Vísir - 06.02.1980, Blaðsíða 23

Vísir - 06.02.1980, Blaðsíða 23
23 VtSIR Miðvikudagur 6. febrúar 1980 Umsjón: Hannes Sigurðsson Þessi mynd er reyndar frá Pakistan og ekki er veriðað hýða manninn fyrir hugsjónir hans, en mynd- in gefur engu að síður góða hugmynd um þá kvöl, sem hugs jónamenn vfða um heim mega þola. Sjðnvarp ki. 22.05: ðhugnanleg meOlerð ð hugsiónaföngum Bogi Arnar Finnbogason, þýð- andi og þulur myndarinnar „Böðulshendur”, sem sýnd verð- ur i kvöld, sagði aö þessi breska heimildamynd væri hrollvekja, um stjórnarfar i þeim löndum, þar sem ráðamenn eru orðnir langþreyttir að þurfa eilift að sannfæra alþýðu manna um ágæti stjórnarstefnunnar og taka þess i staö aö tyfta þá sem ekki viija kyngja einræði umyrðalaust. Ýmsum ráðum er beitt i stjórn- málabaráttu þessara ráða- manna. Þeir ráða til sin langskól- aða pyntingamenn, sem sérhæfa sig i því, að valda hugsjónaföng- um sem mestu kvalræöi, á meðan það er verið að telja þeim hug- hvarf og reyna að fá þá til að gleyma samvisku sinni og jafnvel manndómi. Stjórnarherrar þessir bjóða upp á vist i daunillum dýfl. issumþar sem handbendi þeirra dunda við að stinga úr mönnum augun, draga af þeim neglur, brenna þá á kroppnum á völdum stöðum og yfirleitt að veita þeim hina hroðalegustu útreið, áður en að þeim þóknast að murka úr þeim lifið með öllu. Snýst þá mörgum hugur, jafnvel hinum örgustu frjálshyggjumönnum, einkum er böðlarnir beita sinu stærsta leynivopni, en þaö er að t þættinum ,,úr skólalifinu”, veröur tekiö fyrir islenskunám I Háskóla tslands og er það slðasti þátturinn úr heimspeki- deiidinni. Kristján E. Guðmundsson, menntaskólakennari, sem er umsjónarmaöur þáttanna, sagði að þessum þætti yröi skipt I þrennt. í fyrsta lagi yrði rætt viö hóta þvi að limlesta eða nauðga venslafólki þeirra fyrir framan augu þeirra. I þættinum eru team aæmi frá Uruguay, Mexikó, Suöur-Afriku og Sovétrikjunum, og er meðal annars rætt við fyrrverandi pynt- ingasérfræðing frá Uruguay. bess má getaað ráðamenn i ofan- greindum löndum, koma af fjöll- um, þegar minnst er á þessi mál viö þá. Myndiner ný, eða frá árinu 1979 og er hún gerð i samráði við Amnesty-international, samtökin sem beita sér fyrir mannréttind- Baldur Jónsson, málfræðing og Svein Skorra Höskuldsson. Þá yröi spjallaö við stúdenta um námið og kennsluna i þessum greinum og loks yrði svo heimsótt Stofnun Arna Magnús- sonar og Orðabók Háskólans og rætt viö Jón Aðalstein Jónsson og Jónas Kristjánsson. útvarp Miðvikudagur 6.febrúar 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilky nningar. Tónleikasyrpa. Tónlist úr ýmsum áttum, þ.á m. létt- klassisk. 14.30 Miðdegissagan: „Gatan” eftir Ivar Lo-Johansson. 15.00 Popp. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Litli barnatfminn: 16.40 Útvarpssaga barnanna: „Ekki hrynur heimurinn” eftir Judy Blume.Guöbjörg Þórisdóttir les þýðingu slna 17.00 Sfðdegistónleikar. Tatjana Grindenko og Gidon Kremer leika meö Sinfóniuhljómsveitinni i Vln Konsert I C-dúr fyrir tvær fiðlur og hljómsveit (K190) eftir Wolfgang Amadeus Mozart; Gidon Kremer stj. / Leontyne Price, Placido Domingo og Elizabeth Bain- bridge syngja meö Nýju-fil- harmoniusveitinni „Bimba, bimba, non piangera”, atriði úr 1. þætti „Madame Butterfly”, óperu eftir Giacomo Puccini; Nello Santi stj. / Sinfóniuhljóm- sveit Islands leikur „Forna dansa”, hljómsveitarverk eftir Jón Asgeirsson, Páll P. Pálsson stj. 18.00 Tónleikar. Tilkynn- ingar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 Samieikur I útvarpssal: Kam merkvintettinn I Malmö leikur verk eftir Jónas Tómasson (yngri). 