Vísir - 19.10.1979, Qupperneq 8

Vísir - 19.10.1979, Qupperneq 8
Föstudagur 19. október 1979 8 czr Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, £úas Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra trétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guð Útgefandi: Reykjaprent h/f vinsson. Framkvæmdastjóri: Davlð Guðmundsson Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmvnd:- Gunnar V. Ritstjórar: Ólafur Ragnarsson Andrésson, Jens Alexandersson. Utlit og hönnun: Gunnar 'T' =iusti Guðbjörnsson, Hörður Einarsson Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúla 8. Slmar 86611 og 82260. Afgrelðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur. Askrift er kr. 4.000 á mánuði innanlands. Verð i lausasölu 200. kr. eintakið. Prentun Blaðaprent h/f ER HÆGT RÐ SEMJfl UM KJARABÆTUR? Verslunin viröist vera verstsett allra atvinnugreina. Taliö er, aö á þessu ári skili versl- unin sem heild aöeins 0,2% hagnaöi. Þær umræður, sem þegar eru hafnar um nýja kjarasamninga í stað þeirra, er falla úr gildi um næstu áramót, benda til þess, að ekki muni reynast auðvelt að ná samkomulagi milli fulltrúa at- vinnuveganna og launþega um kaup og kjör. ( kjaraályktun Verkamanna- sambands fslands á dögunum var þvi lýstyfir, að f ullt tilefni sé til kjarabóta til handa almennu launafólki og stefnan í komandi kjarasamningum hljóti að verða sú að ná og treysta þann kaup- mátt, sem samningarnir f rá 1977, óskertir, gerðu ráð fyrir. í stefnuyfirlýsingu kjaramála- ráðstefnu Vinnuveitendasam- bands Islands var á hinn bóginn lögð áhersla á, að breytingar á kjarasamningum verði að gera innan þeirra marka, að þær hafi ekki i f ör með sér aukinn heildar- launakostnað. Ekki verður annað séð en stefnumið þessara tveggja sam- taka launþega og vinnuveitenda séu ósættanleg. Sú spurning hlýt- ur því að verða ef st á baugi, hver sé staða atvinnuvega okkar til að bæta kjör launþega. Hagdeildir Vinnuveitendasam- bandsins, Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, Félags is- lenskra iðnrekenda og Versl- unarráðs (slands hafa nýlega gertathugun á ástandi og horf um í ef nahags- og atvinnumálum, og gerði PálI Sigurjónsson formað- ur Vinnuveitendasambandsins grein fyrir niðurstöðu hennar á kjaramálaráðstefnu VSÍ. Talið er, að af koma veiðiskipa, sem botnf iskveiðar stunda, ætti ekki að verða lakari á þessu ári en undanfarin ár vegna aukins aflamagns, en hagur skipa, sem aðrar veiðar stunda, muni hins vegar versna. Hagdeildir at- vinnuvegasamtakanna gera svo ráð fyrir því, að afkoma útgerð- arinnar verði lakari á árinu 1980 en árinu 1979, sérstaklega vegna samdráttar í afla. I þessu sam- bandi verður þó að hafa í huga, að allt er í óvissu um fiskveiði- stefnu á næsta ári, þ.e. hvort ofan á verði að fara í stórum dráttum eftir tillögum f iskifræð- inga eða hvort tímabundnar efnahagslegar þarfir verða látn- ar ráða aflamagninu. Að því er f iskvinnsluna varðar álíta atvinnuvegasamtökin, að í heild verði rekstrarskilyrði henn- ar erfiðari á árinu 1980 en í ár, sem orsakast af ytri aðstæðum. Aætlanir benda tiI, að í iðnaðin- um verði hreinn hagnaður fyrir skatta í hlutfalli við tekjur, þegar á heildina er litið, nokkuð innan við 3% á árinu 1979, sem er nokkru minna en að meðaltali á árabilinu 1970-1977. Verst