Vísir - 06.02.1980, Blaðsíða 5

Vísir - 06.02.1980, Blaðsíða 5
Kelsaranum Dannað að yfirgefa Panama Panama hefur tilkynnt Iran, aö íranskeisari hafi veriö tek- inn fastur aö beiöni yfirvalda írans, en látinn laus aftur gegn tryggingu og fái ekki aö yfirgefa landið. Reuter-fréttastofan telur sig hafa öruggar heimildir fyrir þvi, að transkeisari hafi veriö handtekinn 22. janúar, en strax látinn laus aftur gegn tryggingu með skilorði um, aö hann yfirgæfi ekki Panama. tran mun hafa verið veittur sextiu daga frestur til þess aö rökstyöja formlegar kröfur um, aö keisarinn veröi fram- seldur. Þykir nú skýrast, hvers- vegna Qotbzadeh, utanrikis- ráðherra írans, lýsti þvl yfir i siöasta mánuöi, aö íranskeis- ari hefði veriö handtekinn, sem Panamastjórn neitaði þá, enda haföi keisarinn þá veriö látinn laus gegn tryggingu. Samkvæmt heimildum Reuters var i handtökuskipan- inni visaö til brota á stjórnar- skrá Irans frá þvi 1906, og enn- fremur ásakana um morö, pyndingar og fjárdrátt. Dauöarefsing er ekki viö lýöi I Panama, en ef Panama framseldi keisarann Irans- stjórn.ætti það aö meina írön- um aö dæma keisarann til dauða, ef þeir vilja fara að lögum og venjum. En það hefur sýnt sig, að byltingar- stjórn Irans fer slnar eigin slóðir I þeim efnum, þegar hún lagði blessún sina á, að stúdentar rufu diplómatiska friöhelgi bandariska sendi- ráösins I Teheran og tóku þar starfsmenn fyrir gisla. Stúdentarnir hafa marglýst þvi yfir, aö þeir sleppi ekki gíslunum 49, fyrren keisarinn fyrrverandi er komínn aftur heim til Irans að svara til saka. Utanrikisráöherra Irans sagði i gærkvöidi, aö bylt- ingarráöiö heföi ákveðiö aö setja á laggirnar alþjóölega nefnd til þess aö rannsaka keisarastjórnina fyrrverandi og starfshætti. — Hópur lög- manna undir forystu Frakk- ans Nuri Albala er kominn til Teheran til viöræöna um að setja á laggirnar sérstaka rannsóknarnefnd til að fjalla um mál keisarans. Reza Palevi, fyrrum transkeisari, og Farah Diba, fyrrum keisaraynja. Slálverkfallið HRIKALEGT TJÓN í UPPREISNINNI Þannig var umhorfs i einni deild rikisfangelsisins i New Mexikó eftir aö uppreisn fanganna haföi veriö brotin á bak aftur, en þó ekki fyrr en 35 þeirra höföu látið lifiö. — Sumstaöar uröu mikil spjöll i fangelsinu af völdum elds og reyks og af vatnsflóöi, sem varö, þegar uppreisnar- fangar rufu vatnsleiöslur. Samiök öiympíuieika halna hundsun Moskvuielkanna Samtök ól y m piun ef nda (ACNO) skoruöu i gær á Alþjóö- legu ólympiunefndina aö hafna öllum tilraunum til aö skipu- leggja hundsunólympiuleikanna i Moskvu. Eftirtveggjadaga fund ACNO i Mexikó-borg var framkvæmda- stjórn þessara samtaka ólympiu- Hláka torveldaði björgunar- sveitum i itölsku ölpunum I morgun að leita fimm Breta, sem talið er, aö hafi farist I snjóskriðu hjá bænum Cervinia. önnur snjóskriöa féll i gær nærriChambery i Alpafjöllum, og fórust i henni tveir franskir her- menn, sem þar voru með her- flokki sinum aö æfingúm. nefnda viöa um heim „full trausts á þvi, aö Alþjóöa ólympiunefndin muni hafna öllum utanaöviðkom- andi áhrifum á ólympiuhreyfing- una eöa tilraunum til þess aö breyta undirbúningi ólympiuleika