Vísir - 08.01.1980, Qupperneq 9
Þriðjudagurinn 8. janúar 1980.
9
Suður-ameriski hryðjuverkamaðurinn, Ilich
Ramirez Sanchez, sem betur er þekktur und-
ir nafninu Carlos, hefur á einu bretti játað á sig
flest þau morð og hemdarverk, sem lögregla
fjölda Evrópulanda hefur lengi grunað hann um.
Játningar þessar gerði hann i viðtali við sýr-
lenska skáldið Aassem el Jundi, en það birtist i
arabiska vikublaðinu ,,A1 Waten al Arabi” i Bei-
rút.
Carlos, sem hefur verið efstur á lista Interpol
yfir eftirlýsta hryðjuverkamenn, greindi frá þvi,
að hann hefði þegar 1970 verið tekinn inn i raðir
PFLP, sem er ein af skæruliðahreyfingum
Palestinuaraba. Þar vann hann undir stjorn
skæruliðaforingjans dr. George Habash, sem
stýrði aðgerðum i Evrópu og austurlöndum nær.
OPEC-harmleikurinn.
Frægasta verk Carlosar var
unnið um hábjartan dag t aðal-
skrifstofum OPEC i júli 1976,
þar sem oliumálaráðherrarnir
voru saman komnir til fundar i
Vinarborg. Svo öruggur var
Carlos um sig og sigurinn I
þeirriför, að hann gaf sér stund
til þess að kveðja Otto Kosch
innanrikismálaráðherra Aust-
urrikis með handabandi við
brottför DC-9 þotunnar.Kreisky
kanslari hafði fyrirskipað, að
skæruliðarnir og glslar þeirra
fengju hana til afnota.
1 fréttum þeirra daga kom
fram, að Carlos hafði krafist
einnar milljónar dollara
lausnargjalds fyrir oliumála-
ráðherrana. Aldrei kom þó
fram, hvortlausnargjaldið hefði
nokkurn tima verið greitt, enda
mun megintilgangur áhlaupsins
hafa verið að knýja oliusölurík-
in til harðari stefnu gagnvart
iðnaðarrikjum vestursins. I
arabiska vikuritinu segir Carlos
frá OPEC-aðgerðinni i smáatr-
iðum, en nefnir hvergi lausnar-
gjaldið.
Morð á sex sekúndum.
Um morðið á erindrekum
frönsku leyniþjónustunnar DST
og Libanonmanninum, sem
Carlos taldi hafa sagt lögregl-
unni til sin, segist hann I viðtal-
inuhafadrepiðþá „átæpum sex
sekúndum” þetta var i Latinu-
hverfinu I Paris 1975. Erind-
rekarnir áttu að handtaka
Carlos, og tóku með sér
Libanonmanninn, sem þekkti
Carlos f sjón, og gat bent þeim á
hann.
,,Ég var sneggri...”
„Það var stundarfjórðungi
eftir klukkan átta, að barið var
á dyrnar hjá mér. Hjá mér voru
tveir menn frá Venezúela og
vinkona min. Annar mannanna
lauk upp dyrunum og kallaði
siðan: „Það er lögreglan.” —
segir Carlos I viðtalinu.
„Við buðum þremenningun-
um inn og upp á drykkjarföng.
Þeir stöldruðu viö stundarkorn
hjá okkur, en báðu siðan um að
sjá vegabréfin. Þá byrjuðu þeir
að yfirheyra mig um Mouk-
harbel (Libanonmanninn, sem
handtekinn hafði verið, grunað-
ur um hryðjuverk). Ég sagðist
aldreihafahittþannmann. Þeir
fullyrtu, að hann væri frammi á
gangi og reiðubúinn aö bera
kennsl á mig.
Þegar ég bað þá að sækja
hann, deildu þeir um það litil-
lega, en annar þeirra gekk siðan
til dyra. Það rann upp fyrir
mér, að ég yrði aö skjóta mér
leið út úr þessari klipu. Stundar-
fjórðungi siðar var Moukharbel
ýtt inn úr dyrunum. Þegar hann
lyfti hendi til þess að benda á
mig, kvað hann upp yfir sér
dauðadóminn.
Ég reif rússnesku skamm-
byssuna mina fram, og sneri
mér fyrst að Donatini erind-
reka, sem hafði orð á sér fyrir
að vera hraöskeyttur. Ég var
honum sneggri og hæfði hann i
vinstra gagnaugað. Sfðan skaut
ég Raymond Dous, hinn erind-
rekann, á milli augnanna. Þá
var aðeins eftir lögreglumaður-.
inn, sem var með þeim, og ég
sendi honum kúlu undir eyraö.
Misheppnuð morðtil-
raun.
