Vísir - 24.10.1979, Blaðsíða 9

Vísir - 24.10.1979, Blaðsíða 9
VÍSLR Miðvikudagur 24. október 1979 t'* V.'VÍVJ 9 Kissinger-handbragðið Þaö var einmitt meö slikum Einna athyglisveröasti kaflinn I minningum Kissingers fjallar um byrjun aukinna samskipta Bandarikjanna og Kina meö heimsókn Nixons til Peking 1972. Kissinger ræöir viö Le Duc Tho, aöalsamningamann Noröur-VIetnama. getur fengiö áorkaö,birtist i frá- sögn Kissingers af aödraganda Kinaheimsóknar Nixons 21. febrúar 1972. Þaö var eftir hina blóðugu landamæraárekstra Sovétmanna og Kinverja sumarið 1969, aö Nixon eygöi möguleika á þvi aö taka upp nánara samband við megin- lands-Kina. Um leið voru Kin- verjar á höttunum eftir þvi aö skapa spennu, sem leitt gæti at- hygli Sovétmanna frá þeim. Kissinger lýsir þvi, aö þar með hafi byrjaö hinn „fimleg- asti dans, þar sem danssporin voru stigin á þann máta, aö hvorugur þyrfti aö liggja undir ámæli um aö hafa stigið fyrsta skrefiö og um leið ekki teflt i hættu þeim leynisamböndum, sem lágu á milli aðilanna”. — I október 1970 bað Nixon forseta Pakistans, Yahya Khan, sem ætlaði i heimsókn til Peking, fyrir skilaboð um, aö USA væri reiðubúið til þess að bæta sam- búðina, eins 'og það heitir i út- drætti „Times”. Eftir aö hafa þreifaö þannig varlega fyrir sér, þar sem USA sendi Peking óundirrituö ljós- mynduð afrit af bréfum, sem ekki yrði unnt aö herma upp á Washingtonstjðrmna, meöan Peking sendi handskrifaö á miöa með sérlegum erindrekum, fór Kissinger til Kina 9. júli 1971 undir þvi yfirskyni, aö hann væri á kynningarferð um Asiu. 1 umtali um kinversku leiðtogana kemur skýrt fram, aö Kissinger bar mikla viröingu fyrir festu, oröheldni og greinargóðri þekk- ingu þeirra. Hann viröíst hafa fengið þaö álit sitt enn betur staöfest i heimsókn Nixons siö- ar. Kremlherrarnir Naumast haföi fyrr veriö til- kynnt i júli 1971 um fyrirhugaða Kinaferð Nixons, en Rússar buðu Nixon aö koma tii Moskvu vorið eftir. Aöur haföi þó sálfræöilegt taugastriö staöiö i vegi þvi, aö komiö yröi á fundi þessara leiötoga risaveldanna tveggja. Kissinger stjórnaði af hálfu Bandarikjastjórnar samning- unum, sem voru undanfari heimsóknarinnar. Lýsir hann I smáatriðum og meö hnitmiðuöu oröalagi sovétleiötogunum, tor- tryggni þeirra og hversu óút- reiknanlegir þeir hafi verið en fer hlýlegum orðum um sérein- kenni hvers og eins. Vietnam „Enn þann dag i dag get ég ekki skrifaö um Vletnam án þess að finna til sársauka og sorgar”, skrifar Kissinger og veitir bókarlesendum færi á að skyggnast bak við atburöina, þegar Nixonstjórnin tók viö, en á þeim tima höföu Bandarikja- menn um hálfrar milljón manna lið i Vietnam. „Nixonstjórnin hóf feril sinn fastráöin i þvi að binda endi á aðgerðir okkar i Vletnam, en viö rákum okkur fljótlega á sömu martrööina, sem fyrirrennarar okkar höföu búiö viö”, skrifar Kissinger. „Viö gátum ekki dregið okkur út úr atburðum, sem tvær rikisstjórnir okkar, fimm bandamannariki og þrjá- tiu og eitt þúsund fallnir banda- riskir