Vísir - 25.09.1979, Blaðsíða 16

Vísir - 25.09.1979, Blaðsíða 16
I ’ • • ’ • Kjartan Ragnarsson hefur unnið Ofvitann fyrlr svlb. Þeir Emil Gunnar Guömundsson (t.v.) og Jón Hjartarson fara meö hlutverk Þórbergs. Þeir eru báöir á sviöinu allan timann. Olvilinn hans Þðrbergs á fjalirnar í iðnð -1 leikgero Kjarlans Ragnarssonar Sviösmyndin er mjög stllhrein og einföld. Myndin er af lfkaninu og inn i þvf sjást dýnurnar tvær og tjaldiö sem gömlu myndunum frá Reykjavik aldamótanna veröur varpaöá. Vlsismynd JA „Ég var búinn að velta þessu verkefni lengi fyrir mér og var marg-oft búinn að fara yfir bókina og merkja hana alla og raða niður atriðum. Verkefninu lauk ég svo i sumar á um tveim mánuðum”, sagði Kjartan Ragnarsson leikstjóri i spjalli við Visi um leik- gerð sina á Ofvitanum eftir Þórberg Þórðar- son. Leikritiö veröur frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavikur þann 20. október og æfingar eru þegar hafnar. „Ofvitinn er meö leikrænustu bókum Þórbergs. Þarna lýsir hann æviskeiöi sem hefur skipt mestu máli og mótaö þann Þór- berg sem viö þekkjum. Þaö er þvl margt sem réttlætir aö færa söguna I leikritsform”, sagöi Kjartan. Tveir i hlutverki Þór- bergs ,,Ég var lengi aö velta þvi fyrir mér hvernig ég ætti aö setja fram hugleiöingar Þór- bergs, þar sem mikill hluti text- ans I bókinni er þaö sem hann hugsar. Ég greip til þess ráös aö hafa Þórbergana tvo. Annar er um fertugt hinn um tvltugt þegar sagan gerist. Sá eldri er ósýnilegur leikurunum á sviöinu, öörum en Þórbergi yngra. Þeir ræöa saman og einnig talar sá eldri til áhorf- enda”, sagöi Kjartan. 1 bók sinni tekur Þórbergur fyrir eitt atriöi I einu. Fjallaö er um t.d. Kennaraskólann I nokkrum köflum, vinina I öörum osfrv. „Vegna kaflaskiptinga Þór- bergs var erfitt aö vinna söguna I leikritsform. Ég reyni aö brjóta þetta upp og atburöirnir fléttast meira saman I leikrit- inu”, sagöi Kjartan. ,, Hj álpr æðisherinn ’ ’ sér um tónlistina Leikmyndin I leikritinu er mjög einföld aö allri gerö. Aö- eins er um aö ræöa tvær stórar dýnur, sem er ýmist snúiö upp á rönd eöa látnar liggja flatar. Til aö undirstrika þaö tlmabil sem leikurinn gerist á, þá er mynd- um frá gömlu Reykjavik varpaö á tjald innst á sviöinu. Steinþór Sigurösson og Kjartan gera leikmyndina. Tónlistina I leiknum sér „Hjálpræöisherinn” um. Herinn eru þrlr leikarar, þau Jón Sigur- björnsson, Margrét Helga Jó- hannsdóttir og Ólafur Thorodd- sen. Þau leika á hin ýmsu hljóö- færi. Meö aöalhlutverkin, Þórberg fara þeir Jón Hjartarson og Emil Gunnar Guömundsson, sem stendur nú i fyrsta sinn á fjölunum I Iönó. Þá fara þeir Hjalti Rögnvaldsson og Harald G. Haralds meö stór hlutverk. Lilja Þórisdóttir leikur elskuna. Fimmtán leikarar fara meö alls 40hlutverk, en sex þeirra skipta oftast um hlutverk. —KP HAGSMUNAFELAG MYND LISTARMANNA STOFNAÐ POVl Vad í Norræna húslnu Danski rithöfundurinn og list- fræöingurinn Povl Vad heldur tvo fyrirlestra I Norrænahúsinu um eigin ritverk og listir. Hinn fyrri veröur I kvöld klukk- an 20.30 en hinn siöari á laugar- daginn klukkan 16. Povl Vad fæddist I Silkiborg á Jótlandi 1927. Rithöfundarferill hans hófst áriö 1960, en þá kom út hans fyrsta skáldsaga De noj- somme. Kattens anatomi nefnir Vad skáldsögu sem kom út I fyrra. Fyrir hana hlaut hann bók- menntaverölaun dönsku aka- demlunnar. —KP Formaöur félagsins er Richard Valtingojer. „Hagsmunamál myndlistar- manna hafa allt of lengi setiö á hakanum. Til aö bæta úr þessu stofnuöum viö þetta félag, sem viö vonumst til aö geti sameinaö myndlistarmenn og leiörétt þaö sem miöur hefur fariö I gegn um árin”, sagöi ólafur Lárusson myndiistarmaöur og ritari nýs félags sem stofnaö hefur veriö af myndlistarmönnum. Þaö heitir Hagsmunafélag myndlistar- manna og I þvi eru nú um 40 manns. ólafur sagöi aö markmiöiö væri aö sameina þá myndlistarmenn sem hafa ekki veriö I öörum félögum. Einnig aö kanna grund- völl fyrir stofnun stéttarfélags eöa stéttarsambands myndlista- manna og aö vera málsvari félagsmanna út á viö. Félagar geta oröiö þeir sem telja myndlist veröa aöalframlag sitt til þjóöfélagsins og sækja um aöild aö félaginu. Félagar eru þegar orönir um 40 talsins. Félagiö mun beita sér fyrir aö fella niöur luxustolla og vörugjald á hráefni til myndlistar. Vinna aö þvl aö öll efni, tækjakostur, vinnustofur, feröalög I sambandi viö sýningar og starf myndlistar- manna veröi frádráttarbært til skatts. Fá endurgreiddan sölu- skatt af listaverkauppboöum. Vinna aö þvl aö fyrirtæki og jafn- vel einstaklingar sem kaupa listaverk fái þau frádregin frá skatti. Endurskoöa styrktarkerfi hins opinbera. Aö kanna mögu- leika á láns-eöa launakerfi ásamt fleiru. Formaöur félagsins er Richard Valtingojer. KP

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.