Vísir - 06.02.1980, Side 3
VfSIR
Miðvikudagur 6. febrúar 1980
Hörð gagnrýni á björgunarmenn I skýrsiu Bráðanefndar Borgarspllalans:
TÖRU VÖLDIM AF LÆKN-
UHUM A SLYSSTABNUMI
Bráðanefnd Lækna-
ráðs Borgarspitalans
hefur sent læknaráðinu
skýrslu vegna flugslys-
anna á Mosfellsheiði
18. desember siðastlið-
inn.
Daginn eftir slysið bað lækna-
ráðið bráðanefnd um að gera
könnun á viðbrögðum og við-
búnaði á Borgarspitalanum, og
þar sem margir læknar spítal-
ans fóru á slysstað og einn
þeirra slasaðist alvarlega, tók
könnunin einnig til athugunar
atburðarásina utan spitalans.
Bráðanefndin komst að þvi,
að ýmislegt mátti finna að við
framkvæmd björgunarinnar.
A slysstað virtist heildar-
stjórnun ekki hafa verið fyrir
hendi. Vinnubrögð björgunar-
sveitarmanna voru ekki sam-
ræmd. Þrátt fyrir nálægð slys-
staðar frá Reykjavik (33 km),
I liðu nær átta klukkutimar frá
þvi fyrri flugvélin fannst eftir
brotlendingu, þar til sá siðasti
þeirra, sem slösuðust, komst á
sjúkrahús.
Þá er bent á, að ymsan útbún-
að hafi vantað, sérstaklega
skýli eða tjald, börur, hlifðarföt,
sleða og góðan ljósabúnað.
Tilkynningu um slysið var
mjög ábótavant. Lögreglunni I
Reykjavik og Slökkviliðinu var
ekki tilkynnt um fyrra slysið og
slysadeild Borgarspitalans ekki
fyrr en 1 1/2 klukkustundu eftir
slysið. Um siðara slysið fengu
Almannavarnir og lögreglan i
Reykjavik tilkynningu frá for-
manni hópslysanefndar Borgar-
spitalans.
011 fjarskipti á og frá slysstað
voru 1 miklum ólestri, komu að
litlu sem engu gagni, en voru
stundum til ógagns.
Starfslið Landakotsspitala og
Landspitala var kallað út að
nauðsynjalausu og dreifing
sjúklinga á þessa spitala var að
mestu leyti óþörf.
Viðbúnaðurinn á Borgarspit-
alanum tókst vel, en meðal ann-
ars vegna upplýsingaskorts frá
slysstað, voru viðbrögð til að
byrja með ekki alltaf eins ná-
kvæm og þau hefðu annars orð-
ið. Læknar, sem fóru á slysstað,
voru vanbúnir, bæði að klæðnaði
og hjálpargögnum og auk þess
litið tryggðir.
Þá segir i skýrslunni, að lækn-
ar á slysstað hafi kvartað um,
að ráðin hafi verið tekin af þeim
af ýmsum björgunarsveitar-
mönnum. Slikt ætti ekki að geta
átt sér stað, en ef til vill mætti
að nokkru kenna þvi um, að
læknarnir voru ekki auðkenndir
sem slikir.
Furðulegt sambandsleysi var
milli einstakra hjálparsveita,
svo og milli þeirra og ábyrgra
aðila i Reykjavik. Læknum á
slysstað tókst ekki að ná sam-
bandi við Borgarspitalann,
þrátt fyrir itrekaðar tilraunir.
Þá voru allar upplýsingar, sem
spitalinn fékk af báðum flug-
slysunum, handahófskenndar
og villandi, og hreinlega erfitt
aðhenda reiðurá þeim. T.d. var
i fyrstu ekki vitað um hvers
konar flugvél var að ræða né
hversu marga farþega.
1 skýrslunni er einnig bent á
nokkur atriði til úrbóta.
Til þess að lögregluyfirvöld
geti haft yfirumsjón með starfi
á slysstað, eins og gert er ráð
fyrir, þurfa lögreglumenn sér-
staka þjálfun á þessu sviði.
Svæðaskipting og meiri mið-
stjórn er ef til vill nauðsynleg.
Þá þarf að bæta ýmsu við al-
mennan útbúnað björgunar-
sveita og það verður að krefjast
þess, að meira samráð og sam-
skipti og tilkynningarskylda sé
milliallra þeirra aðila, sem um
björgun, meðferð og móttöku
slasaðra fjalla. Þá þarf að
leggja sérstaka áherslu á sam-
ræmingu fjarskipta allra björg-
unaraðila. Borgarspitalinn þarf
sjálfur að leggja áherslu á að
taka upp fjarskiptasamband við
lögregluna I Reykjavik og lög-
reglu- og sjúkrabifreiðar á öllu
Stór-Reykjavikursvæðinu.
Bent er á, að viðbrögð við
hópslysum þurfi að vera stig-
bundin og þannig háttað. hvað
spitalana snertir, að kvaöning
nái aðeins til eins spitala i senn.
—ATA
Forsetasetrið að Bessastöðum.
