Vísir - 17.12.1979, Blaðsíða 16
16
VÍSIffm
Mánudagur 17. desember 1979.
Umsjón:
Katrin Páls-
dóttir
T.\ licki notar hvitan pappir i verk sin, sem hann lætur iiggja úti I nátt-
úrunni.
Pólverji sýnir í
Gaiierii suðurgötu
Pólverjinn Jacek Tyl-
icki hefur opnað sýningu
i Galleri- Suðurgötu 7.
Tylicki nam i listaakademl-
unni i' Gdansk og hefur einnig les-
iö listasögu viö Háskólann i
Lundi, en þar hefur hann búiö
undanfarin ár.
Efniö sem hann notar i verk sin
er hvftur pappir, sem hann lætur
liggja úti i náttúrunni. Hluti af
sýningunni er kvikmynd, sem
sýnir hvernig verkin eru unnin.
Sýningin er opin til 3. janúar,
frá klukkan 18 til 22 virka daga og
frá kl. 14 til 20 um helgar.
—KP
Úr sýningu Litla ieikfélagsins, Þiö muniö hann Jörund.
Litla leikfélagiö
sækir á brattann
Litla ieikfélagiö: Þiö muniö hann
Jörund.
Leikstj.: Jakob S. Jónsson
Litla leikfélagiö er mjög hrifiö af
Jónasi Arnasyni. Eftir þvi sem
fróðir greina er Jörundur fjóröa
leikritið, sem þeir setja upp eftir
hann. Það er mjög vel að verið,
miðað við aldur leikfélagsins.
Frumsýningin var 8.des. i Sam-
komuhúsinu i Garði.Þetta er fjöl-
menn sýning sem krefst mikils
starfs, t.d. i sambandi við bún-
inga. Þá er að geta músikanta. Þá
hefur Garðverja ekki skort enda
er frammistaða triósins, Ömars
Jóhannssonar, Hólmbergs
Magnússonar og Sigriðar Hall-
dórsdóttur til sóma. Ekki er þess
kostur að tilgreina alla leikendur
sem fram koma i sýningunni.
leiklist
Yfirleitt má segja að sýningin
hafi verið þokkaleg, sums staðar
mjög góð.Einkum voru það tveir
Sigurjónar annar Skúlason I hlut-
verki Charlie Brown, hinn
Kristjánsson sem Trampe greifi,
er heilluðu mig. Greifinn var i
einu orði sagt stórkostlegur.
Hálendingurinn i meðförum Unn-
steins Kristinssonar var lika
mjög liflegur. Þá var Hreinn
Guðbjartsson mátulega i-
smeygi.legur sem stúdiósus.
Leikstjórinn virðist hafa lagt
áherslu á Jörund sem gufu og
aumingja. Sé sá skilningur réttur
var leikur Viggós Bene-
diktssonar allgóður á köflum.
Vitaskuld eru það töiuverðir
erfiðleikar að setja upp stóra sýn-
ingu sem þessa á litlu og þröngu
sviði eins og i Garðinum. Þvi má
segja að hinn ungi leikstjóri
Jakob S. Jónsson hafi komist vel
frá sinu hlutverki. Hins vegar er
þvi ekki að leyna að Garðverjar
hafa komið meö betri sýningu en
þessa. Litla leikfélagið er öflugt
félag sem sækir á brattann. Ég vil
óska þeim heilla með þetta verk-
efni.
Lilandi tónlist í Holiywood
Veitingastaöurinn Hollywood bryddaöi upp á þeirri nýbreytni á miö-
vikudaginn aö fá djassrokkhljómsveitina Mezzoforte til þess aö koma
fram og leika eiein verk. iafnframt bvi sem Jónatan Garöarsson lék
djassrokk af hljómplötum og kynnti lögin. Forráöamenn Hollywood
hyggjast halda áfram á þessari braut, bjóöa upp á eitthvaö óvenjulegt I
tónlistarlifinu á miövikudagskvöldum, svo fremi aö þetta mælist vel
fyrir. N'æsta miövikudag mun t.d. ákveöiö aö Gunnar Þóröarson mæti i
diskótekið og leiki nokkur af eftirlætislögum sinum.
Myndin er af Mezzoforte. —Gsal/ Visismynd: JA
KR-ingar syngja inn á plötu
G.B.H. hljómplötur hafa gefið út
sina fyrstu smáskifu og stendur
skammstöfunin fyrir Guðjón B.
Hilmarsson KR-ing. Þessi
tveggja laga plata er nýlunda á
islenskum hljómplötumarkaði,
þar sem þetta mun vera i fyrsta
sinn sem leikmenn knattspyrnu-
liös, i þessu tilfelli liösmenn
meistaraflokks KR syngja inn á
hljómplötu.
Lögin eru eðli málsins sam-
kvæmt baráttusöngvar KR-inga,
samin og flutt af KR-ingum. Höf-
undur laganna er Arni Sigurðs-
son.
Liðsmenn breska knattspyrnu-
liðsins Nottingham Forest sungu
nýverið inn á hljómplötu og hefur
titillag þeirrar plötu undanfarið
verið mjög hátt á hollenska list-
anum. Kannski verður KR-lagið
von bráöar ofarlega á þeim lista,
hver veit? — Gsal
S-SERIES
Gerð F-2674
Cummíns 290 hö
23t. heildarþyngd
Til afgreiðslu íjanúar 1980
AUGLÝSINGASTOFA SAMBANDSINS
INTERNAHONAL
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900
TRANSTAR
Transtar
Cummins 290 og 350 hö
22,5 t. heildarþyngd
Til afgreiðsiu í febrúar 1980