Morgunblaðið - 15.11.2001, Side 16

Morgunblaðið - 15.11.2001, Side 16
FRÉTTIR 16 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ REYNT var á níunda áratugnum aðmóta flotastefnu á Norður-Atl-antshafi sem beindist að því að eftil átaka kæmi við Sovétmenn yrði Ísland fremur einn af bakvörðum í vörnum Vesturlanda en að hér yrði vígvöllur, að sögn Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra. Kom þetta fram á fjölmennum fundi sem Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg héldu í gær á Hótel Sögu til að kynna nýja bók Björns en í henni er úrval blaðagreina sem hann hefur ritað undanfarinn aldarfjórð- ung um utanríkis- og alþjóðamál. Bókin nefn- ist Í hita kalda stríðsins. Jakob Ásgeirsson, útgáfustjóri Nýja bóka- félagsins, fór í upphafi nokkrum orðum um bókina og höfundinn og sagði meðal annars athyglisvert að ekki hefði þurft að gera nein- ar breytingar á greinunum þótt langt væri um liðið síðan sumar þeirra hefðu birst. Síðan fylgdi Björn Bjarnason ritverki sínu úr hlaði. Björn var í mörg ár aðstoðarritstjóri Morg- unblaðsins áður en hann hóf virk afskipti af stjórnmálum með framboði til Alþingis fyrir áratug. Hann sagði greinarnar margar fjalla um atburði á níunda áratugnum en þá hefði orðið mikil uppbygging í vörnum Vesturlanda á Norður-Atlantshafi og ekki síst á Íslandi vegna vaxandi útþenslu Sovétríkjanna á svæðinu, bæði á sjó og í lofti. Spennan hefði magnast stöðugt og Ísland hefði verið í miðju þessara átaka. „Eftir því sem þróunin varð örari og meiri áhersla var lögð á að koma hér fyrir tækja- búnaði var um leið lögð áhersla lögð á að þróa varnarstefnu Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjanna á Norður-Atlantshafi með það í huga að hugsanleg átök færu fram sem fjærst Íslandi, sem nyrst á hafinu. Flotastefn- an sem Bandaríkjamenn mótuðu á þessum tíma tók mið af því að ekki yrði unnt, að minnsta kosti ekki í fyrstu atrennu, að her- taka Ísland. Það yrði hluti af bakvarðasveit- inni ef þannig mætti að orði komast, átökin yrðu sem næst Kólaskaganum og á Barents- hafi.“ Deilan um kjarnorkuvopn Sjálfur segist Björn sannfærður um að bandarísk stjórnvöld hafi ekki aðeins í orði heldur einnig í verki staðið við loforð um að hér yrðu ekki kjarnavopn. Hann segir ein- kennilegt hvernig Ísland hafi stöðugt verið dregið inn í umræður vestanhafs af banda- rískum aðilum um þessi mál. Markmið þeirra sé að knýja Bandaríkjastjórn til að breyta þeirri ákveðnu stefnu sinni að játa aldrei eða neita þegar spurt er hvort kjarnavopn séu á einhverjum tilteknum stað. Ísland verði eins konar leiksoppur í þessum deilum. Þeir Albert Jónsson stjórnmálafræðingur og Ásgeir Sverrisson blaðamaður sögðu álit sitt á bókinni. Þeir voru sammála um að at- hygli vekti hve margt í henni ætti beint erindi við umræður í samtímanum. Albert sagði að hún snerist ekki síst um baráttu fyrir frelsi og lýðræði og slíkt rit ætti auðvitað alltaf erindi við samtímann. En í henni væri einnig tekið á úrlausnarefnum líðandi stundar. Þetta komi til dæmis vel fram í greininni Staða Íslands í vályndri veröld þar sem Björn segi að sú staða að ríki Norður-Ameríku og Vestur-Evr- ópu sameinist um að tryggja öryggishags- muni sína sé „óskastaða frá íslenskum sjón- arhóli“. En ef Bandaríkjamenn drægju úr skuldbindingum sínum gagnvart vörnum Evrópu yrðu Íslendingar settir í mjög erfiða stöðu. „Til að komast hjá