Morgunblaðið - 15.11.2001, Page 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 25
UNDANFARNA mánuði hefur
hópur fólks á Austurlandi unnið að
því að móta aðgerðir til að undirbúa
atvinnulífið í fjórðungnum fyrir ál-
vers- og virkjanaframkvæmdir. Í
dag funda þessir aðilar á Eskifirði,
ásamt forsvarsmönnum Þróunar-
stofu Austurlands, Sambands sveit-
arfélaga á Austurlandi og Sam-
starfsnefnd um staðarvalsathuganir
iðnaðarsvæða á Reyðarfirði. Til-
gangurinn er að samræma niður-
stöður og móta tillögur um aðgerðir.
Í kjölfar málþingsins Nýir tímar í
austfirsku atvinnulífi, sem haldið
var á Egilsstöðum í febrúar sl., voru
mótaðir fimm faghópar í þessum til-
gangi og frá þeim tíma hafa ríflega
áttatíu manns unnið að verkefninu.
Hóparnir greinast í þekkingargeira,
þjónustu, sjávarútveg og matvæla-
framleiðslu og verktaka, en þeim
var skipt upp í bygginga- og jarð-
vinnuverktaka og raf- og málmverk-
taka. Um er að ræða bæði stór og
smá fyrirtæki og einyrkja og koma
þeir alls staðar að úr fjórðungnum.
Fyrirtæki betur í stakk búin til
að laga sig að breytingum
Hóparnir hafa þegar sett fram
fjölmargar hugmyndir og ábending-
ar sem snerta samfélagið á Austur-
landi og framþróun í austfirsku at-
vinnulífi. Samkvæmt upplýsingum
frá framkvæmdaaðilum er horft á
umhverfið eins og það er í dag og
áhersla lögð á mikilvæg atriði sem
nauðsynlegt er að séu til staðar í
þeim auknu umsvifum sem fylgja
uppbyggingu stóriðju.
Ályktanir og tillögur hópanna
hafa víða verið til meðferðar og að-
alfundur Sambands sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi, sem haldinn
var á Vopnafirði í ágúst sl., tók fyrir
tillögur sem þeir höfðu mótað.
Elín Sigríður Einarsdóttir hjá
Hönnun hf. mun, ásamt Gunnari
Vignissyni hjá Þróunarstofu, sjá um
fundarstjórn og samantekt niður-
staðna á ráðstefnunni í dag. Hún
hefur haldið utan um vinnu hópanna
frá því í febrúar. Elín var spurð um
hvaða væntingar menn hafa til
fundarins á Eskifirði. „Við höfum
þær væntingar að þar komi fram
framkvæmdatillögur, sem auki
samkeppnishæfni fyrirtækja á
Austurlandi og geri þau betur í
stakk búin til að takast á við þau
stóru verkefni sem framundan eru.
Við ætlum svo atvinnulífinu að
fylgja þessu eftir.“
Kynningarfundur vegna aðlögunar austfirskra
fyrirtækja að virkjana- og stóriðjuframkvæmdum
Egilsstaðir
Boltinn gefinn yfir
til atvinnulífsins UNNIÐ hefur verið að því að hellu-leggja Skólastíginn frá Hafnargötuog upp að gamla barnaskólanum.
Verkið var boðið út í haust og
samið við B.J. verktaka ehf. í
Reykjavík sem áttu lægsta tilboð,
upp á tæpar 13 milljónir króna.
Kostnaður til viðbótar varðandi
hönnun, raflýsingu o.fl. er áætlaður
um 2 milljónir króna. Kaflinn sem
verður hellulagður er um 200 m og
mælist flöturinn um 1.200 fermetrar.
Notaður er fornsteinn A sem líkist
steini sem notaður var í götulagnir í
gamla daga en nú þarf ekki eins og
þá mannskap til þess að höggva
hvern stein heldur koma steinarnir í
5 mismunandi stærðum frá Vallá í
Reykjavík. Verklok verða um miðjan
nóvember.
Þessi hluti Skólastígsins er ein af
fáum götum bæjarins sem enn eru
malarbornar. Kaflinn er hluti af
gamla bænum og er framkvæmdin
þáttur í að fegra umhverfi gamla
miðbæjarins.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Þeir kunna handtökin við að helluleggja, starfsmenn B.J. verktaka, en þeim hefur miðað vel áfram við að helluleggja Skólastíginn í Hólminum.
Skóla-
stígurinn
hellulagður
Stykkishólmur
FREKARI rannsóknir á hita í
borholu í landi Þorpa á
Gálmaströnd leiddi í ljós að
hiti jókst eftir því sem neðar
dró og var mun hærri en
nokkur átti von á eða allt að
110°C að sögn Kristjáns Sæ-
mundssonar jarðfræðings hjá
Orkustofnun.
„Borholan var hitamæld um
síðustu helgi og þá kom í ljós
að þarna undir er heitt vatns-
kerfi, en það liggur nokkuð
djúpt eins og forrannsóknirn-
ar höfðu gefið til kynna.
Vatnskerfið reyndist vera
105-110°C heitt og er neðan
700 m dýpis. Vatn kom ekki í
holuna að ráði. Aðallega kom
það í tæpum 400 m og var það
um 50°C, en einungis smáæð-
ar sáust neðan 800 m. Heitt
vatn á stað eins og þessum er
efalaust tengt sprungum.
Varðandi framhaldið þarf að
haga borun þannig að í þær
hittist á réttu dýpi. Þar verð-
ur mest byggt á niðurstöðum
úr rannsóknarholunni þegar
meira liggur fyrir um hana,“
sagði Kristján.
Gefur
góðar vonir
Matthías Lýðsson oddviti
Kirkjubólshrepps er bjart-
sýnn á framhaldið. „Ég verð
að segja að þetta eru feikna-
miklar upplýsingar sem gefa
okkur vonir um góðan árang-
ur.“ Undanfarin ár hafa verið
boraðar á þessu svæði margar
grunnar holur til hitamælinga
víðs vegar um hreppinn.
Þetta heit vatnskerfi eru
ekki óþekkt á Vestfjörðum.
Má í því sambandi nefna
Reykhóla, Reykjanes við
Djúp og Dufansdal í nágrenni
Bíldudals, sem raunar færri
þekkja.
Mikill hiti
en vatnið
liggur
djúpt
Strandasýsla