Morgunblaðið - 15.11.2001, Page 22
AKUREYRI
22 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KARLMAÐUR hefur verið dæmdur
í Héraðsdómi Norðurlands eystra í 45
daga fangelsi, sem skilorðsbundið er
til þriggja ára. Maðurinn var ákærður
fyrir kynferðisbrot, annars vegar að
hafa berað kynfæri sín í viðurvist
telpu og hins vegar að hafa sýnt syst-
ur hennar klámmyndband, berað
kynfæri sín, farið um þau höndum og
reynt að láta hana snerta sig.
Maðurinn neitaði sakargiftum hvað
fyrrnefnda brotið varðar og komst
dómurinn að þeirri niðurstöðu að var-
hugavert væri að telja sannað gegn
eindreginni neitun hans að hann hafi
gerst sekur um þá háttsemi. Maður-
inn var hins vegar sakfelldur fyrir síð-
ara brotið að hluta. Neitaði hann al-
farið sakargiftum, en bar að hann hafi
verið að horfa á myndbandið er stúlk-
an hafi komið honum að óvörum og
náð að sjá myndefnið um stutta stund.
Maðurinn var undir áhrifum áfengis í
umrætt sinn og að áliti dómsins varð
ekki hjá því litið að hann á samkvæmt
eign frásögn vanda til að missa minni
við þær aðstæður. Sannað þótti að
stúlkan hafi horft á myndbandið
stutta stund og fylgst með manninum
fitla við kynfæri sín. Var hann sak-
felldur fyrir þá háttsemi, en hann var
sýknaður af ákæru um að hafa tekið í
hönd stúlkunnar með þeim ásetningi
að láta hana snerta sig.
Dómurinn var fjölskipaður, Ólafur
Ólafsson héraðsdómari var dómsfor-
maður, en með honum kváðu upp
dóminn þeir Ásgeir Pétur Ásgeirsson
héraðsdómari og Halldór Halldórs-
son dómstjóri.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
Fangelsi vegna
kynferðisbrots
ÞORMÓÐUR rammi – Sæberg í
Ólafsfirði og Slippstöðin á Akureyri
hafa undirritað samning um umtals-
verða endurbyggingu á frystitogar-
anum Mánabergi ÓF 42. Þessi samn-
ingur er einn sá stærsti sem gerður
hefur verið í Slippstöðinni á síðustu
árum og er reiknað með að nokkrir
tugir starfsmanna verði í vinnu við
þetta verkefni næsta hálfa árið.
Helstu verkþættir eru endurnýjun
á togdekki og vinnslulínu á milli-
dekki. Baldvin Valdemarsson fram-
kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar
sagði að samingur þessara aðila væri
mikið ánægjuefni ekki síst þar sem
verkefni sem þessi hafi öll farið utan
undanfarin ár. Hann sagði að vissu-
lega hefðu gengismálin haft þarna já-
kvæð áhrif.
Samningurinn hefur átt nokkurn
aðdraganda, í honum er gengið út frá
lágmörkun heildarkostnaðar útgerð-
arinnar við endurbætur á skipinu.
Mánaberg er fengsælt skip með
mikið aflaverðmæti og miklar tafir
frá veiðum erum því kostnaðarsamar.
Einn meginþáttur verksins er þess
vegna að stytta það tímabil sem skip-
ið er frá veiðum.
Nýir skipshlutar forsmíðaðir
Undirbúningur og hönnun breyt-
inganna gera því ráð fyrir að hinir
nýju skipshlutar verði forsmíðar hjá
Slippstöðinni. Vinna við verkið hefst
á næstu dögum en skipið sjálft kemur
ekki til viðgerðar fyrr en um miðjan
mars á næsta ári. Ráðgert er að skip-
ið komist aftur til veiða í maí nk.
Breytingarnar voru hannaðar af
Teiknistofu KGÞ á Akureyri en bún-
aður í nýja vinnslulínu verður frá
Slippstöðinni og Marel.
Verkefnastaða Slippstöðvarinnar
er mjög góð miðað við árstíma og út-
litið framundan gott. Þar er nú m.a.
unnið að endurbótum á tveimur tog-
urunum í eigu Fiskafurða, unnið er
að endurbótum á togaranum Stálvík
SI, sem er í eigu Þormóðs ramma –
Sæbergs. Vinnu við Kaldbak EA er
nýlokið og vinna við Harðbak EA haf-
in en báðir togararnir eru í eigu ÚA.
