Morgunblaðið - 14.10.2001, Síða 14
Lexus
IS300
213 hestöfl,
afturdrifinn
og með stífri
sportfjöðrun.
ÞRÁTT fyrir miklar álögur
á innflutta bíla, virðist bílverð
hérlendis í mörgum tilfellum
vera samkeppnisfært við bíl-
verð í Evrópu. Ef borið er
saman verð á Toyota Yaris
1.0 þrennra dyra, sem kostar
hérlendis 1.128.000 kr., við
verð sem framleiðendur gera
tillögu um inn á sjö markaði í
Evrópu, kemur í ljós að verð-
ið er langhæst í Danmörku.
Þar myndi slíkur bíll kosta
1.735.555 kr. og 1.203.353 kr.
í Englandi ef farið væri eftir
tillögum framleiðenda. Um-
boðin hafa hins vegar síðasta
orðið um verð á bílunum og
því ekki unnt að tala hér um
endanlegt bílverð.
Toyota Yaris myndi kosta á
Ítalíu 989.264 kr., 990.843 í
Lúxemborg, 1.247.471 í Hol-
landi, 1.162.950 kr. í Portúgal
og 1.072.578 kr. í Svíþjóð.
Miðað er við að gengi evru
sé 92,88 kr.
Meðalverðið á Toyota Yaris
í þessum átta löndum, að Ís-
landi meðtöldu, er 1.191.251
kr., en eins og fyrr segir, kost-
ar Yaris af þessari gerð
1.128.000 kr. hér á Íslandi.
Verð á
Íslandi undir
meðalverði
í Evrópu
SVO virðist
sem akstur hafi
sáralítil áhrif á
heilastarfsemi
manna. Vís-
indamenn hjá
Daimler-
Chrysler hafa
komist að raun
um að hugur ökumanna er nánast í hvíld meðan
ekið er en engu að síður geta þeir stjórnað bíl
án vandræða. Vísindamennirnir gerðu mælingar
á heilastarfsemi ökumanna í ökuhermi og kom-
ust að því að virkni heilans var í lágmarki. Ann-
að kom hins vegar í ljós þegar sams konar
mælingar voru gerðar á farþegum. Þetta hefur
komið vísindamönnunum verulega á óvart en
þeir gengu út frá því að þessu væri einmitt öf-
ugt farið.
Heilinn í hvíld meðan ekið er?
SKODA Superb lúxusbíllinn var kynntur á bíla-
sýningunni í Frankfurt og nú hafa fyrstu myndir
birst af langbaksútgáfunni. Bíllinn líkist ekki lítið VW
Passat en Superb verður með svipað farang-
ursrými og Mercedes-Benz E langbakurinn en verð-
ið verður mun nær Mercedes-Benz C. Markmið
Skoda er að bjóða mesta farangursrýmið í þessum
stærðarflokki og auk þess mikinn búnað. Bíllinn
verður boðinn í þremur búnaðarútfærslum, þ.e.
Classic, Comfort og Elegance. Staðalbúnaður í öll-
um gerðum verður xenon-framljós, fimm loftpúðar,
loftkæling og hemlunarátaksdreifing. Dýrustu gerð-
irnar verða með 2,6 lítra V6 vél. Stallbakurinn kem-
ur á markað næsta vor en ekki er búist við að lang-
bakurinn komi á markað fyrr en ári síðar. Líklegt
þykir að bíllinn verði einnig boðinn með fjór-
hjóladrifi.
Skoda Superb langbakur
LJÓST er að aukin samkeppni verður í lúx-
usbílaflokki þegar Volkswagen setur á markað D1-
lúxusbílinn á næsta ári. Nýlega náðust myndir af
bílnum dulbúnum og virðist sem VW hafi valið að
láta hann líkjast sem mest Lexus GS300, sem
verður vissulega einn af samkeppnisbílunum. Við
nánari eftirgrennslan er ljóst að tvöfaldar kringl-
óttar framlugtir, afturljósin og sveigja í afturglugg-
anum eru tilbúningur. Undir dulargervinu er bíll
sem svipar til Passat nema hvað allt er stærra í
sniðum.
Njósnamyndir af D1
SAAB hefur varið tveimur árum
í þróun síns fyrsta jeppa sem
átti að byggjast á Pontiac Azt-
ek- og Buick Rendezvous-jepp-
unum frá GM. Nú hafa stjórn-
endur GM ákveðið að ekki verði
byggt á þessum bílum og hönn-
uðir Saab því þegar hafnir vinnu
við þróun á nýjum bíl. Hann
verður á nýjum undirvagni, sem
nýjustu kynslóðir Opel Vectra
og Saab 9-3 munu hvíla á.
Hönnuðir og verkfræðingar
vinna nú að gerð frumgerðar
sem ætlunin er að sýna á bíla-
sýningunni í Detroit í janúar, en
búist er við að stærsti mark-
aður fyrir Saab-jeppa verði í
Bandaríkjunum. Bíllinn verður
settur á markað árið 2004.
Hann verður aðeins fimm
manna og því afar rúmgóður að
innan. Við hönnun hans verður
lögð mikil áhersla á gott útsýni
ökumanns og farþega og breyt-
anlegt farangursrými. Þetta
verður enginn fjallabíll í ætt við
Land Rover en þó meira í ætt
við það en t.d. Volvo V70 XC.
Fjórhjóladrifskerfið verður til-
brigði við rafeindastýrða 4Mat-
ic-kerfið í Aztek og Rendezvous.
Vélar í boði verða m.a. ný
þriggja lítra V6 frá GM sem
skilar 300 hestöflum og fjögurra
strokka SCC-vélin frá Saab.
Fallið hefur verið frá því að byggja jeppa Saab á Aztek- og
Rendezvous-jeppunum frá GM.
Pontiac Aztek er aðeins boðinn á Bandaríkjamarkaði.
Saab þróar nýjan jeppa
RENAULT afhjúpaði sitt
fyrsta hugmyndamótorhjól á al-
þjóðlegu vélhjólasýningunni í
París. Hjólið, sem kallast Ublo,
er afrakstur samstarfs hönnun-
ardeildar Renault og tækni- og
sportdeildar fyrirtækisins. Ublo
er óhefðbundið vélhjól því það
er með þremur hjólum og ör-
yggisgrind sem veitir þeim ör-
yggi sem fram til þessa hafa
hikað við að kaupa sér tveggja
hjóla vélhjól. Ublo hefur einnig
þann kost að hafa talsvert mik-
ið geymslurými.
Vélaraflið kemur frá 124
rúmsentimetra, tveggja strokka
vél og ekki þarf annað en
venjulegt bílpróf til að aka hjól-
inu. Ublo er ræst með snjall-
korti og það er búið stafrænum
mælum og leiðsögukerfi. Fram-
leiðslugerð hjólsins kemur á
markað árið 2003.
Ford hefur einnig látið til sín
taka á sviði óhefðbundinna far-
artækja. TH!NK rafreiðhjólið
er um þessar mundir í prófun
hjá lögreglu í Bandaríkjunum
en tæknin er sömu ættar og í
samnefndum rafbíl.
Reiðhjólið kemur á markað
innan tíðar.
Ublo er á þremur hjólum og með leiðsögukerfi og snjallkortsræsi.
Óhefðbundin farartæki í þróun