Morgunblaðið - 15.11.2001, Side 24
SUÐURNES
24 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sími miðasölu: 511 4200
Næturdrottningin telur prinsinn Tamínó á að frelsa dóttur
hennar, Pamínu, úr höndum æðstaprestsins Sarastrós.
Næturdrottningin og Sarastró berjast um völdin; í upphafi
virðist hún fyrst og fremst vera umhyggjusöm móðir en
breytist í valdasjúka norn sem svífst einskis til að koma
Sarastró og félögum hans á kné.
Sarastró er æðstiprestur hinna innvígðu þjóna réttlætisins.
Hann hefur látið ræna Pamínu frá næturdrottningunni,
móður hennar, til að bjarga henni frá illum örlögum eftir
fráfall föður hennar. Sarastró leggur þrautir fyrir prinsinn
Tamínó til að hann sanni sig sem verðugur þess að eignast
Pamínu fyrir konu. Í upphafi er Sarastró sagður miskunnar-
laust illmenni en reynist alvitur mannvinur.
Aðeins fjórar sýningar eftir – engar aukasýningar
– missið ekki af frábærri skemmtun!
Athugið breytilegan sýningartíma.
– töfraheimur á sviði Íslensku óperunnar
GUÐRÚN GUÐJÓN
LANDIÐ
MÁNUDAGINN 12. nóvember
hófst á Egilsstöðum norræn bóka-
safnavika og er það árviss við-
burður á öllum Norðurlöndunum.
Upphafsatriði vikunnar er æv-
inlega það sama í öllum söfnum
sem þátt taka og fer fram við
kertaljós. Að þessu sinni hefur vik-
an yfirskriftina Í ljósaskiptunum –
Orð og tónar á Norðurlöndunum.
Að þessu sinni voru fluttir söng-
textar eftir Bellmann, Benny And-
erson og Torbjorn Egner. Flytj-
endur voru þeir Björn Hafþór
Guðmundsson bæjarstjóri, Stefán
Bragason bæjarritari og Eggert
Sigtryggsson byggingaeftirlits-
maður. Helga Guðmundsdóttir,
forstöðumaður fræðslu- og menn-
ingarsviðs, sagði frá söngtextum
og höfundum þeirra og að því
búnu stigu þremenningarnir fram
í kertaljósið með gítara sína og
kyrjuðu textana og rödduðu á
stöku stað við góðar undirtektir.
Það er svokallaður PR-hópur
norrænna bókasafna sem stendur
að þessari vikulöngu dagskrá,
ásamt norrænu félögunum og með
styrk frá norrænu ráðherranefnd-
inni.
Fleiri dagskrárliðir voru fram
eftir vikunni í bókasafni Hér-
aðsbúa. Má þar nefna sýningu
sænskrar revíu og leikritsins Hér
stóð bær, sem Leikfélag Fljóts-
dalshéraðs sýndi 1994, hvort
tveggja sýnt á myndbandi. Í dag,
fimmtudag, er dagskráin helguð
Færeyjum og þá verður m.a. lesið
upp á færeysku og dagskránni lýk-
ur á degi íslenskrar tungu, með
söng og upplestri á ljóðum Jón-
asar Hallgrímssonar.
Morgunblaðið/Steinunn
Piparkökusöngur Torbjorns Egner fluttur á bókasafnaviku. F.v. Björn
Hafþór Guðmundsson, Stefán Bragason og Eggert Sigtryggsson.
