Vísir - 20.11.1979, Síða 3

Vísir - 20.11.1979, Síða 3
3 VÍSIR Þriöjudagur 20. nóvember 1979 „Menn buria að sá tll að elga upnskeru” - segir Sigurjón Helgason sklpstjóri sem rekur skelfiskvinnslu I Slykklshólmi //Soffanías Cecilsson segir í viðtali við Vísi á laugardaginn: „Við eigum allir uppskeruna". En ég spyr: Verða menn ekki að sá fyrst til að eignast upp- skeru"/ sagði Sigurjón Helgason/ skipstjóri og út- gerðarmaður í Stykkishólmi í samtali við Vísi. Sigurjón hefur stundaö skel- fiskveiðar á Breiöafiröi manna lengst eða i 10 ár og rekur auk þess skelvinnsluna Rækjunes i Stykkishólmi. Sigurjón er ómyrkur i máli um tilraunir Soffaniasar Cecilssonar i Grundarfirði til aö veiða og vinna skelfisk. ,,Það eru tvær skelfiskvinnslur i Stykkishólmi sem afla og vinna árskvótann á fjórum til sex mánuöum. Atvinna er ekki of mikil f Stykkishólmi, en við skel- ina vinna um 190 manns, þegar allt er talið. A Grundarfiröi er hins vegar meiri vinna en heima- menn komast yfir. Þeir eru með skuttogara auk annarrar út- gerðar og þurfa að flytja inn verkafólk frá öðrum löndum. Þarna er því ekki um atvinnu- s spursmál fyrir Grundfirðinga að ræða heldur er þetta eintóm frekja og yfirgangur i Soffaniasi”, segir Sigurjón Helgason. Gekk brösótt Siðan rakti Sigurjón upphaf þessara skelfiskveiða sem rekja má aftur til þess er miðum neta- báta frá Stykkishólmi var lokaö og atvinnuleysi varö mikiö á staðnum næstu 2-3 árin. Þetta skeði áriö 1967 og voru þá 4-5 bát- ar seldir burt. „Við gátum ekki setiö meö hendur i skauti og árið 1969 byrjaði ég á skelfiskveiðum. Menn höföu ekki mikla trú á þess- um veiðum og fyrstu árin seldi ég aflann til Reykjavikur. Þetta gekk siöan mjög brösótt og skel- vinnslur hér i Hólminum hafa ekki allar oröið langlifar. Ég hefi rekiö mitt fyrirtæki á fjórða ár og byggt þaö upp með eigin höndum, þvi að enginn vildi veita fé i þetta. Við höfum sjálfir staöið á þvi aö miklu leyti að afla markaða er- lendis fyrir skelfisk og nú, þegar þetta er loks farið að ganga kem- ur Soffanias og vill fá bita af kök- unni, án þess að hafa til þess unn- ið”, segir Sigurjón. Brautryöjendastarf „Þetta er algjört brautryðj- endastarf sem unnið hefur verið hér i Stykkishólmi. Á sinum tima urðum við að hætta alveg rækju- vinnslu.en þá veðjaði Soffanias á rækjuna og hafði enga trú á skel- inni. Nú sér hann, aö hann hefur veðjað á vitlausan hest og þá vill hann hrifsa til sin árangur af minu starfi og annarra”, sagöi Sigurjón ennfremur. Þá sagði Sigurjón Helgason þaö reginfirru, sem fram heföi komiö hjá Soffaniasi, að aðalskelfisk- miöin væru út af Grundarfiröi og Barðaströnd. Þar mætti veiöa um 300 tonn af sex þúsund tonna kvóta. „Ég hefi ekki setiö uppi i ráöu- neyti og skipt mér aö þvi hvernig kvótanum er skipt, en það ber að virða ákvarðanir löggjafans. Soffanias hins vegar lætur sig hafa þaö að ófrægja sjávarút- vegsráöherra, starfsfólk hans og fiskifræðinga. Viö verðum að hafa stjórn á veiðunum hér við land, ef ekki á illa að fara og ég sé ekki aö nokkur sé bættari með að eyðileggja atvinnuástandiö á Stykkishólmi með gerræðislegu