hermenn höföu riðiö okk- ur viö, svona rétt eins og maöur skiptir um sjónvarpsrás. Ef Bandarikjam enn yfirgæfu bandamenn sina i Asiu, hverjar ályktanir gátu þá ekki banda- menn þeirra i Evrópu, eða samningsaöilarnir I Austur- löndum nær eöa leiötogarnir I Kina dregiö af þvi?” Samningarnir i Paris í bók sinni ljóstrar Kissinger þvi i fyrsta sinn upp, hvernig Le Duc Tho afhjúpaöi fyrir honum I samningaumleitunum I Paris I april 1970, hver metnaður Noröur-Vietnama var I Indó- kina. Þaö var áöur en loftárás- irnar hófust i Kambodiu. Kissinger lagöi til viö Le Duc Tho, að bæöi USA og Noröur- Vietnam ábyrgöust hlutleysi S- Vietnam og aö boöaö yröi til al- þjóöaráöstefnu um máliö. Le Duc Tho, sem siðar deildi friöarverölaunum Nóbels meö Kissinger, visaöi tillögunni á bug, og lét að þvi liggja aö senn mundi Noröur-VIetnam stýra öllum Indó-KInaskaganum, hvort eö væri. Loftárásirnar Kissinger gerir einnig grein fyrir tildrögum þess, aö Banda- rikjamenn hófu loftárásirnar á Hanoi og hafnarbæi um jólin 1972 og hvaöa mótsagnir og utanaðkomandi áhrif mörkuöu ákvaröanir Nixonstjórnarinnar um hernaðaraögeröirnar. A meöan bandariska þjóöin klofnaöi i tvennt i afstööunni til Vietnamsmálsins, streittust bandarisku samningamennirnir árangurslaust I fjögur ár viö aö fá Norður-Vietnama til þess aö láta I aö minnsta kosti einhverj- um smáatriöum undan, svo aö USA gætu sýnt Saigonstjórninni einhvern snefil af árangri. Nixon Kissinger greinir frá þvi, hvernig hann og Nixon hafi stööugt fjarlægst hvor annan, og klofningur þeirra heföi leitt til þess aö Kissinger heföi sagt af sér sem utanrikisráöherra 1973, þótt Watergatehneyksliö heföi ekki komiö til. Um Nixon skrifar hann, hvernig þessi einmana maöur hafi ýmist tekið djarfar, brautryöjandi ákvaröanir I al- þjóöamálum, eöa látiö stjórnast af smámunalegri tortrygggni og taugaveiklunarlegum einmana- leika, jafnvel meöal einlægustu stuöningsmanna i Hvita húsinu. „Nixon á skilið mikla viöur- kenningu fyrir þær erfiöu ákvaröanir, sem hann æ ofan i æ stóð frammi fyrir undir ofboös- legum opinberum þrýstingi, fyrir hæfni sina stjórnmálum og fyrir hugdirfsku”, skrifar Kissinger. Hann dregur þó ekki dul á nei- kvæðar hliðar Nixons, sem hon- um finnst speglast dæmigert daginn sem Nixon hóf annaö kjörtimabil sitt sem forseti, einn lokaöur inni á skrifstofu sinni meöan samstarfsmenn héldu upp á sigurinn. Kissinger á bak vio Gægstmeð tjöldin Fyrsta bindi æviminninga Henry Kissingers, fyrrum utanrikisráðherra, sem hann nefnir „Ár- in i Hvita húsinu”, veitir mönnum hrifandi inn- grip i þankaganginn og ákvarðanimar að baki utanrikisstefnu USA á árunum 1969-77 Þessi rúmlega fimmtán hundruð blaðsiðna bók kom út i Bandarikjunum 23. október, og hefur út- gáfurétturinn verið seldur dýrum dómum um heim allan. Fyrir útgáfuna rikti ámóta leynd um innihald bókarinnar og áður hafði verið um tjaldabaksákvarðanir söguefnis á þeim timum, sem það gerðist. Timaritið „Time” hefur i þrem siðustu tölu- blöðum birt