Morgunblaðið - 15.11.2001, Síða 1

Morgunblaðið - 15.11.2001, Síða 1
262. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 15. NÓVEMBER 2001 FULLTRÚAR á ráðstefnu Heimsviðskiptastofn- unarinnar (WTO) í Persaflóaríkinu Katar sam- þykktu í gær að hafin yrði ný umferð viðræðna um aukið frelsi í alþjóðaviðskiptum. Sérfræðingar segja að umfang heimsviðskipta geti hamlað veru- lega gegn samdrætti sem víða er nú byrjaður í efnahag aðildarlandanna 142. Mikið taugastríð var háð síðustu klukkustund- irnar og var ákaft fagnað er fundarstjórinn hringdi bjöllu til að gefa til kynna að öll ríkin væru búin að samþykkja nýja viðræðulotu. Niðurstöð- urnar eiga síðan að taka gildi í janúar 2005 og verður þá aflétt ýmsum hömlum sem eru í gildi á viðskiptum milli ríkjanna með vörur og þjónustu. „Óvissa og óstöðugleiki hefur vaxið í efnahags- málum heimsins eftir hörmungaratburðina 11. september og það veldur mér því mikilli gleði að við skulum geta sent jarðarbúum jákvæð skila- boð,“ sagði efnahags- og viðskiptamálaráðherra Japans, Takeo Hiranuma. Hart var deilt á ráð- stefnunni í Doha en einkum var þráteflið um lækk- un á fjárstuðningi aðildarríkjanna við eigin land- búnað erfitt viðureignar. Evrópusambandið lét að lokum undan kröfum svonefnds Cairns-hóps öfl- ugra útflutningsríkja og Bandaríkjanna og sam- þykkti að kveðið yrði á um að útflutningsbætur yrðu afnumdar í áföngum. WTO reyndi á fundi sínum í Seattle fyrir tveimur árum að ná sam- komulagi um nýja umferð viðræðna en sá fundur varð árangurslaus, ekki síst vegna deilna um land- búnaðarmál en einnig vegna mikilla mótmæla sem efnt var til gegn alþjóðavæðingu. Bandaríkin gáfu einnig eftir er þau samþykktu að orðalag um umhverfisvernd yrði hert og jafn- framt var ákveðið að settar yrðu reglur í vænt- anlegum samningum um tvö ný svið, samkeppn- ismál og fjárfestingar. Komið var til móts við kröfur fátækra aðildarþjóða um að slakað yrði á einkaleyfisreglum vegna framleiðslu á dýrum lyfj- um, til dæmis gegn alnæmi. Indverjar andmæltu lengi vel kröfum Evrópu- landanna um, að þau mættu hygla sérstaklega ákveðnum þjóðum í Afríku, Karíbahafi og við Kyrrahaf með sérreglum um viðskipti sem byggj- ast á langri hefð. Einnig óttuðust mörg ríki þriðja heimsins að ákvæði um umhverfisvernd yrðu not- uð til að torvelda útflutning frá þeim með tilvísun til umhverfisspjalla og lýstu auk þess óánægju með að ríkar þjóðir skyldu ekki fallast á alfrjálsan innflutning vefnaðarvöru frá fátækum ríkjum. Frelsi í heimsviðskiptum aukið WTO-viðræður sagðar hamla gegn samdrætti Doha. AP, AFP.  Mikill sigur/4 BANDARÍSKIR vísindamenn hafa hannað „hljóðbyssu“ sem hægt verður að beita til að lama flugræn- ingja um tíma, eða nógu lengi til að hægt sé að taka þá höndum, að sögn breska vikublaðsins New Scientist. Hugmyndin er að óeinkenn- isklæddir fluglögreglumenn verði vopnaðir slíkum byssum sem draga allan mátt úr flugræningjanum en valda ekki skemmdum á flugvélinni eins og venjulegar byssur. Vísindamenn bandaríska há- tæknifyrirtækisins American Technology hönnuðu byssuna. „Með henni er hægt að skjóta kröft- ugri hljóðbylgju sem er næstum eins og byssukúla,“ sagði Elwood Norris, stjórnarformaður fyrirtæk- isins. „Hljóðstyrkurinn er meira en 140 desíbel.“ Sársaukamörk hljóðs eru um 120–130 desíbel og byssan veldur skammvinnu heyrnartapi. Jürgen Altmann, þýskur sér- fræðingur í hljóðeðlisfræðilegum vopnum, sagði að ef beita þyrfti byssunni af löngu færi væri líklegt að farþegar yrðu einnig fyrir hljóð- bylgjunni. „Hljóðbyssa“ gegn flug- ræningjum París. AFP. VLADÍMÍR Pútín Rússlandsforseti ræddi í gærkvöldi við George W. Bush Bandaríkjaforseta á búgarði hans í Texas. Ari Fleischer, talsmað- ur Bush, sagði að ekki væri búist við að samkomulag næðist á fundinum um breytingar á gagnflaugasamn- ingnum frá 1972, ABM, helsta ágreiningsefni ríkjanna. Bush sagði fyrir viðræðurnar á búgarðinum