því að þurfa að velja á milli Evrópu og Norður-Ameríku hljóta þeir að leggja sig fram um að viðhalda núverandi skipan,“ segir í grein Björns. Greinin var birt 1980 en Albert sagði að hugsunin að baki þessari grein og stöðu Íslands í því samhengi hefði síðustu tíu árin orðið vaxandi þáttur í málflutningi íslenskra stjórnvalda vegna mót- unar sameiginlegrar öryggis- og varnarmála- stefnu Evrópusambandsins. Einnig minnti Albert á þekkt erindi sem Björn hefði flutt um aukna þátttöku Íslendinga í vörnum landsins árið 1995. Berlínarmúr og líbanskir vígamenn Ásgeir rifjaði upp að haustið 1989 hefði Björn haft umsjón með erlendum fréttum en brugðið sér til útlanda. Er hann hefði kvatt hefði hann sagt: „Á meðan ég er í burtu hryn- ur Berlínarmúrinn.“ Sagðist Ásgeir hafa ver- ið vægast sagt vantrúaður en spásögn Björns hefði ræst. Ásgeir sagði greinaflokk Björns um ferð til Líbanons sýna glöggt hve góður blaðamaður Björn væri, forvitinn, nákvæmur og skipu- lagður, einnig væri eftirminnileg grein um heimsókn árið 1987 til andófsmannsins Andr- ei Sakharovs og eiginkonu hans, Jelenu Bonner í Moskvu í tíð síðasta Sovétleiðtog- ans, Míkhaíls Gorbatsjovs. Í greinunum sem fjölluðu um herfræði og varnarviðbúnað Atl- antshafsbandalagsins væri að finna mjög mikilvægt safn ýmiss konar bakgrunnsupp- lýsinga sem myndu nýtast öllum vel er hygð- ust fjalla um tímabilið. Þekking Björns á við- fangsefninu og nákvæmni í framsetningu væru til mikillar fyrirmyndar. Sama væri um þær greinar að segja þar sem Björn svaraði andstæðingum þátttöku Íslands í vestrænu varnarsamstarfi, beitt væri rökum og þekk- ingu. Á Íslandi hefði lengi verið viðtekin hefð að líta svo á að öll umfjöllun um hernað og varnir væri óviðeigandi og því yrði að telja það hugrekki hjá höfundinum að ganga á hólm við slíkar hefðir. „Björn leggur ýmislegt á sig til að afla sér þekkingar,“ sagði Ásgeir. „Hann sígur úr þyrlu niður á þilfar herskips, virðir fyrir sér varðstöðvar í Líbanon og aflar þar upplýsinga en á meðan reynir Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, að mynda með mikilli leynd unga líbanska víga- menn þar sem þeir handleika Kalasníkov- riffla sína,“ sagði Ásgeir. Þór Whitehead sagnfræðingur spurði Björn hvort hann hefði einhvern tímann ótt- ast að stuðningsmenn varnarsamstarfsins hér á landi yrðu undir. Svaraði Björn því til að í landhelgisdeilunum á áttunda áratugnum hefði hann stundum velt fyrir sér hvort menn væru reiðubúnir að fórna samstarfinu vegna landhelgismálanna. „Ég held að staðfesta Geirs Hallgrímssonar á þeim tíma hafi ráðið úrslitum að því leyti að málið fór ekki lengra en hætta var á þegar það var á vissu stigi,“ sagði Björn Bjarnason. Markmiðið var að ekki yrði barist á Íslandi Flotaáætlanir Bandaríkjamanna undir lok kalda stríðsins miðuðust að sögn Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra við að hugsanleg hernaðarátök við Sovétmenn yrðu við Kólaskaga og á Barentshafi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Björn Bjarnason á fundi Samtaka um vestræna samvinnu/Varðbergs þar sem bókin Í hita kalda stríðsins var kynnt en hún kemur út í mánuðinum. Björn varð 57 ára í gær. Honum á vinstri hönd sitja Albert Jónsson og Ásgeir Sverrisson sem sögðu álit sitt á bókinni. MJÖG dræm rjúpnaveiði hefur verið það sem af er tímabili og hefur snjóleysið fyrst og fremst sett strik í reikninginn auk þess sem flestir rjúpnastofnar eru í lágmarki víðast hvar á landinu. Verðið í verslunum virðist vera svipað og í fyrra en framboð er enn lítið. