Morgunblaðið - 14.10.2001, Qupperneq 18
Einn skrýtinn...
– Hvað er hvítt og felur sig á bakvið tré?
Feimin mjólk!
MAÐUR skoðar ekki bara bækur
á barnabókahátíðinni Köttur úti
í mýri, nei og nei. Heldur lendir
maður í ýmsum ævintýrum,
hittir fyrir fyrirbæri úr sögum
sem maður þekkir og kynnist
nýjum furðufuglum. Eins og t.d.
Tyggjókónginum Blöðru og frú
hans. Þessar verur eru á gólfi, í
lofti, á veggjum, já, hreinlega úti
um allt.
Margt hægt að gera
Hvern hefur ekki alltaf langað
að prófa alvöru prins- og prins-
essukórónu? Já, nú er það hægt.
Eða hvað um að setjast í há-
sæti Óðins, Hliðskjálf, og láta
hrafna hans, Hugin og Munin,
hvísla að sér ýmsum leyndar-
málum? Það er ekkert slor.
Fleira er hægt að gera, eins og
að taka þátt í ævintýralegri
þvottasnúrugetraun, þar sem tíu
heppin börn eiga eftir að vinna
bók. Svo er líka hægt að búa til
pappírsbát handa vini sínum og
geyma hann við innganginn.
Að hafa augun opin
Annars felst sýningin í því að
maður fer í sérstakt ferðalag í
gegnum sýninguna, og þá er eins
gott að hafa augun vel opin því víða
leynast verur og ýmsilegt annað
dularfullt. Kíkt er inn í heim Múm-
ínálfanna, farið á Kurrekurredut-
eyju þar sem pabbi Línu Langsokks
á heima, það má hvíla sig í kyrr-
látum fiðrildahelli eins og er á Bláa
hnettinum, kíkja við í söguherberg-
inu, og svo er skrýtin bíómynd, þar
sem alltaf heyrist sjávarniður, en
stundum sést ekki neitt og svo allt
í einu birtist... úps!
Bannað að segja meira.
Á þessum hnetti má sjá lönd þar sem ýmis ævintýri gerast.
Barna- og unglinga-
Ferð um ævintýraheim
Þessi ungi herramaður stígur í fótspor sjálfs Óðins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Man einhver hvar stóru rósirnar vaxa?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þessi kóróna smellpassar!
bókahátíð í
Norræna húsinu
Nafn: Halldór Bjarki Arnarson.
Fæddur: 19. ágúst 1992.
Skóli: Melaskóli.
Halldór Bjarki fór með pabba sínum
á opnun sýningarinnar Köttur úti í
mýri og fannst mjög gaman. Hann sá
hljómsveitina
Tante And-
ante og hlust-
aði á Vigdísi,
fyrrverandi
forseta, lesa
sögu fyrir
börnin. „Hún
las söguna
Hans klaufi
sem er mjög
skemmtileg.
Þetta er flott
sýning og mér
finnst allt
mjög
skemmtilegt. Það er hnöttur hér með
alls konar stöðum sem eru í ævintýrum
og ég þekki flest þessi ævintýri.“ Hall-
dór settist líka í hásæti Óðins og mátaði
kórónu, en var ekki alveg viss hvort
hún passaði.
Flott sýning
Halldór Bjarki í
Norræna húsinu.
Krakkarýni: Köttur úti í mýri
ERT þú kannski rithöfundur?
Ertu búinn að skrifa margar
sögur? Eða ertu kannski óupp-
götvaður ritsnillingur sem aldr-
ei hefur skrifað sögu en býrð yf-
ir ótrúlegri frásagnargáfu?
Hvort sem er, þá stingdu
endilega niður penna, láttu á
það reyna, skrifaðu sögu og
sendu okkur hana til Morgun-
blaðsins til að birta hér á síð-
unum. Ef þú ert snjall að teikna
er ekki verra ef mynd fylgir
með.
Heimilisfangið er:
Barnasíður
Morgunblaðsins
Ritsnillingar
Kringlunni 1
103 Reykjavík
eða barn@mbl.is
Þú þarna!