20.05 úr skólalifinu.Umsónar- maöur: Kristján E. Guðmundsson. Fyrir er tekið nám i raunvisinda- deild Háskóla tslands. 20.50 Baðstofubörn fyrr og nú. Steinunn Geirdal flytur er- indi. 21.10 Létt lög eftir norsk tón- skáld. Sifóniuhljómsveit norska útvarpsins leikur; öivind Bergh stj. 21.45 Útvarpssagan: „Sólon tslandus” eftir Daviö Stefánsson frá Fagraskógi. Þorsteinn ö. Stephensen les (9). 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.30 Lestur Passiusálma (3). 23.40 A vetrarkvöldi. Jónas Guömundsson rithöfundur spjallar við hlustendur. 23.00 Djass. Umsjónarmaöur: Gerard Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómasdóttir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp 18.00 BarbapapaEndursýndur þáttur úr Stundinni okkar frá siðastliðnum sunnudegi. 18.05 Höfuöpaurinn 18.30 Einu sinni var 18.55 Hlé 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 VakaFjallaö veröur um ballett, tónlist og kvik- myndagerð. 21.15 Út i óvissuna Breskur njósnamyndaflokkur, byggöur á sögu eftir Des- mond Bagley. Þriöji og siðasti þáttur. Efni annars þáttar: Alan og Elin ákveöa aðfarasuðurmeð pakkann, sem reynist innihalda ókennilegan rafeindabúnað. Rússneskir njósnarar elta þau, og tveir Bandarikja- menn ráðast á þau á leiö- inni. Aö fyrirmælum Tagg- arts hittir Alan Jack Casetil að afhenda pakkann. Rússarnir ráöast á þá og Al- an horfir inn i byssuhlaup erkióvinar slns, rússneska njósnarans Kennikins. Þýð- andi Dóra Hafsteinsdóttir. 22.05 Bööulshendur Heimilda- mynd um hugsjónafanga I Sovétrikjunum, Argentinu, Suöur-Afriku og Mexikó. Meöal annars greinir fyrr- verandi böðull frá starfi sinu og þeirri meðhöndlun, sem hugsjónafangar sæta. Myndin er ekki viö hæfi barna. býðandi og þulur Bogi Arnar Finnbogason. 22.30 Dagskrárlok um. HS. útvarp ki. 20.05: Kynning á íslensku- náml í Háskóla ísiands l fangi meðaimennsKu andstæðínga Hin óvænta uppákoma i viðræðum um stjórnarmyndun hefur alveg ruglað þær hefðir, sem um slik mál hafa gilt. Leggja má tiiraun Gunnars Thoroddsens út á ýmsan veg. En fyrst ber væntanlega aö lita á þörf iandsins fyrir rikisstjórn hið alira fyrsta, þótt heppilegt sé að stjórnarmyndun valdi ekki skruðningum i einum flokki fremur en öörum. Sjaldan hafa andstæðingar Sjálfstæðisflokks- ins fengiö annað eins tækifæri og nú til aö efla sundrungu inn- an hans, persónuleg sárindi og jafnvel klofning. Framsóknar- menn, sem hafa staðfastlega neitað að vinna með Sjálfstæðis- flokknum og lýst honum sem einskonar erfðafjanda og ættar- fylgju, geta nú allt I einu rokið upp til handa og fóta og stokkið I rikisstjórn, sem gæti klofiö Sjálfstæðisflokkinn, en setið jafnframt uppi meö hluta af erfðafjandanum. Hjaðninga- vigin innan borgarastéttarinn- ar eru