Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 23
urinn Rauða myllan, verður ást- fanginn af aðalstjörnunni Satine, sem Nicole Kidman leikur, og berst harmrænni baráttu til að bjarga henni frá glötun. Fortíð og nútíð renna saman Baz Luhrmann hefur sagt að í Montmartre þessa tíma hafi stór hluti svokallaðrar dægurmenningar nútímans orðið til. Hann grípur því til þess ráðs að tengja fortíð og nú- tíð saman gegnum söngva; í stað þess að láta sérsemja ný lög fyrir myndina, sem hann telur að hefði krafist of stórs skammts af athygli áhorfenda, flytja persónur 19. ald- arinnar nýjar útgáfur ýmissa þekktra dægurlaga þeirrar 20. „Við tökum menningu síðustu 100 ára, rífum hana í sundur og setjum sam- an að nýju til að skapa okkar eigin heim,“ segir hann. Þannig syngur Kidman t.d. „Diamonds Are a Girl’s Best Friend“, McGregor syngur „Your Song“ eftir Elton John með Placido Domingo, David Bowie og Massive Attack flytja Nature Boy, sem þekktast er í túlkun Nats King Cole, José Feliciano syngur Police- lagið Roxanne sem væri það tangó og Beck og Timbaland eru með Diamond Dogs eftir Bowie. Ekki hefur verið vandalaust að velja leikara sem hentuðu hlutverk- unum og gætu jafnframt sungið og dansað. McGregor gæti auðveldlega verið poppstjarna, segir leikstjór- inn; hann hafi svo góða söngrödd að minni í senn á Freddie Mercury og Elton John. Kidman þurfti hins vegar töluverða aðlögun að verkefn- inu. Myndin var tekin í risavöxnum leikmyndum í nýju tökuveri Fox í Sydney í Ástralíu og flestir leikar- anna eru Ástralar, fyrir utan Skot- ann McGregor, Englendinginn Jim Broadbent, sem leikur eiganda Rauðu myllunnar, og Bandaríkja- manninn John Leguizamo, sem fer með hlutverk listmálarans bæklaða Toulouse-Lautrec, sem túlkaði í verkum sínum heim Rauðu myll- unnar með eftirminnilegum hætti. Alls koma um 400 leikarar fram í fjölmennustu atriðunum. Leitið og þér munuð finna Þeir, sem séð hafa fyrri myndir Baz Luhrmanns, vita að þar fer sér- lega hugmyndaríkur myndsmiður, óhræddur við áhættu, með næmt auga fyrir grípandi myndmáli, hröðu og lifandi, þótt deila megi um dramatíska dýpt frásagnarinnar. Hann hefur alla tíð verið kvik- myndaáhugamaður, ekki síst frá því faðir hans rak um hríð kvikmynda- hús, þar sem fyrstu myndirnar sem hann sá voru mótorhjólahasarinn Chrome and Hot Leather og söngvavestrinn Paint Your Wagon. Foreldrar hans skildu þegar hann var 12 ára og hann bjó með föður sínum þar til hann strauk að heiman á táningsaldri. Þeir feðgar töluðust ekki við svo árum skipti en náðu sáttum á síðustu árum. Luhrmann stundaði nám við leik- listarskólann í Sydney og kynntist þar Craig Pearce, sem hann hefur unnið allar myndir sínar með. Luhr- mann hefur sagt að árin í leiklist- arskólanum hafi einkennst af rót- leysi, fíkniefnum og leitandi kynlífi. Eftir að hafa reynt fyrir sér sem leikari í nokkur ár setti hann á leik- svið Strictly Ballroom, sem síðar varð frumraun hans í kvikmynda- gerð. Luhrmann hefur unnið tals- vert fyrir leikhús en ekki síst óp- erusvið. Hann vinnur gjarnan með sama fólkinu; hefur safnað um sig nánum hópi fagmanna, sem kemur saman í 19. aldar húsi og fyrrum geðsjúkraspítala, sem Luhrmann á í Sydney. Þar á meðal eru, auk Pe- arce og eiginkonunnar Catherine Martin, sem er leikmynda- og bún- ingahönnuður, danshöfundurinn John „Cha Cha“ O’Connell, klipp- arinn Jill Bilcock, tökumaðurinn Donald McAlpine og tónskáldið Marius De Vries. Luhrmann kveðst nú, að afloknum lokahluta þríleiks- ins, finna hjá sér hvöt til að hrista upp í þessum hópi, jafnvel rjúfa samstarfið og byrja „nýtt líf“ í list- rænum efnum. Hann er með mörg hundruð hugmynda. Hann er orðinn gráhærður. Ætli hann endi ekki sköllóttur. myllunni Reuters Kidman og McGregor: Örlagasaga sögð með söngvum og dansi. ath@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 B 23 bíó Einstök upplifun í glæsilegasta kvikmyndahúsi landsins. Sýnd í sal 1 og Lúxussal í Smárabíói. Empire Kvikmyndir.com SV Mbl Rás 2 Einnig sýnd í Stjörnubíói og Borgarbíói Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.