Vísir - 08.01.1980, Blaðsíða 6

Vísir - 08.01.1980, Blaðsíða 6
i fyrsta slnn I fiölda mörg ár er ísland f neðsla sæti á llsta „France Footban” yflr styrKlelka kn attspy rnuiandsii Da I Evrópu „Þetta kom mér ekki á óvart. Þetta eru einfaldar staðreyndir en ekki vinsældakosning” sagöi Helgi Danielsson, formaður landsliðsnefndar tslands i knatt- spyrnu, er við töluöum viö hann i gærkvöldi. Við sögðum honum þá frá þvi, að á hinum fræga lista yfir bestu knattspyrnulið Evrópu, sem hið virta franska iþróttablað „France Football” sendir árlega frá sér, sé islenska landsliðið ekki hátt skrifað. A þessum lista er tsland i 32. og siöasta sæti og er það i' fyrsta sinn, sem islenska landsliðið er svo neðarlega þar i fjölda mörg ár. Oftast hefur það verið i 28. til 30. sæti, og þá haft minnst tvær þjóðirfyriraftansig.enniíer það eitt i „júmbó-sætinu.” ,,Þar sem listinn er eingöngu reiknaður út eftir árangri, það er að segja unnum sigrum og jafn- tefli, er ekki við öðru að búast” sagði Helgi. „Við lékum á siöasta ári við það sterkar þjóöir knatt- spyrnulega, aö það náðist ekkert stig. Eitt jafntefli eða sigur hefði án efa fleytt okkur ofar, þvi að þjóðir eins og Luxemborg, Malta og Kýpur hafa heldur ekki af miklum afrekum aö státa.” Island lék á árinu 6 landsleiki 4 heima og 2 úti og tapaði þeim öll- um. Leikirnir hér heima voru gegn Sviss, Hollandi, Vestur- Þýskalandi og Austur-Þýska- landi, en leikirnir úti gegn Sviss, og Póllandi. Af þessum þjóðum er Sviss neðst á hinum fræga lista „FVance Football”, eða i 28. sæti — fjórum sætum framar en Is- land. Austur-Þýskaland er þar i 13. sæti, Pólland i 7. sæti, Holland i 6. sæti og Vestur-Þýskaland er i 2. sæti á listanum. Besta landslið Evrópu sam- kvæmtútreikningi „France Foot- ball” er JUgósla'da, sem þó náöi ekki að komast i Urslit i Evrópu- keppni landsliða i ár. Var það vegna taps gegn RUmeniu og Spáni árið 1978, en árið 1979 tap- aði Júgóslaviaekkieinum einasta landsleik i knattspyrnu. Annars litur þessi listi fyririr árið 1979 þannig út: 1. Júgóslavia 2. V-Þýskaland 3. Austurriki 4. England 5. Belgia 6. Holland 7. Pólland 8. Frakkland 9. ttalia 10. Tékkóslóvakia 11. Sovétrikin 12. Ungverjaland 13. A-Þýskaland 14. Grikkland 15. trland 16. PortUgal 17. Wales 18. BUlgarta 19. Danmörk 20. Tyrkland 21. Spánn 22. Sviþjóð 23. Skotland 24. N-lrland 25. Finnland 26. RUmenia 27. Noregur 28. Sviss 29. Luxemborg 30. Malta 31. Kýpur 32. Island Af andstæöingum Islands I undankeppni heimsmeistara- keppninnar á þessu ári eru Tékk- ar efstir á listanum, eöa I 10. sæti. Sovétmennkoma næstir þeim,en þeir eru i 11. sætinu, Wales er i 17. sæti og Tyrkland i 20. sæt- inu.... — klp — Sterkur strðkur Búlgarski unglingurinn Redy- chebov setti tvö heimsmet i full- orðinsflokki á lyftingamóti i Búlgariu um helgina. Hann keppti þar I þyngdar- flokknum allt að 60 kg og náði þar að snara 125 kg, sem er nýtt heimsmet. Samanlagt I snörun og jafnhöttun var hann með 280 kg, sem er einnig nýtt heimsmet.... —klp— Það var heldur lélegur afrakstur hjá landsliðinu okkar i knattspyrnu á siöasta ári. Liðið lék 6 leiki og tapaði þeim öllum. Mótherjarnir voru heldur ekki af verri endanum eins og sjá má á þessari mynd, sem er frá leiknum við Vestur-Þýskaland á Laugardaisvellinum. Worlfl Cup I aipagrelnum: Litla systir