virðist útlitið vera í versluninni, en á árinu 1979 hef ur afkoma verslunarinnar farið versnandi. Er áætlað, að hagnað- ur eftir skatta verði aðeins 0,2% á þessu ári i staðinn fyrir 0,6% á árinu 1978, sem einnig verður að teljast mjög slök afkoma. Miðað við óbreyttar aðstæður er gert ráð fyrir því, að afkoma versl- unarinnar fari a.m.k. ekki batn- andi á árinu 1980. Af þessu er Ijóst, að af koma at- vinnuveganna er ýmist mjög óviss eða beinlínis bágborin. Það er því alls ekki við því að búast, að þeir geti að sinni bætt kjör launþega sinna. Þó að verkalýðs- samtökunum tækist í komandi samningum að knýja f ram kaup- hækkanir í krónutölu, má telja fullvíst, að þær kauphækkanir leiði ekki til raunverulegra kjarabóta, heldur skapi aðeins erfiðleika og frekari óvissu í at- vinnumálunum. Það ætti því að vera sameiginlegt keppikefli vinnuveitenda og launþega nú að fá bættan hag atvinnufyrirtækj- anna, svo að þau geti síðar veitt launþegum sínum raunverulegar kjarabætur í stað gervikaup- hækkana. RISIA BRAUBF0TUNI Um þessar mundir er Sjálfstæðisflokkurinn að reyna að hrista af sér slen það, sem á honum hefur hvílt frá síðustu kosningum. Talsmenn hans sumir hafa haldið því fram, að í kosningum nú muni Alþýðuflokkurinn skila aftur atkvæðum, sem þeir segja að hann hafi fengið að láni hjá Sjálfstæðisf lokknum síðast, og því muni Sjálfstæðisflokkurinn sigra nú. Þá hafa þeir haldið því fram, að flokkurinn muni hagnast á því að rikisstjórn ólafs Jóhannessonar hafi verið óvinsæl. Þaö er einkar athyglisvert viö þennan málflutning aö ekki hvarflar aö Sjálfstæöismönnum aö flokkur þeirra geti sigraö aö eigin veröleikum. Vonir þeirra byggjast beinlinis á aögeröa- leysi þeirra i stjórnarandstöö- unni, og þvi aö kjósendur hafi gleymt þeirri stjórnarforystu Sjálfstæöisflokksins, sem þeir höfnuöu i siöustu kosningum. Þetta mat sjálfstæöismanna er vafalaust rétt. Flokkurinn á ekki aörar sigurvonir en þessar. Atkvæðaeignin Hverjar eru skýringar þess aö flokkur, sem fyrir rilmum ára- tug var forystuafl I Islenskum stjórnmálum þarf nú aö sætta sig viö svo lágkúrulegar horfur? Eina skýringuna er aö finna i tali sjálfstæöismanna um láns- atkvæöin. I þvi tali felst sú gamla en úrelta hugsun aö stjórnmálaflokkar eigi atkvæöi kjósenda, meö svipuöum hætti og einstaklingar eiga Ibúö eöa bifreiö.! augum þeirra sem svo tala eru kjósendur ekki hugs- andi fólk, heldur dauöir hlutir, sem hægt er aö lána og inn- heimta eins og hverja aöra skuld. Ekkert skal um þaö full- yrt hvort þetta hafi einhvern tima veriö svona. Hitter ljóst aö I nútimanum dettur kjósendum ekki i hug aö lita á sig sem eign stjórnmálaflokks, heldur nota sér til fulls þau lýöréttindi, sem i almennum kosningarétti fel- ast, og velja og hafna flokkum eftir sannfæringu sinni en ekki flokksböndum. Fjórar meginstoðir Þaö er fullt tilefni til aö at- huga nánar stööu Sjálfstæöis- flokksins nú I ljósi þess, sem hún var á veldistimum flokksins fyrir rúmum áratug. A þeim tima byggöist styrkleiki flokks- ins á fjórum meginstoöum, sem samanlagöar veittu flokknum mikiö afl. Skal þar fyrst nefna sterka forystu. Kom þar hvort tveggja til aö forystumenn hans voru hæfír einstaklingar og samstarf þeirra á milli var gott. Illdeilur milli forystumanna voru nánast óþekktar þá. í annan