„Moukharbel hefur sennilega
skiliö.hvað hann áttii vændum,
þvi að hann gekk fram eins og i
svefni og hélt höndum fyrir and-
litiö. Honum hlýtur að hafa verið
ljóst, að sá, sem bugast við slik-
ar aðstæður, á sér aðeins ein ör-
lög. Ég hitti hann milli augn-
Carlos, eða Sjakalinn, eins og hann er stundum nefndur, er efstur á
lista Interpol yfir eftirlýsta hryðjuverkamenn.
þegar kjallaravöröurinn lauk
upp dyrum, beindi Carlos aö
honum hlaupviðri skammbyssu.
Neyddi hann kjallaravörðinn til
þess að visa sér á Sief, sem
fannst inni á baöherbergi.
Carlos virti fórnardýrið fyrir
sér i eina sekúndu, en lét sfðan
skotið riöa af. En sterkar fram-
tennur milljónamæringsins
björguðu lifi hans. Þær drógu
nóg úr höggi kúlunnar til þess að
hlifa hálsæðunum.
Carlos segist hafa skotiö þrem
sinnum, en aðeins eitt skot hafi
hlaupið af.
„Þegar ég siðar heyrði, að
Sief heföi lifað af, ætlaöi ég að
reyna aftur, en mér bárust
nauðsynleg vopn ekki fyrr en
eftir hálfan mánuð. Þá var Sief
farinn til Bermúda.”
Rauði herinn i Japan.
1 viðtalinu við arabiska viku-
blaðið segir Carlos, að það hafi
veriö hann, sem skipulagöi
hryöjuverkaárás þriggja Jap-
ana á franska sendiráðið I Haag
I september 1974.
„Japanirnir tóku sendiherr-
ann og starfslið hans fyrir gisla.
En þegar ég fann á mér, að
frönsk yfirvöld ætluðu að koma
sér hjá þvi, aö sleppa lausum
fangelsuðum félaga úr Rauða
hernum i Frakkalndi, ákvaö ég
að skerast I leikinn.”
Carlos varpaði sprengju á
kaffihús við St. Germain des
Pres með þeim afleiðingum, að
tveir létu lifið, en þrjátiu særð-
ust. Sigri hrósandi heldur Car-
los áfram frásögninni:
„Við þetta urðu Frakkarnir
skelkaðir, og sendu Boeing
707-þotu til Hollands meö
Japanann til að sækja skærulið-
ana þrjá I sendiráðið. Aögerðin
heppnaöist.”
Aldrei tókst frönsku lögregl-
unni að upplýsa, hverjir hefðu
verið að verki i Haag.
Undir verndarvæng
Gaddafi.
Carlos býr I dag i Libýu, þar
sem atvinnurekandi hans og
velunnari, Mohammed Gaddafi
ILLRÆMDASTI HRYSJUVERKA-
MABUR AlTUNUA ARATUUSINS
Carios seglr slállur frá f vlðtali við araðfskt vlkublað f Belrút
Fyrir utan franska sendiráöiö I Haag, en Carlos kom þar viö sögu, þótt hann væri utan veggja sendi-
ráösins.
anna, en sendi honum aðra kúlu
i gagnaugaö til frekara öryggis,
áður en ég hljóp út úr herberg-
inu. Þetta allt tók aöeins sex
sekúndur.”
Frásögn Carlosar um atburö-
inn i Rue Toullerie kemur heim
viö lýsingu lögreglumannsins,
sem lifði skotsárið af. Nema
hann segir, að Carlos hafi fyrst
skotið Moukharbel og siðan
erindrekana.
Carlos framdi sitt fyrsta laun-
morð i London i desember 1973,
eða réttara sagt reyndi það.
Hann klúðraöi verkinu, þvi að
fórnarlambið lifði tilræðiö af.
Habash hafði fyrirskipað htm-
um að ráða af dögum milljóna
mæring, gyöinginn sir Edward
Sief, sem var forstjóri Marks &
Spencer, stórverslunarinnar.
Carlos knúði dyra á heimili Sief
á nýárskvöldi Queens Grove, og
ofursti, hefur veitt honum fasta
búsetu. Það er eini griðastaður-
inn I öllum heiminum, þar sem
Carlos geturveriö nokkurnveg-
inn óhultur. Við flest landamæri
Evrópu, Austurlönd nærog Suð-
ur-Ameriku hanga uppi af hon-
um myndir, sem Interpol hefur
af honum.
„Við náum honum einn dag-
inn. Treystið þvi. Ef hann vogar
sér að róta sér frá Libýu, góm-
um við hann,” sagði einn hátt-
settur foringi I Interpol ekki alls
fyrir löngu.
Carlos, eða „E1 Gortío” (sá
feiti), eins og hann var kallaður
við rætur Andesfjallanna, er i
dag aðeins 31 árs gamall. A að-
eins sjö árum hefur honum tek-
ist að geta sér eitt versta orð,
sem fer af nokkrum hryðju-
verkamanni áttunda áratugs-
ins.