Sjáumst aftur... besta bókin í ár
Á hverju árin eru veitt sérstök
Barnabókaverðlaun. Fyrir stuttu
hlaut bókin Sjáumst aftur... eftir
rithöfundinn Gunnhildi Hrólfs-
dóttur þessi verðlaun.
Sagan er um Kötlu sem er 12
ára og flytur til Vestmannaeyja.
Þar gerast dularfullir atburðir,
Katla sér undarlegar sýnir og
dreymir skrýtna drauma.
Nokkrir voru í dómnefnd og
lásu bókina sem þá var bara ennþá handrit, og þar á
meðal voru tveir unglingar, þau Kristrún Krist-
insdóttir og Ragnar Jón Hrólfsson, sem bæði eru13
ára nemendur í Ölduselsskóla.
Spennandi og sniðug
„Maður les nokkrar bækur á frekar stuttum tíma
og segir síðan hvað manni finnst og hvað er skrýtn-
ast,“ segir Ragnar Jón.
– Hvernig er að lesa handrit
sem enn er ekki orðið bók-
?„Það er lítið öðruvísi nema að
nokkur atriði breytast þegar
bókin kemur út.“
Ragnari Jóni fannst Sjáumst
aftur best bókanna.
„Hún er spennandi og ég
myndi halda að flestir myndu
vilja lesa hana. Hún er sniðug og
áhugaverð.“
– Hvernig eiga góðar barnabækur að vera?„Þær
þurfa að vera spennandi, þær eiga að vera um börn,
auðvitað vel skrifaðar og ekki of langar. Það er líka
mjög gott að hafa húmor.“
Mæli með henni
Kristrún segir það hafa verið mjög gaman en svo-
lítið erfitt að sitja í dómnefndinni. Hún er sammála
Ragnari Jóni um að Sjáumst
aftur... er besta bókin sem þau
lásu.
„Já mér fannst hún mest
spennandi og skemmtilegust.
Svona ævintýrabækur eru mjög
skemmtilegar,“ segir Kristrún.
–Finnst þér gaman að kynn-
ast nýjum heimum í bók-
um?„Já, mjög, ég er t.d búin að
lesa allar Harry Potter bækurnar,
og bíð eftir að sú fjórða komi út.“
Kristrún segir að barnabækur verði auðvitað að
vera skemmtilegar, „helst ævintýralegar og spenn-
andi... já, það verður að vera spenna, og ég mæli með
bókinni Sjáumst aftur... .“
Kristrún
Ragnar Jón
Barnabækur eiga
að vera um börn
Bókaþjóðin mikla
ÍSLENDINGAR kalla sig bókaþjóð og eru mjög stoltir af
þeim bókum sem Íslendingar hafa skrifað seinustu átta
hundruð ár eða svo. Líka erum við montin af því að lesa
fleiri bækur en nokkur önnur þjóð í heiminum.
Margir íslenskir rithöfundur eru þekktir í útlöndum, en
langfrægastir eru þó þessir:
**COLR**Snorri Sturluson (1178-1241) skrifaði Eddu,
sem er bók um alla norrænu guðina, einsog Óðinn og Þór, en
nokkrum þeirra má einmitt kynnast betur í Norræna húsinu.
Íslendingasögurnar eru skrifaðar af óþekktum höfundum
á 13. og 14. öld. Þær fjalla um miklar hetjur og kvenskör-
unga á Íslandi á árunum frá 930-1050. Þær þykja afar
merkilegar bókmenntir.
Nonni (Jón Sveinsson 1857-1944) skrifaði barnabæk-
urnar um Nonna og Manna, sem hafa verið þýddar á ótal
tungumál.
Halldór Laxness (1902-1998) er eini Íslendingurinn sem
hefur fengið hin stórmerku Nóbelsverðlaun fyrir bækur sínar
og þið eigið öll eftir að lesa þær einhvern tímann.
Á myndinni er Halldór með
kornfleksköku en þær er mjög
auðvelt að búa til og eru alveg
nammigóðar.
Setjið...
* 75 grömm kókossmjör
* 1-2 matskeiðar kakó
* 3 desilítra flórsykur
... í skál og hrærið saman.
Hellið saman við...
* 5 desilítrum af kornfleks
... hrærið vel, setjið í papp-
írsform og leyfið að storkna.
Verði ykkur að góðu!
Nammi namm Kornflekskökur