Bæjarstjórinn söng
piparkökusönginn
Egilsstaðir
Bókasafnsvika á Egilsstöðum
NÚ NÝLEGA afhentu stjórnarkon-
ur í Kvenfélagi Hrunamanna 19
nemendum í 9. bekk Flúðaskóla bók-
ina Fíkniefni og forvarnir, sem ný-
lega er komin út, sem gjöf frá kven-
félaginu. Ásdís Bjarnadóttir,
formaður félagsins, lagði á það
áherslu í ávarpi sínu til nemendanna
við þetta tækifæri að þau læsu bók
þessa vandlega og hefðu hana oft við
hendina, hún ætti ekki að fara upp í
hillu. „Í þessari bók getið þið séð
margt, til dæmis veruleg áhrif reyk-
inga á líkamann ykkar þegar þið er-
uð að þroskast og þið getið sjálf met-
ið það hvort þið viljið láta hafa slík
áhrif á líkama ykkar. Einnig áhrif
áfengis og fíkniefna á líkamann. Þið
skuluð taka eftir því hvað hver svona
bók kostar, það er um 5.000 krónur,
hér er um vandaða útgáfu að ræða.“
Ásdís sagði að það málefni sem
kvenfélagið vildi styrkja þetta ár
væri gjöf á þessari bók sem er ný-
lega komin út. Hér væri um vandað
rit að ræða sem hverjum unglingi
væri hollt að lesa. „Vettvangur fé-
lagsins er að styðja við málefni sem
þetta og okkur fannst það vel til
fundið nú,“ sagði Ásdís. Valgarður
Líndal Jónsson sem nú gegnir starfi
skólastjóra í stað Jóhönnu Vilbergs-
dóttur þakkaði gjöfina fyrir hönd
nemenda.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Nemendur níunda bekkjar Flúðaskóla ásamt Valgarði Líndal Jónssyni sem
nú gegnir starfi skólastjóra ásamt stjórnarkonum kvenfélagsins, Ásdísi
Bjarnadóttur, Guðbjörgu Runólfsdóttur og Margréti Óskarsdóttur.
Gáfu 9. bekk
forvarnabókina
Hrunamannahreppur
ÍSTAK átti lægsta tilboð í bygg-
ingu húsnæðis Saltfiskseturs Ís-
lands í Grindavík. Tillaga Ís-
lenskra aðalverktaka að
húsnæðinu var talin best en reynd-
ist hins vegar dýrust í byggingu.
Fjórum verktökum var gefinn
kostur á að leggja fram tilboð í
alútboði á byggingu húsnæðis
Saltfiskseturs Íslands sem Grinda-
víkurbær og fyrirtæki og einstak-
lingar standa að.
Fyrirtækin lögðu fyrst fram
hugmyndir sínar og teikningar og
voru útfærslurnar metnar af sér-
stakri matsnefnd á vegum bygg-
ingarnefndar. Tillaga Íslenskra að-
alverktaka fékk bestu útkomuna,
1,15 stig. Ráðgjafar fyrirtækisins
eru Batteríið arkitektar og VSÓ-
Ráðgjöf. Tillaga Grindarinnar ehf.
sem unnin er af Teiknistofunni hf.
fékk 1,06. Tillaga sem Ístak hf.
lagði fram fékk 1,03 stig. Hönnuðir
eruYrki arkitektar, Ásdís H.
Ágústsdóttir og Sólveig Berg
Björnsdóttir arkitektar. Lægstu
einkunn í þessum samanburði fékk
tillaga Keflavíkurverktaka, 1,0
stig. Hún er gerð af Hönnun, Hús-
um og ráðgjöf ehf., Sigurbergi
Árnasyni arkitekt.
Tvö tilboð undir
kostnaðaráætlun
Í næsta áfanga lögðu fyrirtækin
fram verðtilboð í verkið, sam-
kvæmt áður gerðri hönnun. Kom
þá í ljós að Ístak var með lægsta
tilboðið en Íslenskir aðalverktakar
með það hæsta.
Kostnaðaráætlun verkkaupa
hljóðaði upp á 115,6 milljónir kr.
Tilboð Ístaks var 4 milljónum und-
ir því, eða 111,5 milljónir. Kefla-
víkurverktakar buðu 113,4 millj-
ónir og Grindin ehf. 116,6
milljónir. Tilboð Íslenskra aðal-
verktaka var hins vegar liðlega
15% yfir kostnaðaráætlun og
hljóðaði upp á 133,5 milljónir kr.
Að sögn Einars Njálssonar bæj-
arstjóra er verið að fara yfir til-
boðin og útfærslurnar. Mun
ákvörðun liggja fyrir í síðasta lagi
í byrjun næsta mánaðar.
Ístak með lægsta
tilboð í Saltfisksetur
Einar Njálsson bæjarstjóri
stendur við líkan og skýringar-
mynd af tillögu Ístaks hf.
Grindavík
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason