Vísir - 08.01.1980, Blaðsíða 8

Vísir - 08.01.1980, Blaðsíða 8
vísm Þriöjudagurinn 8. janúar 1980. '8 Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Páll Magnússon, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Auglýsingar og skrifstofur: Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Siðumúla 8. Simar 86611 og 82260. Utgefandi: Reykjaprent h/f Ljósmyndir: Gunnar V André’sson, Jens Alexandersscn Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Framkvæmdastjóri: DaviðGuðmundsson ullit og honnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnus Olafsson Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur. Ritstjórar: ölalur Ragnarsson Hörður Einarsson Askrift er kr. 4.500 á mánuði innanlands. Verð i lausasölu 230 kr. eintakið. Prentun Blaðaprent h/f LMINAJOFNUN 0G VERBBÆTUR Verkamannasambandsfulltrúarnir uröu sammála um þaö á þingi sinu, aö réttast væri aö láta veröbólguna marka launajöfnunarstefnuna I staö þess aö semja um launabiliö meö grunniaununum I samningum. Niðurstaða sú, sem varð á þingi Verkamannasambands íslands um helgina varðandi verðbætur á laun, staðfestir glögglega þann ágreining, sem vitað er að hefur verið innan verkalýðshreyf ingarinnar um stefnuna í launamálum. Á ráðstefnunni var samþykkt að falla ekki frá fyrri kröfum Verkamannasambandsins um að verðbætur á laun yrðu reiknaðar í krónutölu á báðum endum launastigans, en prósentuhækkun notuð um miðbik hans. Með öðr- um orðum urðu menn áséíttir um að reiknaðar verði prósentubæt- ur á laun, sem nema 300 þúsund krónum á mánuði og sú hækkun látin gilda niður launastigann. Þá var samþykkt að hlutfallslegar bætur kæmu á laun, er væru á bil- inu frá 300 til 400 þúsund krónur, en á laun þar fyrir ofan verði bæturnar í sömu krónutölu og á 400 þúsund króna launin. Þessi afstaða Verkamanna- sambandsins brýtur í bága við afstöðu Alþýðusambandsins, þar sem menn hafa hingað til verið sammála um að prósentuhækk- anir komi á launin, þegar verð- bætur eru reiknaðar. Af þeim sökum má búast við að Alþýðusambandið klofni í af- stöðu sinni, þegar fulltrúar Verkamannasambandsins koma með stefnumál sitt á þann vett- vang. Ekki er ósennilegt að þeir muni fá önnur láglaunasamtök innan ASI til fylgis við sig, en uppmælingaaðallinn i samtökun- um mun ekki samþykkja þessa stef nu. Það hljómar ekki illa í eyrum láglaunafóks, þegar baráttu- menn krónutölureglunnar segja: „Hvers vegna eiga ekki allir að fá jafn miklar bætur fyrir það að kjötið eða fiskurinn hækkar, án tillits til þess, hve há laun þeirra eru?" — en dæmið er bara ekki svona einfalt. Launabilið, sem samið hefur verið um í samningum er hluti af því mati, sem verkalýðshreyf- ingin og vinnuveitendur gera á þýðingu hinna ýmsu starfa, og um þessi atriði er eðlilegt að samið sé um í kjarasamningum, en verðbólgan á hverjum tíma ekki látin hræra í þessu kerfi og breyta því. í þessu sambandi má minna á, að samninganefnd Bandalags starfsmanna ríkis og bæja lagði nýlega fram kröfur sínar um skipan launastiga og það bil, sem samtökin telja eðlilegt milli hæstu og lægstu launa. Þar er haldið áfram launa- jöfnunarstefnu þeirri, sem BSRB hef ur fylgt, og er í kröf ugerðinni gert ráð fyrir, að hæstu laun séu 2,25 sinnum hærri en lægstu laun. Þarna er um að ræða mun minna bil en samið var um í síðustu samningsgerð BSRB og ríkisins, en þá voru hæstu laun 2,67 sinn- um hærri en lægstu laun.. Það er auðvitað skynsamleg- asta leiðin í þessum efnum að á- kvarða launabilið í samningum með grunnlaununum sjálfum og síðan sé því bili haldið með því að hafa verðbæturnar, er ofan á launin leggjast, i prósentum. Ef fulltrúar launþega hafa í raun hug á að stefna i átt til launajöfnunar er þeim í lófa lag- ið að koma þeim hugmyndum sínum í framkvæmd í samninga- gerðinni, ef þeir á annað borð eru sammála um stefnuna. Aftur á móti er erf itt við þetta að eiga, þegar allir segjast vera sammála um að bæta kjör þeirra lægst launuðu i þjóðfélaginu, en menn eru svo í grundvallaratrið- um ósammála um hvaða leiðir eigi að fara að því marki. Af öllum þeim leiðum, sem nefndar hafa verið í þessu sam- bandi er sú fráleitust, að láta verðbólguna marka launajöfn- unarstefnuna og hringla með launabilið. neöanmals t annálum ársins i blööunum var hvergi minnst á Viku gegn vímuefnum dagana 21.-27. októ- ber siöastliöinn, sem 22 félaga- samtök stóöu aö. Hvers vegna þarf alltaf aöþegja um þaö, sem vel er gert? spyr Hilmar Jóns- son, bókavöröur. Ekkert er uppeldi barna á vest- urhveli jarðar eins skaölegt og ofneysla áfengis hjá hinum full- orönu. 1 Viku gegn vímugjöfum var haldiö uppi samfelldum áróðri i skólum og fjölmiölum gegn vimugjöfum. 1 þeirri herferð tóku þátt fjölmargir þekktustu og bestu þegnar þjóðarinnar. Ekkert viðtal á þessu ári var eins áhrifamikið og þarfteins og sjónvarpsviðtal barna i tilefni af Viku gegn vimugjöfum. Hvers vegna þarf alltaf að þegja um það sem vel er gert en hampa þvi sem leiðir til hins illa og veldur þjáningum og kvöl? Þetta skyldu blaöamenn og forráðamenn fjölmiöla hugleiða á nýbyrjuðu ári. Hilmar Jónsson. HVERS VEGNA ÞARF AÐ ÞEGJA UM ÞAÐ SEM VEL ER GERT? Heiðraði ritstjóri. Mig langar til að koma á framfæri i blaði yðar smáathugasemd við frétta- mennsku yfirleitt. I öllum blöð- um höfuðstaðarins hefi ég lesið svokallaða annála ársins: Það er yfirlit um helstu atburði árs- ins 1979. Það sem vekur sér- staka athygli mina, er að hvergi — ég endurtek hvergi — er minnst á Viku gegn vlmuefnum dagana 21.-27. okt. sl., sem 22 fé- lagasamtök stóðu að, og var að flestra dómi einhver best heppnaða og alvarlegasta til- raun sem gerð hefur verið til að vekja athygli á mesta og versta vandamáli Islendinga I dag, á- fengisvandamálinu og hvernig unnt væri aö snúa þeirri öfug- þróun viö. Hins vegar sá ég I einu eöa tveimur blöðum var getiö lof- samlega um reglugeröarbreyt- ingu Steingrims Hermannsson- ar fyrrverandi dómsmálaráö- herra um opnunartlma veit- ingahúsa, þar sem áfengisböliö er aukið. Þessi reglugerðar- breyting var gerð enda þótt vit- að væri að hún nyti ekki meiri- hluta á Alþingi. Engum ráð- herra ber að fara eftir naumum meirihluta borgarfulltrúa I Reykjavik eins og gert var I þetta sinn. Þaö má raunar koma fram I þessari athugasemd, að Reykjavikurborg og Garðabær voru einu bæjarfélögin sem neituöu samstarfsnefndinni, sem stjórnaöi Viku gegn vfmu- gjöfum um fjárframlög og undirstrikar sú staðreynd enn betur hvaða hagsmunum borg- arfulltrúar Reykjavikur kjósa að þjóna. 1 aðeins einu dagblaði sé ég að getið er um baráttu Krabbameinsfélagsins og reyk- lausa daginn 23. janúar sl. Hvað veldur þessu brenglaða gildismati hjá fjölmiðlum? Get- ur verið að áfengisauðmagnið sé hér að verki? Þiggur t.d. rit- stjóri laun fyrir aö leika trúð i á- fengisauglýsingu eins og nær- tækt dæmi er um? Hér er verk- efni fyrir rannsóknarblaða- menn. Ekkert auðvald er eins óprúttið og svivirðilegt I bar- áttuaðferðum og áfengisauð- magnið. Um það hefur meðal annarra hinn frægi rithöfundur Alex Haley vitnað. Arið 1979 var ár barnsins. Vika gegn vlmuefnum þótti takast mjög vel. Þessi mynd er tekin á fundi sem unglingarnir sem stóðu aö „Viku gegn vimugjöfum” stóðu að I Templarahöllinni. Vlsismynd: J.A.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.