Hafa ekki enn
komið sér saman
um framblóðanda
Margrét Sölvadóttir, ein af
forystumönnum Samtaka kvenna
á framabraut, sagði 1 samtali við
\ isi i morgun, að kvenfélögin
væru enn ekki búin að koma sér
saman um konu úr sínum hópi,
sem frambjóðanda i forsetakosn-
ingunum.
Samtök kvenna á framabraut
eru nýstofnuð hér á landi og er
markmið þeirra að sameina
kvenfélögin um val á kvenfram-
bjóðanda i væntanlegum forseta-
kosningum. Fer valið þannig
fram, að hvert kvenfélag kemur
sér saman um eina konu, og
senda þau siðan hvert sinn full-
trúa á allsherjar-fund kvenfélag-
anna. Þar verður svo ein kona
valin I framboð eftir ákveðinni
útilokunaraöferð.
Margrét sagði, að kvenfélögin
hefðu tekið vel i tillögur samtak-
anna. Verður fundur hjá samtök-
unum I kvöld og ræðir þá forseta-
kjörsnefndin um árangur undan-
farina daga. — HS
Samvinnuskólanemendur einbeita sér að úrbeina kjöt á námskeiðinu
FÚRU ÚR SKÚLANUM í KJðTVINNSLUNA
Hópur samvinnuskólanemenda
frá Bifröst sótti á dögunum nám-
skeið i meðferð kjöts og kjötvara,
en það var haldið i samvinnu við
Kjötiðnaðarstöð Sambandsins og
fór fram i Reykjavik.
Þátttakendur, afgreiðslufólk I
matvöruverslunum kaupfélaga
viðs vegar af landinu voru 16.
Markmiðið með námskeiðinu er
að veita afgreiðslufólki i mat-
vöruverslunum fræðslu um
sundurtekningu og meðferð kjöts
og kjötvara. Einnig að leiðbeina
við útstillingar i kjötafgreiösiu-
borð og veita tilsögn i sölu-
mennsku.
Námskeiðið fór þannig fram að
mestur hluti timans fór i verklegar
æfingar við sundurtekningu og
frágang á kjöti, útstillingar i sölu-
borð og vörukynningu, einnig
voru stuttir fyrirlestrar með
myndrænum skýringum um sér-
staka þætti.
Næsta samskonar námskeið
verður haldið 12il4. febrúar og er
það sömuleiðis fullskipað, hafin
er skráning þátttakenda á þriðja
námskeiðið, en ekki er endanlega
ákveðið hvenær það verður.
Slálfstæðismenn I Rangárvailasýslu
gera athugasemd:
„ENGINN LYSTI
ANDSTÖÐU
VIÐ EGGERT"
Óli Már Arason, formaður Félags
ungra sjálfstæðismanna i
Rangárvallasýslu, hafði sam-
band við VTsi i tnorgun og bað um
að koma á framfæri eftirfarandi
athugasemd:
„Vegna ummæla Jóns Þorgils-
sonar I uppsláttarfrétt Morgun-
blaðsins 5. þessa mánaðar og i
viðtali við dagblaðið VIsi sama
dag, um að engin könnun hafi
verið gerö á stuðningi við Eggert
Haukdal gagnvart stjórnarmynd-
unartilraunum Gunnars Thor-
oddsen, skal eftirfarandi tekið
fram: A fundinum sagði Grimur
Thorarensen meöal annars úr
ræðustóli, eftir aö hafa lýst stuðn-
ingi viö aðgerðir Eggerts Hauk-
dals: „Við höfum nú heyrt hvað
þingmaðurinn okkar Eggert
Haukdal, og Ingólfur Jónsson,
fyrrverandi ráðherra, hafa að
segja um þessi mál og er þá
aðeins eftir að heyra i ykkur
fundarmönnum, hvort þið eruð
sammála um aðgerðir Eggerts
Haukdals eða ekki. Þess vegna er
það nauösynlegt, að þið komið
hingað upp og gerið grein fyrir
skoðunum ykkar, ef þið eruö ekki
fylgjandi aðgerðum Eggerts, til
að það megi verða okkur til fróð-
leiks og öðrum til aðvörunar”.
Næstur tók til máls Óli Már
Arason og tók hann undir orð
Grims Thorarensen og kvaöst
vona, aö þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins myndu skoða málefna-
samning Gunnars Thoroddsen og
taka afstöðu til stjórnarmynd-
unartilrauna hans, að þvi loknu,
út frá málefnum en ekki vegna
persónuágreinings.
Enginn fundarmanna lýsti and-
stöðu sinni við aðgerðir Eggerts
Haukdal.
Athugasemd þessi er gerð með
vitund og samþykki Grims
Thorarensen og Jóns Þorgils-
sonar”.
Eggert Pálsson, formaður Sjálf-
stæöisfélags Rangæinga.
óli Már Arason, formaður
Fjölnis, Félags ungra sjálfstæöis-
manna i Rangárvallasýslu. p,M.
f stórkostloa
UTS ALA VERDLÆKKUN