Morgunblaðið - 15.11.2001, Page 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþing-
is, segir að þekking stjórnmála-
manna á Írlandi á hvalveiðum og
ástandi hvalastofna við Ísland
markist mikið af því að þessi mál
séu þar ekki á dagskrá. Fjögurra
daga heimsókn fimm þingmanna
frá Alþingi til Írlands lauk í gær, en
Halldór segir að heimsóknin hafi
verið mjög gagnleg og heppnast vel
í alla staði.
Halldór ræddi í gær við Bertie
Ahern, forsætisráðherra Írlands.
Hann sagði að Ahern hefði rifjað
upp heimsókn sína til Íslands sl.
sumar. „Hann lýsti áhuga sínum á
því að treysta samband þjóðanna.
Hann ræddi sérstaklega um menn-
ingarleg samskipti en lagði líka
mikla áherslu á gagnkvæm við-
skipti og nefndi í því sambandi há-
tækniiðnað og ferðaþjónustu.“
Vera Íra í ESB hefur
skipt þá miklu máli
Halldór sagði að Ahern hefði lýst
skilningi á því sjónarmiði að erfitt
væri fyrir Íslendinga að gerast að-
ilar að Evrópusambandinu vegna
þeirra miklu hagsmuna sem væru í
sjávarútvegi.
„Það kom skýrt fram í viðræðum
við forsætisráðherra, utanríkis-
málanefnd og fleiri þingmenn að
reynsla þeirra af veru í Evrópusam-
bandinu er mjög góð. Það er enginn
vafi á því að þá miklu efnahagslegu
grósku sem hefur verið á Írlandi á
síðustu árum má þakka veru þeirra
í sambandinu,“ sagði Halldór og
bætti við að það hefði líka komið
fram í máli írsku þingmannanna að
hagsmunir sjávarútvegsins á Ír-
landi hefðu orðið að gjalda aðild-
arinnar að ESB.
Sendinefnd Írlands á síðasta árs-
fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins
greiddi atkvæði gegn inngöngu Ís-
lands í ráðið. Halldór sagði að ís-
lenska sendinefndin hefði lagt
áherslu á að skýra sjónarmið Ís-
lands í hvalveiðimálum. „Það er
augljóst af viðræðum okkar við þá
um hvalveiðar að þessi mál hafa
ekki verið mikið á dagskrá. Okkar
athugasemdum hefur verið tekið
vel, en það er greinilegt að stjórn-
málamönnum á Írlandi er ekki
kunnugt um ástand hvalastofna við
Ísland. Við lögðum áherslu á sér-
stöðu okkar og að jafnvægi hlyti að
þurfa að vera í lífríki hafsins.“
Mikil andstaða við Sellafield
Halldór sagði að málefni kjarn-
orkuendurvinnslustöðvarinnar í
Sellafield hefðu talsvert verið rædd
í heimsókninni. Írar væru harðir í
andstöðu sinni við stöðina. „Írar
telja að Bretar hafi leynt þá stað-
reyndum um Sellafield og ætla að
sækja þetta mál bæði eftir stjórn-
málalegum og lagalegum leiðum.
Þeir leggja því mikla áherslu á að
stöðinni verði lokað.“
Halldór kvaðst vera mjög ánægð-
ur með heimsóknina til Írlands.
Forseti írska þingsins, Séamus
Pattison, hefði sýnt íslensku sendi-
nefndinni einstaka gestrisni. Hann
hefði gefið sér góðan tíma til að
kynna fyrir Íslendingunum írskt
samfélag og hefði m.a. farið með þá
í heimsókn í kjördæmið sitt.
„Við höfðum tækifæri til að fylgj-
ast með þingfundi í dag [í gær]. Það
var fyrirspurnatími hjá forsætis-
ráðherra og einn samflokksmanna
hans úr Verkamannaflokknum lenti
í orðasennu við forseta þingsins.
Mér þótti skemmtilegt að sjá þegar
forsetinn vísaði þingmanninum út
úr þingsalnum og að auki lagði
hann á hann þá refsingu að mega
ekki koma í þingsal í þrjá daga
vegna þess að hann braut þingsköp,
tók upp mál sem ekki var á dagskrá
og greip fram í fyrir forseta.“ Hall-
dór sagðist ekki vita hvort menn
sættu sig við svo strangan aga á Al-
þingi Íslendinga, en það hefði verið
fróðlegt að kynnast því hvernig
væri stjórnað á írska þinginu.
