Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 B 15
bílar
Dekk eru stór
hluti bílsins
HJÓLA- og jafnvægisstilling eru
mikilvæg atriði fyrir endingu og ör-
yggi dekkja. Með því að athuga dekk-
in undir bílnum reglulega og líta eftir
missliti á mynstri dekkjanna eykst
ending þeirra. Misslitið mynstur á
dekki getur orsakast af of lágum loft-
þrýstingi, rangri hjólastillingu,
slæmri jafnvægisstillingu eða bilun í
fjöðrunarbúnaði. Ef ekkert er að gert
mun dekkið slítast hratt upp og eyði-
leggjast að lokum, mun hraðar en efni
standa til. Við þessar aðstæður
aukast líkur á óhöppum sem rekja má
til dekkjanna.
Framleiðendur dekkja mæla með
að loftþrýstingur sé kannaður a.m.k.
einu sinni í mánuði og alltaf fyrir lang-
ar ferðir. Loftþrýsting dekkja á að
mæla þegar dekk eru köld, þ.e. áður
en keyrt er af stað. Algengt er að upp-
lýsingar um þann loftþrýsting sem á
að vera í dekkjunum sé að finna á
áprentuðum límmiða í hurðafalsi,
hanskahólfi eða á prentuðum gögnum
frá framleiðanda bílsins. Ef ekki er
fylgst reglulega með loftþrýstingi,
aukast líkur á missliti og jafnvel sliti á
innri byggingu dekksins, svo sem vír-
sliti. Sé loftþrýstingur ekki athugaður
reglulega aukast líkur á óhöppum
sem rekja má til dekkjanna.
Negld dekk
Hreyfingar og hröðun bíls við akst-
ur í snjó eða á ís ræðst fyrst og fremst
af því viðnámi sem dekkin hafa við yf-
irborð vegarins. Því er mjög mikil-
vægt að setja aldrei einungis tvö
negld dekk undir bílinn því við það
hefur bíllinn ekki sama viðnám við
veginn að framan og aftan og hreyf-
ingar hans verða misjafnar. Forðast
skal að láta negld dekk spóla á auðum
vegi því við það aukast líkur á að nagl-
ar snúist og skekkist í dekkjunum og
skemmi þau að lokum. Athugið að
skakkir naglar geta eyðilagt dekk.
Ef þess verður vart að dekkin slitni
ekki alveg jafnt er mælt með að víxla
dekkjum. Með því er átt við að taka
t.a.m. hægra framdekk og setja það
vinstra megin að aftan og öfugt. Á
framdrifnum bílum er mælt með að
víxla dekkjum á 12.000 km fresti eða
u.þ.b. einu sinni á ári. Til að muna
þetta er góð regla að merkja dekk
sem tekin eru undan til geymslu til að
hægt sé að víxla þeim við næstu
dekkjaskipti. Ef slitið er ekki jafnt á
dekkjunum er æskilegt að athuga
hjólastillingu, jafnvægisstillingu, loft-
þrýsting eða mögulega bilun í fjöðr-
unarbúnaði.
Helstu hugtök og orðatiltæki
Loftþrýstingur: Á flestum mælum
sem notaðir eru til að mæla loftþrýst-
ing í dekkjum er stuðst við mæliein-
inguna „pund á fertommu“ eða PSI
(pounds per square inch).
Radial dekk: Í radial dekkjum er
strigalögunum raðað þvert á dekkið
frá felgubrún í felgubrún. Í þeim er
vírbelti ofan á strigalögunum sem
liggur eins og mynstrið. Vírbeltið stíf-
ir og styrkir svæðið undir mynstrinu
og kemur í veg fyrir óæskilegar
hreyfingar þegar mynstrið snertir
veginn. Þetta gerir að verkum að
radial dekk slitna mun jafnar og hæg-
ar.
OPEL sýndi tvo nýja hugmyndabíla;
Signum 2, sem talinn er sýna
framtíðarútlit Omega, og Frogster,
lítinn og undarlegan bíl sem hægt
er að breyta í pallbíl og opinn
sportbíl. Opel var reyndar mjög
sýnilegur á bílasýningunni á um
5.300 fermetra sýningarsvæði.
Signum 2 er 4,64 m á lengd og
gefur innsýn í þá stefnu sem bílar
fyrirtækisins munu taka í framtíð-
inni hvað varðar útlit og tækni.
Bíllinn er fjórhjóladrifinn og að inn-
an er hann með sæti á snúnings-
ásum sem auðveldar
mjög allt aðgengi.
Þakið er úr gleri al-
veg frá framrúðu að
afturrúðu og nýjung
er að í einni af fjöl-
mörgum hirslum bílsins er að finna
espresso-kaffivél.
Frogster er 3,70 m á lengd og er
með rafstýrða blæju. Í bílnum eru
fjögur sæti sem hægt er að fjar-
lægja úr bílnum og breyta honum á
skömmum tíma með því að þrýsta
á hnapp í mælaborði úr eins eða
tveggja manna sportbíl í þriggja
eða fjögurra manna blæjubíl eða
tveggja manna pallbíl. Engar ráða-
gerðir eru uppi um að framleiða
Frogster en tilgangur með smíði
hans var að kanna viðhorf manna
til nýrra hugmynda um framleiðslu
smábíla.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Opel Signum 2 er til marks um framtíðarstefnu Opel í hönnun stórra fólksbíla.
Opel Frogster er hægt að breyta á marga vegu.
Opel Signum með
espresso-kaffivél