Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 16
Einn góður
– Hvernig brenndi drekinn sig á hendinni?
– Hann hélt fyrir munninn þegar hann hóstaði!
Þetta fólk er allt
þekkt fólk úr tónlist-
arheiminum. Sumt af
því dó kannski áður en
þið fæddust, en samt
gætuð þið þekkt það á
mynd. Reyndu að setja
rétt númer við rétta
mynd.
Hvað þekkir þú marga?
1 Madonna
2 Bob Marley
3 Ragnhildur Gísladóttir
4 Eminem
5 Celine Dijon
6 Bítlarnir
7 Michael Jackson
8 Britney Spears
9 Ómar Ragnarsson
10 Elvis Prestley
Þekkir þú fólkið?
ÖLL þekkjum við söngkonuna og
tónskáldið Björk sem er fræg um
allan heim. En margir vita
kannski ekki að að Björk var bara
ellefu, að verða tólf ára, þegar
hún gaf út fyrstu plötuna sína
sem hét einfaldlega Björk. Eitt
lag á plötunni varð vinsælast og
það heitir „Arabadrengurinn“.
Þegar Björk var lítil fór hún í
tónlistarskóla og lærði bæði á
flautu og píanó en segist
hafa kennt sér sjálf
að syngja með
því að syngja
stöðugt fyrir
sjálfa sig.
Þegar Björk
var lítil
ÚLFALDINN er víst tónelskasta
dýr sem til er. Þegar hann er að nið-
urlotum kominn af þreytu eftir
margra daga göngutúr í gegnum
eyðimörkina endurnýjast orka hans
ef knapinn leikur lítið lag á flautuna
sína fyrir hann. Kannski þetta virki á
fólk líka? Þú ættir að prófa að spila
uppáhaldslagið þitt þegar þú kemur
heim eftir erfiðan dag og gá hvort þú
hressist ekki. Svei mér þá!
Pínkupons
Úlfaldinn
tónelski Það er ekki nema
von að sólin setji
upp sólgleraugu til
að sjá betur þennan
frábæra regnboga
sem Andri Már 7
ára teiknaði fyrir
ofan húsið sitt.
Regn-
boginn
ÞAÐ er brjálað stuð á leikskólanum Hörðu-
völlum í Hafnarfirði þegar blaðamaður kemur
í heimsókn. Tuttugu börn syngja hástöfum
„Frekur getur étið hnetur betur í vetur“ og
dansa rokk með.
Þannig er að Halli í Botnleðju, eins og hann
er kallaður, eða Haraldur Freyr Gíslason
trommuleikari í rokkhljómsveitinni Botnleðju,
er að vinna á þessum leikskóla. Hann ætlar að
gefa út barnaplötu eftir mánuð sem mun heita
Hallilúja, en það er einmitt rokkstjörnunafnið
hans. Á plötunni verða tíu lög sem Halli spilar
oft fyrir krakkana á leikskólanum.
Lög úr heimi krakkanna
„Þegar ég byrjaði að vinna á þessum leik-
skóla fyrir fjórum árum fannst mér eins og
þeim fyndist söngfundir og aðrið tónlistar-
tímar ekki nógu skemmtilegir. Mér fannst lög-
in heldur ekki skemmtileg og byrjaði því að
prófa að búa til lög og athuga hvað krökkunum
fannst skemmtilegt. Svo urðu lögin fleiri og
fleiri og söngfundirnir lifnuðu við og það er
æðislega gaman hjá okkur.“
– Hvernig færðu hugmyndirnar að lögunum
og textunum?
„Ég sit og glamra á gítarinn þegar ég er að
púsla saman lögum og það er alveg ótrúlegt
hvað starfsfólkið hefur þolað að hlusta á mig.
Ég reyni að semja texta sem eru ekki bara bull
og vitleysa, heldur um eitthvað sem ég upplifði
þegar ég var krakki. T.d. að leiðast þegar var
rigning og maður komst ekki út að leika sér,
eða þegar það er enginn til að leika sér við og
maður býr sér til vini. Lögin eru um ýmislegt
úr heimi krakkanna. Þeir eru svo yndislegir.“
Alltaf gaman að spila fyrir börn
Halli segir að nokkur lög á plötunni séu ró-
leg en að krökkunum finnst yfirleitt rokklögin
skemmtilegri því þau eru svo grípandi. Hin
taka lengri tíma.
– Hvort er skemmtilegra að leika tónlist
fyrir börn eða fullorðna?
„Það er svo ólíkt að það er ekki hægt að
bera það saman og líka af því að ég spila á
trommur í hljómsveitinni. Bæði er skemmti-
legt þegar það er skemmtilegt. En það er
hægt að spila fyrir tvo krakka og það getur
verið mjög gaman en það er sjaldan gaman að
spila bara fyrir tvo fullorðna.“
– Eitthvað sérstakt sem þú vilt segja við les-
endur barnablaðsins?
„Já, börn eru skemmtileg – líka þegar þau
eru leiðinleg.“
Morgunblaðið/Þorkell
Halli og krakkarnir í góðu stuði á Hörðuvöllum.
Börn eru skemmtileg, líka
þegar þau eru leiðinleg
„Frekur getur étið hnetur betur í vetur“!
Brjálað stuð á leikskólanum Hörðuvöllum
ÁSLAUG Vanessa Ólafsdóttir og Örnólfur Þór Guð-
mundsson eru bæði fimm ára og eru á Fiðrildadeild
á Hörðuvöllum. Þeim finnst lögin hans Halla vera
skemmtileg.
Örnólfur: Já, „Frekur getur étið hnetur betur í vetur“
er draugalag.
Áslaug: Draugalagið er líka uppáhaldslagið mitt. Það
er svo skemmtilegt því það er svo mikill hávaði.
Örnólfur: Já, hávaði er skemmtilegur.
Áslaug: Og það er gaman að dansa við lögin. Ég er
byrjuð að læra ballet, en það er ekki hægt að dansa
ballet við lögin hans Halla.
Örnólfur: Þau eru meira svona rokk. Við fílum það.
Leikskólablúsinn er skemmtilegur.
– Hann fjallar um einhvern sem á fleiri en fjóra
pabba?
Örnólfur: Já, það er ekki hægt en lög geta verið skrýt-
in. Það er skemmtilegt.
Morgunblaðið/Þorkell
Örnólfur og Áslaug.
Lög geta verið skrýtin