Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 B 9 ferðalög ...ferskir vindar í umhirðu húðar Byltingarkennd nýjung frá Karin Herzog Vítamín H krem sem inniheldur einnig B1, B2, B6, B12 vítamín ásamt betakarotin Stórkostlegur árangur fyrir allar húðtegundir. Kynningar í vikunni: Mánudagur: Lyf og heilsa Fjarðarkaup Þriðjudagur: Lyf og heilsa Austurstræti Fimmtudagur: Lyfja Smáratorgi Debenhams Hringbrautar Apótek Föstudagur: Lyfja Lágmúla Borgar Apótek Hagkaup Kringlan Debenhams Laugardagur: Hagkaup Smáralind Hagkaup Kringlan Debenhams Súrefnisvörur Karin Herzog Switzerland NÁMSAÐSTOÐ við þá sem vilja ná lengra í  grunnskóla  háskóla  framhaldsskóla  flestar námsgreinar Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19 Nemendaþjónustan sf. Þangbakka 10, Mjódd. ÞAÐ er kannski ekki efst á óskalista fólks á tímum hernaðaraðgerða í Miðausturlöndum að sitja í flugvél nálægt þeim slóðum. Þótt ástandið sé ótryggt nú er þó um að gera að halda áfram að láta sig dreyma um fram- andi lönd og spennandi staði. Það er mun auðveldara og ódýrara að heim- sækja framandi slóðir en maður ger- ir ráð fyrir. Stærsta skrefið er þó að koma sér út úr eigin landi. Gagn- stætt því sem virðist vera viðtekin skoðun þá er einnig tiltölulega einfalt að skipuleggja sjálfur eigin ævintýri erlendis. Hvort sem það er í hálönd- um Himalaja eða strandferð um paradísareyjar Malasíu. Möguleik- arnir eru ótæmandi og því ekki verra að fá nokkrar ábendingar frá fyrstu hendi. Fjölmargir Íslendingar hafa nú þegar ferðast um framandi og fjar- læg svæði heimsins. Ég er ein þeirra og í kjölfar sex mánaða ferðalags um Afríku og Asíu hef ég komist að raun um að töluverð eftirspurn er eftir þeim upplýsingum sem ég sankaði að mér á ferðalaginu, og gerð voru nokkur skil í pistlum á mbl.is. Á næstu mánuðum munu birtast hér í ferðablaðinu pistlar sem kallast Fróðleiksmolar ferðalangsins og miðast að því að miðla hagnýtum upplýsingum um ferðalög á framandi slóðum. Jóhannesarborg í Suður- Afríku er til dæmis ekki dæmigerður áfangastaður ferðamanna. Borgin er talin hættuleg og fæstir hafa þar af leiðandi velt því fyrir sér hvað þar gæti verið að sjá og upplifa. En stað- reyndin er að Jóhannesarborg er full af lífi og þar er ótalmargt í boði fyrir ferðamenn. Borgin er jafnframt mun vestrænni en flestir gera sér grein fyrir, að undanskildum svörtu hverf- unum sem voru sköpuð á tímum að- skilnaðarstefnunnar. Við skulum því hefja ferðina í Jóhannesarborg með annan fótinn í vestrænni menningu og hinn í svörtustu Afríku. Tröllasögur um borg glæpanna Orðspor Jóhannesarborgar er vægast sagt mjög neikvætt. Hún var lengi þekkt sem mesta glæpaborg heimsins auk þess sem einn stærsti vandi Suður-Afríku, eyðni, fældi fólk frá heimsóknum þangað. Eftir að hafa heyrt þessar neikvæðu sögur af borginni herti ég upp hugann og hélt þangað. Ég hugsaði með mér; fyrst þarna búa milljónir manna, bæði hvítir og svartir, þá hlýtur að vera í lagi að skoða borgina og hún hlýtur að hafa upp á eitthvað spennandi að bjóða. Og viti menn, ég var ekki eini ferðamaðurinn og borgin var frábær. Hverfi hennar eru að sjálfsögðu mjög ólík og bilið á milli ríkra og fá- tækra er mjög breitt. En það sem mér fannst merkilegast var að heim- sækja blökkumannahverfið