Vísir - 19.10.1979, Síða 14
VISLR Föstudagur
r--------------------
19. október 1979
1
Reikningar Albingis
hiá ríkisendurskoðun
„Yfirskoöunarmenn hafa beðiö
okkur að athuga þetta mál og við
munum skila þeim skýrslu.
Þangað til vilégræða sem minnst
um þetta mál”, sagöi Halldór V.
Sigurösson rikisendurskoðandi i
samtali við Visi um mál það sem
risið er vegna tviborgana á sim-
reikningum til Jóns Sólness al-
þingismanns.
Halldór tók fram að rikisendur-
skoðun færi aldrei yfir reikninga
Alþingis. Það væri i höndum yfir-
skoðunarmanna.
Það hefur komið fram að i
ágúst f fyrra gerði rikisendur-
skoöun athugasemd við það að
Kröflunefnd hefði greitt
reikninga af heimasima Jóns
Sólness að upphæð rúmlega ein
milljón króna.
1 svari Jóns segir hann að
honum sé tjáð að slikt sé ekki
óalgengt um þá forstöðumenn
rikisstofiiana sem ætti að gera vel
við.
Halldór var spurður hvort þetta
svar heföi dugað rikisendur-
skoðun og málið látið niður falla,
en rikisendurskoðun hefur
heimild til að leita úrskurðar um
endurgreiðslur hafi opinberir
embættismenn ofgreitt sér laun
og kostnað einhverra hluta
vegna.
Halldór ítrekaði að hann vildi
ekki ræða þetta mál á þessu stigi
en benti á að málið hefði ekki
veiið afgreitt meðal annars vegna
þess að heimild hefði vantað frá
iðnaðarráðuneytinu til greiðslu
þessara reikninga.
Hamingjusamip
foreldrar
Snowdon lávarður fyrrverandi
eiginmaður Margrétar
drottningarsystur, hefur nú
eignast dóttur með núverandi
eiginkonu sinni Lucy.
Dóttirin var skirð á dögunum
og gefið nafnið Frances. A ann-
arri myridinni sjást hinir
hamingjusömu foreldrar með
dótturina við það tækifæri, en á
hinni myndinni er faðirinn að
konia til skirnarathafnarinnar
ásamt syni sinum af fyrra hjóna-
bandi, Linley.
LÆKNARITARI
óskasttil starfa, frá og með 1. janúar n.k., við
Heilsugæslustöðina í Árbæ, Hraunbæ 102.
Laun samkv. kjarasamningi Starfsmanna-
félags Reykjavfkurborgar og Reykjavíkur-
borgar.
Upplýsingar um starfið veitir hjúkrunarfor-
stjóri i síma 71500.
Umsóknum sé skilað til framkvæmdastjóra
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, Baróns-
stíg 47, fyrir 1. nóvember n.k.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Stúdentafélags Reykjavíkur
verður haldinn laugardaginn 20. október
kl. 17.00 í stofu 102, Lögbergi.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
STJÓRNIN
HEILBRIGÐISRÁÐ
REYKJAVIKURBORGAR
- r simi sóóii — simi sóóii
'
DLADDURÐARDORN EXPRESS
áCi# . CT Austurstræti
UilVAj I! Hafnarstræti
LAUGAVEGUR
Bankastræti
LANGHOLTSHVERFI
Laugarásvegur
Sunnuvegur
ARKITEKT
Ákveðið hefur verið að hefja nú þegar gerð
deiliskipulags fyrir Grjótaþorp.
Arkitektar sem áhuga hafa á slíku starfi eru
beðnir um að tilkynna það bréflega til stofn-
unarinnar eigi síðar en 26. okt. n k., og eru þar
veittar nánari upplýsingar.
ÞRÓUNARSTOFNUN REYKJAVIKUR-
BORGAR
Þverholti 15
105 Rvik.
18
sandkorn
Nýr boll
1 Sandkorni um daginn var
minnst á dálk sem heitir Bola-
bás, i Aiþy ðublaðinu. Þeir
voru eitthvað kynvilltir þegar
veriö var að velja táknmynd-
ina i dálkinn og hún var af
belju en ekki boia.
Sandkorn lagði þvf tú að
nafninu yrði breytt í Kvigan.
Ekki tóku þeir þeirri góðu
ábendingu, en skiptu heldur
um mynd. Núna skreytir
Bolabásinn mynd af Jóni
Helgasyni, formanni einingar
á Akureyri, sem er hátt
skrifaður i verkalýösarmi
flokksins.
En. to....
Mogginn birti á þriðjudag
iþróttafrétt, um iitinn
skylmingaáhuga meðal Dana,
aö öllum likindum tekna úr
einhverju dönsku blaði.
Til marks um áhugaleysið
er tekið opna danska
meistaramótið sem haldið var
eigi alls fyrir löngu. 1 frétt
Moggans segir: „Kom fram,
að áhorfendur á mótinu voru
aðeins fjórir, „kun tre
tilskuere”.
Vltieysa
Arni Bergman, ritstjóri
Þjóðviljans, hefur aö undan-
förnu verið að lýsa pólitiska
andstæðinga sina geðklofa.
Staksteinar Moggans hentu
þetta auðvitað á lofti og töldu
að við tslendingar ættum að
geta haldiö geösjúkdómum
utan við stjórnmálarifrildi.
Staksteinar segja að andófs-
maðurinn Bukovsky hafi sagt
okkur hvaðan slikir frasar séu
komnir, og telja óþarft að
sækja slikt til Sovétrlkjanna.
Arna Bergmann lika illa
þessi ummæli Staksteina og i
„Kiippt og skorið” I gær
reynir hann aö verja hendur
sinar með þvi að orö sem lúti
að geðheilsu séu ekkcrt ný-
mæli I islenskri umræöu.
Sem dæmi tekur hann aö
Karl Steinar Guðnason hafi
sagt að Alþýðuflokkurinn sé
eini valkosturinn gegn
VITLEYSUNNl. Telur Arni,
Karl Steinar þarna vera sam-
sekan sér.
Þetta er dálitið máttleysis-
legt klór. „Vitleysa” er svo
algengt i daglegu tali að orðiö
hefur enga alvarlega
merkingu lengur. Um geð-
veiki gegnir ailt ööru máli.
Það hefur enda oft heyrst
frá Sovétrikjunum aö hinir og
þessir hafi verið sendir á hæli
vegna þess aö þeir séu geð-
klofar. Þaö hefur aldrei heyrst
að einhver hafi veriö lokaður
inni af þvi að hann sé vitlaus.
—ÓT.