun og þekkingu á lífsleiðinni. Með því að
skilja til hlítar mikilvægi tilveru mannsins í
sem víðustu samhengi tekur andlegi háskólinn
á andlegu mikilvægi trúarbragða og menning-
arlegra siðvenja og tekur til meðferðar fyr-
irbæri og hugtök á borð við líf eftir dauðann og
samband okkar við guð og tilgang lífsins.
Þessar upplýsingar er að finna í rituðum
gögnum frá andlega háskólanum og þar er
kynning á hinum ýmsu hliðum hans, m.a. er
greint frá viðamikilli íhugunarkennslu. Þar er
m.a. kennd íhugun, meðvitund, að vera meðvit-
aður, samband við guð, andleg lögmál, tíma-
skeið, lífsins tré, sjálfsefling, grundvallaratriði
fyrir andlegan lífsstíl, þróun andlegra gilda, já-
kvæð hugsun, streitulaust líf, fjögur andlit
konu og fleira, auk þess sem menn geta tengt
námið viðskiptum, þ.e.a.s. hvernig hægt er að
nýta sér boðskap andlega háskólans í hinu dag-
lega lífi, m.a. í stjórnun og fyrirtækjarekstri.
Til dæmis er að finna námskeið sem þýða
mætti sem „sjálfstjórnuð forysta“ og „sjálf-
stjórnun í þágu aukinna lífsgæða“.
Umhverfismál
Andlegi háskóli Brahma Kumaris lætur sig
einnig varða umhverfismálin eins og kom fram
hér að framan í spjalli við systur Jayanti. Há-
skólinn hefur lengi kallað eftir viðhorfsbreyt-
ingum almennings og stjórnvalda gagnvart
„okkar sameiginlega heimi“ eins og þeir segja.
Staðið hefur verið fyrir rannsóknum á síðustu
árum á endurvinnanlegri orku og umhverfis-
vænum byggingaraðferðum. Hefur háskólinn
m.a. notað „The Academy For A Better
World“, smábæ sem háskólinn hefur hannað í
Rajashtan í Indlandi, til að vinna að hugmynd-
um sínum og var hann m.a. sýndur á byggð-
aráðstefnu á vegum SÞ í Istanbul árið 1996.
Höfuðstöðvar andlega háskólans á Mt.Abu í Indlandi.
Fólk þarf að skilja
lögmál náttúrunnar
Fyrir skömmu var stödd hér
á landi hin indverska systir
Jayanti, skólastýra Lund-
únadeildar hins alþjóðlega
andlega háskóla Brahma
Kumaris, í boði hérlendra að-
ila sem tileinkað hafa sér boð-
skap háskólans. Systir Jayanti
hélt meðal annars fyrirlestur í
Salnum í Kópavogi.
Morgunblaðið/Ásdís
Sister Jayanti.