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Ís- lands, segir að veiðin hafi farið mjög rólega af stað. Lítið sé um rjúpu og lítill snjór og því sé hún mjög dreifð. Menn þurfi að hafa mikið fyrir að ná henni og í heildina hafi verið afar treg veiði. Sumir atvinnumann- anna séu reyndar hættir og kenni veðrinu helst um en það litla sem hafi verið af snjó á suðaustanverðu land- inu hafi til dæmis tekið upp í rigningunni fyrir helgi. Edvard Friðjónsson, deildarstjóri í kjötdeild Fjarð- arkaupa, segir nánast ekkert hafa borist af rjúpu og ekki sé búið að verðleggja hana enda hún ekki farin í sölu, en hún sé dýr í innkaupi. Í fyrra hafi verðið verið 675 kr. fyrir rjúpuna en hamflett rjúpa hafi verið 100 kr. dýrari og gera megi ráð fyrir að hún verði eitthvað dýrari í ár. Guðmundur Hauksson, deildarstjóri í kjötdeild Nóatúns við Hringbraut, segir að rjúpan sé farin að tínast inn og verðið sé það sama og í fyrra, 759 krónur fyrir óhamfletta og 859 kr. fyrir hamfletta rjúpu. Rjúpnaveiðin er enn dræm VÍÐTÆK bilun varð í fastlínukerfi Landssímans síðdegis í gær með þeim afleiðingum að símasam- bandslaust var á svæðinu frá Tré- kyllisvík á Vestfjörðum allt til Þórs- hafnar á Langanesi. Sambands- leysið átti rót að rekja til bilunar í stjórntölvu svæðisskrifstofu Lands- símans á Akureyri og var ekkert símasamband milli klukkan 16.40 og 17.15 eða þar til fullnaðarviðgerð lauk. Bilunin hafði ekki áhrif á far- símakerfið. Símasambands- laust fyrir norðan JEPPI valt á Lágheiði í gærkvöldi. Ökumaður var einn á ferð en sak- aði ekki. Bíllinn er hins vegar mjög mikið skemmdur. Óhappið varð neðarlega á Lág- heiðinni, Ólafsfjarðarmegin. Hálkublettir voru á veginum og missti ökumaðurinn stjórn á bílnum í hálkunni. Hann fór heilan hring og stöðvaðist á veginum. Ökumað- urinn, sem var á leið frá Siglufirði á Árskógssand, þurfti að leita læknis, en er ekki talinn mikið meiddur. Morgunblaðið/Halldór Halldórsson Bílvelta á Lágheiði TVEIR erlendir ferðamenn festu fólksbíl sinn á Kaldadalsheiði í fyrradag en þeir voru þá á ferð um Uxahryggi og Kaldadal, samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu. Fólkið komst í neyðarskýli á Kaldadalsheiði og náði sambandi við Reykjavíkurradíó. Björgunarsveitin Tintron í Grímsnesi var kölluð út og komu fé- lagar í sveitinni fólkinu til aðstoðar og komu þeim og bílnum til byggða. Að sögn Valgeirs Elíassonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, er umferðarmerki við veginn sem segir til um að vegurinn sé lokaður. Þrjár björgunarsveitir á Austur- landi voru kallaðar út kl. 18.22 í fyrradag til að leita að manni sem farið hafði á fjórhjóli til að aðgæta rafmagnslínur á Eskifjarðarheiði. Maðurinn lagði upp úr Tungudal og var væntanlegur niður af heiðinni um klukkan 16.30. Félagi mannsins leitaði til lögreglu þegar maðurinn skilaði sér ekki á umræddum tíma. Um klukkustund eftir að björg- unarveitarmenn voru kallaðir út gengu þeir fram á manninn þar sem hann átti um fimm kílómetra ófarna til Eskifjarðar. Fjórhjól mannsins hafði bilað á heiðinni og hann því haldið gangandi til byggða. Maðurinn var vel á sig kominn enda vel útbúinn til vetr- arferða. Festu fólksbílinn á Kaldadalsheiði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.