Morgunblaðið - 14.10.2001, Page 16

Morgunblaðið - 14.10.2001, Page 16
16 B SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ bílar Bíllinn státar af einhverju magn- aðasta ökumannssæti sem sá er þetta skrifar hefur lengi prófað. Það skorðar ökumann gjörsamlega af og er auk þess með meiri mjóbaks- stuðning en önnur sæti. Ekki svo lítið atriði þegar bíll eins og IS300 á í hlut, því þetta er sannkallað villi- dýr – eða eigum við að segja tamið villidýr. Vélin er þriggja lítra, sex strokka línuvél, sama vél og í GS300, með VVT-i tækni, sem breytir opnun og inntaksventlum eftir vélarsnúningi og álagi á vél, sem leiðir til betri nýtingar á elds- neyti og aflaukningar. Þetta er feiknaöflug vél, 213 hestöfl við 5.800 snúninga á mínútu. Aflið fer allt til afturhjólanna og spólvörnin, sem er staðalbúnaður, því mikið þarfaþing. LEXUS, lúxusbílaarmur Toyota, hefur komið sér fyrir á markaði hérlendis eins og kunnugt er. Sölu- hæsti bíllinn í breiðri línu lúxusbíla frá fyrirtækinu er IS200 stallbak- urinn, en fyrstu átta mánuði ársins seldust 33 slíkir bílar en 39 allt árið í fyrra. IS200 keppir við bíla eins og BMW 318 og Mercedes-Benz C180. Núna er kominn nýr IS bíll, IS300, sem er með stærri vél, öðrum fjöðr- unarbúnaði og í langbaksútfærslu, svokallaður Sportcross. Við prófuð- um hann á dögunum í Sportút- færslu. Kúpulegur langbakur Þetta er bíll sem helst myndi keppa við BMW 330i Touring. IS300 er laglega hannaður bíll og framendinn minnir reyndar ekki lít- ið á BMW 3. Afturendinn er á hinn bóginn líkari því sem menn eiga að venjast frá japönskum framleiðend- um. Afturlugtir eru kringlóttar inni í glærri plasthlíf og stuðarinn er hár og voldugur. Hliðarsvipurinn minn- ir líka meira á kúpubak en langbak vegna rísandi hliðarlínu, boga í þaki og þriðju hliðarrúðunnar, sem er ekki nema lítill skjár. En það er ekki ytra útlit sem er meginmálið við þennan bíl. Það er vélin, sjálfskiptingin, sætin og mælaborðið og ekki síst fjöðrunin. Mælaborðið virkar að vísu eins og flugstjórnarklefi fyrst þegar sest er inn í bílinn. Allir mælar eru hlið- rænir og stórir snúningsrofar eru fyrir sjálfvirka miðstöðina. Sem sagt mikið af tölum og mælum, en samt er engu ofaukið og þetta er viðmót sem venst fljótt. Svo er líka sportlegur blær yfir öllu. Stýrið er lítið og sportlegt og klætt leðri í tveimur litum. Gírhnúðurinn er úr krómuðum málmi. Meira að segja pedalarnir eru úr beru áli, og gætu hugsanlega orðið hálir í bleytu. Athygli vekur skemmtilegur frá- gangur í farangursrýminu. Þar er falskt gólf sem hægt er að lækka um nokkra sentimetra. Það tekur 280 lítra með aftursætin upprétt en síðan er hægt að fella framsætisbak niður ásamt aftursætisbökum og flytja hluti sem eru allt að 2,60 m á lengd. Bíllinn hefur snöggar hreyfingar. Fjöðrunin er stíf og breið dekk halda honum límdum á veginum. Samt er hægt að yfirstýra bílnum með góðri inngjöf í beygjum. Sjálfskiptur með handskiptingu Lexus hefur tekist vel upp með IS300, sem er sportlegasti bíllinn frá framleiðandanum. Þyngdar- dreifingin er eins og í bestu sport- bílum og viðbragðið slíkt að unun er að aka bílnum. Upptakið er nálægt 7,3 sekúndum úr kyrrstöðu í 100 km hraða. Hann klettliggur líka á vegi, á sautján tomma dekkjum, og að framan og aftan er hann á sjálf- stæðri, gaffallaga fjöðrun ásamt gormum. Bíllinn fæst enn sem komið er að- eins sjálfskiptur. Sjálfskiptingin er fimm þrepa og hægt er að hand- skipta bílnum með litlum tökkum framan og aftan á stýrinu. Lexus IS300 er vel búinn bíll. Meðal staðalbúnaðar eru loftkæl- ing, 17 tommu álfelgur, spólvörn, ABS-hemlar með EBD-dreifingu, kraftmikil hljómtæki og rafdrifnir speglar og rúður. Í langbaksgerð- inni í Sport-útfærslu kostar hann líka heilar 4.780.000 krónur, sem er auðvitað dágóð upphæð, fyrir þó ekki stærri bíl. En eitt er víst. Lex- us IS300 er í hópi skemmtilegustu akstursbíla nú um stundir. Lexus IS300 – tamið villidýr Vélin er þriggja lítra, sex strokka VVT-i, 213 hestafla. Mikið af tölum og mælum er í mælaborðinu. Skemmtilegur frágangur er í farangursrýminu. Aflið fer allt til afturhjólanna og spólvörn er staðalbúnaður. Morgunblaðið/Ásdís Bíllinn hefur snöggar hreyfingar og fjöðrunin er stíf. gugu@mbl.is Vél: 2.997 rsm, sex strokkar, 24 ventlar VVTi. Afl: 213 hestöfl við 5.800 sn./mín. Tog: 288 Nm við 3.800 sn./mín. Drifbúnaður: Afturdrifinn, 4ra þrepa sjálfskipting með handskiptingu í stýri. Fjöðrun: Gaffalfjöðrun að framan og aftan, sport- fjöðrun. Hjól: 215/45 á 17 tommu álfelgum. Hemlar: 296 mm kældir diskar að framan, 307 mm diskar að aftan, ABS, EBD. Lengd: 4.505 mm. Breidd: 1.725 mm. Hæð: 1.430 mm. Hröðun: 8,4 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Hámarkshraði: 230 km/ klst. Eyðsla: 11,2 lítrar í blönd- uðum akstri. Verð: 4.780.000 kr. Umboð: Lexus Kópavogi. Lexus IS300 SportCross

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.