Morgunblaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 19
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 19 SLYSAVARNAFÉLAGIÐ Lands- björg stóð nýverið fyrir námskeiði fyrir lækna, hjúkrunarfræðinga og bráðatækna sem þurfa að veita fyrstu hjálp og sérhæfða aðstoð utan spítala, s.s. í óbyggðum og á vettvangi bíl- slysa, þar sem mannskapur og tækja- búnaður er af skornum skammti. Námskeiðið var haldið í þjálfunarbúð- um Slysavarnafélagsins Landsbjarg- ar á Gufuskálum. Valgeir Elíasson, upplýsinga- fulltrúi Slysavarnafélagsins Lands- bjargar, segir að ástæðuna fyrir slíku námskeiði megi rekja til þeirra alvar- legu slysa sem orðið hafa undanfarin misseri á hálendinu, m.a. rútu- slysanna þar sem bjarga þurfti fjölda manns af slysstað. „Þá fórum við að upplifa að þurfa að flytja sérhæft hjúkrunarfólk á vettvang og þar þurfti fólk að vinna við allt aðrar aðstæður en eru á spítul- unum þar sem menn hafa allt til alls. Það var kveikjan að þessu, en íslensk- ir læknar og hjúkrunarfræðingar hafa staðið sig mjög vel á vettvangi hingað til og ætíð gert það besta sem hægt er úr hlutunum,“ segir Valgeir. Sérstakt námskeið Að sögn Valgeirs er námskeiðið mjög sérstakt og var mjög hæfur leið- beinandi fenginn frá Bandaríkjunum, dr. David Johnson, en hann starfar sem læknir á bráðamóttöku í Atlanta. Hann er jafnframt stjórnarformaður og faglegur ráðgjafi Wilderness Medical Associates og er sérfræðing- ur í meðhöndlun sjúklinga á vett- vangi, bæði í byggð og óbyggðum. „Það eru ekki mörg ár síðan þetta varð sérstök fræðigrein hjá þeim, því þetta er frekar nýtt í faginu. Enda er það að gerast í heiminum að almenn- ingur ferðast mun meira og það þýðir að það verða ákveðin slys sem reyna meira á heilbrigðiskerfið og þá aðila sem koma að björgun,“ segir Valgeir. Frá námskeiði Landsbjargar í Gufuskálum þar sem nemendur lærðu m.a. að búa um sjúklinga fyrir flutning af vettvangi. Leiðbeinandinn, dr. David Johnson, fylgist með í bakgrunni. Námskeið í björgun slasaðra í óbyggðum EÐLISFRÆÐIFÉLAG Íslands heldur um helgina ráðstefnu í hátíð- arsal Háskóla Íslands sem hefur það að markmiði að kynna rannsóknir í eðlisfræði hér á landi. Vel á þriðja tug íslenskra eðlisfræðinga mun halda er- indi en einnig munu nokkrir erlendir eðlisfræðingar kynna rannsóknir sín- ar. Viðar Guðmundsson, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands, sem jafnframt er ráðstefnustjóri segir ráðstefnuna vera opna öllu áhugafólki um eðlisfræði. „Við ætlum að hafa þetta opið fyrir almenning og reynum að höfða sérstaklega m.a. til nema í framhaldsskólum og miðum fyrir- lestrana við það,“ segir hann. Meðal umfjöllunarefna á ráðstefn- unni nefnir hann fyrstu myndatökur af atómum með smugsjá á Íslandi, lit- brigði vetrarbrautanna, afstæðilega eldstróka og þurrís sem slökkviefni svo fátt eitt sé nefnt. „Dagskrá [ráð- stefnunnar] sýnir að mikil gróska er í rannsóknum í eðlisfræði á landinu,“ segir m.a. í fréttatilkynningu um ráð- stefnuna. Ráðstefnan hefst kl. 10 nk. laugar- dagsmorgun en öll erindin verða að sögn Viðars flutt í hátíðarsal Háskól- ans. Ráðstefnunni lýkur kl. 18 á sunnudag. Auk erinda verður sett upp veggspjaldasýning í húsakynnum Háskólans en á þeim verða líka kynntar niðurstöður rannsókna í eðl- isfræði. Eðlisfræðiráðstefna um helgina Gróska í rannsókn- um í eðlis- fræði ♦ ♦ ♦ Ókeypis lögfræðiaðstoð öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012 Orator, félag laganema 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.