Morgunblaðið - 15.11.2001, Síða 23

Morgunblaðið - 15.11.2001, Síða 23
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 23 NORRÆNI vísnakvartettinn Norde- nom leikur í Flugcafé í Kjarna í Kefla- vík frá kl. 20 í kvöld í tilefni af nor- rænni bókasafnsviku sem nú stendur yfir í Bókasafni Reykjanesbæjar. Kvartettinn skipa Norðmaðurinn Kalle Zwilgmeyer, Færeyingurinn Stanley Samuelsen, Svíinn Hans Er- iksson og Daninn Per Jensen. Allir eru þeir búsettir í Danmörku nema Svíinn sem býr í Noregi. Félagarnir leika á gítar og syngja á ýmsum norrænum málum. Þeir flytja bæði eigin lög og texta og sígildar norrænar vísur. Norrænn vísnasöngur Keflavík MEISTARAHÚS ehf. stefna að því að hefja í vor byggingu á íbúðarsvæði sem fyrirtækið hefur fengið úthlutað í Innri-Njarðvík. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur nú staðfest tillögu skipulags- og byggingar- nefndar um að úthluta fyrirtækinu svæðinu til skipulagningar og bygg- ingar. Skipulags- og byggingarnefnd Reykjanesbæjar lagði til að bygging- arverktakanum Meistarahúsum ehf. yrði úthlutað tilteknu svæði í Innri- Njarðvík, eins og fram hefur komið hér í blaðinu, og að fyrirtækinu yrði heimilað að deiliskipuleggja svæðið sem íbúðarbyggð og annast gatna- gerð, gegn því að gatnagerðargjöld verði ekki innheimt. Þegar málið kom til kasta bæjar- stjórnar lýsti Jóhann Geirdal, oddviti Samfylkingarinnar, yfir andstöðu minnihlutans við því að úthluta ódeili- skipulögðum svæðum til einstakra byggingaraðila, án þess að svæðin hefðu að minnsta kosti verið auglýst áður og skilmálar ákveðnir. Annar fulltrúi Samfylkingarinnar, Krist- mundur Ásmundsson, lagði til að til- lögunni yrði vísað til bæjarráðs. Meirihlutinn felldi tillögu Krist- mundar og var ákvörðun skipulags- og byggingarnefndar að svo búnu staðfest. 50–60 íbúðir byggðar Umrætt byggingarsvæði er þrí- hyrningur sem liggur frá verksmiðju- húsi við Reykjanesbraut sem kennt er við Ramma og niður að sjó. Það af- markast af Njarðarbraut að sunnan, Seylubraut að austan og Njarðvíkur- fitjum að norðan og vestan. Að sögn Jóns Ármanns Arnodds- sonar, eins af eigendum Meistara- húsa ehf., er næsta skrefið að láta skipuleggja hverfið. Reiknar hann með að hægt verði að koma þar fyrir 50–60 íbúðum. Telur Jón Ármann að mest verði byggt af rað- og parhúsum á svæðinu. Mesta eftirspurnin sé eftir þannig íbúðum um þessar mundir enda sé verið að byggja mikið af blokkaríbúð- um. „Við munum byggja það sem markaðurinn vill,“ segir hann. Segir Jón íbúðir af þessu tagi hafi vantað á markaðinn. Ekki sé þó gott að spá í framtíðina því einhver samdráttar- hugur sé kominn í fólk. „En við byggjum ódýrt og þá verða til nógir kaupendur,“ segir hann. Meistarahús ehf. fá úthlutað svæði til skipulagningar Hyggjast byggja rað- og parhús                            Innri-Njarðvík SPARISJÓÐURINN í Keflavík hef- ur gefið grunnskólum og leik- skólum á Suðurnesjum fræðandi tölvuleik. Þá geta öll börn sem koma og tæma baukinn sinn í Sparisjóðnum valið um að fá leikinn eða sögu- og litabók. Sparisjóðirnir í landinu ákváðu að gleðja félaga í Krónu og Króna krakkaklúbbnum með þessum hætti í tilefni þess að vetur er geng- inn í garð. Tölvuleikurinn nefnist Króni og Króna í Leikjalandi og er hannaður af fjórum stúlkum í Háskólanum í Reykjavík. Hann er byggður upp sem skemmtun og fræðsla. Hin gjöf Krónufélaganna er sögubók eftir Friðrik Erlingsson, Króni og Króna í Smáralandi, og er líka litabók. Ágústa Ragnarsdóttir teiknaði myndirnar. Björn Kristinsson, þjónustustjóri Sparisjóðsins í Keflavík, og Gerður Pétursdóttir, leikskólastjóri á Hjallatúni, sýna börnunum tölvuleikinn. Sparisjóðurinn gefur tölvuleik í skólana Reykjanes ALLIR leikskólarnir sjö í Reykja- nesbæ taka sig saman um dagskrá á Degi íslenskrar tungu sem verður á morgun, föstudag. Dagskráin verður flutt í Frumleikhúsinu í tvennu lagi, kl. 10 og kl. 14. Elstu börnin í leikskólanum flytja atriðin sem eru eitt til tvö úr hverj- um skóla, samkvæmt upplýsingum Ingibjargar Hilmarsdóttur leik- skólastjóra á Heiðarseli. Leikskólarnir heita Heiðarsel, Gimli, Garðasel, Hjallatún, Holt, Tjarnasel og Vesturberg. Foreldrum barnanna er boðið í Frumleikhúsið. Leikskóla- börn syngja og leika Keflavík/Njarðvík EKKI reyndist vera miltisbrandur í hvíta duftinu sem hrundi út úr um- slagi sem fylgdi kaffibaunasendingu sem Kaffitár ehf. fékk frá Rúanda. Að sögn Guðrúnar Sigmundsdótt- ur, smitsjúkdómafræðings á sýkla- deild Landspítala – háskólasjúkra- húss, kom þetta fram við ræktun. Deildin mun ljúka endanlega rann- sókn sinni á duftinu í dag og segir Guðrún að það sé síðan í ákvörðunar- valdi lögreglunnar hvað gert verði við það. Hún segist engar upplýsing- ar hafa um hvers konar efni sé þarna um að ræða, annað en að það sé ekki miltisbrandur. Ekki miltis- brandur í duftinu Njarðvík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.