Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 20
Rauða myllan og Rauða ljónið Nicole Kidman og endurreisn Baz Luhrmanns á dans- og söngvamyndinni. FILMFOUR, kvikmyndafram- leiðsludeild sjónvarpsstöðv- arinnar Channel 4 í Bretlandi, hefur átt drjúgan þátt í þar- lendri grósku í kvikmyndagerð undanfarin ár. Nú eru menn þar frekar daufir í dálkinn vegna þess að nýjustu myndir þess hafa brugðist vonum hvað að- sókn varðar. Nýlega hætti FilmFour við dreifingu á Crush með Andie MacDowell og Anna Chancellor þar til eftir sýningar hennar í Bandaríkjunum. Fyrirtækið bindur vonir við að hún fái þar góða dóma sem hjálpi myndinni í heimalandinu þegar hún verður loks frumsýnd þar næsta vor. Tvær aðrar myndir FilmFour, Buffalo Soldiers og Charlotte Gray, verða einnig frumsýndar vestra á undan Bretlandi. Sama aðferð dugði ekki mynd FilmFour Croupier með Clive Owen, sem fékk ágætar viðtökur í Bandaríkjunum en féll síðan í Bretlandi. Mesta áfallið var að fyrirhugað gullegg fyrirtækisins, Lucky Break eftir leikstjóra The Full Monty, Peter Cattaneo, náði engu flugi í sumar. Dauft hljóð í FilmFour Andie Mac- Dowell: Mynd hennar snúið við. BANDARÍSKI gamanleikarinn Chris Kattan, sem þekktastur er sem fastur liður í sjónvarpsgríninu Saturday Night Live, er orðinn eftirsóttur í kvik- myndir. Væntanleg mynd hans, Corky Romano, er talin eiga vinsældir vísar og því hefur hann nú ver- ið ráðinn í nýja gamanmynd eftir handriti Steph- ens Carpenters, sem einnig samdi Blue Streak. Þar leikur Kattan skautahlaupara sem gengur í fremur slappt ísknattleikslið og tekst að snúa gengi þess við. Kattan í sókn Chris Kattan: Er að komast á flug. ENN fjölgar þeim norrænu smellum, sem endurgerðir eru á enskri tungu. Rómantíska gamanmyndin Sá eini sanni eða Den eneste ene eftir danska leikstjórann Suzanne Bier náði miklum vinsældum í heimalandi hennar og víða á Norðurlöndum, m.a. hér á Ís- landi. Í Danmörku sáu hana um 850.000 manns. Nú hafa nokkur evrópsk framleiðslufyr- irtæki tekið höndum saman við Leslee Udwin, framleiðanda East is East, um að endurgera Den eneste ene á ensku. Breska leikkonan Patsy Kensit verður þar í aðalhlutverkinu og Simon Cellan Jones leikstýrir. The One and Only heitir hún upp á ensku og er í tökum í Newcastle. Sá eini sanni endurgerður Patsy Kensit: Leikur í end- urgerð dansks smells. MEÐFRAMLEIÐENDUR íslensku bíómyndarinnar Mávahláturs, Archer Street í Bretlandi og Hope & Glory í Þýskalandi, eru að und- irbúa gerð myndar um þýsku hryðjuverkakonurnar Ulrike Mein- hof og Gudrun Ennslin. Myndin heitir Wanted og verður undir stjórn Bretans Peters Webbers. Tvær kunnar evrópskar leikkonur fara með aðalhlutverkin, sú þýska Heike Makatsch leikur Ennslin og hin sænska Pernilla August er Meinhof. Wanted er byggð á skáld- sögu Þjóðverjans Stefans Aust en verður gerð á ensku. Meinhof og Ennslin á tjaldið BRESKI leikarinn Clive Owen virðist vera að sækja í sig veðrið í kvikmynda- leik, en hann hefur verið áber- andi í sjón- varps- þáttum undanfarin ár, lék m.a. rannsókn- arlöggu með augnsjúkdóm í slíkri syrpu. Ný mynd hans Croupier fékk ágætar viðtökur í Bandaríkj- unum og hann er væntanlegur í myndum eins og The Bourne Identity með Matt Damon og Gosford Park eftir Robert Alt- man. Owen hefur nú verið ráðinn til að leika á móti Angelina