Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 4
4 B SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ hefur verið sett upp víða um heim við miklar vinsældir. Gerðar hafa verið kvikmyndir eftir því. Ein þeirra, Cyr- ano de Bergerac, var með franska leikaranum Gerard Depardieu í aðal- hlutverki en í nútímalegri gerð af verkinu, Roxanne, var Steve Martin í hlutverki Cyranos. Stefán Karl hefur því verið að læra fyrir fjórða hlutverkið sem hann leik- ur á þessu leiktímabili. Það er því ekki nema von að blaðamaður spyrji hvort það sé ekki vandkvæðum bund- ið fyrir leikara að halda hlutverkum aðskildum? „Nei, það finnst mér ekki. Það gæti þó verið ef hlutverkin væru keimlík,“ segir hann íhugull. „En það getur ekkert farið úr „Syngjandi í rigning- unni“ yfir í „Með fulla vasa af grjóti“ því ég hef búið mér til gjörólíka heima varðandi þessar sýningar sem ómögulegt er að flækja saman.“ En er ekki hætta á þegar menn eru í svona mörgu að þeir brenni hrein- lega upp? „Nei, ég hef engar áhyggjur af því enda er ég svo nýbyrjaður að leika. Ég heyri þetta hjá fólki. „Þú verður að passa þig að brenna ekki upp,““ hermir hann eftir og gerir sér upp áhyggjusvip. „Og ég segi bara: „Finnst þér ég svona leiðinlegur, viltu fara að losna við mig?““ Hann hlær hrossahlátri. „Auðvitað er þetta nokkuð sem maður þarf að hugsa um,“ segir hann svo og er orðinn al- varlegur. „Ég hugsaði um það þegar þessi vetur gekk í garð hvort ég væri að færast of mikið í fang. Það eru leikarar hér við húsið og víðar sem hafa verið í nokkrum aðalhlutverkum yfir veturinn. Þessir leikarar hafa verið að störfum í 8–10 ár og ekki er hægt að sjá á þeim að þeir séu að brenna upp. Það er líka spurning hvernig hlutirnir eru gerðir og hvort áhorfendur kunna vel við það sem leikarinn er að gera. Ef svo er vilja þeir sjá meira. Það eru fremur tækifærin fyrir ut- an leikhúsið sem geta þreytt leikar- ana eins og ef þeir eru að koma fram í fjölda auglýsinga, á skemmtunum, í áramótaskaupinu eða vinna í kvik- myndum.“ Talandi um kvikmyndir, þú fórst með hlutverk í kvikmyndinni Regínu síðastliðið sumar. „Já, ég var þar í litlu, sætu hlut- verki en þar fékk ég að leika löggu með Magga frænda (Magnúsi Ólafs- syni). Það er í fyrsta skipti sem ég lék í alvöru bíómynd.“ Þú lékst líka í útskriftarverkefni Nemendaleikhússins, sjónvarps- myndinni „Guð er til ...og ástin“, sem gerð var eftir handriti Illuga Jökuls- sonar? „Já, það var mjög lærdómsríkt og Hilmar Oddsson sem leikstýrði myndinni er frábær kennari. Myndin var tekin í Flatey en þar dvöldum við í tíu daga. Ég saknaði þó þriðja leik- ritsins sem Nemendaleikhúsið setur að öllu jöfnu upp.“ Ertu ef til vill meira fyrir leikhús- ið? „Nei, nei, alls ekki. Miðað við þá litlu reynslu sem ég hef þá kann ég vel við mig í kvikmyndunum. Það er heimur sem er órannsakaður af minni hálfu og ég vona að ég fái að skoða hann meira.“ Til þess að geta unnið vinnu sína og staðist það álag að leika fimm kvöld vikunnar auk þess að æfa fyrir ný hlutverk verður Stefán Karl að hugsa vel um líkamlega heilsu sína. Flesta morgna fer hann í líkams- þjálfun en hann er með einkaþjálfara sem hefur hannað sérstaka æfinga- dagskrá fyrir hann og einnig fær hann ráðgjöf um mataræði. En hvernig undirbýr hann sig andlega fyrir vinnu sína? „Ég geri það sem mér finnst skemmtilegt að gera í frístundunum. Ég er mikið með fjölskyldu minni. Ég hef verið að læra að fljúga og finnst gott að fljúga í einn eða tvo klukkutíma en ég stefni að einkaflug- mannsprófi. Ég fer í golf og göngu- ferðir. Mér finnst líka gott að vera einn með sjálfum mér.“ Þú varst tiltölulega nýkominn út úr leiklistarskólanum þegar þú fékkst tækifæri til að leikstýra nýj- um leikþætti, „Leikir“, eftir Bjarna Bjarnason í Iðnó. Hvernig var þessi frumraun þín sem leikstjóri? „Það var mjög skemmtileg reynsla.