Soweto. Í Soweto bjuggu allar helstu hetjur þjóðarinnar sem börðust gegn aðskilnaðarstefnunni: Desmond Tutu, Nelson og Winnie Mandela svo einhverjir séu nefndir. Þetta fólk býr þarna enn og ég skoðaði meðal ann- ars fyrrverandi heimili Nelsons Man- dela og sá hús Desmonds Tutu. Í So- weto má sjá hvernig yfirvöld aðskilnaðarstefnunnar hrúguðu dökkum íbúum landsins í örlitla kofa í skipulögðum hverfum sem voru að mestu leyti án rafmagns og vatns. Í dag eru til bæði rík og fátæk hverfi í Soweto. Það eru margir sem bjóða upp á ferðir þangað undir leið- sögn þar sem farið er um hverfið og helstu atburðir, uppreisnir og átök á tímum aðskilnaðarstefnunnar rifjuð upp. Merkilegast finnst fólki oftast heimsóknin í fátækasta hlutann þar sem fólk byggir sér kofa úr pappa- kössum, bárujárnsbútum og timb- urafgöngum, og var ég þar engin undantekning. Auk Soweto er ótal staði að sjá og skoða í Jóhannesarborg. Borgin er svipuð ýmsum vestrænum stór- borgum að mörgu leyti. Þar er gnægt góðra veitingastaða og skemmtistaða auk þess sem þar er gott að versla. Verðlag er mun lægra en í vestræn- um löndum en úrvalið er svipað auk þess sem gaman er að skoða og kaupa suður-afríska muni og fatnað. Boðið er upp á margs konar skoð- unarferðir bæði um Jóhannesarborg og nágrenni hennar. Mesta aðdrátt- araflið hafa gullnámurnar umhverfis borgina, mörg af spilavítum hennar og fátækrahverfi svartra. Möguleik- arnir til fræðslu, skemmtana og af- þreyingar í Jóhannesarborg eru nán- ast óendanlegir, en að sjálfsögðu ber að varast ýmislegt því glæpum hefur ekki enn verið útrýmt í borginni. Ég verð þó að viðurkenna að ég var til- tölulega áhyggjulaus í þessari höf- uðborg glæpanna. Áhyggjulaus í höf- uðborg glæpanna Öryggi Þrátt fyrir að öryggi ferðamanna í Jóhannesarborg hafi batnað hin síðustu ár er nauðsynlegt að fylgja ákveðn- um öryggisatriðum, líkt og maður gerir í flestum stór- borgum. Flest ferðaþjónustu- fyrirtæki gefa þau ráð að:  Ferðamenn klæði sig látlaus- um fatnaði, skarti ekki dýrum skartgripum, myndavélum eða öðrum dýrum munum.  Þeir haldi sig á fjölförnum slóðum bæði að degi til sem og eftir myrkur.  Menn spóki sig ekki um með mikla peninga meðferðis.  Þeir viti hvert ferðinni sé heitið og heimsæki fátæk- ustu hverfin í fylgd heima- manns. Gisting Mörg fín hótel eru í Jó- hannesarborg og eru þau flest í Sandton eða Rosebank sem eru frekar örugg úthverfi ríka fólksins.  Ótal gistiheimili (kölluð „backpackers“) eru í borg- inni. Þau eru flest ódýr, örugg og hreinleg. Dagsferðir Fjölmörg fyrirtæki bjóða upp á dagsferðir og lengri ferðir um borgina og nágrenni hennar. Hótel og gistiheimili hafa nægar upplýsingar um slíkt. Mæli með heimsókn í Lesedi menningarþorpið ((+27) 12 205 1394, lesedi@pixie.co.za) þar sem hægt er að fræðast um ólíka þjóðflokka svæðisins, sjá dansa, borða hefðbundinn mat og gista í húsum þeirra. Tenglar www.gauteng.net www.timeout.com/johann- esburg/ www.worldexecutive.com/ cityguides/ Fróðleiksmolar ferðalangsins Ragna Sara Jónsdóttir rsj@mbl.is Molar Nokkrir helstu viðkomustaðir á sex mánaða ferðalagi um Afríku og Asíu. Á næstu vikum munu birtast pistlar með gagnlegum ábendingum frá ýmsum markverðum stöðum á þessari leið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.