Vísir - 14.11.1979, Side 2
Mibvikudagur 14. nóvember 1979
2
Ertu búinn að gera upp
hug þinn um hvað þú
ætlar að kjósa?
Óiafur Snorrason, útkeyrslu-
maður:
„Nei, ég er nokkuð búinn aö velta
þvi fyrir mér, en hef ekki komist
að niðurstööu ennþá”.
Sigriður Björnsdóttir, afgreiðslu-
maður:
„Nei, og ég er ekkert farin aö
hugsa um þaö”.
Ingvi Jóhannesson:
„Já, já, ég var ekki I neinum
vandræöum með þaö”r
Sigrtöur Hannesdóttir:
„Ég er löngu búin aö ákveöa þaö
og meira aö segja þegar búin aö
kjósa”.
Björn Vigfússon:
„Ég er lika búinn aö kjósa”.
Már Elísson fiskimálastiðri:
Samkeppni harðnar
á flskmörkuðum
Útlit er fyrir harðnandi samkeppni á mörkuðum
fyrir sjávarafurðir á næstu árum. Helstu viðskipta-
lönd okkar, Bandaríkin og Sovétríkin, hyggja á breyt-
ingar á f iskaf la og viðskiptalöndum, sem enn er óvíst
hvaða áhrif hafa fyrir okkur fslendinga.
Már Elisson fiskimálastjóri
sagöi á Fiskiþingi þvl sem nú
stendur yfir, aö Bandaríkja-
menn og Kanadamenn hafi
markað stefnu slna I fiskveiöa-
og vinnslumálum sjávarafuröa
næstu árin. Bandarlkin ætli sér
aö auka eigin fiskafla úr tæp-
lega 3 milljónum lesta i 5.6
milljónir lesta eftir nokkur ár.
Kanadamenn hyggjast auka
þorskafla sinn úr 270 þúsund
lestum I tæplega 600 þúsund
lestir 1985, og annan fiskafla
verulega.
A móti.kemur að samdráttur I
afla EBE-rikjanna á fjarlægum
miöum hefur leitt til
aukins innflutnings þeirra um
sinn. Hvaö síöar veröur er enn
óljóst.
Sovétrikin og nokkur Aust-
ur-Evrópuriki hafa einnig oriiiö
fyrir samdrætti fiskafla á fjar-
lægum miöum, en þaö hefur
ekki aukiö innflutning þeirra á
fiskafuröum. Og nú vinna þess-
ar þjóöir aö samningum um
fiskveiöar og fiskvinnslu viö
ýmis strandriki, einkum I
þriöja heiminum.
'Már Ellsson sagöi einnig aö
samkeppni okkar um markaöi
fyrir sjávarafuröir væri erfiö
vegna mikilla styrkja, sem
ýmsar þjóöir veita eigin sjávar-
útvegi, ogeins vegna sivaxandi
veröbólgu innanlands og hækk-
andi framleiöslukostnaöar.
A þessu kvaö hann veröa aö
ráöa bót, ef ekki ætti aö skapast
alvarlegt reksturs- og atvinnu-
ástand.
—SJ
Már Elisson, fiskimálastjóri: Erfiö aðstaða vegna mikilla styrkja
hjá öðrum sjávarútvegsþjóöum og hækkandi kostnaðar hér innan-
lands.
Asgeir Long og Veigar óskarsson kynntu vélina en Hafsteinn Sveinsson formaður Snarfara, félags smá-
bátaeigenda I Reykjavlk, var þarna staddur og sagði að þessi véi væri algjör bylting.
Visismynd: BG.
Ný flíseivéi l bfla komin á markaðlnn:
LÉTTARI EN SAMSVAR-
ANDI BENSÍNVÉLAR
„Vélin ersérstæðaðþvi leyti aö
tekist hefur aö gera disilhreyfil
jafnléttan eða léttari en samsvar-
andi bensinhreyfil ”, sagði Asgeir
Long eigandi Báta- og vélaversl-
unarinnar IGaröabæ I samtali viö
Vísi er hann kynnti nýja disiivéi
sem hann flytur til landsins.