Jolie í Beyond Borders, ástarsögu sem gerist í alþjóðlegu hjálp- arstarfi. Tökur eiga að hefjast fyrir árslok en leikstjóri verður Martin Campbell. Verkefnið hefur gengið milli manna um árabil; Kevin Costner og Catherine Zeta-Jones áttu að leika í myndinni undir stjórn Olivers Stones en síðan datt Costner út og Ralph Fiennes inn og út aftur og eins fór um Zeta-Jones. Owen og Jolie í ástarsögu Clive Owen: Rísandi stjarna. ÍTALSKI leikstjórinn Franco Zeffirelli var áberandi í kvik- myndaheiminum fyrr á árum, ekki síst með viðamikil tónlist- ardrömu, þótt hann sé trúlega þekktastur fyrir Shakespeare- myndir sínar frá 7. áratugnum, Skassið tamið – The Taming Of the Shrew með Elizabeth Taylor og Richard Burton, og Rómeó og Júlíu. Zeffirelli hef- ur ekki gert margar bíómyndir seinni árin enda að nálgast áttrætt, en er nú að vinna að nýjustu mynd sinni. Hún tengist tónlistinni, eins og oft hjá Zeffirelli, nefnist Callas Forever og fjallar um síðasta mán- uðinn í lífi söngkonunnar heimsfrægu. Fanny Ar- dant leikur Callas og Jeremy Irons er umboðs- maður sem er að reyna að fá hana til að koma fram að nýju. Zeffirelli snýr aftur Jeremy Irons: Umbi Mariu Callas. GÆSAPARTÍ, ný ís-lensk bíómynd ífullri lengd, var tekin á aðeins sjö dögum, spunnin og leikin af ung- um konum úr Borgarfirði. „Myndin er óður til ís- lenskra kvenna,“ segir Böðvar Bjarki Pétursson handritshöfundur og leik- stjóri. „Ég reyni að sýna þær í eins réttu ljósi og mér er mögulegt. Ekki er víst að allir séu sammála mér og kannski á einhver eftir að verða hneykslaður. En ég held að myndin sé holl öllum Ís- lendingum, sérstaklega þó ung- lingsstelpum og ég vona að hún verði ekki bönnuð.“ Böðvar Bjarki segir Gæsapartí fjalla um unga konu sem ætlar að giftast inní sértrúarsöfnuð. „Bróð- ir hennar, sem er í sama söfnuði og mannsefnið, ætlar að sjá til þess að gæsapartíið, sem kolgeggjaðar vinkonur hennar halda henni, sé Guði þóknanlegt. Sem mótspil við afskiptum safnaðarins sýna vin- konurnar henni rækilega fram á hvers konar lífi hún er að fórna fyrir hnapphelduna og hvað bíður hennar.“ Myndin gerist, eins og nafnið bendir til, að mestu í gæsapartíi. Oddný Guðmundsdóttir fer með hlutverk gæsarinnar en leikkon- urnar koma flestar frá Akranesi og Borgarnesi og myndin var tek- in í Borgarfirðinum, einkum á Mótel Venusi, þar sem partíið fer fram. Einn atvinnuleikari fer með hlutverk í Gæsapartíi, Magnús Jónsson, sem leikur bróður- inn trúaða. Myndin var tekin upp sem sambland af spuna og leiknum senum. Böðvar Bjarki segir að áhorfendur „eigi eftir að upplifa sig sem flugur á vegg í alvöru ís- lensku gæsapartíi“. Gæsapartí er fyrsta leikna bíómynd Böðvars Bjarka Péturssonar, sem einnig er framleiðandi. Hann hefur áð- ur gert fjölda heimilda- mynda. Meðhöfundur hans við handritsgerðina var Pét- ur Már Gunnarsson, Guðmundur Bjartmarsson sá um kvikmynda- töku, Árni Pétur Guðjónsson var aðstoðarleikstjóri, Gunnþóra Halldórsdóttir klippti, Sigurður Pálmason er framkvæmdastjóri og Inga Rut Sigurðardóttir sá um leikmynd og búninga. Tónlist er í höndum Guðmundar Péturssonar og Uss ehf. annaðist hljóðvinnslu. 