Vísir - 08.01.1980, Page 12
vtsnt
Þribjudagurinn 8. janúar 1980.
Unglingar voru meö danssýningu á nýjustu dönsunum fyrir yngri nemendur.
Þessi glablegu andlit eru til heiöurs ljósmyndaranum þvi allir vildu komast á mynd.
VÍSIR
r
Þriöjudagurinn 8. janúar 1980.
DANSSKOU HEHMRS HELDUR 29 JOLRDRNSLEIKI:
„FORELDRARNIR ÆTTII AB
1
I
1
1
1
i
„Krakkarnir biða
spenntir eftir þessum
árlegu jóladansleikjum
og þetta er vissulega
mikill viðburður fyrir
þá” sagði Heiðar Ást-
valdsson danskennari
þegar Visir ræddi við
hann en Dansskóli
Heiðars heldur um þess-
ar mundir jóladansleiki
fyrir nemendur sina
viðsvegar um landið,
alls tuttugu og niu.
Vísir leit inn á tvo slika, einn
hjá yngri börnum og annan hjá
unglingum. Þeir voru i Tónabæ og
rikti mikill fögnuður og dansgleði
á staðnum.
Dansinn dunar og grcinilega mikil innlifun og ánægja hjá nemendum dansskólans
Jónina
Michaels-
dóttir,
blaðamaður
Jens Alex-
andersson,
Ijósmyndari
Heiðar sagði að jólasveinar
kæmu i heimsókn til yngstu ald-
urshópanna en hjá þeim eldri
væru sýnd dansatriði. Dansað er
eftir plötum eða segulbandi og er
Heiðar sjálfur plötusnúður,
nema hjá unglingunum. ,,Ég er
ekki nógu „töff” fyrir þá” sagði
hann.
Heiðar sagði að þessar skemmt-
anir færu alltaf mjög vel fram og
allir virtust skemmta sér vel en
hann vildi gjarnan sjá meira af
foreldrum nemendanna á hinum
árlegu jóladansleikjum og eins á
lokadanjleiknum. Alltof litið væri
um að foreldrar og börn skemmtu
sér saman og þessi skipting i ald-
urshópa sem væri að verða
rikjandi á öllum sviöum i þjóð-
félaginu væri ekki aö sinu skapi.
Foreldrar kæmu að visu stundum
með yngstu börnunum, en minna
væri um þaö eftir þvi sem þau
yrðu eldri. „Reyndar gruna ég
unglingana um að segja foreldr-
um sinum ekkert frá þvi að þau
séu velkomin á dansleikinn”,
sagði Heiðar sposkur.
— JM
Það er gott aö fá tilsögn hjá þeim sem eldri eru og reyndari I danslist-
inni.
Þegar gert er hlé á dansinum er gott aö fá sér hressingu á „barnum”.
Heiöar Astvaldsson f hlutverki
plötusnúös á jóladansieiknum.
iBaESMBBMBilliMBIKIMMIKi
SSM1
HHBlis:
i
l