Fjögurra daga heimsókn sendinefndar Alþingis til Írlands lokið
AP
Sendinefndin frá Alþingi Íslendinga hitti í gær Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands. Frá vinstri Belinda
Theriault, forstöðumaður alþjóðasviðs Alþingis, Gunnar Birgisson alþingismaður, Þuríður Backman alþing-
ismaður, Halldór Blöndal, forseti Alþingis, Guðmundur Árni Stefánsson, fyrsti varaforseti Alþingis, Bertie
Ahern, Hjálmar Árnason alþingismaður og Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþingis.
Takmörk-
uð þekking
á hvala-
málinu á
Írlandi
FYRSTI reglulegi landsfundur
Samfylkingarinnar verður settur
kl. 17.30 á Hótel Sögu á morgun,
föstudag, með setningarræðu Öss-
urar Skarphéðinssonar, formanns
Samfylkingarinnar. Á fjórða
hundrað fulltrúar eru skráðir með
atkvæðisrétt á fundinum, sem
stendur fram á sunnudag. Yfir-
skrift landsfundarins er ,,Jöfn
tækifæri“.
Jafnaðarmannaflokkur – Jafn-
aðarflokkur – Alþýðubandalag
Komnar eru fram þrjár tillögur
fyrir landsfundinn um breytingu á
nafni flokksins. Alþingismennirnir
Guðmundur Árni Stefánsson og
Lúðvík Bergvinsson leggja til að
nafninu verði breytt í Samfylking-
in-Jafnaðarmannaflokkur Íslands.
Jóhann Geirdal bæjarfulltrúi hefur
á móti lagt fram tillögu um að
nafninu verði breytt í Alþýðu-
bandalagið. Þá hefur komið fram
tillaga frá Ástu R. Jóhannesdóttur
alþingismanni um nafnið: Samfylk-
ingin-Jafnaðarflokkur Íslands.
Í rökstuðningi með tillögu Guð-
mundar Árna og Lúðvíks segir að
núverandi nafn sé bráðabirgða-
heiti, sem gefið var þegar gömlu
aðildarflokkarnir runnu saman, nú
sé flokksstofnun hins vegar að
baki. „Við skoðanasystkini í Sam-
fylkingunni erum jafnaðarmenn
sem aðhyllumst þau víðsýnu,
mannúðlegu og umburðarlyndu
viðhorf, sem jafnaðarstefnan býr
yfir. Við erum flokkur raunveru-
legs frelsis einstaklinga, flokkur
jafnra tækifæra, flokkur jafnréttis,
flokkur virkrar samkeppni á mark-
aði, en um leið samhjálpar og vel-
ferðar. Þess vegna á flokkurinn
okkar að kenna sig við þessa sömu
jafnaðarstefnu og heita Jafnaðar-
mannaflokkur Íslands.“
Í rökstuðningi með tillögu Jó-
hanns segir m.a.: „Fram hefur
komið tillaga, flutt af Guðmundi
Árna Stefánssyni, varaformanni
Alþýðuflokksins, sem gegnir jafn-
framt formennsku í þeim flokki eft-
ir að Sighvatur Björgvinsson lét af
því embætti, og Lúðvík Berg-
vinssyni, um að nafninu Jafnaðar-
mannaflokkur Íslands verði bætt
aftan við nafnið Samfylkingin. Nú
liggur fyrir að Alþýðuflokkurinn á
löggilt nafnið Alþýðuflokkurinn-
Jafnaðarmannaflokkur Íslands. Því
tel ég eðlilegt að ég, sem jafnframt
er varaformaður Alþýðubandalags-
ins, leggi til að löggilt nafn Alþýðu-
bandalagsins verði heldur tekið
upp sem nafn hins nýja flokks. Ef
það má verða til að ná sátt um
nafnið tel ég vel koma til greina að
tengja þessi tvö nöfn saman og
gæti nafnið þá orðið Alþýðubanda-
lagið-Jafnaðarmannaflokkur Ís-
lands. Þá vantar þó að tekið sé til-
lit til þeirra sem koma úr Sam-
tökum um kvennalista. Því mætti
jafnvel hugsa sér nafnið Alþýðu-
bandalagið – flokkur jafnaðar-
manna og kvenfrelsissinna.“
Palestínskur læknir
heiðursgestur fundarins
Opnar málstofur verða á lands-
fundinum þar sem landsfundar-
fulltrúar og sérstakir gestir flytja
framsöguræður og taka þátt í um-
ræðum. Á föstudagskvöldið verða
málstofur um auðsköpun og vel-
ferð, Ísland í Evrópu, sveitarfélög
nýrrar aldar og skuldbindingar Ís-
lands í umhverfismálum. Á laug-
ardag verður morgunverðarfundur
Kvennahreyfingar og kl. 15 verður
sérstök málstofa um breytta
heimsmynd og baráttu Palestínu-
manna. Framsögumaður verður dr.
