Vísir - 19.10.1979, Side 6

Vísir - 19.10.1979, Side 6
6 VÍSIR Föstudagur 19. október 1979 Lékán pess aö vitaum andlát déttur slnnar Tékkneski handknattleiksmaö- urinn Salivar, sem lék hér meö tékkneska landsliöinu á mánudaginn, á ekki beinlinis fagrar minningar, þegar ísland og landsleikir viö Islendinga eru annars vegar. Salivar, sem er einn besti leik- maöur Tékka og hefur 50 lands- leiki aö baki, lék meö tékkneska landsliöinu í B-keppninni á Spáni s.l. vor. I þeim leik datt hann illa og meiddist talsvert á hné, og hef- ur lengi átt viö þau meiösli aö striöa. Hann var ekkert of hrifinn af þvi aö þurfa aö fara til Islands núna oe leika. en lét samt undan vegna mikillar pressu. A æfingu i Laugardalshöll tóku meiöslin sig upp og var taliö vafasamt aö hann gæti leikiö um kvöldiö. Hann lét sig þó hafa þaö, en aftur meiddist hann á hné og einnig á höföi, er hann skall illa i gólfiö. En ekki er allt búiö enn. A mánudagseftirmiödaginn kom simskeyti frá Tékkóslóvakiu, þar sem tilkynnt var aö dóttir hans hefði látist þá um daginn. Þessu var haldiö leyndu fyrir Salivar og hinum leikmönnum liösins, þar til á þriöjudagsmorgun, en þá var Salivar tilkynnt um þetta. Þetta haföi mjög slæm ahrif á leikmenn tékkneska landsliðsins, sem eru margir hverjir félagar Salivar hjá Dukla Prag. Höföu sumir þeirra á oröi, aö þeir vildu ekki spila leikinn á þriöjudags- kvöldiö og i fyrrakvöld, en létu samt undan. Salivar hélt hinsveg- ar beinustu leiö heim strax á þriöjudaginn. Aö sögn heimildarmanns VIsis fyrir þessari frétt, þótti ekki koma til greina aö tilkynna Sali- var um andlát dóttur hans á mánudaginn fyrir landsleikinn, heföi þaö veriö gert, þá heföi hann aö sjálfsögöu ekki leikiö og félag- ar hans varla heldur. — gk. 1 *"l. J Jku/m «1 tslenska landsliöiö, sem keppir i Heimsmeistarakeppni 21 árs og yngri I Danmörku. Aftari röö frá vinstri: Ólafur Jónsson, fararstjóri, Jóhann Ingi, þjálfari, Alfreö Gislason, Siguröur Gunnarsson, Siguröur Sveins- son, Kristján Arason, Atli Hilmarsson, Guömundur Þóröarsson, Friörik Þorbjörnsson, Brynjar Kvaran, ólafur Gunnlaugsson og Jóhannes Sæmundsson, aöstoöarþjálfari. Fremri röö frá vinstri: Guömundur Magnússon, Sigmar óskarsson, Birgir Jóhannsson, Theodór Guöfinnsson, Arsæll Hafsteinsson, Andrés Kristjánsson og Stefán Halldórsson. Visismynd: Friöþjófur Heimsmeistarakeppni 21 fslensku tllbðnir ,,Ég geri mér engar vonir um aö okkur takist að sigra Sovét- mennina i riölakeppninni, en viö munum setja okkur þaö markmiö að sigra V-Þjóöverjuna og komast þannig i 8-liöa úrslitin”, sagöi Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari 21 árs landsliösins i hand- knattleik, sem heldur utan á mánudag og tekur þátt i Heims- meistarakeppninni i Danmörku. Þar er Island I riöli meö Portúgal, Sovétrikjunum, Hollandi, V- Þýskalandi og S-Arabíu. Islenska liöiö hefur undirbúiö sig fyrir þetta verkefni I allt sumar og er óhætt aö segja, aö liöiö sé vel undir átökin búiö. Fyrsti leikurinn veröur gegn Portúgal á þriöjudag, siöan veröur leikiö gegn Sovétrikjunum á miövikudag, á fimmtudag gegn Hollandi , á laugardag gegn V- Þýskalandi og á sunnudag gegn S- Arabiu. Tvö liö komast I 8-liöa úrslitin úr þessum riöli og er næsta öruggt aö Sovétmenn, sem eru núverandi heimsmeistarar I þessum aldursflokki, veröa annaö þeirra. Þjóðverjarnir hljóta aö teljast liklegastir til aö