að hann liti fyrst og fremst á þær sem tækifæri til að treysta persónulegt samband sitt við rússneska forsetann. Daginn áður tilkynnti Bush að stefnt væri að því að fækka kjarna- vopnum Bandaríkjanna um tvo þriðju á einum áratug og Pútín greindi síðan frá því að Rússar hygð- ust fækka kjarnavopnum sínum jafnmikið hlutfallslega. Samkomulag náðist hins vegar ekki í deilunni um þau áform Banda- ríkjastjórnar að koma upp eldflauga- varnakerfi, sem er ekki heimilt sam- kvæmt gagnflaugasamningnum. Rússneski forsetinn lýsti því þó yfir nýlega að hann væri „mjög bjart- sýnn“ á að hægt yrði að leysa deil- una. Viðræður Bush og Pútíns Vænta ekki samkomu- lags um geimvarnir Crawford. AFP.  Þáttaskil/30 TONY Blair, forsætisráðherra Bret- lands, lýsti í gær undanhaldi her- manna talibanastjórnarinnar frá Kabúl og fleiri borgum í Afganistan sem „algjöru hruni“ og skoraði á íbúa suðurhluta landsins að hrekja talibana af svæðum sem eru enn á valdi þeirra. Norðurbandalagið hélt áfram framrás sinni á öllum víg- stöðvum og bandarískar sérsveitir voru sendar til Suður-Afganistans til að loka hugsanlegum flóttaleiðum sádi-arabíska hryðjuverkaforingjans Osama bin Ladens. „Ljóst er að stuðningurinn við tal- ibana er að verða að engu,“ sagði Tony Blair í ræðu á breska þinginu. „Þótt þeir kunni að veita mótspyrnu á afmörkuðum svæðum er allt tal um að þetta sé einhvers konar skipulagt undanhald aðeins nýjasta lygi talib- ana.“ Talsmaður bandaríska varnar- málaráðuneytisins sagði það hins vegar „hættulegt“ að draga þá álykt- un að talibanastjórnin væri fallin. Ekki væri enn vitað með vissu hvort um væri að ræða skipulagt undan- hald eða algeran ósigur talibana. Norðurbandalagið sagði að talib- anar hefðu flúið Kandahar, höfuðvígi sitt, en talsmaður talibana neitaði því. Donald Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, staðfesti að átök hefðu blossað upp í Kandah- ar og nágrenni borgarinnar. Hann skýrði enn fremur frá því að banda- rískar sérsveitir hefðu verið sendar með flugvélum til Suður-Afganistans til að loka þjóðvegum og „stöðva þá sem þarf að stöðva“. Öryggisráð SÞ ræðir framtíð Afganistans Blair skýrði frá því á þinginu að „nokkrar þúsundir“ breskra her- manna kynnu að verða sendar til Afganistans á næstu dögum. Meg- inhlutverk þeirra yrði að verja vegi og flugvelli til að hægt yrði að flytja hjálpargögn til landsins, hreinsa jarðsprengjusvæði og vernda starfs- menn Sameinuðu þjóðanna og hjálp- arstofnana. Forsætisráðherrann bætti við að einnig kæmi til greina að breskum hermönnum yrði beitt gegn talibönum. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman fyrir luktum dyrum í gær til að ræða áætlun sem miðast að því að öll þjóðarbrotin í Afganist- an myndi ríkisstjórn til að afstýra stjórnleysi og nýrri borgarastyrjöld eftir fall talibanastjórnarinnar. Gert er ráð fyrir því að öryggis- ráðið gangi til atkvæða á morgun um ályktun þar sem lýst er yfir stuðn- ingi við tillögu Lakhdars Brahimis, sendimanns Sameinuðu þjóðanna, um að leiðtogar hinna ýmsu þjóð- flokka og fylkinga Afganistans myndi ríkisstjórn sem verði við völd í tvö ár, eða þar til efnt verður til lýð- ræðislegra kosninga. Brahimi kvaðst vona að leiðtogarnir kæmu saman á næstu dögum. Andstæðingar talibana sækja enn fram á öllum vígstöðvum í Afganistan Blair fagnar „algjöru hruni“ hers talibana Reuters Afganar ryðjast fram hjá landamæravörðum til að komast inn í bæinn Chaman í Pakistan. Þarlend yfirvöld hafa hert landamæraeftirlitið, m.a. til að hindra að Osama bin Laden og menn hans geti laumast til Pakistans. Reuters Afganskar konur í miðborg Kabúl sýna andlit sitt í fyrsta sinn á al- mannafæri í fimm ár. Stjórn talibana skyldaði allar afganskar konur til að klæðast svonefndum búrkum sem hylja þær frá hvirfli til ilja. London, Kabúl. AFP, AP.  Aðeins 20% Afganistans/28 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.