Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 2
2 C SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ X Y Z E T A / S ÍA Störf við sérkennslu Óskað er eftir leikskólasérkennurum, þroskaþjálfum og/eða fólki með menntun og reynslu á sviði sérkennslu í eftirtalda leikskóla: Leikskólann Ösp, Iðufelli 16 Upplýsingar veitir Svanhildur Hákonardóttir leikskólastjóri í síma 557 6989. Leikskólann Ásborg, Dyngjuvegi 18 Upplýsingar veitir Jóna Elín Pétursdóttir leikskólastjóri í síma 553 1135. Umsóknareyðublöð má nálgast á ofangreindum leikskólum, á skrifstofu Leikskóla Reykjavíkur, Tryggvagötu 17, sími 563 5800 og á vefsvæði, www.leikskolar.is. Læknablaðið óskar eftir ritstjórnarfulltrúa í 80% starf, starfs- hlutfall gæti aukist. Krafist er mjög góðrar íslenskukunnáttu, góðrar kunnáttu í að minnsta kosti einu Norð- urlandamáli og ensku, tölvukunnáttu og sjálf- stæðis í vinnubrögðum. Ritstjórnarfulltrúi vinnur við handrit fræði- greina í blaðinu og stjórnar í umboði og í sam- ráði við ábyrgðarmann og ritstjórn daglegum fjárhagslegum rekstri blaðsins og vinnu ann- arra starfsmanna Læknablaðsins. Vinnutími og laun eru samkomulagsatriði. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir sendist fyrir 1. nóvember Lækna- blaðinu, Hlíðarsmára 8, 200 Kópavogi. Nánari upplýsingar veitir Vilhjálmur Rafnsson, ábyrgðarmaður Læknablaðsins, í síma 525 4956, netfang: vilraf@hi.is . Fiskeldi Starfsmann vantar til fiskeldistarfa hjá Norður- laxi hf., Laxamýri, 641 Húsavík. Starfsmaður þarf að vera röskur og samvisku- samur. Upplýsingar gefur Jón Helgi Vigfússon í síma 464 1770 eða 893 9995. Aðstoðarfólk í prentsal Óskað er eftir starfsmönnum til þess að að- stoða prentara og til annara starfa í prentsal. Nánari upplýsingar veitir Haraldur í síma 512 2000. Einnig er hægt að sækja um á vef Íslensku prentsmiðjunnar: www.ip.is Íslensk myndgreining Álftamýri 5, óskar eftir geislafræðingi frá áramótum. Um er að ræða starf sem teng- ist hefðbundnum röntgenrannsóknum og seg- ulómrannsóknum. Upplýsingar um starfið veitir Einfríður Árna- dóttir í síma 860 8856 og 520 0117. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember nk. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Matsfulltrúi Staða matsfulltrúa á Skólaskrifstofu Hafnar- fjarðar er laus til umsóknar. Hér er um nýtt starf að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni matsfulltrúa eru: ● Stjórnsýslulegt eftirlit með skólastofnunum ● Árangurs- og gæðamat á skólastarfi ● Ráðgjöf við sjálfsmat skólastofnana ● Viðhorfskannanir ● Kynningarmál o.fl. Matsfulltrúi heyrir beint undir forstöðumann Skólaskrifstofu og starfar í umboði hans. Umsækjandi skal vera kennaramenntaður með framhaldsnám á sviði mats- og upplýsinga- fræða eða sambærilegt. Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamn- ingi STH og Hafnarfjarðarbæjar. Nánari upp- lýsingar veitir Magnús Baldursson, forstöðu- maður Skólaskrifstofu, í síma 585 5800, netfang magnusb@hafnarfjordur.is . Umsóknir berist undirrituðum fyrir 2. nóvem- ber næstkomandi. Forstöðumaður Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. Háskóli Íslands Jafnréttisfulltrúi Starf jafnréttisfulltrúa Háskóla Íslands er laust til umsóknar. Jafnréttisfulltrúi starfar á stjórn- sýslusviði og hefur í umboði rektors og í sam- starfi við jafnréttisnefnd H.Í. umsjón með fram- kvæmd jafnréttismála í Háskóla Íslands. Starfssvið jafnréttisnefndar nær til jafnréttis- mála í víðum skilningi. Hún leggur í fyrstu áherslu á að framfylgja ákvæðum laga nr. 96/ 2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og gerir tillögur til háskólaráðs um jafn- réttisstefnu Háskólans er tekur sérstaklega mið af starfsemi hans. Jafnréttisfulltrúi hefur um- sjón með jafnréttisstarfi innan Háskóla Íslands, áætlanagerð, annast framkvæmd jafnréttis- áætlunar Háskólans. og starfar sem sérstakur ráðgjafi um jafnréttismál innan Háskóla Íslands. Umsækjendur um starfið skulu hafa lokið há- skólanámi. Þau sjónarmið sem að öðru leyti verð lögð til grundvallar við ráðningu eru: ● Reynsla og þekking á jafnréttismálum og stefnumörkun á því sviði. ● Þekking á málsmeðferð innan stjórnsýslu. ● Sjálfstæði í starfi. ● Samstarfs- og skipulagshæfileikar. Um hálft starf er að ræða með möguleika á auknu starfshlutfalli síðar. Gert er ráð fyrir að jafnréttisfulltrúi hefji störf þann 1. janúar 2002. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- ráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsóknum skal skilað til starfsmannasviðs Háskóla Íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember nk. Öllum umsóknum verður svarað og um- sækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins. Nánari upplýsingar veitir Lilja Þorgeirsdóttir, sími 525 5253, netfang: liljath@hi.is, starfs- mannasviði. Heimasíða jafnréttisnefndar: http:/ /WWW.hi.is/stjorn/jafnrettisn/ Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafn- réttisáætlun háskólans. http://www.starf.hi.is .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.