sem sagt að hefjast. Alþýðubandalagiö hefur hitt á óskastundina. Guðfeður þess 'i austurvegi hafa gert innrás i Afganistan samtimis þvi að þeir halda uppi samtölum á vestur- löndum um friðarstefnu. Aðstaöa kommúnista á vestur- löndum hefur verið mjög erfið, en hér á landi munu þeir verða fyrstir til að fá uppreisn æru eftir Afganistan og Sakarov. Þaö mun aö visu ekki hafa verið meining Gunnars að taka þá i stjórn, heldur Alþýðuflokkinn, sem hefði verið ólikt geðslegra úr þvi sem komið var. En þá kom Framsókn kommúnistum til hjálpar og gerði það aö skil- yrði að litli bróðir fengi að vera með. Virðist ekki nóg aö kommúnistar gangi út og inn i Framsókn á kjördögum eins og þá lystir, heldur virðist bræðrabandið minna á Skytt- urnar, þar sem einn var fyrir alla og allir fyrir einn. Þá sér auðvitað Alþýðu- bandalagiö ekki siður en Framsókn, að stjórnarmynd- unarmálið ber þannig að, aö til stórra vandræöa og ófyrirsjáan- legra er fyrir Sjálfstæöisflokk- inn. Það er ekki litill hluti af þvi að geta gleypt ofan i sig hlut- ley sisskrafið, varnarliðs- kjaftæðið og jafnvel stjórnina á menntamálaráðuneytinu. Þannig fer þegar grundvallar- mál eru i húfi, þ.e. samstaða borgaralegra afla i landinu á hættutimum, þegar alheims- kommúnisminn stendur enn einu sinni ber að óafsakanlegu ofbeldi. Deila má um það hvort viðbrögð þingflokks Sjálfstæðis- flokksins hafi verið rétt fyrst svona var komið. Stjórnmál eru list hins mögulega, en ekki list persónulegs metnings. Sveinn Björnsson og Asgeir Asgeirsson forsetar geröu sér grein fyrir þessi, og létu ekki segja sér fyrir um máttlausar reglur. sem fólust í jafnræöi meðal flokksforingja I viðræðum um stjórnarmyndanir, heldur leit- uðu þangað sem stjórnarmynd- unar var von. Meö þvl móti hik- uöu þeir ekki við að verða pólitiskir þá fáu valdadaga, sem þeim voru áskipaðir. Gunnar Thoroddsen varð ekki forseti, en hann veit hvernig þeir þurfa að vinna. Nú viröist hann hafa tek- ið sig fram um það að rjúfa þann vitahring, sem hann hefur ekki embætti til aö rjúfa. Þegar fyllsta jafnaðar hafði veriö gætt við flokksformenn og allir höfðu fengið að reyna, stóð málið i stað, af þvi það hafði ekki veriö unniðaöþvi á pólitiskum grund- velli. Horfur voru á að hafin yrði ný hringferö. Gunnar Thorodd- sen hafði þá skoðun, að leita ætti út fyrir hring formannajafn- aðar um stjórnarmyndun. Þá má orða það svo, að hann hafi talið að stjórnarmyndunin væri verk fimmta manns. Svo vildi til að þarfir meðalmennskunnar i Framsókn og Alþýðubandalagi fóru saman við hugmyndir hins reynda stjórnmálamanns. Nú var allt i einu hægt aö mynda stjórn, og maöur vonar, vegna Sjálfstæðisflokksins og vilja mikils hluta þjbðarinnar, að meðalmennskan i Framsókn og Alþýðubandalagi verði ekki látin valda einhverjum hefndar- aðgerðum úr þvi sem komið er, heldur freisti menn þess að leita sátta, enda skal hafa viturra manna ráð i deilum eins og þessari. Þá sæti Framsókn og Alþýöubandalagiö i rlkisstjórn meö Sjálfstæðisflokknum hvort sem þeir vildu eða ekki, og hefðu glatað meginmarkmiðinu, sem sé þvi að kljúfa Sjálfstæöis- flokkinn. Svarthöföi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.