staö var þaö mikils- vert aö Sjálfstæöisflokkurinn réöi þá einn Reykjavikurborg, höfuöstaö landsins. Þetta haföi ómetanlega þýöingu og mátti skoöa sem völdun á stööu flokksins á Alþingi. ÞÍtt flokk- urinn dytti út úr rikisstjórn varö hann ekki valdalaus. Þá var staöa Morgunblaösins flokknum dýrmæt. A þeim tíma haföi Morgunblaöiö nánast ein- okunaraöstööu I fjölmiölun I skjóli stæröar sinnar og út- breiöslu. Málgögn annarra flokka voru veik og miklar hömlur á umfjöllun um stjórn- mál I útvarpi. Síöast en ekki sfst haföi Sjálf- stæöisflokkurinn veruleg itök I verkalýöshreyfingunni, sem var nauösynlegt skilyröi til aö skapa þá imynd „flokks allra stétta”, sem foringjar flokksins lögöu mikla áherslu á. Sprungurog fúi Sé hugaö aö hinum fjórum meginstoöum Sjálfstæöisflokks- ins nú, kemur fljótt I ljós aö þær eru allar mikiö sprungnar og sumar meö öllu brott fallnar. Forystumenn Sjálfstæöisflokks- ins eru mætir menn i sjálfu sér, en öllum má ljóst vera aö þeim hefur ekki tekist aö skapa þá sterku forystu, sem flokkurinn naut áöur. Áhrif Morgunblaös- ins eru ekki nema svipur hjá sjón hjá þvi sem áöur var. Kem- ur þar einkum til útgáfa siödeg- isblaöanna og mun meira frjáls- ræöi I umfjöllun rikisfjölmiöl- anna um stjórnmál. Sjálfstæöis- flokkurinn hefur tapaö Reykja- vikurborg og veröur aldrei sam- ur aftur I þeim efnum. Þá hafa tengsl fiokksins viö verkalýös- hreyfinguna dofnaö stórlega, og áhrif manna úr verkalýöshreyf- ingunni á stefnu flokksins nær horfiö. í 20 manna þingflokki Sjálfstæöisflokksins er enginn forystumaöur úr verkalýös- hreyfingunni og er þaö mikill munur frá þvi sem áöur var. Hin glæsta fortíð Sjálfstæöisflokkurinn nú er fyrst og fremst merkur fyrir sögu sina. Og eins og jafnan er þannig háttar til hættir tals- mönnum flokksins til aö láta hugann dvelja viö þá tlma er glæsilegri voru en nútiminn. Um þessar mundir tala þeir hátt um aö áttundi áratugurinn, sem viö lifum á sé áratugur verö- bólgu og efnahagslegrar ó- stjórnar. Sjöundi áratugurinn, þegar Viöreisnarstjórnin var viö völd, hafi hins vegar veriö áratugur stööugleika og efna- hagslegs öryggis. Þetta er aö sönnu fulikomlega rétt hjá sjálf- stæöismönnum. Hinu gleyma þeir, e.t.v. af skiljanlegum á- stæöum, aö Sjálfstæöisflokkur- inn haföi stjórnarforystu hálfan áratug veröbólgunnar. Þvi siöur átta þeir sig á þvi aö efnahags- málastjórn á áratug Viöreisnar- Finnur Torfi Stefánsson al- þingismaöur segir m.a. f grein sinni, aö þaö sé athyglisvert viö málflutning sjálfstæöismanna nú, aö ekki hvarfii aö þeim aö flokkur þeirra geti sigraö i kosningum af eigin veröleikum. „Vonir þeirra byggjast beinlinis á aögeröarleysi þeirra i stjórnarandstööunni og þvf, aö kjósendur hafi gleymt þeirri stjórnarforystu Sjálfstæðis- flokksins, sem þeir höfnuöu i slðustu kosningum”. innar var einkum I höndum Al- þýöuflokksins og Alþýöuflokk- urinn er eini Islenski stjórn- málaflokkurinn, sem ekki hefur átt aöild aö veröbólgudansi átt- unda áratugsins. í þessu ljósi veröur þaö e.t.v. skiljanlegra hvers vegna Alþýöuflokkurinn hefur nú rofiö stjórnarsamstarf sem sýnt haföi sig vanmegnugt til aö ráöa viö efnahagsmál, á- kveöiö kosningar og tekiö sjálf- ur aö sér iandsstjórnina þar til þær eru afstaönar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.