Vísir - 20.11.1979, Síða 1

Vísir - 20.11.1979, Síða 1
Birtlngarbanni létt af mlnningum Svelns forseta Gagnkvæm andúð Hermanns Jðnassonar og ölais Thors ein meginásiæða utanplngs siiórnarlnnar 1942 Gagnkvæm andúð þeirra Hermanns Jónas- sonar og ólafs Thors hvors á öðrum var ein megin- ástæða þess/ að þing- flokkunum tókst ekki að mynda meirihlutastjórn, sem leiddi til þess, að Sveinn Björnsson forseti myndaði utanþingsstjórn- ina árið 1942. Þetta kemur m.a. fram i framhaldi af endurminningum Sveins Björnssonar. fyrrverandi forseta, sem nú er unnið að út- gáfu á. Samkvæmt fyrirmælum hans mátti opna þessar óbirtu endurminningar 25 árum eftir lát hans, en hann lést árið 1952. Er nú ráðgert, að ritið komi út á árinu 1981, en þá eru 100 ár liðin frá fæðingu Sveins Björnssonar. Endurminningarnar eru byggðar á dagbókum Sveins og opinberum skýrslum, og er þar m.a. fjallað itarlega um stjórnarmyndanir, sem hann átti hlut að, þ.á m. myndun utanþingsstjórnarinnar, og stofnun lýðveldisins 1944 og að- draganda hennar. Myndun utanþingsstjórnar- innar hefur verið mjög gagn- rýnd af ýmsum islenskum stjórnmálamönnum, og hefur þvi m.a. verið haldiö fram, aö ekki hafi verið fullreynt um myndun meirihlutastjórnar þingflokkanna, þegar Sveinn Björnsson fól Birni Þórðarsyni að mynda utanþingsstjórn. Samkvæmt heimildum Visis mun Sveinn Björnsson einkum færa fram tvær ástæður fyrir myndun utanþingsstjórnarinn- ar. 1 fyrsta lagi hafi hann viljað sýna, að innlendur maöur, er færi með vald þjóðhöfðingja, gæti myndað rikisstjórn. A þessum tima var Island enn i konungssambandi við Dan- mörku og Kristján X konungur þvi enn konungur yfir Islandi, en Sveini Björnssyni hafði verið falið sem rikisstjóra að fara meö vald konungs, þegar is- lenska rikisstjórnin taldi Dana- konung ekki geta farið með þjóðhöfðingjavald á Islandi eftir að Þjóðverjar hernámu Dan- mörku. 1 öðru lagi hafi hann tal- ið sýnt, að stjórnmálaflokkarnir hafi ekki getað myndað rikis- stjórn, og hafi fyrst og fremst Sveinn Björnsson fyrrverandi forseti tslands: fékk vitneskju um það með eins sólarhrings fyrirvara að til stæði að hann yrði gerður að rikisstjóra. valdiöþvi gagnkvæm andúð for- manna tveggja stærstu stjórn- málaflokkanna, Ólafs Thor^ formanns Sjálfstæöisflokksins, og Hermanns Jónassonar for- manns Framsóknarflokksins, aðallega þó af hálfu Hermanns i garð Ólafs. 1 endurminningum Sveins Björnssonar mun það m.a. koma fram, að hann hafi fengið vitneskju um það meö eins sólarhrings fyrirvara, að til stæði að hann yrði geröur að rikisstjóra. Lögfræðingarnir Sigurður Lindal prófessor og Haraldur Blöndal hdl. vinna að útgáfu bókarinnar. Laxárvirkj- un í Lanfls- virkjun um áramótin Bæjarráð Akureyrar hefur gert samþykkt þar sem stjórn Laxár- virkjunar er falið að til- kynna eigendum Lands- virkjunar að Laxár- viriíjun hafi ákveðið að sameinast Landsvirkjun frá og með 1. janúar 1980. Samþykkt þessi er gerð i fram- haldi af fyrri samþykktum bæjar- stjórnar Akureyrar. Jafnframt leggur bæjarráö til viö bæjar- stjórn, aö fulltrúum bæjarins i stjórn Laxárvirkjunar, ásamt Helga Bergs bæjarstjóra, verði falið aö ganga til samninga fyrir sina hönd viö eigendur Lands- virkjunar um eignarhlutdeild aðila og sameignarsamning og leggja slikan samning fyrir bæjarstjórn til staðfestingar. Þegar sameining Laxár- virkjunar viö Landsvirkjun var á dagskrá bæjarstjórnar Akureyr- ar fyrr á árinu, hlaut hún sam- þykki fulltrúa allra flokka i bæjarstjórn. _gCi Ferðaraun- ir fram- bjððenda á Austuriandi Frambjóöendur stjórnmála- flokkanna á Austurlandi áttu i nokkrum ferðaraunum nií um helgina, enda eru veöur ótrygg á þessum árstima. A þessari mynd má sjá frambjóðendurna i lítilli langferðabifreið á leiðinni yfir Fjaröarheiöi: Fremstir t.v. eru Tómas Arnason F, Hjörleifur Guttormsson Abl. og Helgi Seljan Abl. I annarri röö eru Egill Jónsson Sj., Bjarni Guönason A, Halldór Reynisson blaðamaður og Sverrir Hermannsson Sj. Aftast t.v. er Halldór Ásgrims- son F, Guðmundur Gislason F og Sveinn Jónsson Abl. Sjá nánar bls 12 — 13. rrr Semenisverksmiðjan gen efiir gjaldbrotsmál __ . - _ _ . _ 42 milliona krona veð Rikisst jórnin hefur mælst til þess við stjórn Sementsverksmiðju ríkisins að hún létti veð- um sem hún á i þrem ibúðum, er Breiðholt hf. byggði og seldi á sínum tíma. Veðskuldir þessar nema um 42 milljónum króna. Bragi Sigurjónsson iðnaðar- ráðherra sagöi i samtali við Visi i morgun, að ástæðan væri sú, að eigendur þessara þriggja ibúöa hefðu keypt þær i þeirri góðu trú að engin veð hvildu á þeim. Hins vegar hefði komið i ljós seinna, aö Sementsverk- smiðjan átti veð i heildinni fyrir skuldum Breiðholts hf., sem nú er til gjaldþrotaskipta og nema kröfurnar i þrotabúið mörg hundruð milljónum króna. „Þaö var annað hvort um það aö ræöa að þessir menn misstu ibúöirnar eöa að tekið yrði svona á málinu,” sagði Bragi. Hann sagði aö aðeins væri um að ræða tilmæli til stjórnar Sementsverksmiðjunnar, en siðan væri hennar að taka ákvörðun i málinu. Hins vegar kvaðst hann reikna meö að stjórnin yrði viö tilmælunum. —SJ

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.