“ Hafðirðu sýnt þessu starfi áhuga? „Ég nefndi það við Magnús Geir, leikhússtjóra Leikfélags Íslands, í framhjáhlaupi og gríni að ég hefði áhuga á að leikstýra. Hann ákvað bara að slá til og leyfa mér að prófa þar eð hann hafði góða trú á mér.“ Þér þótti takast vel upp sem leik- stjóri. „Ég fór hefðbundna leið að verk- inu og fékk leikarana Jakob Þór Ein- arsson og Nönnu Kristínu Magnús- dóttur til að leika í verkinu. Jakob var kennari minn í leiklistarskólan- um og Nanna Kristín er skólasystir mín.“ Þú hefur ekki verið hikandi við að leikstýra fyrrverandi læriföður þín- um? „Jú, svolítið fyrst en við höfum allt- af verið ágætis félagar og við Nanna Kristín erum góðir vinir svo þetta gekk vel.“ Hefurðu áhuga á að spreyta þig meira sem leikstjóri? „Já, ég hef mikinn áhuga á því. Það má kannski orða það þannig að ég hef áhuga á öllu sem viðkemur leik- húsi.“ Hvernig finnst þér að samband leikstjóra og leikara eigi að vera? „Samstarfið þarf að vera gott. Leikstjóri og leikari þurfa að stilla saman bylgjulengdir sínar, þ.e. ákveða á hvaða rás þeir ætla að vera. Leikstjórinn leggur upp með hug- mynd að ákveðinni aðferð sem leik- arinn og allir sem vinna að sýning- unni eiga að mínu mati að hafa skoðun á og þurfa að samþykkja. Stundum kemur höfundurinn inn í þetta samstarf líka.“ Hvað gerist ef leikari og leikstjóri eru ekki sammála? „Það getur auðvitað gerst en þá þurfa þessir aðilar að ræða meira saman en venjulega. Stundum er leikarinn með heitar hugmyndir því hann hefur þegar mótað persónuna, gefið henni hold og blóð. Hann vill kannski réttlæta hann og segir við leikstjórann eða höfund- inn: „Nei, minn mundi aldrei segja þetta.“ En stundum erum við leik- ararnir í engri aðstöðu til að sjá hvort tilsvör persónunnar eru rökrétt og þess vegna verðum við umfram allt að treysta leikstjóranum. Markmið beggja er að búa til heilsteypta og góða sýningu.“ Þú lékst einleik í Iðnó í leikriti Hallgríms Helgasonar „1000 eyja sósu“ sem hann samdi sérstaklega fyrir þig. Hvernig kom það til? „Ég þekki Hallgrím í gegnum Gunnar, bróður hans, og bað hann að skrifa fyrir mig einleiksverk sem ég sýndi á þriðja ári í leiklistarskólan- um. Úr varð þetta leikrit sem síðar fékk önnur verðlaun í einþáttungs- samkeppni Leikfélags Íslands. Okkur var boðið að fara með verk- ið á leiklistarhátíð í Leipzig í Þýska- landi. Það kom þannig til að hingað kom framkvæmdastjóri hátíðarinn- ar, Elizabeth Woolf. Henni fannst verkið vera meðal áhugaverðari sýn- inga sem hún sá hér auk þess sem sýningin er auðveld í uppsetningu og ódýr. Það sem Woolf fannst svo merki- legt var að hún skildi nær hvert ein- asta orð sem ég sagði í sýningunni, sem var á íslensku. Sama kom fram í gagnrýni sem birtist í þýskum blöð- um um sýninguna. Ástæðan var sögð uppbygging verksins og látbragðið. Það stóð til að nota textavél til að koma innihaldi leikritsins til skila en fallið var frá því. Handrit á þýsku lá þó frammi á borði fyrir þá sem vildu glugga í það.“ Hvernig varstu sem krakki? „Þú ætir að spyrja mömmu að þessu. Ég var stundum kallaður skæruliðinn eða eins og einhver sagði við mig: „Stefán Karl minn, þú ert ekki ofvirkur, þú ert bara velvirk- ur.““ Var farið með þig til læknis eða sálfræðings eins og nú er gert við of- virk börn? „Nei, sem betur fer ekki. En ég var eins og ég hef sagt frá áður op- inberlega lagður í einelti í skóla og það var mjög erfitt. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en seinna að um einelti var að ræða og að ég væri að leggja aðra krakka í einelti því að það gerði ég.