Vélin er aðeins 202 kiló aö
þyngd og er hægt aö nota hana
jafnt i bila sem báta. Hún er 90
hestöfl, 4ra sfyokka og búin af-
gastúrbinu af þýskri gerö.
Asgeir sagöi aö verksmiöjurnar
heföu náö léttleika vélarinnar
meö sérstöku byggingarlagi á
blokk en ekki með notkun létt-
málma.
Vélin er frá italska fyrirtækinu
Stabilimenti Meccanici VM og
kostar hún 2,4 milljónir króna.
Vélin er þegar komin I tvo bila
hér á landi en hún hentar i allar
geröirfólksblla. Vélþessiverður i
Alfa Romeobilum, „Alfetta-
Diesel”.
— KS
Einlngar-
samtðkln
mótmæla
dómum I Prag
Nýlega féllu dómar I máli sex
manna i Prag I Tékkóslóvakiu.
Sexmenningarnir voru handtekn-
ir ásamt fjórum öörum.Sakar-
giftir voru þær einar, að fólkiö
haföi undirritaö Mannréttinda-
skjal 77—Charta 77 ,segirifrétt
frá Einingarsamtökum kommún-
ista. Réttarhöld fóru fram fyrir
luktum dyrum. Blaöamönnum,
ættingjum og vinum hinna
ákæröu var meinaöur aögangur
aö réttarsalnum.
„Dómarnir i Prag eru enn eitt
dæmiö um þaö, hvernig lýörétt-
indi eru fótum troðin i Tékkó-
slóvakiu, landi, sem er hersetiö af
herjum sovéskra heimsvalda-
sinna og býr viö fasiskt stjórnar-
far að sovéskri mynd,” segir enn-
fremur i fréttinni.
Einingarsamtök kommúnista
(m-1) mótmæla harölega dómun-
um i Prag og krefjast þess, aö
hinum dæmdu veröi tafarlaust
sleppt úr haldi. Mikilvægt sé, aö
sem flestir stuöningsmenn lýö-
réttinda láti i sér heyra og rétti
þannig mannréttinda- og frelsis-
hreyfingunni i Tékkóslóvakiu
hjálparhönd.
„Handtökurnar og dómarnir i
Prag eru merki um, aö mannrétt-
indahreyfingunni iTékkóslóvakiu
vex fiskur um hrygg og ótti
stjórnvalda vex i réttu hlutfalli
viö styrk hreyfingarinnar. Fullan
stuöning viö Charta 77,” segja
Einingarsamtökin,
Um eða yflr 100 ísiendingar en:
ENGINN KJðRSTABUR
VEDBUR ILOS KNGELES
tslendingar sem búa I Los
Angeles eiga nú ekki kost á að
neyta atkvæðisréttar slns nema
þá að ferðast langar vegaiengd-
ir, til dæmis til San Francisco.
Fyrir nokkrum vikum lést Hal
Linker, ræöismaöur íslands i
Los Angeles, og aö sögn
Gunnars Snorra i utanrikis-
ráöuneytinu hefur ekki gefist
timi til aö skipa annan i hans
staö.
Gunnar taldi vafasamt aö þaö
samrymdist kosningalögum aö
senda ræöismann frá öörum
staö til Los Angeles til aö opna
þar kjörstaö. Sendiráðiö i
Washington væri fámennt og
ekki væri unnt aö senda neinn
þaöan.
I Los Angeles munu vera um
100 Islendingar eöa fleiri sem
hafa kosningarétt. Kosiö verður
á skrifstofu ræöismannsins i
San Francisco en þangaö er átta
til nfu klukkustunda akstur frá
Los Angeles. Aö vlsu er hægt að
fljúga þangaö á rúmum klukku-
tima en fariö fram og til baka
kostar um 26 þúsund krónur.
Þaö má búast viö aö fáir kjós-
endur f Los Angeles komi því viö
aö kjósa til hæsta Alþingis.
—SG