20 geitur framleiða Gæsapartí í samvinnu við kvikmyndaklúbbinn Filmund. Gæsapartí verður frum- sýnd í Háskólabíói í lok nóvember. Nýstárleg bíómynd Böðvars Bjarka Péturssonar frumsýnd í nóvember Kristján prédikar yfir Freyju systur sinni: Magnús Jónsson og Oddný Guðmundsdóttir í hlutverkum ólíkra systkina. Á Mótel Venus: Gæsapartí komið í gang. Rjóma gusað á gæsina: Oddný Guðmundsdóttir í aðalhlutverki ungrar konu á krossgötum. Flugur á vegg í Gæsapartíi MÖRG, mörg ár eru liðin síð-an ég sat í breskum kvik-myndasal með öskubakka mér við hlið og í svo djúpum þæg- indum að ég dreif varla á fætur til að brölta á barinn, sem skammt var undan. Ég man ekkert hvaða mynd var sýnd, en ég man glögg- lega eftir hrotunum í manninum í hægindastólnum við hlið mér. Honum leið svo vel að hann sofn- aði. Kannski hafði hann nýtt sér þjónustuna á barnum of vel áður en sýning hófst. Kannski gleymdist aðalatriðið: Að hafa bíómyndina sjálfa nógu vekjandi. Þetta var í svokölluðu lúx- usbíói, sem breskur bíóstjóri hafði komið á koppinn til að svara samkeppninni frá sjón- varpinu. Hann hugðist gera bíó- ferð svo aðlaðandi að sjónvarps- þrælarnir risu upp á afturfæturna og stormuðu í stórum hjörðum í bíó til að éta, drekka og reykja um leið og þeir horfðu á kvikmynd í ennþá meiri þægindum en stofusófinn og ís- skápurinn heima buðu upp á. Ég held að þessi tilraun hafi ekki fest sig í sessi á þeim tíma. Íslensk kvikmyndahús hafa fylgst afar vel með tækninýj- ungum og yfirleitt standast sýn- ingar hér ströngustu gæðakröfur hvað varðar hljóð og mynd. Þau eru líka almennt þægileg hvað varðar aðbúnað gesta, sæti og svigrúm, þótt á stöku stað mætti svara betur þörf hávaxinna fyrir fótarými. Auk hins klassíska um- kvörtunarmáls, sem fjölbreytt- ara myndaúrval er, mætti eink- um fetta fingur út í afar misjöfn gæði íslenskra þýðingartexta, sem stundum eru gjörsamlega óboðlegir, bæði hvað varðar mál- far, ritvillur og ýmsan misskiln- ing á frumtextanum. En núna verður syndin að sitja á rassinum í bíói semsé mun sæt- ari en áður var. SAM-bíóin í Álfabakka hafa dubbað sig upp á nýtt og bjóða fyrir utan nýjan búning upp á tilbrigði við fyrr- nefnt stef, mikil þægindi og auka þjónustu í lúxussal en auðvitað gegn hærra miðaverði . Sama gerir hið nýopnaða Smárabíó, þar sem stólarnir í fimm sölum eru með hreyfanlegu baki og „landsins besta bil milli sæta“ og að auki lúxussalur með leð- urhægindum. Fleira mætti telja í nýju freistingaframboði íslensku bíórisanna. Ég læt öðrum eftir að metast um hvor býður betur og óska öllum til hamingju með þessa veislusali. Og fjarri mér að vilja spilla veislugleðinni. En það er eitt, aðeins eitt, sem er mik- ilvægara en nýi lúxusinn: Veislan þarf að vera fyrir augu, eyru, hjarta og heila, ekki bara rass- inn. Fólk fer ekki í bíó til að skipta á stofusófa og leðurstól með hreyfanlegu baki. Það fer til að fá fjölbreytta og góða afþreyingu og jafnvel til að njóta listar. Það er ekkert meira freistandi að hrjóta í lúxusbíói en heima í sófa. Syndin gerist sætari Í nýju hægindunum: Þessari konu líður vel og hún vakir enn. „Mesta synd mannanna er að sitja á rassinum,“ sagði siðapostulinn. Er furða þótt ýmsir spái syndaflóði og heimsendi? Á meðan við bíðum milli vonar og ótta eftir þeim ósköpum er rétt að þakka fyrir það, hversu íslensk kvikmyndahús hafi gert þessa höf- uðsynd miklu meira freistandi og að- laðandi en áður var. SJÓNARHORN Árni Þórarinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.