Morgunblaðið - 15.11.2001, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
www.bi.is
– Engar sveiflur milli mánaða
– Enginn gluggapóstur
– Engir dráttarvextir
– Engar biðraðir
– Engar áhyggjur
Kynntu þér útgjaldareikning HeimilislínuLáttu þér líða vel
RÁÐHERRAFUNDI Alþjóðaviðskiptastofnun-
arinnar, WTO, lauk í borginni Doha í Katar í gær
með því að samþykkt var að fara í nýja viðræðu-
lotu um frekara frelsi í heimsviðskiptum. Viðræð-
urnar eiga að hefjast þegar í byrjun næsta árs og
verða lokið fyrir 1. janúar 2005. Fundarlok voru
áætluð í fyrrakvöld en frestuðust til morguns
vegna nokkurra ágreiningsmála um texta ráð-
herrayfirlýsingar sem samþykkt var á fundinum.
Aðeins Indverjar ætluðu ekki að samþykkja text-
ann en gerðu það að lokum, ásamt um 150 aðild-
arríkjum WTO. Meðal þess sem er í yfirlýsingunni
er texti sem settur var fram að frumkvæði Íslend-
inga um að setja reglur um beitingu ríkisstyrkja í
sjávarútvegi og stuðla að afnámi þeirra.
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra, sat
fundinn fyrir hönd Halldórs Ásgrímssonar utan-
ríkisráðherra og fór fyrir íslensku sendinefndinni.
Hún sagði við Morgunblaðið í gær að niðurstaða
fundarins væri ánægjuleg og það væri mikill sigur
fyrir íslenska utanríkisþjónustu að tekist hefði að
halda inni tillögu um afnám ríkisstyrkja í sjávar-
útvegi, þrátt fyrir andstöðu stórra ríkja og ríkja-
sambanda á borð við ESB, Japan og Kóreu. Hún
sagði Halldór Ásgrímsson og hans menn í ráðu-
neytinu hafa unnið þrekvirki í undirbúningi máls-
ins en utanríkisráðherra gat ekki setið fundinn í
Katar vegna allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna
í New York á sama tíma.
„Afnám ríkisstyrkja í sjávarútvegi var okkar
baráttumál og þar vorum við, Íslendingar, í for-
ystu. Við nutum stuðnings stórra ríkja eins og
Bandaríkjanna og Kanada og einnig studdu flest
þróunarríkin við tillöguna, enda mikið hagsmuna-
mál fyrir þau. Erfitt er að segja hvenær dregið
verður úr ríkisstyrkjum en líklegast að það verði
ekki fyrr en að viðræðutímabilinu loknu. Viðræð-
ur hefjast á næsta ári og við munum að sjálfsögðu
taka þátt í þeim. Utanríkisþjónustan fer í þetta af
fullum krafti og einnig reikna ég með að fagráðu-
neytin þurfi að koma að viðræðunum,“ sagði Val-
gerður.
Tilögunni um afnám ríkisstyrkja í sjávarútvegi
var fagnað sérstaklega af umhverfisverndarsam-
tökunum World Wide Fund for Nature, WWF,
sem áttu áheyrnarfulltrúa í Katar. Valgerður
sagði þennan stuðning WWF óvæntan en sérlega
ánægjulegan.
Lækkun á 52 vöruflokkum til Kína
Af öðru innihaldi yfirlýsingar ráðherranna má
nefna að stefnt er að afnámi útflutningsbóta í
landbúnaði og aðskoða nánar styrki sem sagðir
eru „markaðstruflandi“ innan sömu atvinnugrein-
ar.
Í aðildarviðræðum Kína að WTO sömdu Ísland
og Kína um lækkun tolla á mikilvægum sjávaraf-
urðum. Í tollskrá Kína eru 152 vöruflokkar fyrir
sjávarafurðir og samdi Ísland um lækkun tolla á
52 þeirra. Kína innheimtir allt að 30% toll af inn-
flutningi á sjávarafurðum. Ísland náði mikilvæg-
um samningum um að tollar verði 2 til 16% á flest-
ar sjávarafurðir sem Ísland flytur út og allar sem
eru mikilvægar á markaði Kína, að því er segir í
tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Viðskiptaráðherra um niðurstöðu ráðherrafundar WTO
Mikill sigur fyrir utan-
ríkisþjónustu Íslendinga
Stefnt að afnámi ríkis-
styrkja í sjávarútvegi
TVEIR menn slösuðust þegar
vinnulyfta á körfubíl skall harka-
lega til jarðar við fjölbýlishús við
Tjarnarból á Seltjarnarnesi
skömmu fyrir þrjú gær. Menn-
irnir voru að flytja rúðu að
vinnupalli þegar slysið varð. Að
sögn vakthafandi læknis á slysa-
deild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss er annar mannanna
þó nokkuð slasaður en hann fór í
skurðaðgerð í gærkvöldi. Hinn er
minna slasaður en verður þó
væntanlega áfram á spítalanum
um sinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Reykjavík er talið
að tjakkur í vinnulyftunni hafi
gefið sig með þeim afleiðingum
að bóman féll til jarðar. Talið er
að karfan hafi þá verið í um 7–8
metra hæð.