Mustafa Barghouthi, læknir, húm-
anisti og verðlaunahafi frá Palest-
ínu, en hann er heiðursgestur
landsfundarins.
Almenn landsfundardagskrá
hefst á laugardagsmorgun og
stendur fram á sunnudag þar sem
fram fara almennar umræður, um-
fjöllun og afgreiðsla stjórnmála-
ályktunar og lagabreytinga, auk
kosninga. Eftir hádegi á sunnudag
mun þingflokkur Samfylkingarinn-
ar sitja fyrir svörum á fundinum.
Fyrsti landsfundur Samfylkingarinnar settur á morgun
Þrjár tillögur liggja
fyrir um breytingu
á nafni flokksins
STEINUNN Valdís Óskarsdóttir
borgarfulltrúi hefur ákveðið að
gefa ekki kost á sér áfram sem rit-
ari Samfylkingarinnar á landsfundi
flokksins sem hefst á morgun.
Steinunn var kosin ritari á stofn-
fundi Samfylkingarinnar í maí
2000.
,,Ástæðurnar eru fyrst og fremst
þær að ég ætla að einbeita mér að
borgarmálunum. Það verða borg-
arstjórnarkosningar í maí og fram-
undan er því kosningavetur og ef-
laust harður slagur. Ég ætla að
einhenda mér í þann slag og láta
annað bíða á meðan. Mér hefur
heldur ekki fundist ég geta sinnt
störfum mínum fyrir Samfylk-
inguna eða innan framkvæmda-
stjórnarinnar af eins miklum krafti
og ég hefði kosið vegna þess hve
ég hef verið upptekin af borgar-
málunum,“ segir Steinunn Valdís.
Hún segir jafnframt að ef ákveðið
verði að viðhafa prófkjör innan
Samfylkingarinnar fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar ætli hún sér
stóra hluti þar.
Kjósa þarf nýjan formann
framkvæmdastjórnar
Einnig er orðið ljóst að kjósa
þarf nýjan formann framkvæmda-
stjórnar á landsfundi Samfylking-
arinnar um helgina en Ágúst Ein-
arsson prófessor sem verið hefur
formaður framkvæmdastjórnar frá
stofnun flokksins tilkynnti fyrir
nokkru að hann gæfi ekki kost á
sér til endurkjörs.
Gefur ekki
kost á sér
til endur-
kjörs
Steinunn V.
Óskarsdóttir, ritari
Samfylkingar
HREPPSNEFND Gerðahrepps
samþykkti á fundi sínum í gær-
kvöldi að auglýsa hið fyrsta
stöður skólastjóra og aðstoðar-
skólastjóra Gerðaskóla lausar til
umsóknar.
Skólastjórnendurnir hafa sagt
upp störfum vegna óánægju
með áhrif kjarasamninga kenn-
arasamtakanna við launanefnd
sveitarfélaga og hafa þeir óskað
eftir leiðréttingu Gerðahrepps.
Fram hefur komið hjá sveitar-
stjórnendum Gerðahrepps að
hreppurinn væri bundinn af
samningum launanefndar sveit-
arfélaga.
Tveir sátu hjá
Tillagan sem meirihluti F-
listans lagði fram var samþykkt
í gærkvöldi með 5 atkvæðum en
tveir hreppsnefndarmenn sátu
hjá.
Samþykkt að
auglýsa stöður
við Gerðaskóla