stal senunnl Skiptir Barcelona og Hamburger á þessum frægustu og bestu knatt- spyrnumönnum Evrópu siðari ár, Kevin Keegan t.v. og Allan Simonsen?... En það er einnig möguleiki á að þeir leiki saman hjá Barcelona næsta keppnistfmabil... Marie-Theresa Nadig frá Sviss náði að jafna við Anne-Marie Moser Pröll fra Austurriki i keppninni I heimsbikarnum I alpagreinum kvenna á skiðum, þegar hún sigraði I brunkeppninni í Pfronten I Vestur-Þýskalandi Marie-Theresa var önnur á eft- ir Anne-Marie I sömu braut I fvrradag, en með sigrinum i gær náði hún að jafna viö hana í stiga- keppninni — báðar erunú meö 150 stig. En stí, sem stal senunni I gær, var litla systir Önnu-Mariu, Conny Pröll, sem er 18 ára gömúl. Hún fékk lánuð sklðin, sem stóra svstir notaði er hún sigraði I brunkeppninni Ifyrradag, og kom önnur I mark á þeim. Anne-Marie fagnaði mest af öllum þessum ár- angri hennar, en varð sjálf að láta sér nægja fjórða sætið —klp— HAFA KIR SKIPTI A KEE0AN 0R SIM0NSEN7 Eftir að Kevin Keegan, þá ný- kjörinn „knattspyrnumaður árs- ins i Evrópu 1979” gaf Ut þá yfir- lýsingu um jólin, að hann myndi ekki leika með þýska liðinu Ham- burger eitt keppnistimabil til viö- bótar, hafa menn setið og velt fyrir sér hvert yröi framhald á þvi máli, og hvaöa félag kæmi til með að krækja i þennan sterka leikmann í vor. Vfet er að mörg félög sækja það fastað fáhann i sinarraðir.ogef- laust eiga fleiri eftir að bætast i hópinn áður en yfir lýkur. Leik- menn eins og Keegan eru ekki á hverju strái og það má búast við að sum þeirra félaga, sem sækja það fast I dag að ná honum til sin eigi eftir að heltast úr lestinni, þegar tilboðin fara að streyma tií Hamborger og upphæðirnar fara virkilega að hækka. En það er reyndar ekki svo endilega vist, að stórar upphæöir verði nefndar, þegar allt kemur tíl alls, þvi að nú er altalað i Evrópu að Keegan muni fara til spænskaliðsins Barcelona i skipt- um fyrir Danann Alan Simonsen. En hvort þau skipti fara fram er ekki hægt að fullyröa á þessu stígi málsins. Margir telja frekar. að Barce- lona vilji ekki sleppa Simonsen, heldur láta hann leika við hlið Keegan, og selja þá Austurrikis- manninn Hans Krankl, sem hefur átt I sifelldum útistööum við ráðamenn Barcelona frá þvi i haust. En hvað skyldi Gunter Netzer, framkvæmdastjóri Ham- burger, segja um málið? ,,Ég tel vist, að Keegan muni fara frá Hamburger i vor, og ég tel það einnig vist að hann muni ekki fara til Englands, þótt félög þar hafi sóst eftir þvi aö fá hann i sinar raöir. Mitt álit er, að hann muni fara til Barcelona á Spáni”. — Meira fékkstekki út úr Netzer, er hann ræddi við blaöamenn, þegar hann dvaldi i jólaleyfi i Sviss. Eitt þeirra félaga, sem talið er , eiga næga peninga til að keppa um að fá Keegan til sin, er Italska liðið Juventus. Þar vantar ekki aurana og ítalir eru nú einmitt aö opna markaðinn hjá sér fyrir er- lenda leikmenn. En hvað skyldi Keegan sjálfur segja um máliö? „Ég ætla að skipta um félag af sömu ástæðum og ég fór til Ham- burger frá Liverpool. Ég hef gert það gott í Þýskalandi og næ ekki meiri frama hér. Ég get sagt það eitt, að fari ég aftur til Englands, þá er það Chelsea, sem freistar min mest” segir knattspyrnu- maður ársins 1979 i Evrópu. GK— Á fsiand lélegasta landsliOiO?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.