hreppa hitt sætiö, og ef svo fer, mun tsland aö öllum lfkindum leika um sæti 9-12 i keppninni. Þetta er I fyrsta skipti sem Island tekur þátt i keppni sem þessari og má telja nokkuö vist, árs og yngrl I handknattielk: pinarnir I slaginn aö áframhald veröur á, enda er þarna veriö aö byggja upp lands- liösmenn framtiöarinnar i haröri keppni viö jafnaldra sina. I forkeppninni veröur leikiö I fjórum riölum, tveir þeirra fara fram I Danmörku en hinir tveir I Sviþjóö. Eftir aö riölakeppninni lýkur, flytja öll liöin sig til Dan- merkur og þar veröur leikiö til úrslita um öll sætin i keppninni. gk—. isienskir Tveir islenskir dómarar, þeir Karl Jóhannsson og Gunnlaugur Hjálmarsson, munu dæma nokkra leiki I heimsmeistara- keppni 21 árs og yngri, sem hefst I Danmörku og Sviþjóö eftir helgi- na. dómarar Þeir félagar halda fyrst til Svi- þjóðar og dæma þar I riðla- keppninni, og siöan fara þeir yfir til Danmerkur ásamt þeim liöum, sem keppa i Sviþjóö, og dæma I Danmörku, þegar leikiö veröur um úrslitaröö þjóöanna. HVER TEKUR VIB AF ILITCHEV7 Hver tekur viö landsliösþjáif- arastarfinu l knattspyrnu af Sovétmanninum Youri Ilitchev. Þessari spurningu velta margir fyrlr sér þessa dagana, enda er taliö nær öruggt, aö Ilit- chev muni ekki veröa meö landsliöinu áfram. Hafa nokkur nöfn veriö nefnd I sambandi viö það hver veröi eftirmaöur hans, en eins og fyrri daginn eru menn ekki á einu máli. Þær sögusagnir hafa veriö á kreiki, aö nú veröi þaö Islenskur þjálfari, sem muni fá liöiö I hendur og hefur m.a. háttsettur maöur innan Knattspyrnusam- bandsins látiö þau orö falla, aö honum finnist timi til þess kom- inn. En ekki vildi þessi ágæti maður nefna þann eöa þá, sem honum finnst helst koma til greina i starfiö. Þaö er ekki um marga menn aö ræöa, ef islenskur þjálfari tekur viö liöinu. Helst eru þaö nöfn eins og Guöni Kjartansson, Lárus Loftsson, Hólmbert Friö- jónsson og Þorsteinn Friöþjófs- son, sem koma i hugann, og má telja nokkuö öruggt, aö einhver þessara manna fái starfiö ef is- ienskur þjálfari veröur ráöinn. Þær raddir eru hins vegar há- værar, sem segja aö þaö sé úti- lokaö aö fá islenskum þjálfara liöiö i hendur, og eru meginrök þeirra sú, aö þar sem svo marg- ir atvinnumenn séu aö jafnaði i islenska liöinu veröi aö ráöa at- vinnuþjáifara frá útlöndum. Þessir atvinnumenn muni ekki „respektera” neinn af þeim Is- lensku þjálfurum, sem til greina komi i stööuna. Heyrst hefur um áhuga margra á aö fá Þjóöverjann Klaus Jörgen Hilpert til aö taka landsliöiö aö sér, jafnframt þvi sem hann muni þá þjálfa Akra- nesliöið eins og hann geröi i sumar. Vist er Hilpert vel menntaöur þjálfari og greini- lega fær maöur, en þaö er svo aftur spurning, hvort ráöa eigi mannsem þjálfara landsliösins, sem jafnframt þjálfar liö I 1. deild. Reynslan af þvi er á margan hátt ekki góö, og spilar þar ekki hvaö sist inn I sögu- sagnif um aö viökomandi þjálf- ari hygli þá sinum mönnum á kostnaö annarra og lokki jafn- vel leikmenn til þess félags, sem hann þjálfar hjá. En hvort sem veröur ofan á, aö ráöinn veröur erlendur þjálf- ari eða Islenskur, þá er vist aö beöiö mun eftir ákvöröun I þessu máli meö eftirvæntingu, enda starfiö þess eðlis, aö sá, sem þaö fær, veröur óneitanlega mikiö i sviösljósinum þegar aö þvi kemur aö viö göngum til landsleikja á næsta sumri.gk—.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.