Starfsmenn rúmlega
eitt hundrað
Hjá Slippstöðinni starfa nú rúm-
lega 100 manns en Baldvin sagði að
þrátt fyrir góða verkefnastöðu stæði
ekki til að fjölga starfsmönnum. Að-
spurður sagðist hann verða var við
töluverðan áhuga ungs fólks á járn-
smíði og vélvirkjun. Þar eru nú 7
nemar á námssamningi og nokkrir á
biðlista eftir að komast á samning.
Hjá fyrirtækinu starfa menn á öllum
aldri en stærsti einstaki hópurinn er
þó aðeins á þrítugsaldri.
Slippstöðin sér um endurbyggingu Mánabergs ÓF
Einn stærsti samningur
fyrirtækisins til þessa
SÉRA Magnús Gunnarsson sóknar-
prestur Grímseyjar og Dalvíkur kom
heldur betur færandi hendi til eyj-
arinnar nú nýlega.
Meðferðis hafði hann skákborð
sem smíðað var í tilefni heimsmeist-
aramóts Fishers og Spasskys árið
1972. Magnús hafði fengið borðið að
gjöf frá föður sínum, Gunnari Magn-
ússyni húsgagnaarkitekt.
Gunnar hafði á sínum tíma verið
fenginn til að hanna keppnisborð
heimsmeistarakeppninnar sem var
haldin í Reykjavík og vakti feiki-
áhuga manna um heim allan. Þegar
séra Magnús var settur sóknarprest-
ur Grímseyinga tengdi hann borðið
góða strax við Grímsey og stórvin
eyjarinnar, dr. Fiske, sem var einn
af frumkvöðlum skáklistarinnar hér
á landi og í heiminum. Fannst Magn-
úsi mjög viðeigandi að koma með
þessa gjöf einmitt á fæðingardegi dr.
Fiske 11. nóvember sem jafnframt
er hátíðis- og nánast þjóðhátíðardag-
ur eyjarbúa. Skákborðið er eitt af
mjög fáum borðum sem smíðuð voru
í tilefni heimsmeistarakeppninnar.
Fisher og Spassky árituðu borðin.
Einnig fylgdu gjöf séra Magnúsar
minnispeningar frá heimsmeistara-
mótinu sem Bárður Jóhannesson
listamaður smíðaði og eru þeir úr
gulli, silfri og bronsi.
Þessir kjörgripir munu fá heiðurs-
sess á Eyjarbókasafninu við hlið
marmaraborðsins sem dr. Fiske
sendi Grímseyingum fyrir réttum
hundrað árum.
Merkilegt skák-
borð afhent
Séra Magnús Gunnarsson sókn-
arprestur færði Sigrúnu Þor-
láksdóttur, formanni kvenfé-
lagsins Baugs, taflborðið.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Grímsey
VEÐRIÐ lék við Akureyringa í gærdag, en eilítið er
orðið drungalegra um að litast eftir að allan snjó tók
upp í blíðunni í fyrrinótt. Þessir ungu krakkar í Lund-
arskóla þustu út og léku sér á skólalóðinni, enda veðr-
ið ekki amalegt. Þegar best lét fór hitinn í um 15 stig
sem verður að teljast allgott á þessum árstíma. Eins
og við er að búast í þessari hlýju sunnanátt hvarf
snjórinn sem safnast hafði saman í Hlíðarfjalli einnig
eins og dögg fyrir sólu og því má gera ráð fyrir að ein-
hvern tíma taki þar til nægilegur snjór safnast þar
fyrir að nýju svo hægt verði að renna sér á skíðum.
Unnið er að því að setja upp nýja stólalyftu í fjallinu
og án efa langar margan skíðamanninn að prófa þessa
glæsilegu lyftu.
Snjórinn hvarf eins og dögg fyrir sólu
Morgunblaðið/Kristján
Nemendur í Lundarskóla að leik í blíðunni í gær.
VILT þú hafa áhrif á menningar-
lega viðburði og taka þátt í spenn-
andi félagsstarfi? Þetta er yfirskrift
opins félagsfundar Gilfélagsins
fimmtudaginn 15. nóvember nk.
Fundurinn fer fram í Deiglunni á
Akureyri og hefst kl. 20.00. Þar
verður kynnt breytt umsýsla Gil-
félagsins og þá verða félagsmenn
virkjaðir til undirbúnings Listasum-
ars 2002, sem er það 10. í röðinni.
Allir velkomnir, félagsmenn jafnt
sem aðrir.
Gilfélagið til
framtíðar