Morgunblaðið - 16.09.2001, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 B 9
ferðalög
Hvaðan ertu að koma?
Frá Jótlandi í Danmörku.
Einhver sérstök ástæða fyrir
ferðinni?
Ég fór að heimsækja bróður minn
sem býr í Spörring, rétt hjá Árós-
um, og átta ára son hans. Bróðir
minn var að hefja háskólanám í Ár-
ósum.
Með hverjum fórstu?
Ég fór með eiginmanni mínum og þremur börnum okkar.
Hvernig var á Jótlandi?
Mjög skemmtilegt. Jótland kom virkilega á óvart og við vorum mjög hepp-
in með veður. Þar er fallegt og ótrúlega margt hægt að gera. Við leigðum
bíl og gistum á dönskum bóndabæ, rétt hjá Billund, þar sem íslensk hjón,
Bjarni Jónsson og Bryndís Gunnarsdóttir, búa og reka bændagistingu.
Það er ekki hægt að ímynda sér betri aðbúnað og stemmningu en var hjá
þeim. Mjög góð aðstaða fyrir fjölskyldufólk. Bjarni og Bryndís eru boðin og
búin að aðstoða þá sem gista hjá þeim. Börnin una sér líka mjög vel á
bóndabænum því þar eru geitur, asni og hænur. Ég mæli eindregið með
því fyrir Íslendinga sem eiga leið um Billund eða Suður-Jótland að gista
hjá þeim.
Einhverjir staðir sem vert er að heimsækja á þessum slóðum?
Legoland er auðvitað einstakur skemmtigarður og jafnt fyrir unga sem
eldri.
Eins var gaman að aka til Ebeltoft þar sem hægt er að skoða freigátuna
Jylland, en hún kom til Íslands 1874 með Kristján konung 9. og stjórn-
arskrána. Í Árósum er Den gamle by, eins konar Árbæjarsafn, eins má
nefna fjölskyldugarð sem heitir Djurs sommerland og þykir sumum hann
jafnast á við Disneyland. Þá er tilvalið að skreppa yfir til Flensborgar í
Þýskalandi sem er rúmlega klukkustundar akstur frá Billund.
Einhverjir veitingastaðir sem þú mælir með?
Rådhus Café, sem er við ráðhústorgið í Árósum. Þar fær maður ekta
danskan mat eins og lýst er í dönskubókunum. Kjötbollur, bixímat með
eggi og buff sem bragðast alveg frábærlega.
Myndir þú fara þangað aftur?
Já, mig langar það. Við eigum eftir að skoða ýmislegt á Jótlandi, til dæmis
baðstrendurnar á vesturströndinni. Ég myndi vilja gista á sama stað því
hann er miðsvæðis og margir áhugaverðir staðir innan seilingar.
Einhver ferð fyrirhuguð á næstunni?
Næstu ferðir verða helgarferðir innanlands. Ég stefni bæði á Akureyri og
Vestmannaeyjar.
Úr bændagistingu
hjá Íslendingum á
Jótlandi
Jótland kom Guðfinnu
Helgadóttur, aðalbókara
fraktdeildar Flugleiða,
skemmtilega á óvart en þar
eyddi hún sumarfríinu
ásamt fjölskyldunni.
Hvaðan ertu að koma?
Vefsíður sem Guðfinna mælir með: www.fylkir.iswww.come.to/
billund www.lego.com/legoland/billund/ www.feriefritid.dk/
Ísland
Ferðir til Taílands
Á vegum Samvinnuferða-Landsýnar
verða farnar þrjár skemmtiferðir til
Taílands; 12.–30. janúar, 6.–24. febrúar
og 9.–24. mars. Aðstaða er til golfiðk-
unar. Möguleikar á framlengingu. Far-
arstjóri verður Kjartan L. Pálsson.
Ferðakynning um Afríku
Kynnt verður 24 daga Afríkuferð á
vegum Helga Benediktssonar í sam-
vinnu við Ferðahornið á veitingahúsinu
Álafoss föt best í Mosfellsbæ þriðju-
daginn 18. september kl. 20.
Ætlunin er að ganga á Kilimanjaro,
fara í göngusafari með Masaai-
mönnum og fara til Zansibar.
Nánari upplýsingar: www.ferdahornid-
.is eða í símum 5755200 og
8993330.
Útsölustaðir um land allt.
Heimsækið www.lancome.com
Allt þetta verður þitt,
ef þú kaupir LANCOME vörur
fyrir 5.000 kr. eða meira*
Ath. Nokkrar gerðir kaupauka.
OFNAR
BJÓÐUM ÝMSAR
GERÐIR AF OFNUM
TIL HÚSHITUNAR
FRÁ:
VEHA, BAUFA
SUPERIA OG FLEIRUM
Ofnasmiðjan
Flatahrauni 13
220 Hafnarfirði
Leitið tilboða
hjá okkur.
Sími 555-6100 Fax 555-6110
Í tilefni af ferð ferðaskrifstofunnar
Emblu til Víetnam 11. nóvember næst-
komandi verður efnt til ferðakynn-
ingar í Norræna húsinu laugardaginn
22. september kl. 14: 30. Guðný Helga
Gunnarsdóttir sem búsett er í Víet-
nam mun kynna landið í máli og mynd-
um og gefa hagnýt ráð en hún verður
fararstjóri hópsins m.a. í Hanoi en Árni
Snævarr fréttamaður leiðir hópinn í
ferðinni um landið.
EMBLA TIL VÍETNAM
www.leir.is