Vísir - 29.10.1979, Síða 32

Vísir - 29.10.1979, Síða 32
Umsjón: Katrin Páis- dóttir vtsm 32 Fræbbbiarnir senda frá sér plðtu Fræbbblarnir, eina pönkrokk- hljómsveitin hér á landi, sendir frá sér sina fyrstu hljómplötu i næstu viku. A plötunni eru þrjú lög, tvö þeirra frumsamin eftir meölimi hljómsveitarinnar. Valgaröur Guömundsson, einn meölimur hljómsveitarinnar, sagði aö platan væri tekin upp hér á landi, en væri unnin i Bretlandi. Hún veröur kynnt þar i landi og mun hljómsveitin Stranglers hafa þar hönd i bagga. Fræbblarnir skemmta viöa i skólum á næstunni, en i lið meö sér hafa þeir fengiö nokkrar aör- ar hljómsveitir, sem koma fram i fyrsta sinn. Þá er einnig meö þeim ljóöasöngvarinn Kristján Hreinsmögur. Meölimir Fræbbblanna eru fimm talsins, þar af einn ljósa- meistari, sem sér urn ljósadýrð- ina á sviöinu meöan Fræbbblarnir þenja sig. -KP Fræbbblarnir skemmta i hinum ýmsu skólum á næstunni. Vlsismynd GVA 1 diSM. m nmmœmm IHi yH| Hafsteinn Guðmundsson, Gisli ólafsson og Björn Jóhannsson. Stórviðburðir ársins 1978 Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur sent frá sér bókina Árið 1978 — stórviðburð- ir liðandi stundar i myndum og máii. Arbókin 1978 er 344 siður i stóru broti og myndir eru 450 talsins, þar af 177 i litum. í bókinni eru yfirlitsgreinar um ýmis efni og yfirgripsmikill kafli um iþróttir. Bókinni fylgir bæklingurinn „Þáttur af Eyjólfi Kárssyni”, sem Finnbogi Guömundsson bjó til prentunar. Forstjóri Þjóösögu er Hafsteinn Guðmundsson, GIsli Ólafsson rit- stjóri, en Björn Jóhannsson tekur saman sérkafla. Kjarvalsstaðir: Myndir 09 múslk - Elnar Hákoarson sýnir Jónas ingimundarson leikur á pianó Einar Hákonarson hefur opnaö málverkasýningu aö Kjarvals- stöðum. Sýningin stendur til 11. nóvember, en Einar sýnir 67 myndir, sem flestar eru málaðar á s.l. tveim árum. Siöast sýndi Einar aö Kjarvals- stööum 1976. Myndir hans hafa breyst nokkuð siöan á þeirri sýn- ingu, formiö hefur losnaö upp og hann fer frjálslegar meb þaö. Flestar myndirnar sem Einar sýnir nú eru figúratifar, sýna fólk og mannlíf. 1 spjalli við Einar kom þaö fram aö hann er óánægöur meö þaö hvernig fjölmiölar, þá sér- staklega sjónvarp, gerir mynd listarsýningum skil. „Þetta er allt lesiö i belg og biðu á föstudagsfréttatima sjón- varps. Látinn málari, sem hefur unniö að iist sinni i áratugi fær sömu afgreiðslu og nýliði sem sýnir i fyrsta sinn, svo tekið sé dæmi”, sagöi Einar. Hann kvað annað upp á teningnum þegar um rallkeppni væri að ræða, þá væri hægt að kvikmynda og gefa þvi efni nægan tima i dagskránni. „Myndlistarmenn eru mjög óá- nægðir með þessa afgreiðslu mála”, sagöi Einar. Jónas Ingimundarson pianó- leikari heldur tónleika i kvöld klukkan 21 i vestursal, þar sem sýning Einars stendur yfir. A efnisskránni eru m.a. verk sem ekki heyrastoft á tónleikum hér- lendis. Má þar nefna sónötu eftir italska tónskáldið Baltasarre Galuppi sem uppi var á 18. öld. Eftir Franz Schubert verða leikin þrjú pianóljóð. Þá eru verk eftir List, Rachmaninoff og argentinska tónskáldið Ginastera. -KP Mynfl- kynn- ing Myndkynning hefur opnaö galleri aö Armúla 1. Þar eru nú sýndar m.a. olíumálverk eftir Guðmund Karl, lágmyndir úr gifsi eftir Helga Gislason og grafik eftir Braga Asgeirsson, Erró, Kristin Pétursson, Kjartan Guöjónsson og ýmsa erlenda og innlenda listamenn. Myndkynning hefur opinn sýningarsal sinn frá klukkan 11 til klukkan 18 daglega og einnig eftir samkomulagi, ef þess er óskaö. Nýi sýningarsalur Myndkynningar er aö Armúla 1. Þar eru nú sýndar myndir Erró, Braga Asgeirsson ar o.fl. Mauritz Stiller Sænsk kvik- mynfla- vika Vikuna 27. okt. til 2. nóv. stendur yfir sænsk kvikmyndavika í Regn- boganum. Verða þar sýnd verk tveggja helstu höfundanna frá gullöld sænskrar kvikmynda- gerðar í fyrri heims- styrjöldinni og á árun- um eftir hana, þeirra Victors Sjöströms og Mauritz Stillers. Enn- fremur verður sýnt hverja þýðingu verk þessara höfunda hafa haft fyrir seinni tíma kvikmyndagerðarmenn í Svíþjóð og er mynd Ingmars Bergmans, ,,Det sjuende Inseglet" einnig á dagskrá af þeim sökum. Myndirnar eftir Sjöström og Stiller, sem sýndar verða, eru frá timabilinu 1917 til 1920, og taldar einhver bestu verk þeirra. Sænskir kvikmynda- gerðarmenn hófust handa um ýmsar merkar nýjungar á þessu tímabili, m.a. unnu þeir aö kvikmyndatöku i náttúru- legu umhverfi og nýttu kvik- myndatæknina á mjög raun- sæislegan hátt. Sænska sendiráöiö og Islensk-sænska félagiö gang- ast fyrir þessari kynningu á sænskri kvikmyndalist, en hver mynd veröur sýnd þrisv- ar sinnum. Myndirnar sem sýndar veröa eru: „Terje Vingen”, „Klostret i Sendomir” og „Körkarlen”, allar éftir Victor Sjöström. „Sangen om den eldröda blomman” „Herr Arenes pengar” og „Erotikon” allar eftir Mauritz Stiller. Auk verka gömlu meistaranna er svo „Sjöunda innsigli” Berg- manns á boðstólum. -SKJ !

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.