ákvöröunum”, sagði Sigurjón Helgason. —SG „Ef skipta á afla milli byggðarlaga þannig að enginn fær nóg, þarf aö hjálpa öllum”, segir Sigurjón Helgason. (Visism. BG). ð visltðlu 1. des. Rikisstjórnin hefur nú um nokkurt skeið frestað afgreiðslu 28 beiöna um verðhækkanir, sem afgreiddar hafa verið i verðlags- nefnd. Samkvæmt lögum eru aðeins þær verðhækkanir, sem samþykktar eru i byrjun þess mánaöar.sem visitalan er reikn- uö út i, teknar með i útreikning- inn. AHagstofunnier þetta túlkað þannig, að aðeins skuli tekið tillit til verðhækkana, sem verða fyrir fyrstu f jóra virka daga mánaðar- ins. Ef þessar 28 beiðnir verða samþykktar, valda þær þvi ekki hækkun á visitölunni fyrr en 1. mars. — SJ RAKARASTOFAN SEVILLA HAMRABORG 12 - SÍMI 44099 RAKARASTOFAN DALBRAUT 1 - SÍMI 86312 llröu af veisiukaffinu Hriseyingar urðu af veislukaffi um helgina, þar sem nýja ferjan kom ekki til eyjarinnar eins og til stóð. Astæðan var sú, að viö reynslu- siglingu úti fyrir Austfjörðum bil- aði kælir við gir og er nú beðið eftir nýjum kæli. Standa vonir til aðum næstu helgi geti Hriseying- ar fagnað þessu nýja samgöngu- tæki sinu. „Nýja ferjan breytir miklu fyrir okkur '. sagði Sigurður Finnbogason, einn hreppsnefndarmanna I Hrisey i samtali við Vísi i morgun. Hann sagöi, að hún tæki allt að helmingi fleiri farþega en sú eldri og auk þess væri hún fljótari i för- um. Ferjunni hefur þegar verið valið nafn, og á hún að heita Sævar eins og gamla ferjan. Hún veröurf förum milli Hriseyjar og Arskógssands og tekur siglingin um 15 minútur. OOgengllsg upp- linniíigaPóii fyrir bðrn Bókaútgáfan Orn og örlygur hefur gefið út nýstárlega og skemmtilega bók sem á grinag- tugan hátt skýrir út hvernig ýms- ar uppgötvanir voru gerðar og hver þróunin hafi siðan orðið. Myndir skipa meginsess á hverri siðu sem samt fylgir þeim ótrú- lega drjúgur texti og er hann þýddur af Andrési Indriðasyni. Meðal atriða sem tekin eru fyrir I bókinni eru: Hjólið, gufuskipið, kafbáturinn, pappirinn, glerið, sprengihreyfillinn, ljósmyndin, billinn, eldflaugin, prentlistin, ritsiminn, klukkan, plötuspilar- inn, talsiminn, áttavitinn, flugið, kvikmyndin, reiðhljólið. útvarps- bylgjurnar, eimreiöin, ratsjáin, sjónvarpið, rafmagnið, ljósaper- an og röntgengeislar. 'iiiiu -wy ■ (ífuogw öppfiniiitigcíbélcte nAKdHtKINN SKÚLAGÖTU 54 - SÍMI 28141 Bllaumboð lll rannsóknar Rannsóknarlögregla rikisins kannar nú viðskiptahætti Toyota- umboðsins i Kópavogi eftir að kæra barst um að umboöið léti kaupendur greiða þinglýsingar- gjald og stimpilgjald af veð- skuldabréfum án þess að þinglýsa bréfunum. Rfklsstjörnln sltur enn á veröhækkunum: vaida ekki hækkun Umboðiö hefur lánað mönnum hluta kaupverðs nýrra bila og þeir gefið út veöskuldabréf fyrir eftirstöðvum. Umboðið lætur greiða kostnað við þinglýsingu og stimpilkostnað, en hins vegar er ekki aö sjá sem þinglýsing hafi verið framkvæmd. Þessi gjöld munu nema nú 12 - 13 þúsund krónum á hvern bil. — SG Pennanent er tískan Hárnæringarkúrar Llvrlln IvínA Verid velkomin til okkar.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.