Vísir - 14.11.1979, Side 1
Bandarískur körfuknattleiksmaður:
JATAR SðLU A 60
SKOMMTUM AF LSD
Bandariskur körfuknattleiksmaður sem leikið
hefur með liði Keflavikur, hefur játað sölu á 60
skömmtum af LSD. Mál hans er nú til meðferðar
hjá embætti rikissaksóknara.
Bandarikjamaöurinn kom sér. Hann kveðst hafa selt efnið
hingað i haust og segist þá hafa eingöngu á Keflavikurflugvelli
komið með skammtana með og viö vægu verði.
Ásgeir Friðjónsson, saka-
dómari i ávana- og fikniefna-
málum, sagði i samtali við Visi
að þessu máli hefði- verið visað
til rikissaksóknara sem tæki
ákvörðun um framhaldiö.
Aðspurður um hvort fleiri er-
lendir körfuboltamenn hefðu
gerst sekir um sölu fikniefna,
sagði Ásgeir, að tvö smávægileg
tilvik hefðu komið upp.
Hjá rikissaksóknara fengust
þær upplýsingar að mál Banda-
rikjamannsins hefði komið
þangað á föstudaginn og ekki
væri búiö að taka ákvöröun um
framhaldið.
—SG.
•-
. ..... . <-* . • N. •
*-.■
Sp* . .-ViSMSí
W,- ^ii>. ^*V'-
Það var engu likara en strákurinn væri að smakka á snjókeriinginni, sem nemendur Menntaskólans við
Hamrahllðhöfðu búið til, er Jen Alexandersson, Ij ósmyndari átti ieið framhjá. Strákurinn sagðist heita
Helgi Magnússon og vera 6 ára og sagðist kunna vei að meta snjóinn.
Á brunastaðnum. Visismynd: GVA
fbúð siórskemmd
Miklar skemmdir urðu, er
eldur kom upp i risíbúö aö Njáls-
götu 74 siödegis i gær. íbúðin var
mannlaus, er eldurinn kom upp
og varð hans ekki vart fyrr en
rúður fóru að springa.
Slökkviliöið var kvatt á vett-
vang og réö niðurlögum eldsins.
Ekki urðu skemmdir á öðrum
ibúöum hússins. Grunur leikur á
að kviknað hafi I út frá rafmagni.
—SG.
Benedikt Gröndai, forsætlsráðherra,
f samtali við Vfsi:
Launln nækka um
sem næsl 13%
um mánaðamótln
heyra hvað þessir aðilar hafa
fram að færa”, sagði Benedikt.
—KS.
Sleppt úr
gæslu I dag?
„Gæsluvarðhaldsúrskurð-
urinn rennur út klukkan fimm
I dag og á þessari stundu get
égekki sagt til um, hvortfarið
verður fram á framlengingu
eða hvort manninum veröur
sleppt”, sagði Þórir Oddsson,
vararannsóknarlögreglu-
stjóri, I samtali viö Visi i
morgun.
Maðurinn, sem hér um
ræðir, hefur setið I gæsluvarð-
haldi i viku eftir a ö hann játa ði
á sig að hafa átt þátt i dauða
manns, sem fannst látinn á
viðavangi 1 fyrra. Maðurinn
skýrði frá þessu undir áhrifum
vins ogdró siöan framburðinn
til baka, þegar rann af honum.
Gæs lu v arðha ldsúrs ku rðurinn
var kærður til Hæstaréttar, en
var staðfestur þar.
Rannsóknarlögreglan hefur
unnið að könnun á þvi, hvort
fyrri frqamburður gæslu-
fangans geti haft við rök að
styðjast.
—SG.
„Eins og dæmið litur út nú, verða
vísitöiubætur á iaun um 2 til 2,5%
hærrien áætlað var, en Hagstofan
hefurekki lokið við endanlega út-
reikninga ennþá”, sagði Benedikt
Gröndal, forsætisráðherra, i
samtali við Vfsi.
Gert var ráð fyrir að verðbætur
á laun yrðu almennt 11% 1.
desember nk. en9% hjá lágtekju-
fólki vegna þess.að 2% skerðingu
áverðbótum varfrestaðhjá þvi 1.
júni sl. Það má þvi geraráð fyrir,
aðlaunhækki almenntum 13% tií
13,5% um næstu mánaðamót.
Benedikt sagði, að hann hefði
kallaö fulltrúa Vinnuveitenda-
sambandsins, Vinnumálasam-
bands SÍS, Alþyðusambandsins
og Bandalags starfsmanna rikis
og bæja á sinn fund og ræöa þeir
við forsætisráöherra siðdegis i
dag.
„Ég mun ræöa við þá um útlitið
ilaunamálumog sérstaklega það
vandamál, sem þessi skekkja á
visitölugreiðslum til láglauna-
fólks skapar, en þeir fá lægri
bætur samkvæmt óbreyttum
lögum”, sagði Benedikt, en hann
hefur lýst þvi yfir, að láglauna-
fólk eigi að fá jafnháar bætur og
aðrir.
Benedikt sagðist ekki vera til-
búinn til að segja neitt um þaö,
hvort lagðar yrðu fram tillögur
um, að visitölubótum yröi jafnað,
þannig að þær yrðu lækkaðar sem
svaraöi hækkun hjá láglaunafólki
eða um 1%. „Ég ætla fyrst aö
|
i