númer 22”. Alþjóöa ólympiunefndin kemur saman til fundar siðar i vikunni i Asahláka hefur leitt af sér fjölda snjóflóöa i itölsku ölpunum eftir helgina, og hafa sérfræö- ingar reynt meö sprengingum aö kalla fram snjóskriöur, þar sem helst var hætta á þeim. Bærinn Cervinia er ein- angraöur vegna snjóflóösins, og liklegt, aö það veröi ekki fyrr en á morgun, sem búiö veröur aö ryöja þangað leiö. Lake Placid i New York-fylki, áður en vetrarleikarnir hefjast. Gíslataka í Mílanó Geösjúklingur hefur sjö gisla á valdi sinu á skrifstofu innfhitn- ingsfyrirtækis eins I Mílanó, en hefur lofað aö sleppa þeim og gef- ast upp siöar I dag. Hann hefur játaö I simtali viö borgarstjórann aö hafa drepiö sendil fýrirtækisins. Maður þessier 34ára gamall og hefur á sakaskrá sinni rán og önnur afbrot. Hann réöist inn i skrifstofur fyrirtækisins, skaut til bana fertugan sendil fyrirtækis- ins og tók fanga fimm menn og tvær konur. Hótaöi hann aö sprengja húsiö I loft upp, ef kröf- um hans yröi ekki fullnægt, en þær taldi hann sig bera fram i nafni samtaka róttækra hryöju- verkamanna. Lögreglan telur manninn vera geðsjúkan og ekki i sambandi viö nein pólitisk öfgasamtök. SnjðflóO I ítölsku Ölpunum: Leitao að flmm Bretum SPÁNVERJAR MISSA ENN SENÐI- RÁB Á VftLD ÖFGAMANNA Vonir hafa vaknaö aö nýju um aö takast megi aö ná sáttum i kjaradeilu stáliönaöarmanna i Bretlandi, en verkfall þeirra hefur nú staöið i fimm vikur. Um lOOþúsund stáliönaöarmenn eru i verkfallinu. Bresku stáliöjurnar, sem eru rikisfyrirtæki, munu leggja fram nýtt sáttatilboö i dag, og er vonast til þess, að þaö geti oröiö grund- völlur til þess aö viðræður hefjist að nýju, en þær hafa legiö niðri um hrið. Fyrra tilboö atvinnurekenda var um 12% launahækkun, og þó aðeins, ef betri framleiðni næöist. Stáliönaðarmenn höfnuöu, en þeir kröföust um 20% hækkunar, þar sem verðbólgan i Bretlandi er um 17%. Stjórn Salvador hefur lofað Spánarstjórn að láta ekki til skarar skriöa gegn vinstri öfga- mönnunum, sem hertóku spænska sendiráðið I San Salva- dor, heldur reyna samninga- leiðina. Þetta er annað spænska sendiráðiö i Mið-Ameríku, sem kemst á vald öfgamanna, en 39 létu lifið, þegar öryggissveitir Guatemala gerðu áhlaup á sendiráöiö og hryðjuverka- mennina þar á dögunum. Herstjórnin i San Salvador sendi spænska utanrikisráöherr- anum orösendingu, þar sem taka sendiráðsins var hörmuð, en Spánarstórn fullvissuð um, aö ekkert yrði gert, sem þætti geta stofnað lifi gislanna I óþarfa hættu. Tveir gislanna, einn Spán- verji og annar Salvadormaður, sluppu úr sendiráðinu i gær- kvöldi með þvi að stökkva ofan af þaki þessarar tveggja hæöa byggingar. Þeir sögöu, að um 50 hryöju- verkamenn hefðu ráöist inn I sendiráðiö i gær, og hefðu þar enn á valdi sinu tiu gisla. Hryöjuverkamönnum bættist liðsauki 25 stuöningsmanna i nótt. Þeir tilheyra samtökum, sem kenna sig við 28. febrúar, og krefjast þess, aö félagar þeirra, sem eru i fangelsum i Salvador, verði látnir lausir. Fréttamaður Reuters, sem fór inn i sendiráðið i gærkvöldi, sagði, aö honum virtist árásar- mennirnir vera óvopnaöir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.