Tveir eftirlitsmenn frá Vinnu-
eftirliti ríkisins voru á vettvangi í
gær en ekki lágu fyrir upplýs-
ingar frá þeim um orsakir slyss-
ins. Málið er í rannsókn.
Féllu 7–8
metra þeg-
ar vinnu-
lyfta bilaði
Morgunblaðið/Júlíus
Mennirnir voru fluttir á slysadeild en annar þeirra var þó nokkuð slasaður.
DAGVINNULAUN framhalds-
skólakennara hækkuðu um rúm-
lega helming milli áranna 2000 og
2001 og heildarlaun höfðu hækkað
um tæplega þriðjung að því er
fram kemur í könnun sem Kjara-
rannsóknanefnd opinberra starfs-
manna hefur gert fyrir Félag
framhaldsskólakennara.
Fram kemur að á tímabilinu jan-
úar til september árið 2000 voru
dagvinnulaun framhaldsskólakenn-
ara 135.543 kr. á mánuði en á
sama tímabili árið 2001 voru þau
203.910 kr. og höfðu hækkað um
tæplega 51%. Heildarlaunin hækk-
uðu hlutfallslega minna á tíma-
bilinu eða úr 220.347 kr. í 289.214
kr., sem jafngildir hækkun um
31,3%.
Helmings-
hækkun dag-
vinnulauna
Framhaldsskólakennarar
NÝTT rit með greina-
safni eftir Björn Bjarna-
son menntamálaráð-
herra um utanríkis- og
alþjóðamál síðustu 25
árin er að koma út á
næstu dögum og var
fjallað um bókina á
fundi Samtaka um vest-
ræna samvinnu og Varð-
bergs í gær.
Björn ritaði mikið um
þessa málaflokka og
segir meðal annars frá
ferðum sínum erlendis
er hann starfaði við
blaðamennsku. Allar
greinarnar nema ein
hafa birst í Morgun-
blaðinu.
Á bókarkápunni segir
meðal annars að kalla
megi ritið eins konar
„víðsjá kaldastríðsár-
anna á Íslandi í ljósi þró-
unar á alþjóðavettvangi“.
Ný bók um hitann
í köldu stríði
Markmiðið/16
SÁ fáheyrði atburður átti sér stað
á dögunum að keldusvín varð fyr-
ir bíl á Víkurbraut á Hornafirði.
Það var Brynjúlfur Brynjólfsson
fuglaáhugamaður á Höfn sem
fann keldusvínið á götunni. Hér
var um flækingsfugl að ræða því
keldusvínið telst ekki lengur ís-
lenskur varpfugl en árlega sjást
um tíu flækingsfuglar hér á landi.
Keldusvínið eða Rallus aquat-
icus er lítill fugl, 95 til 145 gr. að
þyngd, 25 cm að lengd og með 40
cm vænghaf. Kjörland keldusvíns
er votlendi og segir Brynjúlfur
ástæðu þess að fuglinn dó út hér á
landi einkum vera framræslu vot-
lendis og útbreiðslu minka. Keldu-
svínið er felugjarn fugl, sést sjald-
an en þekkist gjarnan á spor-
unum. Þau eru svipað stór og spor
hrossagauksins nema með áber-
andi lengri miðtá. Ekki er vitað til
þess að keldusvín hafi áður farist
í umferðarslysi hér á landi.
Keldusvín
fyrir bíl
Hornafirði. Morgunblaðið.
SÉRA Bolli Gústavsson vígslu-
biskup á Hólum hefur beðist
lausnar frá störfum frá og með
áramótum af heilsufarsástæð-
um. Þetta kemur fram á vef
þjóðkirkjunnar.
Sr. Bolli hefur gegnt embætti
vígslubiskups á Hólum frá árinu
1991, en þar áður var hann
sóknarprestur í Laufási í Eyja-
firði um aldarfjórðungs skeið.
Hann er fæddur 17. nóvember
1935 og lauk guðfræðiprófi árið
1963.
Séra Bolli Gústavsson
biðst lausnar frá störfum
ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa
hækkaði í gær um eitt prósentustig.
Ávöxtunarkrafa á nýjasta flokki hús-
bréfa var 10,92% í gær, en krafan var
9,9% í fyrradag.
Ávöxtunarkrafan var komin upp í
rúmlega 11% í byrjun nóvembermán-
aðar en lækkaði þegar Seðlabankinn
tók ákvörðun um að lækka vexti og
fór þá niður fyrir 10%. Í gær hækkaði
ávöxtunarkrafan hins vegar aftur.
Ávöxtunar-
krafa húsbréfa
hækkar
♦ ♦ ♦
SLÖKKVILIÐ Fjarðabyggðar var
kallað út í gærkvöld til að slökkva
eld, sem kom upp í rafstöðvarbíl
kvikmyndatökuliðs sem vinnur að
gerð Hafsins í Neskaupstað. Eldur-
inn átti rót sína að rekja til pústkerf-
is sem mun hafa ofhitnað. Eldurinn
var slökktur á skammri stundu og
olli litlum skemmdum.
Kviknaði
í hjá tökuliði