útdrætti úr minningunum, sem veita forsmekkinn af þvi, er skeði á þessum örlagadög- um, þar sem stiklað er á sögulegum viðburðum, eins og upphafi samskipta USA við Kina, Kúbu- kreppunni 1970, harmleik Vietnamstriðsins, Austurlöndum nær og mannlýsingum, eins og á Nixon, sem setti sin mörk á þennan tima. Viðhorf Kissingers Hvar, sem drepið er niöur i þessum útdráttum, skina i gegn hin sérstöku stjórnmálaviðhorf höfundar sjálfs, og þá stundum ekki kimnilaust. Þankagangur- inn, meðan hann glimdi við viö- fangsefnin, valdataflmennskan og hugrenningar, þegar hann á krepputimum mætti meö Is- kaldri ró höfuökeppinautum sinum i Kreml, eða i bralli að tjaldabaki til þess aö þjóna þeirri utanrlkispólitik, sem Kissinger fannst heimsástandiö krefjast. Um leiö koma einnig fram viðbrögð Kissingers viö gagnrýni þeirri, sem hann mætti hjá sumum löndum sin- um, og hvernig hann taldi sig þurfa að berjast á tvennum vig- stöðvum i Vietnamstriöinu, við Norður-Vietnama annarsvegar og við almenningsálitiö heima fyrir hinsvegar. Kúbukreppan 1970 Meöan heimurinn stóö á önd- inni, þegar John F. Kennedy lét skerast I odda við Rússa i Kúbudeilunni 1962, meöhöndlaöi Kissinger ágreining, sem kom upp vegna aöstööu sem Rússar sýndust vera aö koma sér upp fyrir kjarnorkukafbáta á Kúbu árið 1970, meö leynd og lempni, sem kalla má dæmigert Kissinger-handbragö. Má þaö teljast skýrt dæmi um þaö valdatafl, sem teflt er meö leynd, hulið almenningssjónum. Það var 26. ágúst 1970, sem mönnum varö ljóst, aö Rússar voru að reyna aö fara á bak viö samkomulagiö um Kúbu frá þvi 1962 með þvi að reisa flotastöö á aðaleyjunni. Sást til sovéskra skipa á leið til Kúbu og voru þar i hópi skip, sem þjóna kafbát- um. Nokkur þeirra voru vopnuð flugskeytum. Með þvi að sýna Rússum grjótharða festu, en þó varast að blása málið upp, svo aö þeir gætu dregið i land án þess aö verða berir aö undanhaldi, tókst Kissinger aö fá Kremlherrana til þess að kalla skipin heim. kyrrlátum aðferðum, sem Kissinger brá svo oft fyrir sig, sem honum tókst best upp. Hann hefur ótrú á „siðgæðis- utanrikisstefnu” Carters og gerir litiö úr „námskeiðsfor- sæti”, sem þykir hafa verið ein- kennandi við forsetatiö Carters, meöan hann hefur veriö aö þreifa sig áfram i embættisveru sinni i Hvita húsinu. „Gömlu munnmælin um, að menn vaxi i verkum sinum, eru að minu mati bábilja. Þegar menn sitja i áhrifa- eöa valda- stööum, læra þeir aö taka ákvarðanir. Hitt læra þeir ekki, að skilja betur kjarna málsins. Þeir verða að hafa þann skiln- ing fyrir. I starfinu notar maður af sinni greind og þekkingu, en skapar sér hana ekki jafn- harðan. Flestir forystumenn láta af störfum meö þá sömu þekkingu og þann skilning sem þeir höföu, þegar þeir tóku viö embættinu. Það eina, sem þeir lærðu af þvi, var aö taka ákvarðanir, en ekki hverjar ákvarðanir”. Undirbúningur Kina- ferðar Annaö gripandi dæmi um, hverju hljóðlegt baktjaldamakk meö hrikalega hagsmuni I húfi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.