Vísir - 20.08.1979, Qupperneq 4

Vísir - 20.08.1979, Qupperneq 4
Mánudagur 20. ágúst 1979 4 \ Fasteignaverö rýkur upp: ! i IrslKBkkun um 62 ■ 68%l i ! - hefur hækkaö um 45% á hrem ársfjóröungum I Að óbreyttu ástandi má reikna með þvi að fasteignaverð hækki um 62% til 68% milli áranna 1978 og 1979, að þvi er segir i nýút- komnu fréttabréfi frá Fasteignamati rikis- ins. Nú þegar hefur fasteignaverð hækkað um 45% frá þvi i októ- ber i fvrra. Fasteignamatið fylgist reglu- lega með söluverði fasteigna. Fasteignaverð hækkaði um 15% á öðrum ársfjórðungi þessa árs, mánuðina apríl til júli, en frá áramótum hafa fasteignir hækkað i verði um 4,5% að jafn- aði milli mánaða. Til samanburðar má geta þess, að framfærsluvisitala fyr- ir mánuðina mai til ágúst hækk- aði um 13,6% en verðbætur á laun voru 9,17%. Verðbólgan frá ágúst 1978 til ágústs 1979 var 42%, en eins og að framan greinir gerir Fasteignamatið ráð fyrir 62% til 68% hækkun á fasteignaverði frá október 1978 til október 1979. -Ks Ef þú hefur nokkru sinni efast um sparneytni Volvo, þá er kominn tími til að láta sannfærast! Það hafa allir gert sér grein fyrir „Volvo öryggi gæðin í framleiðslunni leyna sér ekki. Meðalendingin, talar sínu máli - og endur- söluverðið segir sitt. Úrslit sparaksturskeppni BÍKR í vor, sýndu greinilega yfirburði Volvo. Í4. flokki, 1301-1600 cc , sigraði Volvo 343 með yfirburðum. 343 (1397 cc) ók 77.12 km og eyðsla hans á 100 km var aðeins 6.48 I. í 7. flokki, 2001-3000 cc, sigraði Volvo 244 (2127 cc) ók 62.00 km með 8.06 eyðslu á hundraði. En hefur þú gert þér grein fyrir benzínnýtingu Volvo? Þetta eru vissulega tölur, sem tala sínu máli, -enn ein staðfestingin á gæðum Volvo bifreiðanna. - sparnaður, þægindi, þjónusta. Þrotahú Breiöholts h/t KROFUR NEMA ALLT AÐ MILLJARÐI Kröfur á hendur þrotabús Breiðholts h/f nema nú alls 661 milljón króna og eru það 328 aðil- ar, sem gera þær. Sé vöxtum og kostnaði bætt við nema kröfurnar allt að einum miiljarði króna. Gjaldheimtan I Reykjavik er stærsti kröfuhafinn með samtals 159 milljónir króna, en Sements- verksmiðja rikisins gerir kröfur um á 53 milljónir. Raftækjaverk- smiðjan gerir kröfur upp á 40 milljónir, tollstjórinn i Reykjavik 38 milljónir og húsfélagið gerir kröfur upp á 36 milljónir króna vegna ófullnægjandi frágangs á byggingu. Þá gerir Guðrún Einarsdóttir og synir kröfur upp á 33 milljónir vegna kaupa á hús- eign, sem síðan reyndist veðsett. Skiptafundur i búi Breiðholts verður haldinn nk. mánudag og þá verða lýstar kröfur lagðar fram. —HR Olluslvrkurinn I 15660 krðnur á elnstakling Oliustyrkurinn hækkar i 15000 krónur á mann á þriðja ársfjórð- ungi þessa árs, en hann var á öðr- um ársf jórðungi 8500 krónur. Þeir einstaklingar, sem njóta þessa styrks, munu nú vera um 48000. Þessi hækkun er í samræmi við samþykkt rikisstjórnarinnar og kemur hún til með að kosta rikis- sjóð 800-850 milljónir króna. —HR Belglskl togarlnn meö of smáa möskva: Gert að greiða 450 pús. Dómsátt varð i máli skip- stjórans á belgiska togaranum Belgian Sailor, sem Landhelgis- gæslan tók á Lónsdýpi á mánudag með of smáa möskva i vörpunni og var honum gert að greiða 450.000 krónur i Landhelgissjóð. Aö sögn Jóns Þorsteinssonar, aðalfulltrúa bæjarfógetans i Vestmannaeyjum, en hann kvaö upp dóminn sl. þriðjudag, varö stópstjórinn uppvis að þvi að hafa haft 145 mm möskvastærö i poka vörpunar og 130 mm I belg hennar.Þar sem ekki var um itrekað brot aö ræða fékk hann þó aö halda afla og veiöafærum og hélt togarinn þegar til Belgiu eftir að dómur hafði verið kveðinn upp. -HR.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.