“ Hvernig lýsti eineltið sér sem þú varðst fyrir? „Það var verið að stríða mér með því að ég væri með stór eyru. Ég var mjög orkumikill krakki og var oft að leika og fíflast. Ég stóð kannski á skólaganginum og söng hátt og það fór mikið fyrir mér. Afleiðingin var sú að mér var ekki boðið í afmæli eða bekkjarpartí. Eldri nemendur lok- uðu mig niðri í öskutunnu eða ber- strípuðu mig á bókasafninu. Ég bara hló og gerði grín að öllu saman. En auðvitað leið mér alveg rosalega illa. Ég gerði það gjarnan að fara í kirkju- garðinn sem var ekki langt frá þaðan sem ég átti heima og sat við leiði afa og ömmu og spjallaði um sjálfan mig og heima og geima. Flestir krakkar þekkja það að eiga óraunverulegan vin sem þeir tala við eða þeir tala við dúkkurnar sínar eða bangsa. Ég gerði þetta og ég held að það hafi haldið í mér lífinu. Ég hafði þrátt fyr- ir allt ekki mjög mikið sjálfstraust en ég fór langt á fjölskylduþrjóskunni. Til þess að reyna að falla inn í hóp- inn tók ég sjálfur þátt í því að leggja aðra í einelti. Það var ekki fyrr en ég var kominn í leiklistarskólann og var farinn að skoða sjálfan mig að innan að ég áttaði mig á að ég hafði farið á mis við ákveðinn tilfinningalegan þroska. Ég held að við mannfólkið gerum allt of lítið af að reyna að kom- ast að því hver við erum í raun og veru. Hvað við kunnum og getum. Við þurfum líka að læra að bera virð- ingu fyrir okkur sjálfum. Það bjargaði mér að vera í Leik- félagi Hafnarfjarðar. Ef ég hefði ekki verið þar hefði ég örugglega byrjað að reykja, drekka og dópa.“ Undanfarin ár hefur Stefán Karl farið í skóla og sagt frá reynslu sinni til þess að hjálpa öðrum sem hafa orðið fyrir einelti og ræða um afleið- ingarnar. Fyrir þetta óeigingjarna starf sem hann hefur unnið í sjálf- boðavinnu veitti útvarpsstöðin Radíó-X honum viðurkenningu á dögunum. Hver hafa skilaboð hans verið til krakkanna? „Þau eru að fólk deyr af völdum eineltis og það er okkur að kenna. Ég gæti sagt þér margar hörmulegar sögur af krökkum, allt niður í 13 ára, sem hafa fyrirfarið sér vegna þess að þau fengu ekki að vera það sem þau voru.“ Varst þú farinn að hugsa um að svipta þig lífi á þessu tímabili? „Já, sú hugsun hvarflaði að mér. Flest okkar hugsa einhvern tímann um það en hversu langt við göngum er mismunandi.“ Nú hafa orðið umskipti í lífi þínu. Áður varstu hundeltur af múgnum en nú ertu orðinn dáður leikari, hvernig tilfinning er það? „Eins og ég hef sagt svo oft þá er ég bara lítill Hafnfirðingur sem fór í leikstarskólann og eins og allir sem þangað fara vonaði það besta,“ segir hann og lítur undan eins og feiminn skólastrákur. „Stundum finnst mér líf mitt eins og draumur og ég hugsa með mér, nú hlýtur þetta að vera bú- ið.“ Hvað mundirðu gera ef svo væri? „Ég er ekki hrokafullur ...og ég veit að það að leika er ekki það eina sem ég get gert. Ég hef unnið marg- vísleg önnur störf um dagana. Ég hef unnið verkamannavinnu niður við höfn, var á trillu um tíma, ég hef unn- ið í verslun og í bæjarvinnunni, í Blönduvirkjun, í saltfiski og síld, nefndu það bara. Mér fannst lær- dómsríkt að prófa þessi störf. Ég lít þannig á að eitt starf sé ekki merki- legra en annað.“ Morgunblaðið/Jón Svavarsson Í Draumi á Jónsmessunótt lék Stefán Karl eftirminnilega Bokka og Fílóstratus. Morgunblaðið/Jim Smart „Ég hef líka verið að læra að fljúga og stefni að einkaflugmannsprófi í nán- ustu framtíð,“ segir Stefán Karl sem er hér að taka af sér sminkið eftir sýningu á Syngjandi í rigningunni. „Ég fæ mikla líkamlega og andlega útrás í Syngjandi í rigningunni.„ Með Stefáni Karli eru á myndinni Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Valur Freyr Einarsson. Ljósmynd/Þjóðleikhúsið Í hlutverki unga hugsjónamannsins í Vatni lífsins. „Við fórum í tveggja vikna ferðalag með „Með fulla vasa af grjóti“ sem var alveg frábært.“ Stefán Karl og Hilmir Snær í hlutverkum sínum. Stefán Karl leikari í einleik eftir Hallgrím Helgason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.